30 mars 2003

"Lóan er komin að kveða burt snjóinn, kveða burt leiðindin það getur hún."
Hvaða helvítis kjaftæði er þetta? Það er búið að vera snjólaust og tíðindalaust veðurlag alla vetrarmánuðina og svo loksins þegar þessi fjandans spörfugl flækist hingað, þá gerir glórulausan stórvetur. Í þeim eina tilgangi að fuglskrattinn geti rekið hann burt.
Mætti ég þá frekar biðja um að þessi fiðurfénaður héldi sig á Bretlandseyjum árið um kring.
Ble-si

29 mars 2003

Það snjóaði í nótt. Þannig að dagurinn í dag er sá snjóþyngsti dagur vetrarins í Reykjavík til þessa. Um það bil 5 cm djúpur jafnfallinn snjór yfir öllu. Þetta finnst mér vera helsti kosturinn við höfuðborgarsvæðið. Lítill snjór.
En í dag ætla ég til Jórunnar og aðstoða hana með breytingu í eldhúsinu - smíða skáp fyrir ofan ísskápinn og svo að setja nýja plötu á baðkarssökkulinn.
Það er fallegt veður. Bjart yfir að lítast.
Mér brá svolítið í brún í morgun þegar risaskellur barst inn um opinn gluggan hjá mér. Ég hélt það hefði orðið árekstur. En sem betur fer var það ekki svo. Heldur hafði fiskflutningabíll misst körin af bílnum svo hringtorgið var löðrandi í körfum, ýsum, þorskum og öðrum sjávardýrum. Slor um allt.
Ble-si

28 mars 2003

Þessir Ameríkanar eru svo fullkomlega klikkað að það er hillaríus hlægilegt. Ég er búinn að rúlla á gólfinu með hláturkrampa yfir þessum vitleysingum.
Í Fréttablaðinu í dag segir í myndatexta undir Bush að snæða með einhverjum hermönnum:
George W. Bush (Runni) Bandaríkjaforseti snæddi með hermönnum eftir að hafa ávarpað þá í herstöð á Flórída. Á matseðli flugvélar forsetans, Air Force 1, er ekki lengur að finna franskar kartöflur. Frelsiskartöflur hafa komið í þeirra stað
Hehehe hvað skyldu frelsiskartöflur vera? Ábyggilega svakalega ánægðir með sig Kanarnir að geta náð sér svona svakalega niðrá frönsku þjóðinni. Þeir hljóta að skófla í sig dansk smörrebröd, íslenska sviðakjamma, ungverskar rúllupylsur, japanskt sushi, ítalskt spaghettí, ástralskt kengúrukjöt, breska morgunverði löðrandi í feiti, hollenska tréklossa, rúmensk rúgbrauð, makedónísk fiskflök ásamt öðru lostæti frá bandamönnum sínum. Skyldu þeir ekki líka hætta að drekka þær bjórtegundir sem eiga allt sitt undir þýskri bjórhefð, s.s. Budweiser. En líklega eru þeir svo forheimskir að þeir vita ekki af því.
Ble-si
Þetta er skemmtileg. Svona dúkkar Galdrahátíðin mikla á Ströndum upp öðru hvoru í allskyns myndum í fjölmiðlum. Þetta er úr Fréttablaðinu í dag.

Danska fræðikonan Helle Degnbol hefur þýtt kveðskap Megasar að gamni sínu og telur víst að þessi íslenski menningararfur tuttugustu aldarinnar eigi fullt erindi við Dani.
Spáð í Megas á dönsku
„Ég er mikill aðdáandi Megasar,“ segir Helle Degnbol, sem vinnur við forníslenska orðabók í Kaupmannahöfn. „Þetta er mjög góður og skemmtilegur kveðskapur,“ bætir Helle við á ágætri íslensku.
„Það er einhver Íslendingur í mér og Megas höfðar til mín. Ég þýddi „Spáðu í mig“ í ferjunni á leiðinni heim frá Íslandi eftir að hafa hitt Megas á Galdrahátíð á Ströndum.“
„Spáðu í mig“ heitir „Sats på mig“ í þýðingu Helle og hefur að hennar sögn gert mikla lukku þar sem það hefur verið sungið í Danaveldi. „Lagið var meðal annars sungið á stúdentagarði þar sem mikið er um Íslendinga og þar var tekið hástöfum undir á dönsku.“ Helle segist telja kveðskap Megasar eiga fullt erindi við Dani og efast ekki um að hann myndi falla í frjóan jarðveg. „Ég held samt að það ætti einhver annar að þýða hann. Ég hef gert það meira mér til gamans og vildi gjarnan gera meira af því en tel samt að þetta verkefni væri betur komið hjá einhverjum öðrum.“
Megas kannast vel við þýðingu Helle og er afar sáttur við hana. „Það sem hefur verið þýtt eftir mig á önnur tungumál hefur yfirleitt komið vel út,“ segir Megas. Hann rámar í að hafa hitt Helle á Galdrahátíðinni. Hann kannast einnig við að Krókódílamaðurinn hafi verið þýddur á ensku en man ekki hvernig það kom til. „Þá hefur eitthvað verið þýtt á sjaldgæfan díalekt á Spáni.“

SATS PÅ MIG
Aftnerne er ensomme på Ama’r,
vindene med sne er blevet vilde,
kulderamt med kufferten på nakken
kommer jeg til dig og beder stille:
Sats på mig,
så satser jeg på dig,
Sats på mig,
så satser jeg på dig.

Natten den har öjne lissom fluen,
fölger mine fjed på Fælledvej,
ser mig, hvor jeg kravler op ad trappen
og gi’r min flaske og mig selv til dig:
Sats på mig,
så satser jeg på dig,
Sats på mig,
så satser jeg på dig.

Syn’s du ikke, Söerne er syge?
ser du ikke, byen smiler fjoget?
Så hvis jeg spör’, om du ta’r med til
Omdurman,
så må du ikke sige: Hvaffornoget?
Sats på mig,
så satser jeg på dig,
Sats på mig,
så satser jeg på dig.

Þetta er skemmtilegt. Hér eftir syng ég Spáðu í mig eingöngu á dönsku.
Ble-si
Ferðamálaráð er athyglisvert fyrirbæri. Það er búið að úthluta klósettstyrkinum mikla. Í framtíðinni er stefnt að því að sem flestir geta migið og skitið meira en vant er.
Svona er Ferðamálaráð í hnotskurn. Er ekki mál að linni?
Mér er mál að skíta og best að láta hið opinbera borga fyrir það.
Ble-si

26 mars 2003

Nú ætla ég að upplýsa um eitt stórt samsæri.
Eins og einhverjir munu vita þá er sjoppurekstri hætt á jarðhæðinni í húsinu sem ég bý í. Ég hitti fyrrum eigandann um daginn og hann sagði mér undir og ofan af þessu öllu saman.
Þannig var, að Subway vildi endilega kaupa húsnæði Hringbrautar Apóteks sem er í næstu dyr við þá. En apótekið vildi ekki selja. Enda ganga viðskiptin þolanlega, þrátt fyrir að það sé ekki í lyfjahringjum Baugs eða Kaupáss. Hringbrautar Apótek er semsagt aðili að Plús-Apótek, sem er sameiginlegt innkaupakerfi nokkurra lyfsala á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni, en er að öðru leyti eins og litli kaupmaðurinn á horninu í samanburði við hákarlana hjá Bónus og Nóatúni. En eins og við vitum þá á Baugur Bónus og Lyfju og fleiri fyrirtæki og Kaupás á Nóatún og mörg önnur fyrirtæki.
Nú lyfsalinn á Hringbraut vildi ekki selja. Því ákvað Subway að hrekja sjoppueigandann í burtu. Lyf & heilsa sem er eign Kaupáss setur upp apótek í húsnæðinu sem sjoppan var í. Stefnan er því að setja Hringbrautar Apótek á hausinn sem fyrst, svo Subway geti stækkað sig inn í húsnæði þess.
Hver skyldi eiga Subway? Skyldi það nokkuð vera Kaupás?
Annars líst mér hundilla á að sett verði upp Apótek hér í stigaganginum. Ég sé það fyrir mér að hann fyllist af grímuklæddu fólki með barefli, kylfur og hnúajárn.
Ble-si

25 mars 2003

Hvað ætli aðrir en ég séu að gera?
Ég hangi bara yfir leiðinda sjónvarpsdagskrá og ét epli og appelsínur. Læt hugann reika um að ég sé að flísaleggja fyrir ofan baðkarið hjá mér og svoleiðis. En mikið skelfing leiðist mér. Sem betur fer þá fer að styttast í vorið og maður getur farið að draga fram útilegugræjurnar. En fyrst þarf ég að fara minnst einu sinni á skíði.
Ég nenni ekki að fárast lengur yfir alþjóðamálum og íslenskri apakattapóitík. Hér eftir verður þetta jafn galgopaleg síða og hún var í upphafi.
En hvað ætli aðrir séu að gera?
Ble-si
Atli minn er ofsakátur og þá er ég það líka. Hann fékk vinnuna sem ég var að sverma um fyrir hann og byrjar í fyrramálið. Ég er ofsakátur yfir því. Mér leist nefnilega ekkert á að hann færi að skrá sig á atvinnuleysisbætur rétt tæpra átján ára. Eins gott að fólk komist ekki upp á bragðið með það svona snemma. Það getur ekki verið nokkrum manni hollt.
En semsagt - á morgun fer hann niðrí Aðalstræti og tekur þátt í byggingu nýja hótelsins þar.
Besta mál - ekki satt? :)
Ja - fyrir utan bílastæðavandamálin auðvitað. Ég geri ekki ráð fyrir að hann labbi þó það taki bara 12 mínútur.
Ble-si.

24 mars 2003

Ha ha ha hí - ég kann ekki að gera skattaskýrsluna mína. Ég botna ekkert í þessu. Ekki baun í bala. Ég er búinn að vera nema ég fái hjálp. En ég fékk frest til 6. apríl. Á semsagt allavega 12 daga eftir lifaða.
Hallelúja. Ég er ósammála Jóni Þeófílussyni hans Kiljans höfundar Íslandsklukkunar, því ég vil verða brenndur.
Ble-si

23 mars 2003

Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, stríðsæsingamaður og einn af skoðanakúgurum þjóðarinnar var í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld að rembast við að laga almenningsálitið á sjálfum sér og gjörningum sinna manna. Það verður að segjast eins og er að honum varð ekkert ágengt - enda málstaðurinn vondur í alla staði og óafsakanlegur.
””Hann byrjaði á því að játa það að hann hefði ekkert vit á stríðsrekstri og hélt svo áfram að misskilja sáttmála númer 1441. Af orðum hans mátti skilja að það sé meira glæpaverk að brenna íslenska fánann en að fara í ólöglegt stríð.
Hverjum er um að kenna að íslenski fáninn var brenndur á alþjóðlegum mótmælafundi gegn stríði í Kaupmannahöfn? Hver skyldi bera ábyrgðina á því? Það skyldi þó aldrei vera að meginábyrgðin liggi hjá íslenskum stjórnvöldum fyrir fáránlega ákvörðun í trássi við þing og þjóð?
Svari bara hver fyrir sig.
Ble-si
Íris frænka mín (sjá skyldleika) býr í Þýskalandi ásamt barni og buru. Hún segir oft frá skemmtilegum ævintýrum sem hún lendir í, í fréttapistlum á heimasíðunni sinni.
Hérna er ein lítil úrklippa úr síðustu færslu, þegar hún var á leiðinni heim til sín með lest eftir heimsókn hjá foreldrum sínum í Danmörku.
"Ferðin heim frá DK gekk ekki síður vel, við lentum aftur með ansi skrautilegu fólki í klefa. Það var nýskipaður formaður einhvers hóps innan EU og hans fjölskylda sem sátu með okkur frá Hamburg til Karlsruhe. Fjölskyldan, og aðallega EU fomaðurinn voru ægilega áhugasöm um Ísland... ég var að sjálfsögðu spurð: "Hvað finnst þér um að Ísland sé ekki í EU?" Ég reyndi bara að svara því eins pent og ég gat því ég er hvorki mikið inni í þessum EU málum né heldur það góð í þýskunni að ég geti farið að halda uppi svona samræðum! Þegar EU maðurinn var búinn að predika yfir mér hvað það væri gott fyrir litlu löndin að vera í EU, svona eins og ég réði öllu á Íslandi og sæti e-i EU nefnd þar, sagði hann mér að hann langaði svo óskaplega mikið til þess að koma til Íslands. "Já" sagði ég "og af hverju drífið þið ykkur ekki í frí til Íslands?" Nei, það var ekki hægt, því EU maðurinn og hans fjölskylda eru svo Umweltfreundlich eða umhverfisvæn eins og það heitir á íslensku að þau ferðast ekki með flugvélum!! Og það tæki svo ægilega langan tíma að sigla!! Svona geta Þjóðverjar verið klikk!"
Þetta finnst mér vera fyndið.
Ble-si

22 mars 2003

Ég fór á árshátíð ReykjavikurAkademíunnar í gærkvöldi. Það var alveg ágætt fjör. Mjög góður matur og allt. Ég fór snemma heim sem betur fer. Var kominn um hálfeitt - líklega.
En í dag gerði ég eiginlega ekkert. Var bara að digla mér heima en fór líka í einn hjólatúr um bæinn. Núna er ég bara að éta saltflögur og horfa á sjónvarpið.
Mig langar svoldið að fara eitthvað út að hitta eitthvað fólk - en - ég veit ekki hvar neinn er, svo ég ætla bara að láta mér leiðast.
Sé svo kannski til. Vondandi kemur bara einhver í heimsókn.
Ble-si

21 mars 2003

Magnús Oddsson ferðamálastjóri og málpípa Flugleiða innan Ferðamálaráðs lýsti því betur í kvöld hvað hann er hræðilega vitlaus en oft áður.
Hann sagði um það bil þetta:
Eftir Persaflóastríðið fyrir 12 árum var 40% samdráttur í ferðalögum í heiminum en sá samdrátttur átti sér ekki stað á Íslandi. Þvert á móti þá varð aukning á ferðammannastraumi. Hann heldur því fram að svo verði einnig eftir núverandi stríð, vegna þess - og takið nú eftir!
1a - Hver við erum.
2a - Hvar við erum.
3a - Hvað við viljum vera.
Ég held að þetta fæðingarfífl sé ekki alveg að fylgjast með umræðunni eða að átta sig á hvar við stöndum eftir síðustu ákvarðanir þessarar afar vondu ríkisstjórnar.
1b - Við erum ekki þau sömu og við vorum - eftir ákvörðun ríkisstjórnar Íslands að taka þátt í stríði gegn annari þjóð.
2b - Við erum ennþá á sama stað - en heimurinn hefur minnkað.
3b - Miðað við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar þá er engin ástæða fyrir erlenda ríkisborgara að halda að Íslendingar séu sama friðelskandi þjóðin og fyrir 12 árum.
Fari bara hann og hans yfirboðaðar og samflokksdjöflapúkar vestur til andskotans og láti okkur hin í friði - eins og við viljum vera. Friður!
Ég er farinn á árshátíð ReykjavíkurAkademíunnar sem er haldin í Þjóðleikhúskjallarnum.
Ble-si

20 mars 2003

Ég er svo reiður og mér líður svo illa yfir þessum yfirgangi stjórnarherrana. Þarna sniðganga þeir allt lýðræði í landinu með því að láta ekki kjörna fulltrúa okkar í utanríkismálanefnd einu sinni fylgjast með mikilvægum ákvörðunum íslensku landstjórnarinnar. Þetta er óforsvaranlegt. Fullkomlega. Ef ég hef einverntíman haft snefil af gæsku til þessarar ríkisstjórnar þá er hún fullkomlega horfin út í veður og vind.
Ekki rennur mér reiðin þegar formaður utanríkismálanefndar Sigríður Anna Þórðardóttir, sem búin er að láta nauðga sér sem þingkjörinn fulltrúi þjóðar sinnar í málinu, snýr út úr umræðunni í viðtalsþáttum eða þegar hæstvirtur sjávarútvegsráðherra, einn handhafi framkvæmdavaldsins og þar með gerandi í nauðgunarmálinu, reynir slíkt hið sama. Þetta fólk á sér ekki viðreisnar von. Það á svo voðalega erfitt eftir að kommúnistinn, eini óvinurinn sem hægt var að festa hendur á, datt niður dauður. Er virkilega svona nauðsynlegt að eiga óvin?
Nú vona ég bara innilega að Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra komist ekki á þing í vor. Raunar ætla ég að leggja það á hann. En því miður er það vonlaust að Davíð komist ekki á þing.
Ég er með sömu vondu tilfinninguna og þegar ríkisstjórnin tók upp stjórnarhætti Saddam Hussein í fyrra í Falon Gong málinu og setti upp fangabúðir í barnaskóla á Suðurnesjum. Gleymum því ekki heldur!
Ble-si

19 mars 2003

Ég er hræddur við þessa viku. Held þetta verði vika hinnu mikla NEI-A. Hef beðið eftir svörum vikum saman og enginn segir neitt. Allir þaga þunnu hljóði. Fjandinn hafi það bara. Ermaloforð á ermaloforð, svik og prettir og helvítis andskotans.
Ég vona að einhverjir dingli í snörunni á dómsdegi til eilífðarnóns.
Ble-si

17 mars 2003

Hér gerist aldrei neitt. En ég kom heim í gærkvöldi úr Nýpurtúrnum mikla. Fyrir þá sem ekkert vita í sinn haus þá er Nýpur, gamalt eyðibýli á Skarðsströnd í Dalasýslu. Við Breiðafjörðinn og þegar maður horfir út á fjörðinn þá sér maður Reykhóla hinum megin.
Þarna vorum við semsagt um helgina að smíða veggi, brjóta veggi og setja upp hurðar ásamt því að drekka sjéníver og bjór og éta glás af góðum mat. Borðaði meðal annars rúsínuslátur sem hefur ekki farið innfyrir mínar varir í líklega þrjátíu ár. Mjög gott.
Það var líka gott að komast í heitt bað eftir helgartörnina og slaka á í gærkvöldi. Þeir stóðu sig vel Sumarliði og Viðar í brotvinnunni. Þeir eru duglegir kallar og blása hvergi úr nös.
En í dag gekk ég meðal annars frá Tilberamálunum og fleiri málum. Það er nú svo.
Ble-si

14 mars 2003

Býtið í fyrramálið fer ég vestur að kotbýlinu Nýpur á Skarðsströnd með Sumarliða Ísleifssyni og Viðari Hreinssyni. Það stendur til að grípa í hamar, sög, öldollur og meiðyrði um framsóknarmenn.
Ef ég á ekki afturkvæmt - þá bara bið ég að heilsa öllum.
Ég er ósammála Jóni Þeófílussyni galdramannni af fjörðum vestan sem Kiljan segir frá í Íslandsklukkunni - því ég vil vera brenndur ef til þess kemur.
Ble-si
Það er svo einkennilegt hvað grá ljót ský í samförum við dökkan svartan himininn verða svo óskaplega falleg þegar máninn, svo lítill sem hann er, brýtur sér leið í gegnum litla glufu á milli þeirra og slær örlitlum litabrigðum í ætt við regnboga yfir syndara borgarinnar.
Ég held, svei mér þá, að við syndararnir verðum þá vitni að fullnægingu guðanna.
Ble-si

13 mars 2003

Ohhh boj. Man einhver eftir því þegar ég sagði farir mínar ekki sléttar af síðasta föstudagskvöldi, þegar ég átti í hinu mesta basli við að drösla hjólinu mín heim, svo draugfullu að það stóð ekki í gjarðirnar?
Þvílíkt og annað eins. Fyrst í dag þá hafði það heilsu í að færa sig úr stað. En það sem verra er, að vanlíðan er búin að vera svo mikil að ljósið á því er að verða batterýslaust.
Er þetta hjól ekki aðeins að missa sig í sukkinu?
Gamli Blámi hefði aldrei látið þetta koma fyrir sig - hvað þá að láta það fréttast.
Ble-si

12 mars 2003

Jamm og já. Mér hefur ekkert þótt sérlega skemmtilegt í dag. En það hefur þó oft verið verra og margfalt sinnum oftar betra. Ég tók mig til og lagaði Viskubrunninn verulega. Það er samt ekki alveg búið.
Veigar minn kom og færði mér súkkulaðisnúða sem hann bakaði í náminu. Agalega góðir. Bestu snúðar sem ég hef smakkað.
Svo er ég ánægður með þjónustufulltrúann í Búnaðarbankanum - hana Bobbu. Ég vona að hún verði einhverntíman útibússtjóri þarna fyrir norðan. Ég var að ræða við hana um Tilberaklúbbsinnheimtanir. Jamm og já - hvað fleira? Já - ég er að fara vestur að Níp með Sumarliða um helgina. Það stendur til að smíða mikið. Það verður fjör. Ég hef ekki farið þangað síðan í september þegar ég skrapp í berjamó með tveim vinum mínum.
Hmm - talandi um vini. Hann Haddi Jónsson æskufélagi minn, vinur, hestamaður, oddviti, hundahreinsunarmaður, wannabe-bóndi og framsóknarmaður á afmæli í dag.
Ble-si

11 mars 2003

Ég er ekkert að standa mig sérlega vel í blogginu. En ákvað samt að henda hér inn nokkrum línum þá engu sérstöku sé frá að segja. Árni bróðir kíkti í heimsókn til mín seinnipartinn og við borðuðum saman. Það var gaman að hitta hann. Langt síðan síðast. Svo kíkti Jórunn Jitchcock og sagði mér frá því um leið og hún áttaði sig á því að hún er búin að skrá sig í fjögurra ára kvikmyndanám - án þess að vita raunverulega af því. Ég vona bara að það verði til þess að ég fái aðalhlutverk í einhverju "masterpísi" sem hún á eftir að framleiða. Hún hlýtur að átta sig á muninum á gleiðlinsu og hnélinsu eða hvað þetta allt heitir áður en til þess kemur.
Meira bullið. Hættur.
Ég skrifaði þó eitthvað hingað inn í dag.
Ble-si

10 mars 2003

Hrikalega er ég búinn að vera duglegur í dag. En hef að vísu varla hitt eina einustu hræðu. En mér er sko alveg sama. Ég hringi bara í Vinalínuna og Rauða Kross línuna til skiptis í kvöld til að vinna upp selskapsleysið.
En duglegur er ég búinn að vera. Hrikalega. Ánægður með þennan dag.
En nú er ég hættur að gera nokkurn skapaðan hlut í dag, því klukkan er orðin meira en átta og því sný ég mér að einhverju öðru til að gera.
Ble-si

09 mars 2003

Jæja mikið er nú gaman að vakna eldhress á sunnudagsmorgni, sérstaklega þegar kvalir gærdagsins eru gufaðar upp. Í dag ætla ég að gera eitt og annað smáræði. Ryksuga og laga til hjá okkur, setja í nokkrar vélar og skipta um á rúmunum. Svo ætla ég að gera eitthvað fleira. Mögulega að klára nokkur galdrakver sem eru í vinnslu, drekka kaffi og kannski að halda áfram að smíða galdrahörpuna. Ég er svoldið spenntur að sjá hvað kemur út úr þeirri hugmynd.
Það er rok úti. Svo ég hætti mér ekkert þangað. Hún gæti ruglast hárgeiðslan.
Ble-si.

08 mars 2003

Það er búin að vera þynnka frá helvíti í mér í dag. Ég fór nefnilega á Litla gula dverginn við Lækjargötu seinnipartinn í gær að hitta Áka frænda og drekka með honum föstudagsölið. Hann þurfti náttúrulega að fara heim að sinna barni og buru á afar ókristilegum tíma og skildi mig einan eftir í reiðileysi niðrí bæ. Ég kláraði þá ölinn minn og sippaði mér á bak hjólinu og ætlaði heim. Þá þurfti ég endilega að hjóla niður Hafnarstrætið og rak augun í nýjan hollenskan bar sem ég mátti bara til með að kíkja inn á. Læsti ég því hjólinu fyrir utan og ruddist inn. Þar sátu nokkrir uppburðarlitlir túristar frá helvíti - nei Holllandi á ég við. Ég hressti þá ögn við og fyrr en varði vorum við komnir á mígandi fyllerí. Heldur hjálpaði nú eigandi staðsins til við það, því hún var dugleg við að svala forvitni minni um hverksyns torkennilegar víntegundir í hillunum. Þegar líða fór á kvöldið þá fór frekar að halla undan mér en hitt - en ég dragnaðist með þessa blindfullu Hollendinga frá helvíti allt kvöldið.
Það var ekki gaman að vakna í morgun - allur lemstraður eftir mjög svo óeftirminnilega hjólaferð úr miðbænum og heim til mín.
Það vara bara vont að vakna í morgun.
Ble-si

07 mars 2003

Best að ég fái mér einn bjór. Eru ekki allir sammála því? Klukkan er nú að verða hálf-fimm og það er föstudagur.
(Þögn)
Ókei - fyrst að enginn hreyfir mótmælum þá fer ég í það. Skálinú!
Ble-si
Það er svo einkennilegt hvað Árni Johnsen hefur góð áhrif á mig. Ef ég les örlitla frétt um hann þá verð ég alltaf svo óskaplega skáldlegur. Hann var víst að panta ný rúm fyrir Kvíabryggju um daginn. Strax farinn að láta að sér kveða þar vestra.

Um nætur á bryggjunni vistin er köld
kvínni ligg ég því andvaka einasta kvöld
því panta ég rúmið
og líð inn í húmið
í trássi við fangelsisyfirvöld.

Ble-si

06 mars 2003

Fyrrum samstarfsfélagi minn og vinur sem ég hitti í Dublin er kominn til landsins til að sleikja mig upp. Hann er hættur að gefa yfirlýsingar eins og Hrein í honum í vikunni, að ég væri lélegur brandarakall. Ég nefnilega bauð honum nýtt baðherbergi eftir aðalfund Haugs í maí, svo hann verði Hreinni. Þá getur hann bara hætt sem stjórnarformaður Haugs með allt á Hreinu. Hann er Hreinn og klár aumingi. Hreint út sagt. Þannig að það er alveg á Hreinu að ég verð áfram fyndnasti maður á Íslandi.
Ble-si
Hmmm - Folk er bara ekki ad fatta brandarann. Thad finnst mer undarlegt. Fyrst svo er tha aetla eg ekkert ad haetta segja hann og held bara afram ad svolgra irska bjorinn. Verd bara herna thar til einhver fattar brandarann.
Ble-si
Mikid svaf eg nu illa i nott. Eg for a thennan fund i Dublin sem fyrrum samstarfsmadur minn og vinur vildi endilega ad eg maetti á. Vid hittumst dulbunir a hotelinu minu, opnuðum mini-barinn og hofum upp drykkju, söng og spjall. Þad bar margt a goma enda höfdum vid ekki hitst um tima. Vid slogum a letta strengi og eg sagdi hvern brandarann a faetur ödrum og var bara med fyndnasta moti – tho eg segi sjalfur fra. Eftir ad vid höfdum hlegid lengi ad fyndninni ur mer tha sagdi hann mer einn brandara sem eg skildi bara ekki og bad hann thvi ad segja mer brandarann aftur. En eg fattadi hann ekki. Eftir ad vid höfdum taemt barinn forum vid a japanskan sushi stad og thar oskadi eg formlega eftir thvi ad hann segdi mer brandarann einu sinni enn. Tha loks fattadi eg hann og svelgdist verulega a saki-drykknum minum.
Eg hef bara ekki getad sofid sidan.
Thegar eg kem heim tha ætla eg ad segja brandarann oformlega vid einhvern sem enginn ma vita hver er. Thad er ad segja ef eg man brandarann rett. Svo aetla eg ad segja hann öllum sem thekkja mig eftir svona eitt ar – tvi tha verd eg buinn að krydda brandarann svo mikid ad hann verdur ordinn drepfyndinn. Thessi vinur minn sem eg hitti a hotelherberginu er nefnilega ekki naerri thvi jafn godur sögumadur og eg er. Eg er svo fyndinn.
Ble-si

05 mars 2003

Eg hef tad svo daemalaust gott her i Irlandi. Flugid gekk vel og eg rambadi inn a thetta netkaffi i midborg dublin. Nuna fer eg i irskan bjor herna i naestu byggingu vid hlidina og sidan upp a hotel. meira a morgun.
Ble-si

04 mars 2003

Æ,æ - nú hef ég sorglegar fréttir. Það er búið að loka sjoppunni hérna niðri hjá mér. bara rekstri hætt. Það finnst mér verulega sorglegt. Þarna var nefnilega ódýrasta tóbakið á landinu auk þess sem það voru seld þarna frímerki sem var gríðarlegur kostur.
Ble-si
Meira skrapatólið þessi heimabanki Sparisjóðanna. Hann er bara ekkert að virka þegar á þarf að halda. Heimabanki Búnaðarbankans er miklu öflugri. Það er bara enginn peningur inni á reikningum þar. :(
Ble-si
Þetta er hið undarlegasta mál þetta ímyndaða mútumál. Það virðast bara allir vera að ljúga einhverju. Sama hvað hver heitir. Davíð leitar vorkunnar hjá þjóðinni með afspyrnu lélegum látbragðsleik og rembist eins og rjúpan við staurinn að verða ekki reiður. Hannes Hólmsteinn náttúrulega gasprar eins og kjúklingur. Hreinn babblar eitthvað og Jón Ásgeir Soprano á fullt af peningum til að leika sér með.
Undarlegasta mál verð ég að segja og best að halda ró sinni, semja nokkrar vitlausar limrur og taka enga afstöðu strax.
Ble-si

03 mars 2003

Fundurinn í ráðuneytinu gekk vel. Það er óhætt að segja. Það er alveg ljóst að við komumst inn á föst fjárlög - fyrr en síðar. Það er mikill áhugi innan ráðuneyti menntamála fyrir framgangi þessa máls á Ströndum. Það verður væntanlega annar fundur í næstu viku þar sem munu koma fram tillögur úr hendi ráðuneytismanna. Nú er ég mest spenntur fyrir því að verkefnið komist inn sem sameiginlegt átak tveggja ráðuneyta. Mennta- og samgöngu. Það lendir til helminga í verkahring hvors um sig. Eins kom mér á óvart að það virðist vera sem það sé byrjað að vinna eftir tillöguskýrslu núverandi ráðherra sem hann skrifaði nokkrum mánuðum fyrir embættistöku. Þetta lítur vel út. Mjög vel.
Ég fékk fram afdráttarlaust jáyrði við spurningunni:
Hefur ráðuneytið áhuga á að styðja uppbyggingu og framtíð Galdrasýningar á Ströndum?
Ég er hæstánægður.
Ble-si
Það er afspyrnu fallegur dagur í dag. Ég sit sveittur við að undirbúa mig fyrir fundinn í ráðuneytinu að smíða hverksyns áætlanir. Jórunn Pálsdóttir Loðmfjörð á afmæli í dag. Upplagt að senda henni afmæliskveðju. Ekki hika við það. Pabbi hefði líka átt afmæli í dag. Hann hefði orðið 71 árs.
Ég man ekki eftir öðrum eins góðviðrisdegi síðan í júní fyrra. Æðislegt. Svo er dagsetningin líka svo helvíti töff. 03.03.03.
Flott?
Ble-si

02 mars 2003

Ég er hreint ótrúlega góður matreiðslumaður. Ég er svo góður kokkur að ég er meira að segja farinn að slá sjálfum mér við hvað eftir annað. Mikið er ég nú heppinn að eiga mig að. Og allir aðrir óheppnir.
Annars fór ég upp í sveit í dag í blíðskaparveðri. Skrapp í uppsveitir Árnessýslu og kom m.a. við á Sólheimum. Ábyggilega gott að vera þar - bæði fyrir heilbrigt fólk, sem finnst hér á landi ef skyggnst er um með þolinmæði, og annað minna heilbrigðara fólk.
Ble-si

01 mars 2003

Það er svo helvíti flókið og langt mál að útskýra hvernig eigi að setja upp svona spjallkerfi eins og ég er með. En það er í rauninni mjög einfalt ef leiðbeiningunum er fyllt út í ystu æsar. Smellið bara hérna og byrjið á því að smella á Sign Up. En ef þú strandar þá skal ég hjálpa til. Ég er ávallt reiðubúinn að koma náunganum til hjálpar.
Ble-si
Jæja. Það er bara byrjað. Mér sýnist það ætla að fara eins og forðum að ég fæ ekkert að eiga þessi kver sjálfur nema í nokkrar klukkustundir. Það er kannski best að segja engum frá þeim svo það verði hægt að selja einhver á sýningunni í sumar.
Annars fór ég á Litla gula dverginn við Lækjargötu seinnipartinn í gær með Magga, Áka og Ingunni. Það var svona föstudagsöl hjá okkur þar. Var svo kominn heim klukkan átta og sofnaði. Svo svaf ég bara til klukkan fimm um morguninn. Vaknaði til að fá mér vatnsglas og sofnaði svo aftur. Svona gerist nú mikið hjá manni.
Ble-si