08 febrúar 2003

Það eru sjálfsagt flestir sem ég þekki að gera eitthvað í dag. Einhverjir að undirbúa skírnarveislu, aðrir að þrífa heima hjá sér eða annarsstaðar, einhverjir sjálfsagt að undirbúa kvöldið, enn aðrir eru ekki vaknaðir og gera semsagt ekkert og svo eru þeir sem eru á skíðum eða úti að hjóla eða að raka lauf eða snjó eftir aðstæðum í garðinum hjá sér og sumir kannski að athuga hvort nágrannarnir hafi ekki örugglega skitið réttu megin við limgerðið eftir að það fór að rökkva í gærkvöldi.
Ég aftur á móti fór í Ikea í morgun og keypti þar mublu í herbergið hans Atla og er að skrúfa hana saman. Honum vantaði einhvern skáp undir sjónvarpið sitt. Svo hann verður voða hissa þegar hann kemur heim á morgun. Þeir fóru nefnilega norður á Strandir um helgina bræðurnir. Svo keypti ég loksins stóran spegil sem ég ætla að hafa á ganginum.
Það er verst hvað ég er ljótur og fæ sennilega hjartaáfall í hvert sinn sem ég geng eftir ganginum og rek augun í smettið á mér. En ... jæja, ég hlýt að geta vanist því eins og aðrir.
Best að halda áfram að skrúfa.
Ble-si

Engin ummæli: