31 janúar 2004

Ég sá tvíbura útá götu áðan. Mér finnst tvíburar afar spennandi fyrirbæri og mig hefur alltaf langað til að vera tvíburi sjálfur. En það er víst orðið aðeins of seint. Ég myndi frekar vilja eiga tvíburasystur en tvíburabróðir svo okkur yrði ekki ruglað of mikið saman.

Hvernig skyldi það vera að vera foreldri tvíbura? Það hlýtur að vera sérdeilis magnað. Svo ég tali nú ekki um þríbura. Það er ábyggilega svakalegt. En eflaust gaman.

Það er skrítið - en ég hef aldrei kynnst tvíbura. Ekki svo ég muni eftir.
Ble-si
Loksins loksins loksins. Nýtt upphaf er hafið. Mér tókst loksins að standa við stóru orðin og fara að hreyfa mig. Nú er ekki aftur snúið.

Vesturbæjarlaugin var það heillin, klukkan 9:00 í morgun við sólarupprás. Keypti mér þar kort og byrjaði á að fara í ljós í 20 mínútur. Síðan í sturtu og í heita pottinn - synti 200 metra og fór í heita pottinn og þaðan í gufu - rak svo augun í tækjasal og skokkaði þar 2,5 mílur.

Já, nú er ég hress og orkumikill auk þess að vera talsvert ánægður með sjálfan mig.

Að vísu sló það svoldið á gleðina þegar ég leit í risaspegil og áttaði mig á því að ég er ekki nánda nærri jafn stórglæsilegur og ég hélt. Þannig að það er spurning hvort þetta verði til þess að ég fyllist af heilbrigði en mórallinn fari niður fyrir frostmark. Ég er svoldið hræddur um það. Andlegt og líkamlegt jafnvægi gæti raskast hjá mér.
Ble-si
Þá er það ákveðið. Þegar ég vakna í fyrramálið þá hefst nýtt upphaf. Frá og með næstu sólarupprás ætla ég að labba eða hjóla í sund á hverjum morgni áður en ég tekst á við daginn. Ég ætla ekkert að synda mikið - bara að sjá til hvað ég nenni. Kannski 50 metra, kannski 200 eða 1000 og kannski bara að sulla í heita pottinum. Svo ætla ég líka í ljósatíma þriðja hvern dag. Kannski fjórða hvern dag. En ég ætla mér að byrja á morgun. Annars skal ég hundur heita.

Jahá, nú verður sko tekið á því - og ég er ekki drukkinn ef einhver skyldi halda það. Óekkí-ónei.
Ble-si

30 janúar 2004

Í gær var stór dagur í tölvumálum á heimilinu. Afa jákvætt. Ég straujaði fartölvuna eftir að hafa náð út úr henni öllum mikilvægum gögnum. Nú er hún jafngóð og dugleg og þegar ég keypti hana þann 4. maí 2001. Það er alveg ótrúlegt. Örugglega svipuð tilfinning og þegar sjúklingur vaknar upp eftir uppskurð og áttar sig á því að sárir verkir og óþægindi sem hann hefur vanið sig á að lifa með eru horfnir svo við tekur taumlaus gleði og þakklæti til lífsins.

Að vísu er ég búinn að glata öllum forritunum úr vélinni, en þar sem þetta er nýtt upphaf þá er mér nokk sama. Nú get ég skammlaust tekið hana með mér til Hannover og notað hana í básnum til sýningar á margmiðlunardiskinum.

Já, þessa dagana þá lífið er leikur og létt eru sporin, þó leiðin í rökkrinu ei sé gengin af tveim.

Mig vantar föt - ég er að verða allsber barasta. Ég þyrfti að gera eitthvað í því við fyrsta tækifæri.
Ble-si

27 janúar 2004

Snjöll húsráð
Í tilefni af óhóflegu bjartsýniskasti mínu.

Tannsápa
Í tannsápu má aldrei vera sýra eða önnur efni, sem hætta er á að leysi upp glerung tannanna. Hæpið verður að teljast að nota tannsápu, sem ekki er vitað, hvaða efni eru í.
Ágætt tannduft, sem hver og einn getur búið sér sjálfur til, er:

50 g mulið trékol.
30 g mulinn kínabörkur.
8 g magníumkarbónat.

Duftinu er blandað vandlega saman og nokkrir dropar af ilmefni, t.d. sítrónolíur, látnir saman við.

Rennilásar og krókapör
Rennilásum og krókapörum á að spretta af flíkum, áður en þvegnar eru. Það vill ryðga í vatninu og skemmir þvottinn.
[fleiri ráð]

Mér þætti gaman að sjá það - ljódi bódi, Jósteinn. (Var það ekki annars þannig í laginu með Halla og Ladda?)
Ble-si
Gærkvöldið var fullt af óvæntum uppákomum. Bíllinn minn kom úr viðgerð - en hann var búinn að vera utan við bílaverkstæði síðan 16. desember. Nú er hann í lagi - að mestu leyti.

Galdramaðurinn Áki fór höndum um tölvuna mína á eldhúsborðinu heima hjá sér. Það tókst nú ekki að laga hana en ég get allavega komist í gögnin í henni í gegnum hina tölvuna. Að öllum líkindum er þetta hin undarlegasta bilun því það er ekkert að stýrikerfinu. Hátalarnir hafa tekið völdin og öskra og æpa og hávaðinn er svo mikill að tölvan frýs þegar hún reynir að starta sér upp. Áki fann leið til að fyrirbyggja frostið svo ég kemst inn í hana. Mér tókst það allavega í gærkvöldi - en hef ekki prófað í dag.
Ble-si

26 janúar 2004

Þetta er nú búinn að vera meiri dagurinn. Úff-úff-púff.

Ég ætla að reyna að kíkja til Áka í kvöld og athuga hvað hans fimu fingur geta gert til að opna tölvuna mína aftur. Kannski lumar hann á galdraráði sem getur dugað. Þangað til annað kemur í ljós þá ætla ég að vera fullur bjartsýni og ef það gengur ekki þá stefni ég að fullkomnu bjartsýniskasti og tek bjartsýnisæði sem lengi verður í minnum haft.

Skype hefur virkað vel í dag. Notalegt þegar maður heyrir rödd í hátölurunum sem heilsar manni góðlátlega og spjallar svo við mann í nokkrar mínútur og bolar þannig í burt um stund eimsemdinni framan við tölvuskjáinn. Það er allt svo fjarska fallegt við Skype. Þar þarf enginn að flýta sér að tala og reyna að koma frá sér of miklum upplýsingum á skemmri tíma en mögulegt er, eins og í hefðbundnum síma.

Já, það er yndislegt.
Ble-si
Mig langar í þessa vél í stað þeirrar gömlu.
Ble-si

24 janúar 2004

Halló og góðan daginn. Þetta er ég mættur á svæðið.

Ekki var það nú gott sem gerðist í morgun þegar ég kveikti á tölvunni minni. Hún bara hrundi. Svo að í hvert sinn sem ég kveiki á henni núna þá æpir hún á mig af öllum lífs og hátalarkröftum með svo miklu ýli að gömlu almannavarnaflauturnar eru hjóm eitt miða við það. Svo frýs hún og ég verð að plögga hana úr sambandi við rafmagnið til að slökkva á hávaðanum.

Ekki er þetta gott, því inni í þessari tölvu er nánast allt sem ég á. Öll mín vinna er lokuð þarna inni og ég veit ekki hvað ég á að gera. Svei mér þá. En ég ætla að halda ró minni og fara ekki í fýlu og ætla ekki að bölva og rótast eins og ég er vanur þegar eitthvað bjátar á.

Nei, nú dreg ég bara djúpt að mér andann og krosslegg fingur og vona að... ja, ég veit ekki hvað.

Ég hef þó borðtölvuhræið gamla sem ég get pikkað eitthvað á.
Ble-si

23 janúar 2004

Ég sendi öllum heiminum mínar bestu kveðjur og þakka fyrir allar heimsóknirnar á bloggið mitt.

Megi framtíðin brosa við öllum. Alla daga.
Ble-si
Hvað skyldi ég hafa fengið nú þegar mörg atkvæði sem kynþokkafyllsti karlmaður þessa lands á Rás 2 í dag? Það er sprennandi spennandi að vita hvort ég næ 1. sætinu á þessu ári.
Ble-si

22 janúar 2004

Ég keypt mér heddfón með mæk í gær í tölvubúðinni Hugver við Vitastíg. Þetta er megagræja og kostaði aðeins 2.490 kr. með yfir þriggja metra langri snúru.

Ég lít út eins og yfirmaður Geimferðarstofnunar Evrópu með þetta á hausnum.

Áróður minn með Skype er um það bil að ná hámarki en mér hefur þegar tekist að fá nokkra ættingja og vini erlendis til að tengjast.

Ég talaði við Írisi Dögg frænku í morgun en hún býr í Stuttgart og hún varð voðalega hrifin. Ég verð að ná í Ernu og Gísla í Horsens bráðlega. Þetta er frábær lausn fyrir þau.
Ble-si

21 janúar 2004

Björk er töffari í Fréttablaðinu í dag.
Ble-si
Can I get a trojan or virus from using Skype?
With Skype, one can only transmit encoded voice traffic and text messages. There are no worms or viruses that can be spread through this communication since there is no executable code transmitted. One cannot use Skype to share or transmit files and therefore there is no risk of opening up your computer or being infected by viruses.

Þar hafið þið það. Skype er margfalt sinnum öruggara en t.d. MSN vegna þess að það er ekki hægt að senda nein viðhengi á milli tölva. Eins og flestir eiga að vita þá er helsta orsök vírusa sú að tölvunotendur opna einhverskonar viðhengi sem send eru úr smituðum tölvum.
Ble-si
Gott er að vakna glaður og hress eins og strandastelpan segir ævinlega. Fór eldsnemma á fætur fyrir tveimur tímum.
Nú skal tekið á því.
En fyrst fæ ég meira kaffi og fer svo í morgunsturtuna. Síðan skal aldeilis verða tekið á því.
Ble-si

20 janúar 2004

Flottir kettirir sem halda uppi lögum og reglu á þessu risasafni í Rússlandi. Þessi hugmynd kom einu sinni upp fyrir norðan. Það hefur líka verið að talað um að ala hrafna þar. Það finns mér vera kúl.

Ég ætla að gera tilraun með hvað ég get drukkið mig sauðdrukkinn á stuttum tíma og reyna að slá heimsmet í leiðinni.
Ble-si

P.s. Risasafn? Það er hugmynd!!
Það er farið að húma að kvöldi og ennþá rignir hann. Það er ég ánægður með því þá fer snjórinn í burtu. Því eins og flestir sem til mín þekkja, þá ættu þeir að vita að mér er reglulega og almennt mjög illa við snjó. Sama hvar er hann er niðurkominn.

Ég sótti um nýtt ökuskírteini í dag en það gamla er búið að vera týnt í nærri því átta ár. Það þýddi að ég þurfti að fara á ljósmyndastofu og láta smella af mér passamynd og á henni ég er líkari Láka jarðálfi en sjálfum mér. Ég er meira að segja líkari Láka jarðálfi en Láki jarðálfur sjálfum sér.

Menntamálaráðuneytið er frá - fór þangað sjálfur í minni eigin persónu áður en ég breyttist í Láka jarðálf og afhenti þeim gögnin sem beðið var um. Ég fór líka í Búnaðarbankann og náði í útprentaða greiðsluseðla til að rukka Base Camp í gegnum bankann, því ég lána þeim ekki lengur vaxtalaust.

Ég kláraði greinargerðina og safnaði öllum fylgigögum fyrir Scandinavian Travel Awards og sendi pakkann ásamt því að senda til Berlín prentmálið mikla fyrir Hannover dæmið.

En nú ætla ég að vera reglulega vondur eins og tvífari minn Láki jarðálfur, það sem eftir er dagsins og gera eitthvað reglulega ljótt.

Svo er bara að muna eftir www.skype.com og láta ekki hræðsluáróður fulltrúa símafyrirtækjanna sem tapa stórfé á þessari frábæru símalausn, hafa áhrif á okkur. Ég ulla allavega á þá.
Ble-si
Þetta er búinn að vera mikill afreksdagur. Mikið meira er frá en í gær og ég er því allra kátasti og hamingjusamasti maður jarðar - að meðtöldum öllum reikistjörnum Sólarinnar og tunglum þeirra.

Hvað eru margir búnir að skoða www.skype.com? Drífa sig - drífa sig og hringja svo í mig.
Ble-si

19 janúar 2004

Ég mæli með að allir sem ég þekki - sérstaklega þeir sem þurfa eða vilja mikið tala til útlanda skrái sig á www.skype.com. Eftir það þá er hægt að hringja hvert um heiminn ókeypis svo fremi sem sá sem maður vill tala við sé einnig búinn að hlaða niður www.skype.com og er með virka hljóðnema og hátalara í tölvunni sinni. Hvorutveggja er einnig hægt að kaupa fyrir lítinn pening í ódýrum tölvubúðum.

Ég prófaði þetta í kvöld og þetta svínvirkar, en ég talaði við Fanneyju í Köben. Hljóðið er betra ef eitthvað er.

OK - allir á www.skype.com til að spara pening eða til að halda betra sambandi við ættingja og ástvini.
Ble-si
Nú er gaman. Ég get ekki hætt að brosa. Mér er sko sama þó það rigni og sé svartamyrkur alla daga. Mér finnst það bara gaman eins og allt annað.
Já, nú er sko gaman að vera til.
Ble-si
Þvílík snilld. Klúður lífs míns átti sér ekki stað. Ég reddaði þessu. Mikið lifandi ósköp er ég feginn, en það munaði ekki nema hársbreidd að klúðrið mikla ætti sér stað. Ef það klúðrast þá liggur klúðrið ekki hjá mér - heldur hjá einum af starfsmönnum Heims.
Svona á að gera þetta - koma klúðrinu yfir á aðra.

Hahahaha - fyrst að það munað ekki nema hársbreidd og mér tókst að redda málunum þá get ég haldið áfram að bíða eftir klúðri lífs míns.

Trallalí - Ich bin ein UFO.

Næst á dagskrá:
- er að ganga frá pappírum vegna þýsku skandinavísku verðlaunanna
- senda mentamálaráðuneytinu skýrslu
- rukka vegna uppákomunnar á Nordica Hotel
- færa bókhald
- færa Hilmari Erni tíðindin
- undirbúa næsta klúður sem ég redda eins og vanalega og þarf því ekki að hafa neinar áhyggjur af
Ble-si
Það verður engin Galdrahátíð í ár. Búinn að blása hana af.
Í dag er dagurinn þegar allt fer til helvítis og hérna er flyerinn fyrir Reisepavillonið í Hannover.
Ble-si

18 janúar 2004

Á morgun kemur dagurinn sem allt fer til helvítis. Mér hefur ekki tekist að gera það sem ég ætlaði mér í dag. Ég veit svei mér ekki hvenær mér tekst það. Það hlaut að koma að því að ég klúðraði einhverju. Ég er búinn að bíða eftir því í u.þ.b. aldarfjórðung. Ég visi að það kæmi að því. Ég er nefnilega berdreyminn.
Helvíti.
Ble-si
Ég verð að skila á morgun. En er ekki búinn að læra á Illustrator aftur. Ætlaði að vakna klukkan átta í morgun en það mistókst í nærri því fjóra klukkutíma. Nú verð ég að vaka og vinna. Síðustu tveir dagar fóru meira og minna í önnur verkefni sem voru skemmtilegri. Nú er það komið í bakið á mér. Lengri verður fresturinn ekki.
Ble-si

16 janúar 2004

Ég er búinn að taka stefnuna á ferðakaupstefnu í Hannover í byrjun febrúar. Ég er búinn að kaupa flugmiðana, fyrir skít og kanil nánast. Aðeins kr. 28.000. Flýg héðan til London með Iceland Express og þaðan tveim tímum síðar til Berlín með Air Berlin. Svo þarf ég að taka lest þaðan til Hannover. Ég ætla að eyða þrem til fjórum dögum eftir kaupstefnuna í að finna útgefanda á galdraspilinu mikla en ég hef góðar vonir um að hann sé að finna í Köln. Ég flýg síðan frá Berlín til London aftur, en þá með Ryan Air.

Já já. Svo er nú það. Ég er nú svo geðveikur að ég hlakka bara ekkert til, því kvíðinn fyrir heimferðinni er strax farinn að ofsækja mig og hann yfirbugar alla tilhlökkun.

Svo er lurkur í mér því ég á í hinu mesta basli með tölvuna mína sem neitar að vinna auglýsingagerðina fyrir Á ferð um Ísland nema á sniglahraða.
Ég ætla að fá mér VISA kort. Og nýtt ökuskírteini því það gamla er búið að vera týnt í fimm ár.

Það er fyndið.
Ble-si

15 janúar 2004

Ég fann símann. Hann var inni í ísskáp. Nánar tiltekið í frystihólfinu. Engin furða að hann hafi verið týndur. En hvernig hann komst þangað er mér hulin ráðgáta.
Ble-si
Það kom upp í huga mér ljóðið "Lífið er leikur og létt eru sporin". Það er nú ljóta bévitans vitleysan. Síminn minn er týndur og tröllum gefinn og Cordula er lent í Berlín. Hún er þreytt eftir ferðalagið. Enda eru 2380 km þangað frá suðvesturhorni Íslands.
Ég er líka þreyttur eftir mikil átök innan rifja í dag. Til að lækna það þyrfti ég að leggja að baki 2380 km. Það getur verið langt þegar maður á ekki flugvél. Líklega væri það enn lengra ef maður ætti flugvél og kynni ekki að stýra henni.
Ble-si

14 janúar 2004

Ég finn ekki símann minn. Hann er gjörsamlega horfinn. Það er súrt, en þó ekki jafn súrt og hitt.
Ble-si
Cordula er farin í loftið. Það er sárt. Hjartað mitt er að bresta.
Ble-si

12 janúar 2004

Það er hrikalegt vetrarþunglyndi yfir mér núna. Ég ráðlegg engum að reyna að hafa samband við mig því það er hundur í mér og ég gæti glefsað.

Mikið andskoti er annars hundleiðinlegt að ráfa á þessari bévitans jörð.
Ble-si

11 janúar 2004

Gísli mágur minn á afmæli í dag.
Allar aðrar fréttir af mér eru leyndarmál þar til síðar.
Ble-si

05 janúar 2004

Her eftir heitir bloggid mitt "THE BOOK OF THE BOOKS" thvi eftir lestur Bibl?unnar yfir jolin er bloggid mitt margfalt yfirvegadra. Amen.

? Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex

03 janúar 2004

Ég er hörmulegur bloggari að verða. Svei mér alla daga.

Helstu frétirnar eru þær að bíllinn er ennþá á verkstæði og að ég missti myndavélina mína í gólfið á gamlárskvöld svo hún tekur ónýtar myndir. Annars var gaman á gamlársdag. Við elduðum Sushi fyrir sextán manns og átum það tvö. Restin fór í ruslið.

Það lítur út fyrir að ég taki engar ljósmyndir í ókominni framtíð.
Ble-si