Það er orðnar nokkrar vikur síðan ég tók mig til og gerðist ögn umhverfisvænni en ég hef verið til þessa. Það fer ekki lengur allt drasl í ruslafötuna mína. Ég safna öllum gerðum af mjólkurfernum, hvort sem innihald þeirra hefur verið mjólk, djús eða grautur auk þess sem hvert einasta pappírsnifsi, s.s. ljósritunarpappír, dagblöð, kassakvittanir og bjórumbúðir fara í sérstaka pappírssöfnunarpoka. Síðan afhendi ég Sumarliða vini mínum þetta, en hann á sumarbústað vestur í Dölum og svo nýtir hann sorpið mitt til að kynda bústaðinn. Allar aðrar umbúðir s.s. sultukrukkur, sápubrúsar og tómatsósuflöskur fara með drykkjarumbúðunum í Sorpu þar sem ég sel þeim þær fyrir 9 krónur stykkið.
Og hver er svo ávinningurinn?
Mér finnst ég gera pínugagn auk þess sem það eru margfalt færri ferðir út í ruslagám. En ég er ekkert farinn að hugsa um lífrænan úrgang ennþá, því ég hef engan garð og hef þar af leiðandi enga þörf fyrir mold.
Ble-si.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli