28 febrúar 2003

Ég hef ekkert með ísskáp að gera. Ég er náttúruleg matargeymsla. Þegar ég versla þá ná vörurnar aldrei inn í kæliskápinn. Græðgin er svo yfirgengileg. Ég er þá ekki barnshafandi eins og ég var farinn að halda. Bara svona ferlegur bumbukall. Veit svei mér ekki hvort er skárra. Ætli ég sé kominn á breytingaskeiðið?
Ble-si
Sönnun heimsku
Bandaríkjamenn vilja kalla franskar kartöflur eitthvað annað en french fries til að hefna sín á Frökkum fyrir að vilja ekki fara í stríð með þeim.
Ble-si
Ég á fund með ráðuneytisfólki á mánudaginn klukkan 14:00. Þá skýrist framtíð alls sem máli skiptir upp á framtíðina. Mér skilst að það verði þarna fjöldi manns á móti mér einum. Veit ekki alveg hvað mér finnst um það. Þyrfti að ræða þetta við Jón. Talaði við Karitas í síma áðan - hún var nokkuð jákvæð ... en það virtist eitthvað standa í henni að fyrirbærið er sýning en ekki safn. Engu að síður vildi hún finna grundvöll fyrir því að það færi ekki allt til helvítis. Hún sagði líka að frumkvæði að svona samningum kæmi ekki frá ráðuneytinu - frekar frá fjárlaganefnd. Skildi þetta ekki alveg.
Ble-si
Ég er bara feitur kall með bumbu. Agalegt. Og ég fíla mig ekkert öðruvísi þó ég hafi hjólað heim af pöbbinum eftir stefnumót við höfðingjann úr Bjarnarfirðiðððððð.
Agalegt.
Bara feitur kalllllllllll með buuuuumbbbbbuuuuuuuuuuu.
Ble-si

27 febrúar 2003

Þeir eru nú svoldið skrítnir á vef Bæjarins besta. Það mega þeir nú eiga. Þeir hafa verið með svona spurningaleik eins og tíðkast víða á vefnum. Ég er nú einn af þeim sem tek þátt í hvaða spurningaleik og skoðanakönnun sem er, afþví að mér finnst það fjör. Nema að nú hafa þeir hætt leiknum. Ástæðan er sú að það eru alltaf einhver hrekkjusvín að kjósa oftar en einu sinni.
Hvað er þetta? Ég hélt þetta væri bara saklaus leikur. Héldu BB menn að þeir gætu breytt heiminum með skoðana- og spurningaleik á síðunni sinni? Já það er stórundarlegt fólk þarna fyrir vestan. Eilíflega í einhverri fýlu og stríði við hvor aðra, og ef ekki við hvor aðra þá bara einhverja aðra.
Ble-si
Fyrsta Galdrakverið er tilbúið. Þá á ég bara eftir að gera 1499 til viðbótar næstu fjögur kvöld.
Það er verst að mér finnst þetta ekki jafn gaman og í gamla daga.
Ble-si
Undanfarna 7 mánuði (1. ágúst 2002 - 26. febrúar 2003) hafa verið 2400 heimsóknir á vef Galdrasýningar á Ströndum. Skiptingin er þannig að 1500 hafa heimsótt þann íslenska og 900 þann enska. Á sama tímabili á undan voru aftur á móti 5100 heimsóknir. 3500 heimsóknir á íslenska hlutann og 1600 á enska hlutann.
Mér finnst þetta vera of mikil sveifla milli ára og segir mér að það þurfi eitthvað að fara að gerast þarna inni og gera vefinn meira lifandi.
Það eru hlutfallslega fleiri heimsóknir á maí-jún-júl á báða parta heimasíðunnar. En er þó jafnara yfir árið á þeim enska.
Ble-si
Ég sendi IcelandExpress mínar bestu kveðjur. Þessa stundina er fyrsta áætlunarflugið þeirra í loftinu. Ég vona svo innilega að þessu félagi gangi allt í haginn.
Þetta er eiginlega tilefni til að gera sér glaðan dag.
Ble-si

26 febrúar 2003

Voði, vá og þúsund fatlaðir kolkrabbar!
Ég gleymdi að hlusta á mig fara með særingar og óhljóð í útvarpi Rásar 1 í morgun kl. 9:40.
Hvað er þetta? Annað eins getur nú gerst, fitubollan þín.
Ble-si
Ahhhh - Hvað sem um mig má segja þá verður það aldrei af mér tekið, að ég er einstaklega góður matreiðslumaður. Mikið voru nú allir óheppnir að koma ekki í mat til mín í kvöld. Ég er ekkert eðlilega góður kokkur.
Ég er sko heppinn að vera ég og fá almennilegt að borða þegar mér dettur í hug.
Ahhhhh.
Ble-si
Æ,æ,æ
Ég lét nauðga buddunni minni í morgun. Fór upp í Hvítlist að kaupa selskinn, hlýraroð og pappír. Samtals fimmtán þúsund kall.
Er þetta hægt Gvendur? Það er meira hvað það er hægt að okra á gölluðu selskinni. Átta-þúsund-krónur!!
Ég veit svei mér ekki hvort þessi Galdrakveragerð kemur nokkurn tíma til að skila þeim hagnaði sem þörf er á. Það er allavega eins gott að nýta efnið eins og mögulegt er. Ég hef grun um að stykkið af kverinu verði ekki undir fimm-þúsund-krónum þegar upp verður staðið.
Það er agalegt.
Annars er ég að verða eins og fílamaðurinn og Quasimodo í einum manni í ofanálag. Það er ekki nóg með að ég sé eins og óléttur flóðhestur heldur eru varirnar á mér að springa út eins og arfi að vori. Ógeðslegar frunsur um allt munnvikið.
Engin furða að maður fái það ekki reglulega.
Skelfing.
Ble-si

25 febrúar 2003

Andskotinn. Ég er kominn með þessa viðbjóðslegu bumbu! Afhverju hefur enginn sagt mér frá þessu? Hefur fólk bara litið undan og sagt við sjálft sig: "Best að vera ekkert að minnast á þetta við hann, þetta kemur mér ekkert við" - eða eitthvað í þá áttina??
Þetta er viðbjóður!
Ég verð að fara að gera eitthvað í þessu - samstundis. Djöfull fer þetta mér illa.
Ég nálgast brátt að vera jafnferlegur og viðbjóður andskotans.
Best að ég birti mynd af þessu ógeði á blogginu mínu sjálfum mér til aðvörunar og ævarandi háðungar!
Hí, á þig ógeðið þitt!
Ble-si
„Hann var aldrei veikur," sagði Lisa Saxton, sem er 35 ára gömul, en McMorran var langafi hennar. „Hann lifði góðu lífi. Hann var vel byggður. Hann reykti vindla, drakk bjór og át feitan mat. Hann var ótrúlegur maður."
Hvað er svona merkilegt við þetta? Ef þessi karlskröggur var ótrúlegur og merkilegur kall þá er ég það bara líka. Ég reyki, ég drekk bjór og ég ét feitan mat og ég geri bara allt annað sem telst vera óhollt og óæskilegt.
Ruglaðar þessar baunaætur þarna í Ameríku.
Ble-si
Ha-ha-hæ, ég er búinn að finna út úr þessu með pappírsgerðina. Það þarf ekkert lím. Þetta er jafneinfalt og ég hélt og vonaði. Nema að nú vantar mig léreft og eitthvað sérstakt mót. Ég smíða það bara sjálfur.
Frábær síða um pappírsgerð.
Ble-si
Ahhhh - ég fór öfugu megi fram úr í morgun og er því úrillur og eins og úrangúti með neðri vörina yfir þá efri. En hef samt á tilfinningunni að það lagist þegar líða fer á daginn.
Auk þess trúi ég ekki að það sé jafn flókið að búa til pappír og JJ segir. Það bara getur ekki verið að það þurfi að sjóða pappírinn og standa yfir potti eins og mannæta og hræra í á meðan. Það bara getur ekki verið. Ef svo er þá er ég hættur við að gerast umhverfisvænn. Þetta eru óafturkræf vinnubrögð.
Ble-si

24 febrúar 2003

Ef maður vill búa til endurnýttan pappír - hvað gerir maður annað en að rífa niður pappír og dagblöð og henda því oní bala og geyma það þar í tvo daga? Þarf ekki að setja eitthvað annað saman við en vatn? Eitthvað lím? Eða hvað? Hvernig er þetta gert?
Einhver hjálpi mér!
Ble-si
Mig vantar selskinn.
Hvar fæ ég selskinn?
Ble-si

23 febrúar 2003

Ef ég ætti kjallara þá myndi ég fara þangað niður og loka að mér.
Kjóllinn fer mér ekki.
Ble-si
Það er konudagurinn í dag.
Þá er Góan gengin í garð og ég búinn að þreyja Þorrann eina ferðina enn. Annars var ég að átta mig á því að ég fór ekki á neitt þorrablót að þessu sinni.
Það er alltaf gaman þegar góan hefst. Mér hefur alltaf fundist orðið góa svo vorlegt orð. Þá fer líka að styttast í vorið, þegar gleðin og galsinn fara á stjá. Eins og þessi vísa sem ég heyrði einu sinni um góuna er ótvírætt vitni um.
Lagði ég við á báða bóa
bátt er að koma honum inn.
É-finn ei gatið á þér góa
og gái ég þó á kompásinn.

Svona er nú vorið - fullt af óvæntum uppáferðum.
Jæja - best að finna mér silkikjól til að klæðast í af tilefni dagsins og færa mér svo blóm, svona alveg óvænt.
Ble-si

22 febrúar 2003

Þetta er bara dauði og djöfull. Ekkert að gerast. Helvíti á jörð. Andskotans leiðindi. Verð að fara og éta eitthvað í andlitið á mér.
Er að hugsa um að fá mér átta ása, nauðir níu og þursa þrettán sem seinna munu þjaka minn búk með illri skitu og kveisu svo losni sundur stoðir mínar og freti mínu aldrei linni.
Hvorki dag né nótt.
Lifið heil.
Ble-si

21 febrúar 2003

Hæ hæ - ég bara verð að benda á þessa ótrúlegu flottu mynd. Heimurinn verður seint skárri meðan börnin þurfa að alast upp við hatur og hernaðarstefnu sem kollríður arabastelpum og gyðingastrákum.
Amerískir valdasjúkir og morðóðir labbakútar bera ábyrgð á þessu öllu þegar upp er staðið.
Því segi ég enn á ný - fari bara The United States of America til helvítis í stað þess að gera helvíti á Jörð.
Hér með risti ég amerísku aulunum fretrúnir, svo aldrei megi þeir anda að sér ferskara lofti en finnst í neðra.
Ble-si

20 febrúar 2003

Ég er með drullumóral. Fór í Nóatún í svengd minni til að kaupa eitthvað í kvöldmatinn og endaði í heita borðinu. Það er óþolandi þegar þetta kemur fyrir mig. Því þetta er með öllu óætur matur og á morðverði þar að auki.
En ég get sjálfum mér um kennt. Ég vissi betur. Ég er bara heimskur asni. Ég er ölvað flón. Bölvað flón á ég við.
Það hefði þó verið einhver afsökun ef ég hefði verið fullur. En svo var ekki. Því miður.
Ble-si
Þá er ég búinn að útbúa handverkshornið í íbúðinni minni. Það er alveg ljóst hvað ég verð að gera næstu kvöld.
Vantar ennþá skinn og roð en á einhverja rekaviðsbúta. Sæki mér fleiri næst þegar ég fer norður á Strandir.
Svo þarf ég bara að kaupa lím og lakk og sandpappír og réttar tegundir af pennum og pappír hverskonar.
En hvað það verður nú gaman hjá ferðafólki næsta sumar að geta nú verslað Galdrakverið á ný eftir 5 ára bið. Eða eru það kannski 6 ár? Er ekki viss og má ekki vera að því að reikna það út enda skiptir það engu máli.
Ble-si
Sérlegur öryggisráðgjafi Runna forseta, einhver kelling sem heitir Hrísgrjón, segir að ekki sé hægt að gefa vopnaeftirlitsmönnum í Írak mikið lengri tíma og því verði að fara að ráðast inn í landið.
Ástæðan?
Það er ekki hægt að láta þennan heimshluta og írösku þjóðina bíða lengur í þessari óvissu!
Halló!!!
Halda þessir asnar að fólkið geti ekki beðið lengur eftir því að láta drepa sig og beinlínis hlakki til að láta sérþjálfaða hermenn limlesta börnin sín?
Ble-si.
Orð eru til alls fyrst.
Því skrifa ég þetta og segi: Ég er að hugsa um að hefja aftur framleiðslu á Galdrakverum og gerast stórvirkur útgefandi.
Nú vantar mig bara skinn og roð.
Ble-si

19 febrúar 2003

Ég er ánægður með Tyrki þessa dagana. Þeir vilja rukka Kanana um tugi milljarða dollara fyrir hernaðaraðstöðu í Tyrklandi ef til þjóðarmorðsins kemur í Írak.
Auðvitað eiga þessir bananar að borga fyrir aðstöðuna eins og aðrir og í takti við nýtingu hennar.
En ég væri ennþá ánægðari ef Tyrkir sæu sóma sinn í því að hleypa þeim ekkert inn í landið með drápstólin sín.
Ble-si
Það er orðnar nokkrar vikur síðan ég tók mig til og gerðist ögn umhverfisvænni en ég hef verið til þessa. Það fer ekki lengur allt drasl í ruslafötuna mína. Ég safna öllum gerðum af mjólkurfernum, hvort sem innihald þeirra hefur verið mjólk, djús eða grautur auk þess sem hvert einasta pappírsnifsi, s.s. ljósritunarpappír, dagblöð, kassakvittanir og bjórumbúðir fara í sérstaka pappírssöfnunarpoka. Síðan afhendi ég Sumarliða vini mínum þetta, en hann á sumarbústað vestur í Dölum og svo nýtir hann sorpið mitt til að kynda bústaðinn. Allar aðrar umbúðir s.s. sultukrukkur, sápubrúsar og tómatsósuflöskur fara með drykkjarumbúðunum í Sorpu þar sem ég sel þeim þær fyrir 9 krónur stykkið.
Og hver er svo ávinningurinn?
Mér finnst ég gera pínugagn auk þess sem það eru margfalt færri ferðir út í ruslagám. En ég er ekkert farinn að hugsa um lífrænan úrgang ennþá, því ég hef engan garð og hef þar af leiðandi enga þörf fyrir mold.
Ble-si.

18 febrúar 2003

Drekkur ekki kaffi nei. Neeeii! En viltu gogga-golla? Ég á einhversstaðar gogga-golla - hvar erða nú? Já jú hérna erða. Hérna er gogga-gollað. Jahá hérna erða nebblega. Hvað gerði ég nú við tappatakarann?
Húrra-húrra-húrra!
Ég er ofsakátur. Ég var að losa mig við tvær yfirdráttarheimildir. Ég stend að vísu skítblankur eftir - en það gerir sko ekkert til. Ég ætla að stefna að því að losna við síðustu yfirdráttarheimildina á þessu ári svo þessir viðbjóðs bankar andskotans hætti að græða jafnmikið á mér. Það er bara rugl að vera með þetta eilíflega í eftirdragi.
Ha-ha-hæ!
Ble-si.
Heyrðu mig nú!
Ég hef bara ekkert skrifað hér inn í gær. Væntanlega hef ég annaðhvort verið æði upptekinn eða afundinn. Undirbjó eintak af Angurgapa - rit um galdramál á Íslandi sem Galdrasýningin stritar í sveita síns andlitis við að reyna að koma út. Ég er kominn með ágætt sýniseintak eftir talsvert bras með prentarann. Afhverju þurfa alltaf hylki að tæmast þegar mikið liggur við?
Spjallaði svo lítið eitt við framkvæmdastjóra Eddu útgáfu hf og við hittumst á morgun og kannski þýðir það að ritið verur gefið út á þessu ári. En kannski hittumst við hinn. Það kemur bara í ljós.
Það er helvíti að sýningin hafi ekki bolmagn til að ráðast í þetta ein. Ég hef nefnilega trú á að þessi bók geti gefið eitthvað af sér. Nóg er spurt eftir henni af gestum sýningarinnar.
Einnig vann ég í fjárhagsáætlunum út frá ýmsum forsendum. Þegar upp er staðið þá lítur málið ekki eins illa út og ég hélt - en það náttúrulega byggist á því að Byggðastofnun komi eitthvað til móts við verkefnið. Annars fer allt til helvítis.
Bráðum fá Tilberar sendan glaðning í pósti. Ég á bara ennþá eftir að finna út lítilræði - hvernig við eigum að bera okkur að við þá sem hafa ekki greitt Tilberagjaldið til þessa. Best væri að þeir greiddu gjaldið og næstbest að þeir segðu sig úr klúbbnum. Þá væri maður laus við að senda fjölda manns póst á hverju ári með öllum þeim kostnaði sem því fylgir. En best er náttúrulega að sem flestir gangi í klúbbinn. Galdrasýningu á Ströndum veitir nefnilega ekki af hverri krónu um þessar mundir. Það er hart í ári hjá smáfuglunum.
Ble-si

16 febrúar 2003

Ég er allur að hressast. Gerði svosem ekkert í dag - horfði mestmegnis á sjónvarpið. Tæmdi þó loksins geymsluna af tómum flöskum og dósum og fór með þær í endurvinnsluna. Þar fékk 2.232 krónur í skiptum fyrir ruslið. Aldeilis góður díll það.
Ég skemmti mér vel í gær. Þetta var fínt bara.
Ble-si
Í gær fór ég í Ráðhúsið þar sem grunnskólar borgarinnar voru að kynna starfið innan veggja skólanna. Megnið af því kom ekkert á óvart, skólar breytast heldur ekki í einni svipan en það var gaman að sjá misjafnar áherslur hjá skólunum.
Svo fór ég á Ingólfstorg ásamt 20.000 öðrum borgurum á mótmælafund gegn fyrirhuguðu blóðbaði Bandaríkjaforseta og forsætisráðherra Breta. Ég hef ákveðið að nefna þá ekki framar á nafn í þessari dagbók, vil ekki saurga hana með því.
Sótti Jórunni á skólasýninguna þar sem hún "by the way" stóð fyrir langathyglisverðasta verkefni sýningarinnar. Við fórum í Ikea og í Vínbúð. Eldaði lambalundir um kvöldið og bauð henni í mat. Það var svona síðbúin afmælisveisla. Vinkonur hennar Bogga og Hrund komu seinna um kvöldið og við drukkum og drukkum. Enduðum á Vínbarnum og ég var orðinn svona frekar framlágur af drykkju tiltölulega snemma svo ég fór bara heim.
Það er svoldið gott að vera með svona innbyggðan ölæðis-stoppara. Ég er alltaf jafnfeginn því þegar ég vakna morguninn eftir því heilsan gæti verið verri.
Ble-si

15 febrúar 2003

Ég er búinn að skipta um skoðun. Ég kýs 900 1011.
Ble-si
Ég er að hugsa um að kjósa Heiðu. Eða hitt lagið.
Hvað er þetta með Akureyringa og veðrið?
Svona hljómaði fréttaritari RÚV í kvöldfréttum útvarpsins "Fjölmenni var við mótmæli gegn stríði í Írak á Akureyri í dag, enda veður hagstætt".
Er ekki allt í lagi?
Bévitans rangalafífl eru þessir Akureyringar.
Ble-si

14 febrúar 2003

Ég veit hvað ég geri svo mér hætti að leiðast. Ég fæ mér bjór og fer svo og leita mér að ám til að hoppa yfir. Ég get það alveg eins og hver annars.

Hey - ær! Viljiði koma í þrautakóng?

Þetta verður gaman.
Hí hí hí mér leiðist ekki lengur. Nú hef ég takmark í lífi mínu.
Blesi
Æ, - mér leiðist. Hvað ætti ég að gera í því?
Ble-si
Ég var að lesa blogg Hemúlsins Adda þar sem hann er að spá í úrslit forkeppninnar fyrir Júróvisjon. Ég verð bara að segja að mér líst ekkert á þetta hjá honum. Hann setur tvö ömurlegustu lögin í tvö efstu sætin og sleppir alveg besta laginu, sem reyndar er ekkert gott. Ég man ekkert hver syngur það en textinn er eftir Sjón. Mér nefnilega finnst lagið alveg svona "þokkalegt mínus" en textinn er ferlega fínn. Annað en þessir viðbjóðs dægurlagatextar andskotans sem tröllríða poppmúsíkheiminum og þessi Haukdal jafn grindhoruð og hún er, ásamt Hreimi og hinum hommanum í Svörtum Buxum eða hvað sú ömurlega hljómsveit heitir eru í fararbroddi hryllilegrar innlendrar popptónlistar sem er sniðin fyrir smástelpur með hor sem fjármagna kaupin með væli og grenji utan í foreldrum sínum milli þess sem þær laumast í buddu ömmu sinnar meðan kerlingarvesalingurinn er niðrí Félagsstofnun að sækja smánarlegan ellilífeyri sinn - tónlist þar sem ekkert er verið að gefa til annars vandaðan íslenskan tónlistarveruleika.
Ó, þessi þjóð og hana nú!
Ble-si

13 febrúar 2003

Upp er runnin nýr dagur, ákaflega hlýr og fagur. Það er engin hátíð í dag og því rétt að halda sínu striki. Loðmfjörð systurnar sendu mér blóm í gær af tilefni dagsins [j|r] og Veigar gaf mér heimatilbúið kjötfars sem hann gerði í kokkaskólanum.
Atli keypti nýjan bíl í gær Subaru Impreza Turbo árg. 2000 og er náttúrulega ofsakátur og ég fékk mér tvo öl í gærkvöldi í tilefni dagsins. Það var nú öll hátíðin.
Ég þarf að fara að huga að bílnum mínum. Það fer að vora eftir nokkrar vikur og kannski rétt að fara að koma honum í gang. Annars fíla ég það í tætlur að vera bíllaus á þessum árstíma.
Ég er ennþá að velta fyrir mér Dublinarferð og ætla að velta vöngum yfir því eittvað áfram. Í dag er stefnan að ganga frá skýrslunni til Ferðamálaráðs og láta ekkert annað fanga hugan.
Ég útbjó mér hárkollu úr hrosshárum í gær. Spurning hvort ég ætti að halda áfram að þróa hana?
Ble-si

12 febrúar 2003

Mig langar svo að biðja þá sem koma hingað að gera smáræði fyrir mig sem má alveg vera afmælisgjöfin til mín frá ykkur. Það er að fara inn á síðuna hennar Jórunnar og slá henni Gullhamra. Það má vera fyrir hvað sem er - henni er alveg sama. Jafnvel þó þið þekkið hana ekkert.
Það myndi bæta hana, hressa hana og kæta hana meira en fullur pakki af Opal.
Viljiði gera þetta fyrir mig?
Með fyrirfram þökk.
Ble-si
Jæja þá á maður bara afmæli í dag. Það er þá óskandi að þessi dagur verði eitthvað frábrugðinn öðrum dögum.
Annars er hann orðinn það nú þegar. Ég man nefnilega ekki eftir því áður á minni löngu ævi að það er ekki skítakuldi eða hríðarbylur fyrir utan gluggann á afmælisdeginum mínum. Mér hefur alltaf þótt það skítt að vera fæddur í febrúar. Hef alltaf frekar viljað vera júlí eða ágúst barn.
Ég er fæddur árið 1961.
Á því ári áttu m.a. þessir atburðir sér stað:
Júgóslavinn Ivo Andric fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum sama ár og ég fæddist
Disney-myndin 101 Dalmatíuhundar var frumsýnd sama ár og ég fæddist
Kennedy varð forseti sama ár og ég fæddist
Nelson Mandela stóð fyrir allsherjarverkfalli í Suður-Afríku sama ár og ég fæddist
Díana prinsessa fæddist sama ár og ég fæddist
Berlínarmúrinn var reistur sama ár og ég fæddist
Luxemburg vann Eurovision sama ár og ég fæddist
Forsíðustúlkur utan á
Playboy voru kappklæddar sama ár og ég fæddist
Vinsælasta lagið var Can´t Help Falling In Love með Elvis Presley sama ár og ég fæddist auk þess sem
tólf ný frímerki voru gefin út á Íslandi á árinu.
Mér sýnist nú að það standi upp úr að ég fæddist þann 12. febrúar 1961.
Eða hvað?
Ble-si
p.s. Endilega sendið mér svo hamingjuóskir á línunni hér að neðan. Takk.

11 febrúar 2003

Þessi bévitans ríkisstjórn ætlar að fara að setja einn milljarð (1000 milljónir) í uppbyggingu menningarhúsa á Akureyri og Vestmannaeyjum. Hvað á eiginlega að byggja á þessu stöðum? Eitt stykki Kínamúr á hvorum stað? Ég er svo hneykslaður yfir þessu að ég kem ekki upp einu einasta orði.
Þó má segja þeim til ágætis að loksins stendur til að fara að leggja eitthvað í vegamál á landinu. Ekki veitir af. Auk þess sem það á að leggja 700 milljónir til atvinnuátaks á vegum Byggðastofnunar.
Hmm - ég vona að það verði ekki bara keypt hlutabréf fyrir þá uphæð.
Greinilega kosningar í nánd.
Ble-si
Jesús-María-Jósef-Sue Ellen og öll þeirra systkyni.
Það var flogið til Ísafjarðar. Þeir þóttust sjá einhverja glufu - hirtu Dóru frá mér og hentu henni upp í flugvél. Þetta er hrikalegt og komið niðamyrkur. Annars hringdum við til Þýskalands í framleiðendur spila. Kannski verður loksins eitthvað úr galdraspilinu mikla sem er búið að vera á borðinu hjá mér núna á annað ár. Það væri nú fjör.
Spennandi. Ekki satt?
Ble-si
Jón segir frá á síðunni sinni að það gangi stórkostlegar tröllasögur af sparnaðaráformum Hólmavíkurhrepps til að geta byggt Ólympíuleikvang á Hólmavík. Ég hef grun um að það gæti verið skemmtilegt að heyra eitthvað af þessum sögum.
Ég hef gaman af tröllasögum.
Ble-si
Ég er að fara að fá gest í eina eða tvær nætur. Dóra Lubecky var að koma til landsins eftir mánaðar útiveru í Evrópu og Afríku. Það verður gaman að hitta hana aftur og fá hjá henni ferðasöguna. Hún er náttúrulega veðurteppt í bænum - engin leið að fljúga á Ísafjörð. Ekki dytti mér í huga að fljúga þangað - þó það væri fært. Hrikalegt.
Einu sinni - nei, oftar - hef ég haldið að ég væri kominn að endalokum ævi minnar á sveimi yfir Skutulsfirði. Oj, bjakk!
Ble-si

10 febrúar 2003

Það er alltaf sama sagan hér í bænum. Hér gerist aldrei neitt. Það kemur ekki einu sinni óveður þegar því er spáð. Það er að vísu ausandi rigning. En það er gott því þá losna ég við snjóinn. Hvernig skyldi þetta vera í Danmörku? Hmm - eða Þýskalandi?
Þá er best að fara að taka upp símtólið og bjalla í spekingana hjá Byggðastofnun á Króknum og athuga hvað þeir halda um þessa umsókn Strandagaldurs. Er með smá óþægilegan fiðring í maganum. Þarf að undirbúa mig aðeins áður.
Nokkrir hjálpsamir einstaklingar og áhugamenn um uppbyggingu Galdrasýningar á Ströndum hafa verið útnefndir heiðursfélagar í Tilberaklúbbnum og hafa væntanlega fengið bréf í hendurnar því til staðfestingar. Ég vona að þeir séu glaðir með það.
Eru ekki annars allir sem lesa þetta meðlimir Tilberaklúbbsins? Það er hægt að ganga í hann hér.
Jæja - hafið það gott - ég ætla að reyna það.
Ble-si

09 febrúar 2003

Nú er spurningakeppnin norður á Ströndum byrjuð. Ég er svoldið spenntur að vita hvernig gengur því Strandagaldur er að keppa og ég held að sjálfsögðu með mínum mönnum og hvet þá áfram héðan úr fjarlægðinni.
En ég verð líklega að bíða enn um sinn.
Ble-si
Það er greinilegt hver er besti vinur minn í dag. Það er auðsjáanlega Jón. Hann er búinn að skrifa inn tvær orðræður. Hann er duglegur strákur og ekki kallaður Jón tröll fyrir ekki neitt. Heill sé honum!
Ble-si
Ég er búinn að finna tvö "athugasemdakerfi" sem hægt er að setja á bloggin.
Hérna er Blogextra sem er kerfið ég nota og svo er hitt kerfið sem ég veit um, sem er talsvert einfaldara í uppsetningu og heitir BlogOut. Ég veit ekki hvort þeirra er betra. Þegar ég tala um betra þá á ég við hvort þeirra sé léttara.
Blogextra virðist mér hafa þann kost fram yfir BlogOut að þar getur maður sjálfur ákveðið orðalagið sem birtist á síðunni. En ég er samt skíthræddur um að þetta sé þungt í vöfum. Kannski getur einhver sagt mér hvort síðan mín sé lengur en vanalega að koma upp.
Ble-si

08 febrúar 2003

Nú er ég búinn að henda Málbelgnum í burtu fyrir fullt og allt og kominn með annað kerfi sem þið sjáið hér fyrir neðan. Þar er hægt að leggja fram endalausar athugasemdir.
Þetta er flott og ekki jafn þúngt.
Ble-si
Í dag er ég búinn að vera að "shina" hjá mér heimilið. Verðlaunaði mig með því að fá mér smá þorramat - sviðasultu - hákarl og lifrarpylsu og fleira. Meðan ég nartaði í sælgætið þá kom Jórunn og bauð mér í mat. Ég pakkaði náttúrulega þorramatnum svo ég verði ekki pakksaddur þegar ég borða hjá meistarakokknum. Meira hvað Jóka er alltaf væn við mig. Ekki veit ég hvernig ég færi að án hennar. Ég væri örugglega dauður ef ekki steindauður úr einskærum leiðindum.
Jæja - best að fara í sturtu áður en ég græja mig yfir í pósthólf hundrað&einn til hennar. Á að mæta 26 mínútur yfir átta.
Ble-si
Nú er sólin farin að skína og herbergið hans Atla er tilbúið. Þá er næst að gera eitthvað annað.
ble-si
Það eru sjálfsagt flestir sem ég þekki að gera eitthvað í dag. Einhverjir að undirbúa skírnarveislu, aðrir að þrífa heima hjá sér eða annarsstaðar, einhverjir sjálfsagt að undirbúa kvöldið, enn aðrir eru ekki vaknaðir og gera semsagt ekkert og svo eru þeir sem eru á skíðum eða úti að hjóla eða að raka lauf eða snjó eftir aðstæðum í garðinum hjá sér og sumir kannski að athuga hvort nágrannarnir hafi ekki örugglega skitið réttu megin við limgerðið eftir að það fór að rökkva í gærkvöldi.
Ég aftur á móti fór í Ikea í morgun og keypti þar mublu í herbergið hans Atla og er að skrúfa hana saman. Honum vantaði einhvern skáp undir sjónvarpið sitt. Svo hann verður voða hissa þegar hann kemur heim á morgun. Þeir fóru nefnilega norður á Strandir um helgina bræðurnir. Svo keypti ég loksins stóran spegil sem ég ætla að hafa á ganginum.
Það er verst hvað ég er ljótur og fæ sennilega hjartaáfall í hvert sinn sem ég geng eftir ganginum og rek augun í smettið á mér. En ... jæja, ég hlýt að geta vanist því eins og aðrir.
Best að halda áfram að skrúfa.
Ble-si

07 febrúar 2003

Viðskipti | 7.2.2003 | 14:43
2,3 milljarða króna hagnaður Búnaðarbanka
Hagnaður Búnaðarbanka Íslands hf. á árinu 2002 var 2755 milljónir króna fyrir skatta en 2288 milljónir að teknu tilliti til reiknaðra skatta. Hefur hagnaður bankans aldrei verið meiri...

Viðskipti | 7.2.2003 | 15:03
Hagnaður Landsbankans rúmir 2 milljarðar á síðasta ári
Hagnaður Landsbanka Íslands hf. á árinu 2002 nam 2549 milljónum króna fyrir skatta, en að teknu tilliti til skatta nam hagnaður bankans 2028 milljónum króna...

Þetta eru eiginlega Ekki fréttir. Þessir bankastjórnendur væru ljótu klaufarnir í viðskiptum ef þessi hagnaður er ekki bara sjálfsagt mál miðað við vaxta- afgreiðslu og þjónustugjaldaokrið sem er leyft að viðgangast hjá þessum viðbjóðum andskotans.
Ble-si
Málbelgurinn er ekki alveg að virka um þessar mundir. Ég er búinn að komast að því að stundum er hann að valda einhverjum skaða hérna á síðunni - og tefur hana agalega. En það er samt ekki alltaf. Þetta er voða skrítið. Ég ætla því að hvíla málbelginn aðeins - en hann kemur aftur. Því mér finnst hann skemmtilegur.
Ble-si
svart & hvítt
ble-si

06 febrúar 2003

Á morgun þann 7. febrúar 2003 verður nákvæmlega eitt ár liðið frá því ég hóf að safna naflalói. Það hefur að vísu ekkert gengið neitt sérstaklega vel því ég á það til að gleyma því of oft að ég er naflalóa-safnari - en ég er þó komin með nokkur. Viljið þið sjá?.
Ég verð að reyna að standa mig betur á næstu 12 mánuðum. Það verður langt þangað til ég get prjónað mér húfu úr naflalói með þessu áframhaldi.
Ble-si
Ég las einhverju sinni litla grein í DV um Árna Johnsen þar sem hann fór inn á bílaþvottastöð að ræða við afgreiðslumanninn. En meðan hann var þar inni þá kom annar starfsmaður aðvífandi og setti upp stiga utan við dyrnar, prílaði þar upp og fór að þrífa rúðu. Árni Johnsen kláraði erindið með gusti - rauk af stað og reif upp hurðina sem hrinti niður stiganum svo mannvesalingurinn sem stóð í stiganum hrapaði ofaná Árna og handleggsbrotnaði. Árni féll einnig um koll og rotaðist um sinn.
Þá varð þessi limra til í kollinum á mér.

Hann liggur um hríð í roti
við hlið hans er annar í broti
Það gerir ei neitt
þó hann hafi sig meitt
það er sjaldgæft hann höfuðið noti.


Ble-si












ÓDÝRARI PRENTHYLKI
- þjónusta sem alltof fáir nýta sér
Ég mæli eindregið með því að kaupa prenthylki á þessari síðu. Ég er búin að versla þar í tvígang og spara mér þannig líklega 3.800 krónur. Auk þess sem prenthylkin eru talsvert ódýrari en gengur og gerist (rúmum þúsund krónum) þá er þar einnig frábær þjónusta í boði. Tveimur dögum eftir að pantað hefur verið, þá kemur maðurinn skokkandi með prenthylkin og afhendir manni þau - ofsakátur. Þá er hægt að borga honum hvort sem er með peningi eða með greiðslu í gegnum heimabanka.
Ég mæli með þessu - eindregið - eins og ég sagði í þriðja orði þessa pistils. Slóðin inn á síðuna er hérna.
Það er sko eitthvað vit í þessu.
Tökum þátt í að lækka verðið á prenthylkjum!!
Ble-si
Nei-nei-nei.
Nú er mér öllum lokið og mótmæli hástöfum græðgi og yfirgangi Búnaðarbankans. Það er ekki nóg með að bankinn leggi öll afgreiðslu- og þjónustugjöld með fullum þunga á okkur sem notum netbankann - bankanum til sparnaðar - heldur eru hann farinn að skuldfæra SMS-sendingar líka. 30 krónur stykkið!! Þjónusta sem hefur verið ókeypis til þessa.
Nú skora ég á alla sem hafa nýtt sér SMS-þjónustu Búnaðarbankans að hætta því hið snarasta.
Þetta er týpískt - skella á einhverjum gjöldun án þess að láta kóng né prest vita.
Fari Búnaðarbankinn bara til helvítis. Þessi viðbjóður andskotans.
Ble-si

04 febrúar 2003

Ég vesæll vei - hver voði og hörmung sár - er heil mín sál?
Fjárinn hafi það bara. Ég á afmæli eftir viku á morgun. Ég fer að drepast úr elli og á eftir að gera svo margt.
Ble-si
Drukkin á Þorrablóti
“Ég heimta þennan unga”
hún hrópar og bendir með stæl.
Upp í sig súra hrútspunga
hún stingur, þá bryður, svo sæl.

En hvað ég hlakka til að fara á Þorrablót.
Ble-si
Einn stolinn brandari á útlensku
This little boy and his grandfather are fishing. Granddad pulls out a beer and the little boy says "Grandpa, can I have one of those?" Grandpa asks "Is your penis big enough to touch your asshole?" to which the little boy responds "No." "Then you can't have one." A while later, the granddad pulls out a cigar and the boy asks, "Can I have one of those?" Grandpa asks "Is your penis big enough to touch your asshole?" to which the little boy responds "No." "Then you can't have one." Later on, Grandpa and Grandson go to the grocery store for food and each one buy a lottery ticket. Grandpa is unlucky, but the little boy says "I just won $50,000" Grandpa says, "Great, your going to split that with me, right?" The little boy asks, "Is your penis big enough to touch your asshole?" "Yes," says grandpa. "Then go fuck yourself"

OK - ég viðurkenni það - þessi var stolinn.
Ble-si

03 febrúar 2003

Best að skrifa pistil dagsins.
Ég gerði helling í dag. Ég er duglegasti maður í heiminum. Maggi kom - og fór. Hjólaði eftir nýjum Tilberaskírteinum. Skrifaði bréf. Hugsaði mikið. Hringdi nokkur símtöl. Skipulagði stefnumót á miðvikudaginn. Fór í bakarí og fékk mér snúð og sérbakað vínarbrauð. Lét einn hlut fara í taugarnar á mér. Jafnaði mig á því. Borgaði reikninga. Vann í fjárhagsdagbók Strandagaldurs. Borgaði einum reikning of mikið. Sá eftir því. Reykti of mikið. Skrifaði e-mail til Cordulu. Það var kalt úti. Bíllinn er ennþá bilaður. Vaskaði ekki upp því það vannst ekki tími til þess.
Um það bil svona var dagurinn hjá mér.
Ble-si

02 febrúar 2003

Nú er ég orðinn sannfærður um það. Það er samsæri í gangi hjá bönkunum gagnvart viðskiptavinum sínum sem nota debetkorta-reikninga. Þá erum við að tala um alla þjóðina. Ég hef verið að fylgjast með því undanfarna mánuði vegna þess að ég hef hægt og sígandi verið farinn að gruna það. Það er ekki nóg með að þeir séu að ræna okkur með vaxtaokri og ósanngjörnum einhliða ákveðnum þjónustugjöldum.
Hver getur verið ástæðan fyrir því að þegar farin er að minnka innistæðan á reikningnum að þá hægist verulega á því að færslur skili sér inn? Þegar nóg er inni á reikningnum þá skila þessar sömu færslur sér samdægurs.
Ég er sannfærður um það að bankarnir eru með eitthvað leynikerfi í gangi sem hægir sjálfkrafa á því að færslur skili sér inn þegar ráðstöfunarfé á reikningum er komið niður í einhverja vissa upphæð. Til þess að geta náð af venjulegum viðskiptavinum sínum 700 sektarkrónum á hverja færslu. Þetta verður mjög áberandi þegar maður fylgist með þessu í nokkurn tíma.
Og eitt enn.
Hvers vegna í ósköpunum er maður að greiða sama greiðslugjald af skuldabréfum (430 krónur hjá BÍ - helmingi minna hjá ÍB) þegar það er greitt í gegnum netbankann? Það er engin sanngirni í því frekar en öðru hjá þessum löglegu glæpastofnunum.
Ég er að hugsa um að fara að nýta mér hraðbankana í meira mæli og hætta að nota debet-kortið svona mikið.
Ble-si

01 febrúar 2003

Jahérna - fjárinn bara.
Leikurinn við Rússa er á svo ókristilegum tíma fyrir bjór að ég veit svei mér ekki hvernig þetta fer. Ég vildi ég væri í DK. Þá væri þetta ekki vandamál.
En ég verð að spá.
Við vinnum með 3 mörkum ISL 31:28 RUS.
Ég væri bjartsýnni ef ég drykki öl fyrir klukkan 16:00 á daginn.
Ble-si