26 febrúar 2003

Æ,æ,æ
Ég lét nauðga buddunni minni í morgun. Fór upp í Hvítlist að kaupa selskinn, hlýraroð og pappír. Samtals fimmtán þúsund kall.
Er þetta hægt Gvendur? Það er meira hvað það er hægt að okra á gölluðu selskinni. Átta-þúsund-krónur!!
Ég veit svei mér ekki hvort þessi Galdrakveragerð kemur nokkurn tíma til að skila þeim hagnaði sem þörf er á. Það er allavega eins gott að nýta efnið eins og mögulegt er. Ég hef grun um að stykkið af kverinu verði ekki undir fimm-þúsund-krónum þegar upp verður staðið.
Það er agalegt.
Annars er ég að verða eins og fílamaðurinn og Quasimodo í einum manni í ofanálag. Það er ekki nóg með að ég sé eins og óléttur flóðhestur heldur eru varirnar á mér að springa út eins og arfi að vori. Ógeðslegar frunsur um allt munnvikið.
Engin furða að maður fái það ekki reglulega.
Skelfing.
Ble-si

Engin ummæli: