Það er konudagurinn í dag.
Þá er Góan gengin í garð og ég búinn að þreyja Þorrann eina ferðina enn. Annars var ég að átta mig á því að ég fór ekki á neitt þorrablót að þessu sinni.
Það er alltaf gaman þegar góan hefst. Mér hefur alltaf fundist orðið góa svo vorlegt orð. Þá fer líka að styttast í vorið, þegar gleðin og galsinn fara á stjá. Eins og þessi vísa sem ég heyrði einu sinni um góuna er ótvírætt vitni um.
Lagði ég við á báða bóa
bátt er að koma honum inn.
É-finn ei gatið á þér góa
og gái ég þó á kompásinn.
Svona er nú vorið - fullt af óvæntum uppáferðum.
Jæja - best að finna mér silkikjól til að klæðast í af tilefni dagsins og færa mér svo blóm, svona alveg óvænt.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli