Jólafríið er á enda og vinnan hafin á ný. Þetta er búin að vera lengsta pása frá bloggi hjá mér í langan tíma.
En það hefur eitt og annað á daga okkar drifið. Jólin gengu yfir með öllu því áti sem þeim fylgir.
Aðfangadagurinn var eins og aðfangadagar eru. Borðuðum hamborgarhrygg klukkan sex og tókum upp pakkana okkar. Ég fékk tvo pakka og Cordula einn. Svo spiluðum við fram eftir.
Við erum búin að fara seint á fætur alla daga eins og hefðin segir manni. Á jóladag ætluðum við að heimsækja Gullfoss en snerum við vegna hálku og fórum Þingvallahringinn í staðinn og stoppuðum við vatnið og borðuðum nestið í nístingskulda.
Annan í jólum fórum við aftur seint á fætur eins og lög segja til um. Brunuðum síðan að Snæfellsjökli. Komum svo við hjá Hauki og Rósu á Votalæk á leið til baka og enduðum í gistingu þar yfir nótt. Alltaf gaman að hitta þau og við drukkum nokkuð af Haukavatni.
Daginn eftir laugardag var brunað í bæinn. Bíó um kvöldið - Lord Of The Rings - Return Of The King.
Það var gaman. Mér þykir verst að nú er ekkert til að hlakka til lengur. Þríleikurinn búinn og ekkert að gera nema að bíða dauðans.
Á sunnudeginum vorum við heima mestan part dagsins og skruppum aðeins upp í Bláfjöll á skíði í stutta stund. Tókum svo videó og rifjuðum upp fyrsta Lordinn. Elduðum lambalæri í hléinu. Það klikkar aldrei.
Svo allt í allt er þetta búin að vera frábær jól.
En nú er kominn vinnudagur og allt er á fullu. Ég er að ganga frá bókhaldi ársins og Cordula ætlar að þýða fyrir mig heimasíðu galdranna yfir á þýsku.
Þetta er búin að vera þurr upptalning á staðreyndum undanfarna daga. Svo er nú það.
Ble-si
29 desember 2003
24 desember 2003
Ég hef aldrei verið mikið fyrir að senda jólakort, sem hefur hingað til stafað af fullkominni leti fyrir jólin. Svo upplifi ég aftur og aftur jól eftir jól sama samviskubitið yfir því þegar ég lít á hrúguna af jólakortunum sem stíluð eru á mig.
Ég sendi því hér með öllum sem ég þekki og þeim sem vilja þekkja mig hugheilar jólakveðjur sem eiga helst að duga langt fram á næsta ár.
En nú förum við að baka smákökurnar og græja forrétt kvöldsins því bráðum koma blessuð jólin. En fyrst verð ég að fara að kaupa kaffi og brauð. Það er að vísu allt á floti hérna í kringum húsið eftir meiriháttar sjógang í nótt við Ánanaustin og rottur um allt að því er mér skilst af fréttum mbl.is í morgun.
Ég hef ekki áhyggjur af því og finnst það bara jólalegt og ímynda mér bara að ég mæti hreindýri ef ég sé eina á vappi.
Ble-si
23 desember 2003
Við erum búin að standa í ströngu í dag myndi einhver segja. En þetta er skítauðvelt fyrir okkur. Versla jólagjafir, pakka þeim inn, fara í Ríkið og bera búsið heim, kaupa jólamatinn og koma honum fyrir í sínum geymslum, gera jólaísinn og setja hann í frysti, gera vanillusmákökudeigið og setja það í frysti fyrir baksturinn í fyrramálið.
Svo nú er bara hægt að fara oní bæ og slaka á og sýna sig og sjá aðra, fá sér í eina krús hér og kannski aðra þar, og jafnvel þriðja til og kaupa síðustu jólagjöfina.
Jólin? Ekkert mál!

22 desember 2003
Ég var að fá æðislegar fréttir rétt í þesu.
Íris says:
tad er kominn litill frændi i heiminn, kom um atta i morgun, ca 3900 g og 52 cm. Ragnhildur rosa stolt og anægd og fekk ad vera vidstodd tegar hann var badadur.
siggi says:
hahahaha hhæhæhæh. En gaman. Takk Íris.
Íris says:
ja
Íris says:
siggi says:
you make my day shine
Íris says:
híhí
Íris says:
bid rosa vel ad heilsa til islands....er ad skjotast nidur i bæ
siggi says:
ok

21 desember 2003
Við fórum í bíltúr í dag á Þingvelli. Það var nú svo hryllilega kalt þar að það lá við að það frysi undan mér. Svo ókum við á Selfoss og fengum okkur kakó og eplaköku á einu af mínum uppáhalds kaffihúsum á landinu.
Cordula fór á kostum þar í íslenskunni sinni. Hún óskaði þar afgreiðslukonunni gleðilegra jóla með þessum orðum:
- Leiðinleg hjól!
Afgreiðslan var ekki alveg að skilja hana en ég sprakk úr hlátri. Hún æfði sig síðan yfir Hellisheiðina og er farin að geta óskað öllum gleðilegra jóla á íslensku án þess að ég þurfi að flissa mikið.
Atli minn og Magga komu í heimsókn um það bil þegar við borðuðum kvöldmat og átu með okkur.
Hlynur frændi er tveggja ára í dag. Hann heldur upp á afmælið hjá afa sínum og ömmu í Horsens í Danmörku. Ég óska honum innilega til hamingju með daginn og ég er viss um að hann er ofsakátur eins og allir aðrir í kringum hann. Það er nefnilega ekki hjá því komið.

Við erum ekki búin að vera að gera neina stórkostlega hluti frá því Cordula kom. Ég fór þó með hana hingað og þangað í gærdag. Í gærkvöldi fórum við ekkert, vorum bara heima í rólegheitum.
Í dag þarf ég aftur á móti að fara í mikinn verslunarleiðangur í Bónus. Það er komið að því að versla fyrir jólin.
Fanney kemur í kvöld og ég fer og sæki hana út á flugvöll. Hún ætlar að gista hjá mér líka svo það verður líf og fjör í kotinu. Hún ætlar síðan með rútunni til Hríseyjar á morgun og halda jólin sín þar.
Ég hef alltaf verið hrifin af Hrísey og á þaðan góðar endurminningar.

20 desember 2003
19 desember 2003
Dóra Lubesky kom til mín í gær og gisti hjá mér í nótt. Við lögðum á ráðin með eitt og annað í gærkvöldi með sérstakri áherslu á kynninguna miklu í Hannover í byrjun febrúar.
Nú er hún farin áleiðis í sveitina sína en þau hjónakornin fara síðan til Þýskalands á mánudaginn og verða þar með mömmu hennar yfir jólin. Á milli jólanna fara þau svo til Kúbu og eyða áramótunum þar ásamt fyrstu dögum nýs árs. Dóra er snillingur.
Það snjóaði þó nokkuð í morgun.

Þá er ég búinn að fá uppskriftir hjá Ernu systir að rækjukokkteilnum og heimagerða ísnum. Það verða semsagt forrétturinn og eftirrétturinn á aðfangadag.
Cordula er lögð af stað frá Berlín og er líklega að ganga frá borði í London þessa stundina. Hún þarf að bíða þar til klukkan átta í kvöld og verður komin til Keflavíkur klukkan tæplega ellevu. Ég hlakka til að hitta hana aftur. Við höfum ekki sést síðan í Póllandsferðinni miklu sem við fórum í haust.
Ég hef ekki heyrt í Fanney ennþá. Verð að muna eftir að messa á hana til Köben á morgun.

18 desember 2003
17 desember 2003
Ég ákvað að líta á fjölskyldusíðuna miklu þar sem von er á nýjum einstaklingi í fjölskylduna á næstu dögum. Þá komst ég að því að ég hafði ekki staðið mig sem skildi á þessu ári. Ég hef alveg gleymt (þar til núna) að færa Aron Jóel frænda okkar inn sem fæddist þann 28. apríl s.l. Hann er sonur Rebekku en hún er dóttir Atla Más sem er bróðir okkar systkynanna nema sjálfs síns.
Nú er hann semsagt kominn inn, en hann er eini fjölskyldumeðlimurinn sem fæðist í apríl mánuði í meira en 100 ár. Mér finnst það stórmerkilegt að enginn fjölskyldumeðlimur skuli hafa fæðst í apríl á síðustu öld.
Það er sko greinilegt að fengitími þessarar fjölskyldu er ekki í júlí.

Ég fór með bílinn á verkstæði í dag. Það gekk ekki lengur að hafa hann svona bilaðan fyrir utan. Hvenær ég fæ hann aftur hef ég ekki hugmynd um, en ég vona það verði fyrir jól.
Það þarf fyrst og fremst að laga bakkgírinn og hleðsluna. Þá er hann orðinn góður á ný og þá ég get skotist hingað og þangað um landið á honum án þess að hafa áhyggjur af því að komast ekki á leiðarenda eða heim aftur.
Ég er búinn að ákveða hvað verður í aðalrétt hjá mér á aðfangadagskvöld. Ákvörðunin gengur út á það að taka enga sénsa í matreiðslu á aðfangadagskvöld. Það er nokkuð sem maður getur gert á öðrum dögum ársins.
Ég er líka búinn að ákveða hvað ég gef Veigari mínum og Hafdísi í jólagjöf. Ég veit ekki ennþá hvað ég ætti að gefa Atla. Ekki veit ég heldur hvað ég gef Möggu.
Hvað gefur maður 18 ára syni sínum og 17 ára tengdadóttur í jólagjöf?

Ég ætla að stefna að því að verða ástfanginn á næsta ári. Það er göfugt plan. Svo er það líka fallegt.
Nú er ég búinn að vera einbúi í 16 ár og því tími til kominn að hætta því. Það hefur ýmsa kosti að vera einn, en ég er búinn að komast að því að gallarnir eru fleiri.
Eða hvað?
Er þetta kannski vitleysa í mér?

Áki og Klara buðu mér í mat í gærkvöldi af tilefni þess að bjórinn hans er tilbúinn. Hann er efnilegur bruggari en bjórinn var ekta. Hann minnti mig sérlega mikið á Erdinger bjór, sem er öðruvísi þýskur bjór.
Atli litli var í góðum gír og sagði mér frá því að hann hefði hitt hana Grýlu í leikskólanum. Ég var alveg steinhissa því ég hélt að hún væri dauð. Svona veit maður nú lítið. Þetta er annað áfallið í þessari viku, því ég hélt að Saddam Hussein væri líka dauður.
Er það ekki í kringum páska sem allar þessar upprisur eiga að eiga sér stað?
Er það ekki í kringum jól sem á að vera vetur? Núna er til dæmis júní blíða.
Það er allt orðið á hvolfi og farið að snúa þveröfugt. Jahérna - ég held að þynning ósonlagsins hafi víðtækari áhrif en mér hefur verið talið trú um hingað til. Svo held ég líka að það sé bara ekkert að marka biblíuna núorðið.

16 desember 2003
Í gær voru nákvæmlega tvö ár síðan ég flutti hingað á Hringbrautina. Mér hefur liðið vel hérna. Hér væri ég til í að búa alla ævi. En það á eftir að koma í ljós og er reyndar ekki mjög líklegt.
Vonandi fer ég bráðum að byrja að taka til af einhverri alvöru hérna á kontórnum. Ég er að tefja of mikið við hvern smáhlut sem ég finn á gólfinu og hvern blaðsnepil sem ég rek augun í. Með þessu áframhaldi klára ég tiltektina kannski fyrir páska.

15 desember 2003
Ég veit ekki hvað ég ætti að hafa í jólamatinn. Það er nú það?
Valið stendur á milli skoskrar rjúpu, gæsar, andabringu, hreindýrs, hamborgarhryggs eða lambalæris. Allt er þetta mjög gott. Væri kannski snjallt að gera lítið hlaðborð með öllu þessu? Ætli það sé mikið mál?
Það er nú það? Erfitt að taka ákvörðun um þetta.

Mér leiðast jólasveinar. Mér hefur alla tíð leiðst jólasveinar. Alveg frá því ég var krakki. Þá fannst mér þeir hávaðaseggir og hreint ekkert fyndnir. Það hefur ekkert breyst.
Samt lenti það á mér á nokkuð drjúgum parti lífs míns að leika jólasvein á hverskyns bjálfalegum jólaskemmtunum. Þá leiddist mér það að vera jólasveinn. Mér leiddist krakkabjálfarnir meira. Þeir breyttust í hávaðaseggi á stundinni og sumir í illmenni og voru hreint ekkert fyndin.
Frek og uppivöðslusöm börn - eins og jólasveinar.
Jólin með sínu skrípatólum eru einn allsherjar fáránleiki. Af því að við hin fullorðnu kunnum ekki að höndla þau sjálf. Þau koma trúarbrögðum ekki lengur við. Sem væri betra. Þó ég sé ekki trúaður. Ekki ennþá allavega.
Annað. Spurningin "trúir þú á jólasveina?" hefur alltaf farið í taugarnar á mér. Fíflaleg spurning. Jólasveinar eru ekki trúarbrögð, heldur þjóðtrú.
Klukkan er hálfsex, sólin sest í austri og jörðin er flöt. Hvað sem hver segir.

Í þessari viku bætist nýr fjölskyldumeðlimur í hópinn. Klara og Hjörtur eiga von á sínu öðru barni - ég held það eigi bara að vera í dag samkvæmt bókunum ljósmæðranna í Horsens. Það eru allir voða spenntir auðvitað - ekki síst hún Ragnhildur sem er að verða stóra systir.
Ég er sannfærður um að hún stendur sig jafnvel í því og öllu öðru sem hún hefur afrekað.

Ég fæ tvær skemmtilegar heimsóknir frá útlöndum um næstu helgi. Á föstudeginum kemur Cordula vinkona mín frá Berlín og ætlar að eyða jólunum með mér og Fanney vinkona mín í Köben kemur svo á sunnudeginum og hún ætlar að eyða jólunum hér heima í fyrsta skipti í fjögur ár.
Það verður gaman að hitta þær báðar.
Ble-si
Það verður gaman að hitta þær báðar.
Ble-si
Hér er skemmtilegt próf sem ég rakst á og tengist útgáfu Strandanorna og þar með Galdrasýningunni.
Ég hafði allar spurningar réttar. Það hefði verið skömm af öðru fyrir mig.
Þetta er líka skemmtilegt en ég hef alltaf verið sannfærður um að bókin hennar Kristínar Helgu hafi þau áhrif sem gagnrýnandinn heldur.
Semsagt að hún hvetji til heimsókna á Strandir.

Það besta í stöðunni væri að fara að sofa núna ef maður væri vitund syfjaður. Ég er að breytast í eitthvað bévitans næturhæsn og gagga allar nætur eins og örverpi á þurru landi. Um leið og ég hátta mig og fer upp í rúm þá glaðvakna ég svo glyrnurnar standa á stiklum. Það er líka hundleiðinlegt að sofa. Sérstaklega um miðjar nætur þegar maður er ekkert syfjaður eftir að hafa sofið yfir sjónvarpinu allt kvöldið.
Ble-si
Ble-si
14 desember 2003
Jæja, þá eru þeir búnir að finna Saddam Hussein ofan í einhverri holu í jörðinni og búnir að handtaka hann. Það hlýtur að vera léttir fyrir meirihluta írösku þjóðarinnar. Ég óska henni til hamingju með daginn.
Það sem mér fannst aftur á móti ekki við hæfi var að forsætisráðherra Íslands nánast fór fram á dauðadóm yfir honum í viðtali í hádegisfréttum Útvarpsins. Hvað sem um það má segja þá er ekki við að hæfi að forsætisráðherra lýðræðisríkis sem stundar ekki dauðarefsingar undir neinum kringumstæðum, skuli tala svona óheppilega.
En þetta hefur nú alltaf verið svo skemmtilegur leikur fyrir honum.

Ásdís Jónsdóttir heitir einn minn besti vinur. Hún er fædd norðan heiða og er sú allra jákvæðasta og bjartsýnasta manneskja sem fæðst hefur á þessu landi frá upphafi vega.
Nú var hún að fá svo yndislega hugmynd í gleði sinni yfir óvæntri gjöf frá syni sínum sem var að grisja úr dótinu sínu, og nú stefnir hún að því að sofa í tjaldi á jólanótt.
Þetta finnst mér frábært. Aldeilis gjörsamlega. Það er gaman að lesa Snúllu á sunnudagsmorgnum. Það gerir tilveruna einfaldari.

13 desember 2003
Mig dreymdi Stein Steinarr í nótt. Ekki man ég hvað draumurinn gekk út á en ég man eftir Steini í honum. Því kippti ég ljóðabók hans úr hillunni í morgun og greip í hana yfir kaffisopanum.
Steinn Steinarr var örugglega með framtíðina á hreinu að einhverju leyti. Mér datt ósjálfrátt í hug ónefndur forsætisráðherra sem segir líka einskonar "Búlúlala" öðru hvoru svo stórum hluta þjóðarinnar finnst unun að heyra og tekur hástöfum undir.
Abbessiníukeisari heitir Negus Negusi,
og Negus Negusi segir: Búlúlala.
Öllum mönnum, sem íhuga málstað ríkisins,
finnst unun að heyra Negus Negusi tala.
Og í hreinskilni sagt eru allir óvinir ríkisins,
sem ekki hlusta á Negus Negusi tala.
Ég er Negus Negusi, segir Negus Negusi,
ég er Negus Negusi. Búlúlala.
Stekkjastaur kom í nótt og færði mér Búlúlala í skóinn. Það hlýtur að vera skýringin á þessum draumi og vitrun.
Be-si

12 desember 2003
Ég var aldrei búinn að setja inn í minnisbankann minn hér gærkvöldið. Ég fór semsagt í hjólreiðatúr í gærkvöldi og hjólaði út með ströndinni. Maggi hringdi í mig og sagði að þau Attý væru að fara að fá sér einn öl fyrir háttinn og spurði hvort ég væri ekki til í að koma með.
Ég hélt það nú, breytti áætlun og tók kompásstefnu á Ölstofu Kormáks og Skjaldar þar sem ég hitti þau. Stuttu síðar birtist Árni Páll með kunningja sínum og það urðu miklir fagnaðarfundir og hófst þar með drykkja. Þaðan fórum við á Næsta bar - staðinn sem ég ætlaði aldrei á aftur eftir að mér var hent þaðan út fyrir 15 mánuðum fyrir að bresta í söng. Þar var drukkið ótæpilega og endaði með því að við drógum með okkur heim til mín allskyns lið í partý. Þar var drukkið, duflað og tónað fram eftir öllu og ég komst ekki í svefn fyrr en klukkan sex í morgun.
Svo heilsan í dag hefur ekki lofað mér að koma neinu í verk. Ég fór og sótti hjólið niðrí bæ seinnipartinn.

Ég tek heilshugar undir með Sigga á Stóra Fjarðarhorni. Samgöngubætur á landsbyggðinni ættu fyrst og fremst að miðast við daglegar samgöngur og þarfir innan héraðs. Um það hlýtur málið að snúast að fólk geti sinnt sínum daglegum erindum - frekar en að byggja hraðbrautir út og suður burt úr héraðinu. Fáránlegt að allt vegakerfi miði að því að það sé sem styst til Reykjavíkur. Fólk er ekki að fara þangað á hverjum degi. Það er að fara með börnin í skóla, á heilsugæslu, á pósthús og gera aðrar daglegar þarfir og því ætti það að vera grundvallarregla að íbúarnir geti það án þess að leggja líf sitt og limi í hættu í hvert sinn. Svo er hægt að hugsa um að bæta vegasamgöngur við önnur héruð.
Gefum okkur að það væru stórhættulegir og óökufærir vegir í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði eða bara hvar sem er í þéttbýli og eingöngu hugsað um að gera vegi til að fólkið gæti keyrt þaðan í burt.
Fárálegt.

11 desember 2003
Æ,æ, kaupauki æðstu ráðamanna þjóðarinnar var svo fyrirferðarmikill í Kastljósinu í kvöld þar sem Pétur Blöndal og Gylfi verkalýðskólfur töluðu svo mikið án þess að hlusta hver á annan, að bókagagnrýninni var ekki hleypt að. Það var slæmt því þetta átti að vera í síðasta skipti sem umfjöllun um jólabókaflóðið átti að fara fram í þættinum fyrir þessi jól og Angurgapi var þar á meðal.
Ansans óheppni.
Það sem er þó jákvætt er að það kom fram í máli Péturs (þó það hafi ekki komið málefninu við) að það var verið að fjalla um frumvarp á þinginu í dag um lækkun virðisauka á hljóðbókum. Ég er ánægður með það.

Hér til hliðar er kominn flokkur sem ég nefni Gæðablogg. Þar undir komast bloggarar sem mér finnst bera höfuð og herðar yfir aðra í bloggheiminum.
Það hafa bara tveir komist þarna inn enn sem komið er, Siggi pönk sem skrifar mjög einlæglega um ýmis málefni og Toggi Pop sem ég rakst á fyrir nokkru. Sá drengur er sá allra mesti penni sem ég hef lesið á bloggi. Stórkostlegar sögur og frásagnir sem hann sendir frá sér. Mig langar sérstaklega að benda á frásögn sem hann skrifar þann 9.12.03. Aldeilis stórkostlega mögnuð og vel gerð. Hörðustu töffarar og harðjaxlar sleppa ekki ósnortnir frá henni. Svo getur hann líka verið alveg hryllilega fyndinn.

Hvað er svo eftirminnilegast á árinu hjá mér?
Janúar: Ég var í Berlín yfir áramótin. Það var eftirminnilegt. Sérstaklega tilfinningin að vera innan um milljón manns klukkan tólf á miðnætti.
Febrúar: Ekkert.
Mars: Ekkert.
Apríl: Ekkert.
Maí: Það var gaman að hitta gömlu félagana úr Leikfélagi Hólmavíkur eftir sýningu þeirra á Sex í sveit í Tjarnarbíó.
Vinnan við margmiðlunardiskinn. Það var skemmtileg. Hann kom út í enda mánaðarins.
Júní: Sumaropnun Galdrasýningarinnar. Ég var og er sérlega ánægður með starfsfólkið.
Júlí: Heimsókn mín og uppákoma á Leifshátíð var skemmtileg.
Draugadagar Galdrasýningarinnar voru mjög vel lukkaðir. Þeir hófust í júlí og stóðu út ágúst um hverja helgi. Gaman þegar eitthvað ber áþreyfanlegan árangur.
Angurgapi kom út. Það var skemmtilegt og afar nauðsynlegt þó bókin sé búin að valda mér miklum áhyggjum síðan.
Ágúst: Tilnefning margmiðlunardisksins til margmiðlunarverðlauna SÞ. Það var mjög ánægjulegt, þó hann hefði ekki farið alla leið.
September: Ferðin til Póllands stendur upp úr. Siglingin frá Köben til Swinouchie. Lestarferðin þaðan til Kolbrzeg. Góða veðrið, ströndin og huggulegheitin. Svo ekki sé minnst á hjólaferðina um sveitirnar. Dvölin í Bremen er líka hlý endurminning og óvænt heimsókn mín til Ernu og Gísla til Horsens á leiðinni heim.
Haustfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða í Flókalundi var skemmtilegur og gagnlegur.
Október: Þegar biskupinn yfir Íslandi varð sér til skammar. Það var þó harla gagnlegt þegar upp var staðið.
Jón Jónsson valinn ferðafrömuður ársins. Það fannst mér stórkostlega skemmtilegt.
Það var brotist inn í bílinn minn. Það var draugfúlt.
Nóvember: Íbúðarkaup Veigars og Hafdísar. Það var eitt það allra skemmtilegasta á árinu. Gaman að hjálpa þeim.
Ókindarkvöld þjóðfræðingafélagsins í Iðnó. Mjög gaman að taka þátt í því.
Draugasterið á Stokkseyri opnaði. Gaman að vera viðstaddur.
Desember: Jólahlaðborð fjölskyldunnar á Kaffi Reykjavík. Hlý og góð endurminning í faðmi fjölskyldunnar. Það er ekki svo oft sem við tökum okkur saman.
Uppákoman okkar Hilmars Arnar á Nordica Hotel og ekki síður þjóðsagnagaldrakvöldvakan mín á Súfistanum í Hafnarfirði. Það var stórkostlega gaman.

Ég laz það á einu bloggi zem ég lez ztundum að lítill bjór kozti 650 krónur á Lækjarbrekku.
VÁ! Þeir hafa ekki mikinn áhuga á að fá fólk þarna inn. Aldrei zkal ég fara þangað, zvo mikið er vízt, zama hvað matzeðillinn er girnilegur og ég zólginn í veizlufæði.
Ble-zi

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvað WIKI er. Til hvers það er notað og hvaða gagn er hægt að hafa af því.
Ég botna hvorki upp né niður í þessu, en þó skilst mér að þetta sé eitthvað rosalega sniðug lausn á einhverju sem ég veit ekki hvað er.
Það er verulega truflandi fyrir mig að fatta þetta ekki og ég kem engu í verk þessvegna. Ég er farinn að fá WIKI martraðir sem ég veit ekki hvað ganga út á og í morgun þegar ég fór að fá mér pulsu á Bæjarins beztu þá bað ég um eina með öllu nema WIKI.
Hvað er þetta eiginlega? Er þetta eitthvað sem ég ætti að vita, kunna og nota?

10 desember 2003
Það er farið að líða að áramótum sem þýðir að það er kominn tími til að huga að næsta ári. Stóra spurningin er hvort okkur ber gæfa til að opna loksins annan áfanga Galdrasýningar á Ströndum. Mér sýnist vera möguleiki á því ef menn eru á annað borð tilbúnir til þess að leggja það á sig.
Allt er þetta auðvitað spurning um peninga - fyrst og fremst.
Einnig er nauðsynlegt að ferðaþjónar á Ströndum standi nú saman í því að kynna svæðið. Það er afar mikilvægt að vera með í því en fara ekki í fýlu ella.
Allavega er Strandagaldur hættur að standa einn í því.

Mikið assgoti var gaman í gærkvöldi. Það var fyndið þegar ég var að undirbúa mig undir ástargaldurinn og viðhafði nokkur orð um hvað það væri nú erfitt að galdra til sín kvenmann og að það væri sko engan vegin sama hvernig það væri gert.
Skyndilega opnuðust dyrnar á kaffihúsinu og inn streymdi 40 manna kvennakór á leiðinni heim af æfingu.
Það var sko tækifæri sem ég gat ekki látið mér renna úr greipum og á mig rann algjört æði og ég uppskar marga kossa.
Sei, sei já. Þá varð uppi fótur og fit í hænsnakofanum og mikið hlegið.

09 desember 2003
Ég er búinn að ákveða dagskrá kvöldsins. Hún hefst semsagt á Súfistanum í Hafnarfirði stundvíslega klukkan átta. Súfistinn er við Hafnargötuna í Hafnarfirði skábeint á móti gamla Hafnarfjarðarbíói sem hýsir núna Kvikmyndasafn Íslands.
Ég man þegar ég var lítill þá fór ég einu sinni þangað að sjá Gög og Gokke. Það voru nú skrítnar skringiskrúfur.
Steindór Andersen kemur líka fram og einnig þjóðlagasveitin Bardukha sem ég þekki hvorki haus né sporð á.

Ég rakst á grein eftir Joe nokkurn Yogerst sem er blaðamaður frá The San Diego Union-Tribune eftir heimsókn hans til Íslands í sumar.
Hann eins og flestir þeir sem koma til landsins kom upphaflega vegna hinnar alræmdu náttúrufegurðar. En eins og svo mörgum öðrum þótti honum mikið til koma ræktin sem lögð er við íslenskan menningararf víða um land.
Hann lýsir heimsóknum sínum á Eiríksstaði í Dölum og á Galdrasýninguna í greininni.
Ég er ánægður með Ellu. Hún hefur tekið á móti honum og staðið sig vel.

Þær eru hrikalegar fréttirnar af ráninu í Bónus í gær. Undanfarið hafa þessir eiturlyfjasjúklingar látið sér nægja barefli eða hnífa til að fremja ránin. En þegar menn eru farnir að veifa byssum og taka menn í gíslingu með því að beina afsöguðum haglabyssum að höfðum þeirra í aftökustíl meðan þeir láta greipar sópa, þá er mælirinn fullur. Ég er smeykur um að þess verði ekki langt að bíða að íslenskum lögregluþjónum verði fengnar byssur og að þá fyrst verði fjandinn laus.
Löggan stóð sig þó vel í gær að handtaka þrjótana skömmu eftir atburðinn.
Önnur hrikaleg frétt er af Akranesi þar sem húsmóðirin brá sér út á videóleigu í hálftíma um kvöldmatarleytið og á meðan var hillusamstæðu með tíu einingum stolið úr íbúðinni hennar og börnunum hent til hliðar á meðan og svo reykspólað í burtu.

08 desember 2003
Fór og hitti Lóa, Magga og Attý á Celtic Cross yfir krús seint í gærkvöldi. Áki bættist í hópinn skömmu síðar. Það voru allir eins kátir og við mátti búast.
Við Áki sátum fam að lokun.
Verð að reyna að finna söluaðila á Akureyri í dag og senda honum bækur. Annað er vonlaust. Ég á líka eftir að ganga frá bókhaldi nóvember mánaðar.
Annað kvöld verð ég á Súfistanum í Hafnarfirði. Ég stefni að því að vera skemmtilegur og láta öllum illum látum. Þarf að ákveða eitthvað með það líka fyrir þann tíma.

07 desember 2003
Ég svaf eins og ýsa nánast fram að hádegi og rétt skreið á fætur, dauðþreyttur eftir allan þennan svefn. Fljótlega áttaði ég mig á því að ég var allur skárri og hrygluhóstinn horfinn. Ég leit þá yfir það sem ég hafði ekki heilsu til að gera í vikunni á undan og kom miklu í verk á stuttum tíma.
Fór svo í bæinn að skoða í búðarglugga og skildi aftir móðu á nokkrum. Fylgdist svo með upphafinu á upplýsingu Oslóarjólatrésins á Austurvelli.
Mér fannst ekki mikið til koma þó ég heyrði rödd Gerðar B. Bjarklind.
Er ekki hægt að losa okkur við þessar sömu raddir sem hljóma í eyrum okkar daginn út og inn rétt á meðan kveikt er á einu aumu jólatréi?
Hvað um það.
Svo kom gamla barnið upp í mér og ég heimtaði af mér ís sem ég og fékk.
Stuttu síðar varð mér kalt og fór heim og varð rólegur eftir það.
Ísinn - gamli góði ísinn hjálpar alltaf, eins og amma sagði.

06 desember 2003
Það er kominn tími til að þvo þvott á þessu heimili. Það hefur ekki verið gert lengi, svo fatahrúgan hefur safnast upp á þvottahúsgólfinu eins og það sé líkast því að ég reki heimili með minnst fjögur börn. En því er ekki að heilsa.
Þetta gekk vel hjá okkur Hilmari í kvöld. Ég komst í gegnum þetta með því að þræla raddböndin hið ýtrasta og var gjörsamlega búinn á eftir. Þegar ég kom heim þá var ég svo þreyttur og slappur að ég steinsofnaði við eldhúsborðið yfir te-inu og svaf þar í tæpa tvo tíma.
Áheyrendur voru ánægðir en ég verð að viðurkenna að ég var ekkert yfir mig hrifinn. Forsalurinn á Nordica hefur afar slæman hljómburð auk þess sem ég hef aldrei verið hrifinn af því að skemmta fólki sem er bersýnilega með hugan við það að detta ærlega í það. Þar skiptir engu hvort talað er um Íslendinga eða útlendinga. Mannfólkið er allstaðar eins. Ef einhver vill meina annað þá bara veit sá hinn sami ekki betur og er fullur af einhverju rugli sem meikar engan sens eða veit ekki betur sökum rembings eða forheimsku.
Ég fékk svo margar einkennilegar spurningar frá svo mörgu fólki eftir á að ég varð nánast kjaftstopp og hafði á tilfinningunni að þarna hefði verið um að ræða hvataferð fyrir "topp þrjú hundruð" fæðingarfífl veraldar.
Búningsklefinn minn var inni í eldhúsi og ég var endalaust fyrir stressuðum þjónum og kokkum meðan ég klæddi mig í fötin aftur og það var hundleiðinlegt - eilífar undarlegar athugasemdir og augngotur frá staffinu, auk þess sem það virtist ekki alls ekki átta sig á því að þetta væri eini mögulegi staðurinn sem ég gæti striplast á.
Hvað um það. Þetta var ágætt og ég er feginn að þetta skuli vera búið. Nú get ég farið að einbeita mér að því að batna af flensunni og undirbúa grínkvöldið mikla á Súfistanum í Hafnarfirði á þriðjudagskvöld. Þar verður bara grín og fjör.
Mér þykir slæmt að ég skuli ekki eiga einn bjór til að slaka á yfir en ég nenni alls ekki á krá, því það geri ég helst aldrei á laugardögum. Ég þoli ekki bæinn um helgar. Eða öllu heldur fólkið í bænum um helgar.

35 minutur til stefnu og eg er ordinn raddlaus eftir litla hljodprufu.
? Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
? Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Ég hringdi í Skúla Gauta vegna heilsufarsins og bað hann ráða til að fyrirbyggja að ég fengi hóstakrampa í miðju perfómannsinu.
Uppskriftin er þessi.:
Gera svart te - mjög sterkt.
Setja óhóflega mikið af hunangi út í te-ið - og svo örlítið meira af hunangi.
Leysa upp C-vítamín útí te-ið - nóg af því.
Skella þessu svo í sig skömmu áður en gengið er fram á vígvöllinn.
Ég fer að hans ráði. Það er ekkert annað að gera - þó mér líki hreint ekki nokkurt te.

Ég er orðinn dauðkvíðinn kvöldinu nánast sagt, því ég er ennþá með þennan hryglulega hósta. Klukkan fjögur þurfum við Hilmar að fara að stilla upp og gera sándtékk. Svo þarf ég að undirbúa mig meira en vanalega. Reyna að ákveða meira en áður fyrirfram hvað ég ætla að segja og gera og vera búinn að þýða það nokkurnveginn yfir á ensku - svo það verði ekki of mikið um orðleysur, rugl og stam ofaní hóstaköstin sem ég tek.
Ég svaf þó vel í nótt í fyrsta skipti í langan tíma.
Erna systir er að spóka sig í Berlín þessa helgina. Það væri nú ekki leiðinlegt að vera þar með henni.

05 desember 2003
Jólasalan er komin af stað. Fór með tvær sendingar í dag með þrjá vöruflokka.
Það er gaman. Það er ekki jafngaman að ég er veikari í dag en í gær og get ekki setið kyrr.

Ég mæli með því að allir heimsæki síðuna thehungersite.com einu sinni á dag og smelli á "Give Free Food" hnappinn. Með því stuðlar hver og einn að því að hungruð börn í Afríku fái einn bolla af mat í hvert sinn. Markmiðið er að safna 6 milljón bollum af mat.
Þetta kostar mann ekkert nema nokkrar sekúndur á dag, því þetta aðferð til að reikna út hvað kostunaraðilar verkefnisins leggja af hendi í atlögu gegn hungri í heiminum.
Þetta er tækifæri fyrir hvern og einn að leggja eitthvað að mörkum. Ég læt það vera mitt fyrsta verk á morgnana þegar ég ræsi tölvuna að klikka á hnappinn.
En það er ekki þar með sagt að maður sé frír frá söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar. Það finnst mér vera jólaleg skylda.

Ég var að komast að því að hlutirnir breytast ekkert frá ári til árs. Það er hrikaleg tilhugsun. Maður er að endurupplifa lífið aftur og aftur án þess að maður átti sig á því, nema maður haldi dagbók og blaði í henni afturábak öðru hvoru. Þetta er óhugnalegt.
Þann 5. desember í fyrra skrifaði ég eftirfarandi klausu á bloggið mitt og takið eftir því að það sem er feitletrað er einmitt líka að gerast í dag, nákvæmlega ári síðar:
Það er orðið langt síðan ég hef sinnt þessari dagbók. Ekkert síðan ég var á einhverju Internet-kaffi í Berlín. En nú ætla ég að reyna að gera bragabót á því. Það er annars fátt á seiði þessa dagana. Að vísu er þriðja umræða fjárlaga á Alþingi í dag og grenjandi rigning. Auk þess sem það er hávaðarok og ég er kvefaður. Bíllinn minn er bilaður og vill ekki í gang og ég finn ekki vegabréfið mitt. Skil ekki hvar í fjáranum ég hef sett það.
Það sem hefur breyst er að nú geymi ég vegabréfið á vísum stað, ég hef verið að sinna blogginu og bíllinn fer í gang þó hann sé bilaður. Samt er ég að tala um annan bíl en í fyrir ári síðan. Annað er eins - meira að segja veðrið.
Þetta minnir mig á bíómynd sem ég sá einhverntíman þar sem hver dagur leið aftur án þess að nokkur tæki eftir því nema aðalsöguhetjan - en það náttúrulega trúði enginn henni.

Jólamarkaður handverkshópsins Strandakúnst á Hólmavík opnar í dag. Það hefur alla tíð verið duglegur hópur og starfsemi þeirra til fyrirmyndar á alla vegu.
Á jólamarkaðnum er hægt að nálgast hverskyns handverk af Ströndum og það hefur verið vinsælt hjá Strandamönnum að versla við hópinn.
Á Strandakúnstmarkaðnum verða einnig vörur af Galdrasýningunni og þar verður m.a. hægt að nálgast bókin Angurgapi - Um galdramál á Íslandi á sérstöku jólatilboði sem felst í því að galdraskræðan Ástargaldrar fylgir með hverri bók.
Það er jólagjöf Strandagaldurs til Strandamanna sem þakklætisvottur fyrir að hafa ávallt staðið móralslega þétt að baki verkefninu.

Nú er illt í efni. Flensan hefur umhverfst í gríðarlega mikil hóstaköst ef ég nota röddina. Ég má ekki einu sinni segja góðan daginn, þá bresta hóstakirtlarnir í brjálæðiskast og þenjast út með skruðningum og óhljóðum þar til magavöðvarnir eru orðnir svo stífir að mér liggur við köfnun. Hóstakastið stöðvast svo ekki fyrr en máttur líkamans er nánast að öllu horfinn, hnjáliðirnir hafa gefið eftir og ég ligg í senn andstuttur og móður á gólfinu.
Og annað kvöld þarf ég einmitt að misþyrma röddinni lítilsháttar.
Hvað get ég gert?

04 desember 2003
Jólahlaðborðið var algjört æði. Dýrindisveisla með allskyns mat og maður át meira en góðu hófi gegndi. Svín, hreindýr, kalkún, allkyns pate, lamb, rifjasteik, hamborgarhryggur, laufabrauð, fullt af frábæru meðlæti og eftirréttum og fleira og fleira.
Hér er matseðill jólahlaðborðsins í heild sinni.
Ég er himinlifandi með þetta og mætingin var góð. Við vorum þrettán þegar upp var staðið.
Ég mæli með Kaffi Reykjavík en staðurinn hefur fengið mikla andlitslyftingu og er orðið alvöruveitingastaður.
Mættir voru ásamt mér, Veigar, Hafdís, Atli, Magga, Hrafnhildur, Gummi, Karen, Kittý, Elísa, Símon, Árni og Ragnheiður.
Ekki amalegt lið það. Þetta er semsagt orðin hefð og mun eiga sér stað fyrsta fimmtudag desembermánaðar ár hvert.
Ég er ekki lengur lasinn heldur saddur og sæll. Nú get ég farið að skipuleggja laugardagsfjörið á Nordica.

Ég er sannfærður um að fjöldi fólks væri til í að kaupa alvöru upplifun fyrri alda - lifistandard alþýðufólks á Íslandi. Því langar mig að setja upp gistihús þar sem fólk gengur 3-400 ár aftur í tímann og nýtur þeirra óþæginda sem þar er boðið upp á.
Þetta væri lágreist torfhús, með moldargólfi og fletum með sauðaull í. Eldhúskrókurinn væri eldstæði og þar væri nóg af eldivið og þess tíma pottar og tól. Askar til að éta úr og tunnur með súrmat sem fólk gæti gengið í. Harðfiskur til að naga og lýsartólgar ljósfæri.
Tréfata væri fyrir utan til að sækja vatn í lækinn til neyslu. Leggir og skeljar fyrir börnin.
Gestir fengju góðar upplýsingar í bæklingi um hvernig fólk bar sig að til að hafa það eins gott og kostur var. Guðsorðabækur og sálmabækur til að glugga í.
Allt þetta myndi gestum standa til boða, ásamt klæðnaði þess tíma. Hægt væri að bjóða upp á gamaldags kvöldvöku, láta förumann banka upp á og biðja gistingar í skiptum fyrir hangikjötsbita og andlega næringu og jafnvel draugagang fyrir þá hugrökkustu.

Ég er heldur að braggast. Jólahlaðborðið í kvöld heldur í mér lífinu í dag. Svo held ég að ég verði orðinn góður. Enda eru það að verða síðustu forvöð. Á laugardaginn verður nefnilega uppistandið mikla.
Ég ákvað í gærkvöldi að fara til Hannover fyrstu vikuna í febrúar með Dóru Lubecki á Ferðastefnu og kynna Galdrasýninguna þar. Það er orðið mjög mikilvægt að útvíkka kynningarmálin út fyrir landsteinana. Enda er lag núna eftir áhrifamikla athygli verkefnisins síðustu vikna.

03 desember 2003
Eitt er það sem ég hef aldrei haft á lífsleiðinni. Það er bíladella. Ég hef reyndar aldrei átt mjög góðan bíl en ég hef átt nokkuð marga bíla. Ég man ekki röðina nákvæmlega en ég ætla að reyna að telja þá og rifja upp sjálfrennireiðaeign mína í gegnum tíðina.
Fyrsta bílinn keypti ég þegar ég var að verða 17 ára. Það var Cortina árgerð ´67. Ég man ekki hvað ég átti hana lengi - held það hafi ekki verið mjög lengi.
Annar bíllinn var líka Cortina, en miklu yngri, árgerð ´69 minnir mig. Cortina voru breskir bílar og nokkuð algengir og vinsælir á sjöunda og fyrri part áttunda áratug síðustu aldar. Það voru ódýrir og einfaldir bílar og alls ekki slæmir. Myndin til hliðar er af Ford Cortina.
Ég átti gulan Volkswagen Passat. Það var ekki góður bíll. Það ryðgaði í sundur á honum spyrnan á fullri ferð í Norðurárdalnum svo lá við slysi. Hann varð aldrei samur og fór á haugana. Það var 1983. Ég man það.
Ég átti Fiat - einhverja lúxustýpu sem var samt ekkert sérstakur. Hann dagaði uppi út af einhverju.
Ég átti Honda Accord - hún var kraftmikil en ryðgaði í kássu fyrir framan nefið á mér. Ég nánast sá það gerast
Ég átti Toyota eitthvað, stór bíll og rauður. Það var keyrt aftan á hann og hann eyðilagðist. Ég man að ég græddi eitthvað á honum fyrir vikið.
Svo átti ég Toyotu Corolla - ég lenti í árekstri við rútu norður í Reykjarfirði á honum. Það var dæmt 50/50 svo ég tapaði honum.
Ég hef tvisvar átt Suzuki Swift - einn gulan sem var mjög góður og einn bláan. Hann varð göldróttur í restina. Ég er hrifinn af Suzuki Swift. Góðir og sparneytnir bílar. Gula bílinn lánaði ég og hann valt upp við Rauðhóla en sá blái dó bara.
Ég hef átt þrjá Volvo. Einn bláan með gamla laginu og einn rauðan sem var með einhvern reimadrifinn gírkassa. Hann var hörmung. Löngu síðar átti ég annan Volvo sem ég var nokkuð ánægður með. Hann var líka rauður en með engu skotti. Ég fór víða á honum en svo gaf hann upp öndina. Það er ekki svo langt síðan.
Ég hef líka átt Saab. Hann var ekki svo slæmur meðan fyrri eigandinn átti hann en ég keypti hann af Halla á Bakka. Hann var alltaf bilaður hjá mér. Svo gaf ég Sigga á Kollafjarðarnesi bílinn. Siggi var ofsaglaður því hann átti annan eins.
Ég hef átt Mazda eitthvað - lúxustýpa með rafmagni í öllu og í sóllúgunni líka. Hann bræddi úr sér uppá Hellisheiði fyrir svona tveim til þremur árum. Svo átti ég um tíma aðra Mözdu. Hún var ljósbrún. En ég man ekki mjög vel eftir henni. En ég man að ég átti hana árið ´94.
Ég hef átt Nissan. Hann bilaði uppá Holtavörðuheiði og í framhaldinu voru allar rúður brotnar í honum af einhverjum misyndismönnum. Það var aldrei góður bíll. Einu sinni kom upp eldur í vélarrúminu honum. Þá varð ég hræddur.
Ég hef átt Daihatsu Charade. Ég var alltaf hræddur í honum. Svoddan dós. Hann bræddi úr sér eða eitthvað á Miklubrautinni sama dag og ég fékk fartölvuna og ég gaf hann í gegnum auglýsingu. Morguninn eftir keypti ég bláu zúkkuna sem ég er búinn að segja frá.
Ég hef átt Mitsubishi Lancer - hann var ekki slæmur en bremsurnar fóru af honum á versta stað í brekku og hann rann stjórnlaust aftur á bak niður brekku og í hliðina á sendibílinn hans Lóa. Það var skaði.
Svo hef ég átt tvö mótorhjól. Suzuki 250 og Suzuki 125. Það var græja. Samt hef ég aldrei tekið mótorhjólapróf.
Núna á ég Renault. Það er svona sendibíll. Hann er ekki alveg í nógu góðu standi eins og er en það er hægt að laga það. Ég er nokkuð ánægður með hann. Gott að hafa mikið pláss.
Ég er að gleyma einhverjum bílum úr flotanum mínum en ég man þá kannski seinna.
Þetta eru nú ekki svo margir bílar á hálfum lífsferli. Ég hef til dæmis átt miklu fleiri kærustur en ég ætla ekki að telja þær upp hér. Það væri ekki fallegt ef ég færi að telja þær upp og gleyma kannski einhverri. Annars er ekki gott að segja hvað er kærasta og hvað er ekki kærasta. En endingin á þeim hefur verið svipuð og blikkbeljueignin.
Það segir líklega meira um mig en þær.

Í dag var þriðji dagur í flensu. Sá allra allra versti. Þar sem ég er sannfærður um að þetta getur ekki orðið verra þá hlýtur flensan að skána á morgun. Ég er svo sannfærður um það að ég er búinn að boða stórfjölskylduna í jólahlaðborð á Kaffi Reykjavík annað kvöld kl. 19:30 enda er ég að drepast úr hungri eftir flensu síðustu dægra.
Það stefnir í góða mætingu miðað við að stór hluti fjölskyldunnar ýmist býr eða vinnur í útlöndum. Erna og Gísli í Danmörku, Klara, Hjörtur og Ragnhildur í Danmörku og Íris, Sævar og Hlynur í Þýskalandi og Atli Már er í Alsír þessa stundina og Gummi í Köben. Ragnheiður Harpa og Arna komast ekki vegna anna kirkjukórsins í Njarðvík.
Ég á von á því að flestir aðrir komi og að við fyllum allavega tíu manna hóp. Ég og synir mínir og tengdadætur komum, það eru fimm, Hrafnhildur og Gummi ásamt Karenu ætla örugglega að koma, þá eru komnir átta, Árni og Ragnheiður hafa boðað komu sína, það gera tíu og svo vona ég að Guðrún Harpa komi með Gumma og Hrafnhildi sem fulltrúi Atla Más leggsins. Þannig að kannski verðum við ellevu.
Kittý Arnars og Eyrún koma ekki og heldur ekki Kristinn og Kittý systir hans og Elísa Dögg. Rebekka og börn búa í Borgarnesi, en ég hálfskammast mín fyrir að hafa ekki boðað hana og hana Erlu Björk sem ég veit ekkert hvar ég finn og ég þekki ekkert. Það er synd því mig langar að kynnast henni. En það verður vonandi einhverntíman.
Ég ætti kannski að reyna að hafa upp á henni.
Það vantar náttúrulega algjörlega fulltrúa Ernu leggsins. Það er bara enginn fulltrúi þess leggjar á landinu öllu. Eiginlega ætti maður samt að boða einhvern fulltrúa fyrir hennar hönd.
En það koma bara fleiri næst.
Mikið hlakka ég til að fá jólahlaðborð - það er sko góður matur.

Ég er ennþá lasinn og er viss um að ég verð aldrei góður aftur. Svo er rok og rigning úti svo verður allt að klessu.
Allt orðið klárt vegna Perlumálsins mikla sem verður að vísu ekki í Perlunni, heldur á Nordica Hotel. Einhver smis skilningur var á því hjá mér.
Ég hitti Áka á Hressó yfir meðali í smátíma á eftir fundinn. Ég var á hjólinu. Svo hjólaði ég heim og þegar þar kom þá komst ég að því að ég hafði gleymt símanum og hjólaði til baka og náði í hann. Ég hjólaði aftur heim og kom við í Nóatúni og tíndi eitthvað í körfu til að hafa í gogginn. Eftir að ég var búinn að drösla vörunum og hjólinu upp á 5. hæð heima þá fann ég ekki lykilinn að íbúðinni.
Se betur fer geymi ég orðið aukalykil í bílnum mínum, sem ég er hættur að læsa vegna stöðugra innbrota í hann.
Þegar ég komst loksins heim þá var ég nær því að míga á mig en nokkru sinni fyrr.
Atli minn og Magga komu í gærkvöldi. Atli er snemma í jólaskapinu þetta árið og færði mér jólapakkann. Ég var fljótur að fela hann og man ekki lengur hvar ég faldi hann. Ég lánaði svo Atla jólasveinabúninginn minn þegar hann fór, því hann ætlaði að fara að gera eitthvað sniðugt.

02 desember 2003
Ég var fárveikur í nótt og bylti mér á allar hliðar og kom ekki dúr á auga fyrr en undir morgun. Það var ekki gott.
Nú er ég eitthvað skárri en ég verð áð vera búinn að ná úr mér kvefinu fyrir laugardaginn.
Það er blíðuveður og skýjahola yfir hausnum á mér og í dag þarf ég að ganga frá bókhaldi nóvember mánaðar.

01 desember 2003
Ég sá Klæng sniðuga í Jóladagatali Sjónvarpsins í kvöld og ég skildi ekki eitt einasta orð sem var talað þar. Á tímabili var ég að velta því fyrir mér hvaða tungumál persónurnar töluðu og áttaði mig loks á því að þeir sem fara með hlutverkin eru bara svona agalega slæmir leikarar og reyndu eins og þeir gátu að tala eins og skrípi. En bara gátu alls ekki gert sig skiljanlega.
Klængur sniðugi var áberandi minnst skiljanlegur.
Það er ekkert barn á heimilinu hjá mér en ég er að velta því fyrir mér hvort að börnin hafi skilið eitthvað meira en ég hvað var sagt.
Ég held að leikararnir hefðu átt að slaka aðeins á í skrípaleiknum, þar sem þeir ráða ekki við þetta. Allavega hefði leikstjórinn átt að sjá til þess.
Vondur leikstjóri. Hver sem hann er. Þetta fer í taugarnar á mér - svo er ég lasinn.

Nú er ég hættur. Dagur hinna miklu símsvarana og útreikninga er að kveldi kominn. Ég er drulluþreyttur enda fárveikur af kvefi og óþverra. Steinamálið mikla hefur verið ofarlega í huga flestra sem ég hef samskipti við.
Á morgun klukkan 15:15 þarf ég að mæta á fund í Nordica hótel vegna Perlumálsins mikla næsta laugardagskvöld.
Það er kalt og rok úti - þessvegna er ég innivið og ætla að fara að elda mé eitthvað svo ég deyi ekki úr hungursneyð í stað kvefs og kulda

30 nóvember 2003
Ansi fín mynd sem þekur baksíðu Moggans í dag. Þar situr Kittý Árnadóttir bróðurdóttir mín í farþegasæti bíls á Sæbrautinni og lögreglan er að biðja ungan mann sem situr við stýrið henni við hlið að blása í blöðru.
Þeim finnst þetta öllum greinilega mjög skemmtilegt.
Bara eins og á 17. júní bara.

Ég hef ekkert farið út í dag því ég er hundkvefaður og mér hefur verið skítkalt í allan dag.
Annað hef ég ekki gert í allan dag, nema að skoða margmiðlunarforritið mitt og reyna að átta mig á því hvað hefur komið fyrir það.
Ég eldaði mér að vísu lambakássu í kvöld og er búinn með hana.
Mig langar að gera eitthvað í kvöld, fara í bíó eða eitthvað en það fer örugglega eins og vanalega að ég nenni aldrei að fara neitt einn.
Vonandi fer að vora bráðum.

Veðrið í dag er bjartara en í gær og gott ef ekki aðeins hlýrra. Sólin beinir sólargeislum sínum að þeim neðan frá. Það er fallegt.
Tímarit Moggans fjallar um réttarmeinafræði í morgun í risagrein. Þar er m.a. umfjöllun og mynd af undarlegum steini ættuðum að norðan. Þó hann sé ekki meginefni greinarinnar þá hefur þegar myndast allnokkur taugatitringur hjá hluta stjórnarinnar.

29 nóvember 2003
JPV forlag auglýsir í Sjónvarpinu:
Ef þú ættir að lesa eina bók áður en þú deyrð - þá er það Don Kíkóti.
Skyldi þessum jólasöluáróðri vera beint sérstaklega til krabbameinssjúklinga og annarra jafnilla settum eða bara venjulegs manns sem fæddist til að deyja?
Nei - líklega er þetta bara svona hrikalega misheppnuð og ósmekkleg söluherferð í tilefni jólanna.

Það er kalt úti en veðrið er sæmilegt. Nokkur vindur og skýjadula hangir yfir okkur skepnunum á þessum hluta jarðarinnar.
Í dag ætti galdrabúðamálið mikla við Ingólfstorg að skýrast. Í dag þarf ég líka að framleiða slatta af margmiðlunardiskum. Lagerinn er orðin ansi tæpur. Það er magnað að þurfa ekki að liggja með mikinn lager af þessari vöru.
Það væri gaman ef fólk áttaði sig á því að það fæst varla betri né ódýrari gjöf handa vinum erlendis.

28 nóvember 2003
Við Dóra spjölluðum margt og mikið í gærkvöldi og fórum á kaffihús og spjölluðum meira yfir krús. Hún var stopp í bænum vegna einhverra bílavandræða en gat haldið áfram för sinni í morgun eftir viðgerðir. Þannig að hún er vonandi í góðum málum einhversstaðar á Hellisheiðinni þessa stundina.
Í dag er fallegt og bjart veður og sólin er lágt á lofti eins og endranær á þessum árstíma.
Ég er ansi smeykur um að galdrabúðamálið mikla taki einhverja aðra stefnu á morgun en vonir mínar stóðu til. Menn voru að vinna þar fyrir innan í allt gærkvöld. Gott ef þeir voru ekki bara að smíða einhverskonar afgreiðsluborð.

27 nóvember 2003
Galdrasýningunni stendur til boða húsnæði undir sölubúð fyrir jólin á tveim stöðum í miðborg Reykjavíkur. Annarsvegar við Ingólfstorg og hinsvegar við Þingholtsstræti. Nú fer ég að kíkja á þetta með myndavélina um öxl.
Ég hef trú á því að jólasölumarkaðurinn í miðborginni sé öflugur og að verkefnið geti haft góðar tekjur og kynningu út úr honum.
Það er svona spurning hvað eigi að gera mikið úr þessu - t.d. að bjóða ferðaþjónustuaðilum á Vestfjörðum að vera með gjafakortasölu á gistingu og þjónustu og selja jafnvel vandað strand- og vestfirskt handverk.
Þetta er spennandi. Nú skal bókin seld sem og allt annað.

26 nóvember 2003
Það er þetta með okrið og um hvað sé heilbrigt og hvað er brjálæði og hvað er okur og hvað lánastofnunum á Íslandi leyfist að komast upp með án þess að nokkur heilbrigð lög nái yfir þær?
Ég var að ganga frá láni í ónefndri bankastofnun.
Lánið hljóðar upp á 7.300.000.-
Andvirði lánsins er 7.043.100 að frádregnum lántökugjaldi og stimpilgjaldi ásamt óskilgreindum "kostnaði".
Heildarendurgreiðsla að 10 árum liðnum miðað við 4% vísitöluhækkun er:
kr. 13.250.491.-
Þannig að bankinn halar inn sex milljónir tvö hundruð og sjö þúsund þrjú hundruð níutíu og eina krónu á þessum viðskiptum.
Kr. 6.207.391.-
!!!
Er ekki kominn tími á blóðuga byltingu í þessu landi eða eigum við bara að láta nauðga okkur í rassgatið endalaust?*
Ble-si
Afar óánægður viðskiptavinur Búnaðarbankans hringdi í mig rétt í þessu draugfúll yfir því að hafa ekki fengið samskonar tilkynningu frá bankanum og ég fékk um betri kjör. Ég var hinsvegar afar glaður með þetta þar til það kom í ljós að viðmælandi minn á hinum enda línunnar er búinn að vera með þessi sömu kjör í hartnær tvö ár. Hann kvaddi glaður og ánægður yfir að vera búinn að eyðileggja fyrir mér daginn en ég sit eftir með sárt ennið.
Bankinn er semsagt búinn að vera að níðast á sjálfum mér prívat og persónulega og sérstaklega.
Ég er að hugsa um að skila þessum gljáfægða silfurslegna penna sem fylgdi með í umslaginu með tilkynningunni. Viðmælandi minn er búinn að eiga svona penna lengi!

Þá er ég búinn að fá bréf frá Búnaðarbankanum dagsett s.l. mánudag, í tilefni af því að ég er traustur og skilvís viðskiptavinur bankans, með tilkynningu um að þeir kunni að meta viðskipti mín og að ég þar af leiðandi njóti betri kjara en áður en bankahneykslið mikla fyrir helgi kom upp á.
Það hafa semsagt verið lækkaðir yfirdráttarvextirnir um 1% sem þýðir að ég spara u.þ.b. 3.600 kr. á ári miðað við stöðu dagsins. Svo eru allskyns önnur kjör og tilboð sem mér bjóðast ef ég skuldset mig meira í bankanum, og á öllu þessu á ég að spara alveg rosalega.
Hmm?

Mig langar bara að benda á það að það er mun ódýrara að senda 3 kg pakka með Póstinum heldur en með vöruflutningafyrirtæki. Þótt ótrúlega megi virðast.
Miðað við 3 kg. pakka frá Reykjavík til Ísafjarðar - hæð: 15cm - breidd: 20cm - Lengd: 25 cm.
Með Flytjanda kr. 815.
Með Póstinum kr. 565.
Þetta þykir mér merkilegt og kom mér talsvert á óvart, einfaldlega vegna þess að ég vissi ekki betur.

Úti við er yndislegasta veður, heiðskýrt, kyrrlátt og bjart. Ég þarf að muna eftir að tala við innheimtustjóra Odda í dag og jafna málin vegna prentunar Angurgapa. Ég er ekki syngjandi sæll yfir þessum viðskiptum við fyrirtækið að þessu sinni og finnst þeir hafi komið svoldið í bakið á okkur. Ég samdi um vissan greiðsluprógress með bankatryggingu en var síðan stunginn í bakið og særður svöðusári fljótlega eftir það.
Ég næ því ekki hvers vegna en finnst líklegast að innheimtustjórinn hafi samið um eitthvað sem hún mátti ekki og stjórnendur fyrirtækisins hafi tekið hana á teppið. Þetta segir manni að ganga aldrei frá neinu munnlega í þesskonar viðskiptum.
Prentsmiðjan Oddi hefur fallið þó nokkuð í áliti hjá mér við þessi viðskipti og ég er hreint ekki viss um hvort ég mæli með því að beina viðskiptum þangað í framtíðinni.
En Angurgapi er ennþá til sölu og verður það eitthvað áfram.

25 nóvember 2003
Framkvæmdastjóri styrkjadeildar menningarsviðs Alþjóða gjaldeyrissjóðsins er æskuvinur minn og ég fæ alltaf jólakort frá honum um hver jól með fallegri kveðju. Ég hef bara ekki kunnað við að hafa orð á því fyrr, því ég vil ekki að vinskapur okkar sé misnotaður.
(Jahérna - þetta er nú meiri vitleysan. Algjört hneyksli frá Helvíti.)

Þetta er hneyksli frá Helvíti. Ég er svo hneykslaður yfir því sem ég er hneykslaður yfir að ég get varla sagt sjálfum mér frá því. Hvað þá úttalað mig um það. Sem ég heiti Sigurður og er ekki Einarsson. Hvað á svona lagað eiginlega að þýða? Ég á ekki aukatekið ekkisens orð.
Þetta er Siggi Atla sem bara hlýtur að skrifa beint frá Helvíti.
„Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstaðdendum skaðann.“

24 nóvember 2003
Er búinn að ræða mikið fjármál í kvöld tengt opnun allskyns áfanga og hátíðarhöldum og að hlutirnir þurfa að kosta eitthvað ákveðið fyrirfram og ekki yfir vissri upphæð.
Svo vorkenni ég mér ekkert þó ég þurfi að leggja vinnu við opnun einhvers áfanga og einhverrar mikillar hátíðar á svipuðum tíma. Það þarf ekki tvo menn í það. Það er alveg ljóst. Létt verk og lítilfjörlegt.
Gott að vera kominn heim aftur þó að svefn sé mér ekki efst í huga.

Maggi á Bakka er kominn að norðan aftur og við ætlum að hittast yfir krús eftir hálftíma. Þá þarf ég að fara í lopapeysu og úlpu því ég finn fyrir köldum gust inn um gluggann hjá mér.
Ég var að fá góða hugmynd að sölugrip til fjármögnunar göldrunum, sem ég ætla ekki að segja frá strax. Nokkrar svona góðar hugmyndir í viðbót og allt verður í sóma.

Þá eru komnar fram breytingatillögur vegna annarrar umræðu fjárlaga sem verður á Alþingi á morgun.
Sjá hér þskj.395
Hérna er það sem ég er helst að líta á:
9. Við 02-919 Söfn, ýmis framlög
a. 1.12 Listasafn Sigurjóns Ólafssonar 6,0 1,0 7,0
b. 1.41 Galdrasýning á Ströndum 0,0 7,0 7,0
c. 1.90 Söfn, ýmis framlög 10,5 8,8 19,3
d. 6.90 Söfn, ýmis stofnkostnaður 40,5 39,5 80,0
3. Söfn, ýmis framlög (02-919-1.90).
1. Húni II 800
2. Iðnaðarsafnið á Akureyri, undirbúningur flutninga 500
3. Þjóðlagasetur Bjarna Þorsteinssonar 2.000
4. Kvennasögusafn Íslands 500
5. Sjávarsafn á Norðurtanga, Ólafsvík 2.500
6. Kirkjubæjarstofa 5.000
7. Náttúrugripasafn í Vestmannaeyjum 2.000
8. Herhúsið, Siglufirði 2.000
9. Sauðfjársetur á Ströndum 1.000
10. Búvélasafn Hvanneyri 2.000
11. Búvélasafn á Flúðum 1.000
4. Söfn, ýmis stofnkostnaður (02-919-6.90).
1. Sögusetrið á Hvolsvelli 7.000
2. Hvalamiðstöðin á Húsavík 7.000
3. Sögusafnið í Perlunni Reykjavík 5.000
4. Safnahús í Neðstakaupstað á Ísafirði, geymslu- og sýningarhúsnæði 6.000
5. Safnahús í Búðardal – Safn Leifs Eiríkssonar 7.000
6. Kjarvalsstofa, Álfaland 2.000
7. Saltfisksetur Íslands í Grindavík 7.000
8. Samgöngusafnið Skógum 7.000
9. Sjóminjasafnið Ósvör, Bolungarvík, uppbygging húsa 7.000
10. Uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins á Reyðarfirði 3.000
11. Uppbygging Sjóminja- og smiðjumunasafns Jósafats Hinrikssonar 3.000
12. Safn um myndlist Tryggva Ólafssonar, Neskaupstað 2.000
13. Eyrbyggja – Sögumiðstöð 7.000
14. Íþróttasafn Íslands, Akranesi 1.500
15. Uppbygging Tónminjaseturs Íslands á Stokkseyri 2.000
16. Minjasafn Egils Ólafssonar, hönnun og skipulag lóðar 1.000
17. Veiðisafn á Stokkseyri 500
18. Stofnun sjóminjasafns í Reykjavík 5.000
Undir lið 11. Ýmis framlög (02-999-1.90) finnst m.a.
3. Snjáfjallasetur, skráning, varðveisla o.fl. 1.000
19. Vestfirðir á miðöldum 7.000
21. Sögufélag Ísfirðinga 2.000
22. Steinaríki Íslands, Akranesi 1.000
Undir lið 12. Ýmislegt, ýmis stofnkostnaður (02-999-690) finnst m.a.
4. Uppbygging húsdýragarðs á Blönduósi 3.000
5. Menningar- og fræðsluverkefnið Grettistak 7.000
6. Jöklasetur á Hornafirði 7.000
9. Byggðasafnið að Görðum, framkvæmdir á útisvæði 1.500
11. Minjasafn Egils Ólafssonar, kaup á Maríu Júlíu BA-36 2.000
12. Vélsmiðjan á Þingeyri 7.000
14. Landnámssetur í Borgarbyggð 7.000
Ég vildi gjarna sjá þetta öðruvísi en á ekki von á því að þetta breytist fyrir þriðju umræðu. Það eru sömu verkefnin og áður að fá hæstu styrki sem er 7 milljónir. Galdrasýningin er þar á meðal og því álít ég enga leið að fá liðinn hækkaðan. Galdrasýningin er allavega komin með sér númer beint undir liðnum Söfn, ýmis framlög - hvað sem það nú þýðir.
Það verður bara að bíða og sjá hvað þriðja umræða ber í skauti sér. Tók eftir því að nafn varaformannsins EOK er hvergi undir álitum. Hvernig skyldi standa á því?

Eitt gleymdist og fórst fyrir. En það þýðir ekki að vera að væla yfir því þó það sé kristilegt að væla.
Það er farið að rökkva. Myrkrið lengist um hænufet á dag. Því ættu þjónar myrkursins að gleðjast, nema þeir séu að drepast úr leti. Árans letingjar hoppa sjaldnast hæð sína af einskærri kæti yfir aukinni vinnu.

23 nóvember 2003
Það er eitthvað grunsamlegt á seyði. Síminn er búinn að hringja í mig margoft í dag og alltaf verið skellt á þegar ég hef svarað. Ég hef fram að þessu trúað því og haldið að það væri eitthvað ólag á símakerfinu frá útlöndum, þar til nú nýlega að það svarar dimm og ólánssöm karlmannsrödd eftir að ég hef ítrekað hallóað í símann og spyr mig hver ég sé með leyfi. Ég nefni nafn mitt og þá bara skellir hann á.
Skildi ég hafa verið að gera eitthvað sem ég veit ekki um? Hmmm? Grunsamlegur misskilningur í gangi einhversstaðar.
Anyway - sama er mér. Ég fór í fínan göngutúr í dag og náði mér í mikið af fersku lofti sem ég síðan eyðilagði með fjöldan allan af sígarettum þegar ég kom heim. En mér sko jafnsama um það og þessar símhringingar. Það er nóg til af loftinu fyrir utan.

Ég er búinn að útbúa sér jólasölusíðu á heimasíðu Galdrasýningarinnar. Hún er svosem ekkert frábærlega æðisleg en plottið er að reyna að selja vörur eins og hægt er á höfuðborgarsvæðinu fyrir jólin með því að bjóða upp á fría heimsendingarþjónustu.
Það væri gaman ef þetta virkaði og það má endilega segja sem flestum frá þessu. Við verðum að reyna að fá jólasölumarkaðinn mikla norður á Strandir með einhverju móti.

Auðvitað er það ríkisstjórnin sem á upphafið að þessu bankahneyksli með einkavæðingaferli sínu. Það er einfaldlega ekki nógu djúpt hugsað og það er rasað of mikið um ráð fram þar sem ekki er tekinn nógu mikill tími í að hugsa málið.
Manni dettur í hug skrif fjölmiðla hér á landi undanfarin ár þar sem hneykslast er á Rússunum og aðferðum þeirra við að höndla nýtt frelsi. Þar hefur hugtakinu "rússneska mafían" löngum verið beitt í öllum íslenskum fjölmiðlum. Það hefur verið birtur listi yfir þessa "glæpamenn" og heilu fréttaskýringarnar á síðum dagblaðanna um siðleysi þeirra og græðgi. Þjófnaður segja kannski einhverjir - en það er tæplega hægt að stela því sem manni hefur verið gefið?
Hér á Íslandi birtist sama ferlið hjá forkólfum Kaupþings-Búnaðarbankans sem eru að nýta sér glufu sem kallað eru viðskiptafrelsislög eða eitthvað þvíumlíkt en er raunar lögleg græðgi studd af ráðandi stjórnvöldum. Þjófnaður hrópa kannski einhverjir - en er hægt að stela því sem manni hefur verið gefið?
Svo geisa þessir sömu stjórnmálamenn fram, þeir sem stóðu fyrir viðskiptafrelsislögunum eða hvað á að kalla þau, og segja að þó lögin séu svona eins og þau séu þá megi ekki fara bókstaflega eftir þeim - og biðja um hylli þjóðarinnar!!!
Þjóðin eru síðan svo afspyrnu klikkuð að hún neitar að horfa í gegnum skrípaleikinn og hyllir stjórnmálamennina og lofar.
Ble-si
Ég er viðskiptavinur Búnaðarbankans. Ja, það er kannski fullmikið að segja vinur - en ég er allavega með mín viðskipti við þann banka. Það kemur til vegna þess að ég hef alltaf verið í viðskiptum við þennan banka. En það er sannarlega engin ástæða til þess að vera þar - en ég er því miður ekki í þeim sporum að geta labbað í Búnaðarbankann og mótmælt þessari tilraun bankakólfanna til að eigna sér einhverja hundruð milljóna þar með því að taka út peningana mína. Ég á nefnilega ekki krónu inni á reikningnum mínum - og hef aldrei átt.
Það væri ansi hjákátlegt ef ég færi þar inn sótrauður af reiði með yfir 300.000 kall sem ég leggði á borðið og segði: " Hana, takiði þetta - ég er hættur viðskiptum við ykkur og ætla að borga upp yfirdráttarheimildina mína."
Skyldu hinir hrægammarnir í Landsbankanum, Íslandsbanka og Sparisjóðunum endilega vera tilbúnir að leggja þá aura til á eitthvað skárri vöxtum?
Nei, það er sama rassgatið undir þeim öllum og þeir ræna okkur allir á hverjum degi með okurvöxtum og óskiljanlegum þjónustugjöldum svo ég held bara áfram með viðskipti mín í Búnaðarbankanum þó hann hagi sér eins og bankinn í Helvíti hlýtur að gera.
En Búnaðarbankinn má nú eiga það að hann er með langbesta Heimabankann þó stjórnendur hans séu svín - grísir réttara sagt.

Árdýz Jónsdóttir frá Steinadal er ennþá í London og sendir frá sér hverja snilldarfréttina á fætur annarri. Í nótt náði hún að króa einhvern bretann af og krafði hann svara um hvaða íslenska tónlistarmann hann væri mest hrifinn af.
Þetta er algjör snilld og hún hlær eins og brjálað tröll - það er svo gaman hjá henni.
Ég mæli með Árdýzi þessa dagana. Ferlega gaman að fylgjast með henni.

22 nóvember 2003
Það er búið að vera ansi gaman hjá mér í morgun síðan ég vaknaði. Ég er búinn að vera að dunda mér við að senda allskyns undarlega pósta og hótunarbréf til þessara aðila sem tilkynntu mér um milljón dollara vinninginn. Ég er að hugsa um að gera þeim lífið leitt næstu mánuði með hvers kyns undarlegum sendingum.
Ég fann líka svo helvíti magnaða síðu - einmitt um þetta alþjóðlega glæpagengi. Hún er hér - þar eru allskyns útlistanir á starfsemi gæjanna.
En mér finnst þetta skemmtilegt og er búinn að finna mér aðila til að angra og hefna mín þannig á öllum sem hafa sent mér ruslpóst í gegnum tíðina og reynt að gera mig að þéfúfu.
Mr. John Goodwill á ekki von á góðu næstu mánuðina þegar hann opnar póstinn sinn á morgnana.
He-he

21 nóvember 2003
Árdís rokkari Jónsdóttir er í London og sendir hljóðfréttaskýringar inn á bloggið sitt í gegnum gemsann sinn. Hún er greinilega að skemmta sér vel. Þetta er bara snilld.
Ble-si
Ble-si
Gott var að vakna glaður og hress. Það voru miklar spekúleringar hjá okkur Áka á Hressó í gær. Afar gáfulegar samræður um allt milli himins og jarðar, allt frá bjórbruggi til hentugustu sendiherra Íslands í Afríku. Það var bara eins og við stjórnuðum heiminum og því miklar og áríðandi ákvarðanir teknar í þeim efnum. Gaman af því.
Það var ekki jafngaman þegar ég læsti hjólinu stuttu seinna fyrir utan indverskan veitingastað í Austurstræti og komst að því að tölulæsingin á lásnum hafði ruglast. Þá voru góð ráð dýr. Hjólið var fast við ljósastaur og ég gat ekki með neinu móti losað það. Ég lá yfir því í marga klukkutíma þar til mér tókst loksins að pikka upp lásinn og losa hjólið frá staurnum og hjólaði heim pungsveittur. Þá átti ég eftir að koma hurðinni á bókasafni RA þannig fyrir að það væri hægt að læsa henni. Með snörum handtökum kláraði ég það eins fljótt og auðið var og kominn í svefninn fyrir hálf-fjögur.
En nú er ég semsagt vaknaður glaður og hress og vantar ekkert nema nýjan lás á hjólið.
Það er rok og kuldi úti og frekar drungalegt. Nú væri gott að vera á Bahamas.

20 nóvember 2003
Áki vill hitta mig niðrá Hressó eftir hálftíma. Best að kíkja á hann og athuga hvað hann vill. Mig grunar að hann sé nú bara að hugsa um kollu-unga, en ég læt sko ekki glepjast . Ég er sko alveg ákveðinn í því að hann getur bara lapið sinn bjór.
Það er farið að þykkna í lofti og það er því ekki jafn bjart yfir og í hádeginu.

Ég er að setja upp tvær hurðar í RA. Önnur þeirra er komin í en hin verður erfiðari. Þarf að saga og djöflast, stækka gatið og festa hana einhvernvegin í ekkert. Þær eru níðþungar þessar bévitans eldvarnarhurðar. Allt kemur þetta þó að lokum.
Það er gott veður, heiður himinn og svoldið svöl golan. Kannski þó meira vindur en gola.

Þetta er afar mikilvægt.
Forsætisráðherra telur ástæðu til að vernda byggð í Árneshreppi
Davíð Oddsson forsætisráðherra telur að mannlífið í Árneshreppi á Ströndum hafi mikla þýðingu og því sé æskilegt að vernda og styðja búsetu þar. Skipa á nefnd sem vinna á að gerð tillagna til að vernda byggð í Árneshreppi. Hún á að skila af sér ekki síðar en í maí á næsta ári. Kom þetta fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar um hvað liði skipan og störfum nefndar sem ríkisstjórninni var falið að setja á stofn samkvæmt þingsályktun sem Alþingi samþykkti 15. mars síðastliðinn.

19 nóvember 2003
Ég var að fá tilkynningu með tölvupóstinum að ég hefði unnið milljón dollara í einhverju net lotteríi. Það er gaman að því. Ég sendi þeim strax tölvupóst til baka og bað um að tékkinn yrði sendur til mín með næsta pósti.
Svona hljóðaði upphaf bréfsins:
"Sir/Madam
We are pleased to inform you of the result of the Lottery Winners International programs held on the 18/11/03.
Your e-mail address attached to ticket number 2758946-5896 with serial number 1202-510 drew lucky numbers 7-14-88-18-31 which consequently won in the 1st category, you have therefore been approved for a lump sum pay out of US$ 1,000,000.00 (One Million United States Dollars)
CONGRATULATIONS!!!"
Svo tók eitthvað við um það að ég ætti ekki að segja neinum frá þessu fyrr en ég hefði peninginn í höndunum. Ég ætla náttúrulega að steinþegja yfir þessu og gef hverjum sem þegir með mér hálfa milljón ISK fyrir viðvikið.
Mikið var ég nú heppinn. Nú get ég kannski fengið mér eftirrétt eftir jólakótilettuna.

Á pönnunni er kvöldmaturinn að fæðast. Það verða steiktar fiskibollur með mikið af lauk á salatbeði. Ætli ég velji mér ekki bara bjór af vínlistanum til að skola fiskibollunum, lauknum og salatbeðinu niður í meltingarfærin.
Hvað ég geri svo er ekki ráðið. Líklegast að ég leggist í sjónvarpsgláp.
Svona er nú spennandi að lifa í nóvember.

Bloggari dauðans svokallaði sem var Ármann Jakobsson að því að mér best skilst bloggaði einhverntíman eins og djöfullinn í dúfnahúsi. Svo hætti hann því og lokaði slóðinni sinni á sama tíma og einhver piltur ákvað að hefja blogg. Sá ungi piltur datt niðrá að nota þessa slömu slóð sem var laus og Ármann hafði hætt með og situr uppi með eilíft nöldur og yfirgangssemi fólks í kommentakerfinu sínu. Þetta er einskonar einelti bloggheima. Aumingja pilturinn veit ekkert hvaðan á sig stendur veðrið og vissi ekkert um þennan fyrrum yfirbloggara. Ekki frekar en ég.
Þetta finnst mér alveg makalaust og dónalegt - sérstaklega í ljósi þess að bloggara dauðans er nákvæmlega skítsama, enda hættur að blogga.

Er búinn að vera í símanum í allan morgun og er kominn með bólgu í bæði eyrun. Hringdi meðal annars í bb.is og sagði þeim allskyns slúður.
Í dag er fallegur dagur og hrím á þökum.
Þann 6. desember í fyrra skrifaði ég: "Það er annars fátt á seyði þessa dagana. Að vísu er þriðja umræða fjárlaga á Alþingi í dag og grenjandi rigning".
Það verður spennandi að vita hvort það rigni þann 6. des á þessu ári.

18 nóvember 2003
Ég borða ekki máltíð á hverjum degi. Oftast er þetta eitthvað nart og mest óhollusta allan liðlangan daginn. Svo er ég iðulega orðinn glorsoltinn um það leyti sem ég hátta oní rúm þar sem sjaldnast eitthvað matarkyns finnst í kotinu og allar búðir lokaðar. En núna borðaði ég kvöldmat og það í fyrra fallinu. Ég eldaði sveskjugraut með rúsínum og miklum rjóma og át munkabrauð með osti með.
Ég er saddur og sæll en langar að gera eitthvað í kvöld. Veit bara ekki hvað það ætti að vera. Nema ég fari í Mál og menningu og hlusti á Kristínu Helgu lesa upp úr bókinni sinni, Strandanornir. Það er aldrei að vita - en nenni yfirleitt ekki að fara neitt einn og fer því sjaldnast nokkurn skapaðan hlut að gera eitthvað svona af viti.

Ég á í hinu mesta basli með FTP-ið. Get ekki með neinu móti uppfært Galdrasýningarvefinn. Ég er að nota rétt host address og rétt login og password, enda hafa þau ekkert breyst. Er búinn að hringja í Snerpu hvað eftir annað og fæ alltaf sömu svörin að það sé ekkert að hjá þeim.
Hmmm??!
Samt get ég tengst í gegnum þennan sama FTP til að uppfæra síður á öðrum serverum sem ég hef aðgang að.
Það er sko ekkert auðvelt að vera ég.
Er þetta ekki eitthvað skrítið?

17 nóvember 2003
Meiri merkilegheitin í þessum MAC notendum alltaf hreint. Aldrei kom mér til hugar þegar ég var átta ára að tölvur gætu orðið upphaf einhverskonar trúarbragða.
Löngu seinna komst ég að því að minnihlutahópar haga sér oft einkennilega.

Mikið fer það nú í taugarnar á mér þetta orðskrípi Stranddalavegur sem einhver Jónas á Bolungarvík eða Ísafirði eða í fjáranum fyrir vestan kom á.
Bévitans blábjánar. Blábjánar, blábjánar og aftur blábjánar!
(Drýp höfði og hristi það) Blábjánar!
Ég er sannfærður um það og hef aldrei vitað jafnvitlausa samsetningu á orði. Svo er þetta ekki einu sinni fyndið. Þvílík aulafyndni og hallærisskapur frá Helvíti. Ef að menn vilja búa til orð þá eiga menn að gera þau með einhverju viti en sleppa því ellegar.
Svo lepur bb.is sem ég taldi virðulegan fjölmiðil þetta upp eins og hann sé á launum hjá þeim í neðsta og hjálpar til við að útbreiða ósómann. Eins og ég er nú annars ánægður með þá.
Bévitans skrípi sem þetta eru þarna þarna fyrir vestan!
Ojbara.

Einu sinni var ég 7 ára. Þá eignaðist ég kærustu sem hét Laufey. Hún beið oft fyrir utan eldhúsgluggann meðan ég vaskaði upp. En við systkynin vöskuðum alltaf upp á vissum dögum á okkar heimili. Einu sinn kom hrekkjusvínið Atli Már bróðir minn til mín þar sem ég stóð í uppvaskinu og sagði mér að Laufey væri fyrir utan gluggann að bíða eftir mér og bauðst til að taka við af mér - við uppvaskið. Ég gleymi því aldrei hvað ég var að hissa á Atla Má bróðir. Ég er meira að segja stundum hissa á þessu enn þann dag í dag og ég gleymi þessu aldrei.
Laufeyju hef ég ekki séð síðan þetta kvöld.
Hvað skyldi hún hafa haft fyrir stafni síðustu 35 árin?

Hljodkerfi, reykvel, hljodmadur, drunur, ast, draugur, HUMOR, sagnahefd, ohefdbundid, enska, særingar, rimur, kostar eitthvad. (Pælingar a kaffihusi.)
? Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
? Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Base Camp ehf er einhversskonar kynningarfyrirtæki, almennatengsl eða einhver skollinn sem ég átta mig ekki alveg á og kann ekki að segja.
Allavega er þetta fyrirtæki með á sínum snærum risastóra kynningu eða móttöku fyrir einhverja erlenda aðila á Íslandi þann 6. desember. Um er að ræða einhverja hvataferð 300 einstaklinga úr ferðaþjónustukynningarfyrirtækjum hvaðanæva úr veröldinni.
Það verður semsagt húllumhæ í kringum þetta og fulltrúar fyrirtækisins voru víst á Ókindarkvöldinu og vilja frá galdraþema. Það kemur ekkert annað til greina hjá þeim eftir að hafa orðið vitni að performansinu á Ókindarkvöldinu.

16 nóvember 2003
Þau voru búin að útbúa allskyns gómsætar kökur og fínheit í tilefni af Veigari 21 árs. Aldeilis fín veisla hjá þeim. Ég færði honum verkfærakistuna miklu fulla af allskyns verkfærum og hann var kátur með það. Nú getur hann líka farið að gera við bílinn minn - kannski. Hehehe.
Svo fórum við Veigar saman í keilu en hann ætlaði sér að ná af mér titlinum mikla - en - en - en það tókst ekki. Hehehe.
Gamli maðurinn vann enn og aftur þó hann hafi ekki farið í keilu í vel yfir ár og hinn búinn að fara mörgum mörgum sinnum. Hehehe.

Þá fer bíllinn ekki í gang þegar ég þarf á honum að halda.
Mér er meinilla við að þurfa yfirleitt að nota bíl en þegar sonur manns sest að í einhverju úthverfi þá er manni nauðugur einn kostur að þurfa bíl.
Mér er meinilla við það.
Mér er líka meinilla við að eiga aldrei bíl sem ég get treyst á.
Að auki er mér meinilla við almenningssamgöngur á Íslandi því þær virka ekki.
Mér er meinilla við það að hafa yfirleitt vaknað í dag.
Mér er meinilla við að búa á þessu skeri.
Ég ætla bara að bíða hér heima og sjá til hvort bíllinn lagist ekki af sjálfu sér þó mér sé meinilla við það líka.
Ég hreyfi mig ekki héðan út fyrr en bíllinn hóstar sér í gang.
Það er búið að skera á plastið sem ég setti í stað brotnu rúðunnar eftir að þjófarnir brutu allt og brömluðu og mér er að sjálfsögðu meinilla við það.

Mig dreymdi ekkert í nótt sem betur fer. Samt lenti ég í ógurlegri martröð eftir að ég hafði fengið mér göngutúr undir miðnætti til að fá mér hamborgara niðrí bæ. Þegar ég kom heim aftur þá var ég ekki með lyklana í vasanum - eina ferðina enn. Veigar var ekki heima og Atli fyrir norðan þannig að aukalyklarnir sem ég er búinn að planta útí bæ komu ekki að neinu gagni. Ég hringdi í lásasmið - en tímdi bara alls ekki að borga honum 6000 kall fyrir að koma - fannst það vera orðinn ansi dýr hamborgari með osti.
Svo við tók dund og vesen í á þriðja tíma við að pikka upp lásinn með allskyns tólum. En það gekk hvergi og ég var orðinn verulega pirraður. Ég gerði tilraun til að fara út á þakið og skríða inn um kvistgluggann hjá mér - en snéri við því það hafði fryst og það var fljúgandi hálka á þakinu.
En ég komst að endingu inn. Draugfúll og orðinn banhungraður aftur.
Nú ætla ég bara að fela lykil einhversstaðar hérna í nágrenninu - svo ég lendi ekki í svona uppistandi um miðja nótt aftur.
Veigar minn á afmæli í dag og ég ætla að kíkja til hans seinnipartinn og færa honm snilldarpakkann sem ég keypti í gær.
Svo verð ég að fara að upphugsa eitthvð trix svo þessi bók fari nú að seljast betur. Það er ekki nógu mikil hreyfing á henni. Langt í frá.

15 nóvember 2003
Mikið er nú nýja mjólkurfernan orðin skrautleg og fín með íslensku jólasveinana í lit á öllum köntum.
Hvað skyldi biskupinn segja við þessu að vera með þessar rammíslensku þjóðsagnapersónur flissandi og skælandi sig á öllum hliðum mjólkurfernunnar sem finnst á hverju heimili landsins á öllum matmálstímum í stað grafalvarlegs Jesúbarns, hirðingja í stórum stíl, Maríum og Jósepum og hverskyns englum og himneskum verum sem finnast í stóru þykku þjóðsagnabókinni frá miðausturlöndum sem hann álítur eina sagnakverið sem vitna má í.
(Nú má anda)
Mér finnst þetta vera falleg mjólkurhyrna og mér finnst mjólkin inni í henni alltaf vera jafngóð. Samt finnst mér hún ekki nánda nærri jafngóð og bjór þó hún sé mikið betri útí kaffið.
Ble-si
Ég er að hugsa um að byrja að blogga eins og Dagrún Ósk, vinkona mín norður á Ströndum. Hún segir bara það sem máli skiptir og eins og hlutirnir eru án þess að vera að skreyta þá óþarflega. Þannig kemst allt fullkomlega til skila.
Það er list að geta þetta.
Ble-si
Það er list að geta þetta.
Ble-si
Mikil er nú blessuð dómsdagsblíðan í dag. Ægiblár himininn og bjartur og fjallið þarna hinum megin við Sundin lítur út eins og aukaleikari í svissneskri mjólkursúkkulaðiauglýsingu.
Mér veitti ekkert af því að vakna upp við svona fallegan dag eftir erfiða nótt. Mig dreymdi nefnilega svo hryllilega að ég vaknaði upp með viðbjóðinn í hálsinum. Ég var semsagt einhverskonar meinafræðingur í alla nótt og þurfti að rannsaka með afar nýstárlegum hætti lík sex myrtra ungra kvenna sem fundust einhversstaðar. Rannsóknirnar gengu aðallega út á eldamennsku og smökkun. Ég man að ég reyndi að vakna hvað eftir annað í nótt til að bægja frá mér nályktinni og þessum hryllingi. Mér tókst það ekki fyrr en um klukkan tíu í morgun en þá var ég búinn að elda hverskyns rétti úr fjórum líkum þessara kvenna.
Furðulegir geta draumar verið. Úff-púff. Ég er glaður að vera kominn á fætur og að drekka almennilegt kaffi til að skola burt óbragðið úr bragðkirtlunum.

14 nóvember 2003
Jorunn baud mer i piparsteik sem eg thadi enda a barmi hungursneydar thegar hun hringdi. Bid eftir simhringingu sem vardar akvördun um næstu Galdrahatid.
Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Mér fellur það ekki í geð að nærvera mín í hlutverki galdramanns af Ströndum skuli vera nefnt galdramaður af Vestfjörðum. En það er ekki gott að eiga við það - heldur verður að halda síbyljunni áfram þar til það kemst á milli eyrnanna á blaðamönnum hvað hlutirnir í raun heita.
Ble-si
Ble-si
Ókindarkvöldið var til mikils sóma. Yfir 100 manns mættu svo stemningin var mögnuð. Atriðið mitt gekk upp eins og það væri þrælæft hjá okkur Hilmari. Þvílíkur andskotans snillingur sem hann er.
Svo magnaðar voru þessar særingar að ég sjálfur var orðinn dauðskelkaður um að hinir víðfrægu Iðnódraugar einfaldlegu réðust á mig og ætu mig. Það var mögnuð stemning í salnum og gestirnir lyfti fingrunum og gerðu krossmark sér til varnar og hrópuðu með mér Sator Arepo Tenet Opera Rotas.
Þetta var gaman. Það fyndnasta er að útvarpið klúðraði upptökunni þegar kom að mér - svo þetta er ekki til. Mér er sko sama - en þeir eru spældir.
Ble-si
13 nóvember 2003
OK. Fekk simhringingu og buid ad leyfa bjorsölu. Hallærisskap afstyrt. Eg sny vid og fer ekki i Rikid.
Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Ég ætla nú rétt að vona að það verði seldur bjór þarna. Annað er nú hallæriskapur frá Helvíti.
Ég var nefnilega að fregna að það mætti ekki selja bjór þarna af því að það væri ekkert aldurstakmark. Hva! Hva! Hva! Hvusslax andskotans hallærisafturábaksamfélagsóhroði er þetta sem maður býr í? Er búið að breyta Iðnó í einhvern leikskóla? Er þetta einhver andskotans jólatrésskemmtun fyrir smábörn? Þvílíkur hrottans skandalli!
Fjandaskottið!

Það er ekki laust við að ég sé smá stressaður og nervös yfir Ókindarkvöldinu í kvöld. Við fórum þó örlítið yfir málin á fundi í gærdag og niðurstaðan varð að Erpur myndi byrja og blása út og Steindór kæmi svo inn til hans - skömmu síðar myndi Erpur hlaupa út úr húsi því hann þarf að stjórna útvarpsþætti klukkan 10 - þá mun Steindór kveða dágóða stund þar til ég kæmi einhverntíman inn og myndi enda þetta. Hilmar aftur mun sjá til þess að það verði einhver tónlist undir þessu öllu hjá okkur. En hvernig þetta verður veit ég ekki. Vandi er um slíkt að spá.
Ég er að hugsa um að koma fram í síðasta skipti í kvöld í þessum ófrýnilega galdrabúningi - maður er einhverveginn hættur að stjórna þessu sjálfur auk þess sem þessi búningur fer í taugarnar á vissum einstaklingi.
Ég hlakka mest til að heyra í Sigga pönk. Hann er sko alvöru hávaðaseggur.

Mér líst illa á það að Gary McAllister ætli að hverfa frá Wolpherhampton Wonderbra og verða næsti stjóri Lips City United í Sledge stýri. Mér sýnist enski boltinn allur vera á niðurleið við þessi ógurlegu tíðindi. Esserton FC (footballclub) sem er úr vesturbæ Hretingon stýri er í skít og slæmum málum við miðja deildina eftir að stjóri þeirra, hinn smái Christian Slade, popparinn frá Grey Forest Dark City var keyptur til Singen Straße Wunder til að bjarga þeim frá sigri í þýska handboltanum, en SSW á við þá örðugleika að stríða að allir leikmennirnir eru einhentir og geta því ekki tvíhent bikarnum nema í hvorn annan en samstaða liðsins leyfir það ekki.
En þetta vissu bara ég og Guð - þar til núna. Ef að ég er þá til.

12 nóvember 2003
Hér er mynd frá opnun Draugasetursins á Stokkseyri sem Ingólfur Júlíusson ljósmyndari sendi mér.
Þarna krýpur galdramaður af Ströndum albúinn að taka á öllu sínu og fær hjálp frá draugasetursmanninum Þóri Vigfússyni við að kveða alvöru drauga til búsetu á draugasetrinu.

Æi, er þetta ekki bara rugl að vera að standa í þessu bloggi? Maður hefur raunverulega ekki neitt að skrifa um af því að þetta er ekki raunveruleg dagbók. Í raunverulega dagbók nótar maður sínu dýpstu hugsanir og þrár, nokkuð sem maður gerir ekki á opnu bloggi. Allavega ekki ég. Maður veit aldrei hverjir detta inn á þessar síður og ekki vill maður galopna sig varnarlausan gagnvart hvaða lúsablesa sem er.
Ég hélt dagbók til margra ára um tvítugt og var einmitt að blaða í þeim um daginn.
"Heilaga guðsmóðir!" að maður færi að bera sig þannig fyrir opnum tjöldum eins og birtist á þriðju hverju síðu í þessum gömlu dagbókum. Ljóti lifnaðurinn á ungum manni. Hneyksli! Ég yrði æfur og verulega áhyggjufullur ef börnin mín eyddu unglingsárunum í svona rugl og þvælu.
Hvað um það. Ég ætla að grípa niðrí saklausa færslu í dagbókinni sem var skrifuð þann 14. maí 1980.
Fór í enskupróf í morgun og mér gekk vel. Sigurborg hringdi í mig eftir prófið og sagði mér að ég yrði að klára ritgerðina í íslensku í dag, því ég hefði náð prófinu en myndi ekki fá það gilt nema ég skilaði ritgerðinni. Mér finnst þetta asnalegt að segja mér að ég hefði náð prófinu og síðan í næsta orði að ég hefði ekki náð því nema...! Ég tautaði og röflaði í henni smátíma sem var auðvitað ekki til neins svo ég labbaði með þessa fjárans ritgerð til hennar tæpum tveim tímum síðar. Svo fór ég í 4 bíó og svo á ball og datt ekki í það.
Þetta var saklaust.

11 nóvember 2003
Í kvöld var kvöld hinna miklu heimsókna. Fór fyrst í Grafarvoginn að hitta krúsidúllurnar mínar og skila lyklinum að íbúðinni minn sem ég geymi þar til nota þegar ég læsi mig úti, en ég læsti mig einmitt úti þegar ég skrattaðist niðrá Stöð 2 í gær. Þau voru ekki heima svo það var ekki annað að gera en að setja lykilinn í póstkassann hjá þeim, svo hann sé á vísum stað næst þegar ég læsi mig úti. Það gerist svona fjórum sinnum á ári.
Þá ákvað ég að fara í kaffi til Árna litla bróður í Kópavoginum, en hann var ekki heima og ekki nokkur leið að ná í hann. Svo stefnuna tók ég til Rakelar og Óskars í hundrað og einum Reykjavík og þau voru náttúrulega heima, hress og kát.
Þar fékk ég þetta langþráða kaffi og bull yfir því.
Svona var nú ævintýri kvöldsins að mestu leyti og nú langar mig í köku fyrir svefninn.
Ég held að máninn sé hálffullur. Hann starir með morðglampa inn um gluggann hjá mér og reynir að hylja sig í skýjum öðru hvoru og heldur að ég fatti ekki hvað hann hugsar.
Það er smá scary.

Í dag er dagur hinna miklu afreka. Það getur ekkert komið í veg fyrir það. Þarf að byrja á því að gera fjárhagsáætlun til næstu fimm ára fyrir Sparisjóðinn svo menn verði glaðir þar á bæ.
Í dag örlar ekkert á morgunsólinni því skýjaþykknið í austri er þykkt eins og óhrært skyr beint úr kúnni og ætlar sér að verja okkur vel gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Það er gott - að spara sólina til sumars.