Það helltist yfir mig gríðarlegt flensuflón í nótt. Gat lítið sem ekkert sofið og leið eins og djöflinum í messu þegar ég skreiddist á lappir.
Það er vont.
En á Ströndum er gríðarlega gott veður og stefnir í mikil hlýindi þessa helgi.
Það er gott.
Ble-si
30 júlí 2004
29 júlí 2004
Fimmtudagur fyrir verslunarmannahelgi.
Leiðindaveður og rigning í borg óttans.
Nú fer ég að hysja mig norður. Í kvöld verð ég með þjóðsagnakvöldvöku á Café Riis, Hólmavík. Það stefnir í mikið fjör. Eftir viku kemur til landsins Alex nokkur, þýsk stúlka sem ætlar að dvelja hjá okkur á Galdrasýningu á Ströndum fram að jólum og skrifa masters ritgerð sína í ferðamálahagfræði við háskólann í Ebersweld. Hún hitti mig í Hannover í febrúar og vildi ólm skrifa um verkefnið okkar. Ég hef trú á, og vona að okkur verði nokkur akkur í því, sérstaklega ef henni tekst vel upp í að finna út hver margföldunaráhrif galdraverkefnisins á Ströndum raunverulega eru. Húsnæði fyrir hana er reddað.
Ég er að velta fyrir mér hvort ég ætti að splæsa í mótor á bátinn mikla sem ég keypti óvart fyrir nokkrum dögum. Hann er ekki svo dýr en eg verð þá að spara við mig ærlega í eihverju öðru. Verð að fara að taka sjálfan mig taki því ég er búinn að eyða of mikið af fé undanfarið.

28 júlí 2004
Á sunnudaginn var kom maður nokkur í heimsókn á Galdrasýninguna. Hann sagði mér að þegar hann var einhverntíman einhversstaðar í Ameríku þá hefði hann lent í spjalli við einn ameríkumanninn um ameríska indíána. Sá var hreint ekki hrifinn af líferni þeirra og var hinn fúlasti út í þá. Þeir væru baggi á samfélaginu og tækju á engan hátt þátt í því. Væru meira og minna fullir allan daginn, hundleiðinlegir og erfiðir. Svo leit hann hugsandi á Íslendinginn og spurði:
Heyrðu? Eigið þið ekki í svipuðum vandræðum með þessa víkinga hjá ykkur?
Er þetta ekki klikkæðislega fyndið?
Ble-si
Heyrðu? Eigið þið ekki í svipuðum vandræðum með þessa víkinga hjá ykkur?
Er þetta ekki klikkæðislega fyndið?
Ble-si
27 júlí 2004
Draugabani á Ströndum á Stöð 2. Minnst 30 draugar drepnir í sumar segir hann. Djöfuls kjaftæði! Þeir eru mikið fleiri.
Ble-si
Ble-si
23 júlí 2004
Nú fer ég norður. Ekki seinna að vænta. Á morgun ætla ég að lúskra á nokkrum draugum mér til gamans og skemmtunar. Hvað svo verður veit nú enginn.
Lenti á hrikalegu fylleríi með Rakel í gær en við vorum að vinna í galdrabókinni miklu. Endaði með því að ég sofnaði á Austurvelli með tölvuna undir haus sem kodda. Einhverntíman undir morgun ýtti eitthvað gott fólk við mér í rigningunni og ég skrönglaðist heim. Ó, mig auman. Langt síðan slíkt og annað eins hefur gerst.
En nú sný ég skrjóðnum í gang.

22 júlí 2004
Jahérna - ég keypti gúmmíbát áðan án þess að átta mig almennilega á því hvað ég væri að gera. Nú er ég sumsé orðinn báts- og tveggja ára eigandi.
Sigli-sigl.
Nú er vonandi að það verði annaðhvort vatn eða sjór einhversstaðar á leið minni. Hvað ætli maður sé lengi að blása upp einn gúmmíbát? Án pumpu? Verður maður ekki vona að maður verði pumpueigandi einhvern næstu daga.
O, boj. Mig auman. Meiri vitleysan.
Svo þarf ég að skima eftir einhverri hrærivél með batteríum svo ég þurfi ekki að róa endalaust.

Jahérna. Það væri ekki amalegt að búa í Danaveldi nú um stundir. Bjórstríðið mikla hefur brotist út og ef ég þekki dani rétt þá vígbúast þeir af miklum móð með bros á vör.
Ble-si
Ble-si
21 júlí 2004
Allir danskir ferdamenn sem eg hitti her eru i annarlegu astandi. Jeg tror ølet er alt for dyrt og their seu bara ekki ad meika svona thurra daga. Skål i vand!
´ Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
´ Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Lamb i Tikka Masala er upplagt ad fa ser medan steikin steikist i ofninum. Sidast thegar eg for ut ad borda var eg svo svangur ad eg pantadi tvo adalretti.
´ Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
´ Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
20 júlí 2004
Hann er frekar slappur skrifari þessarar bloggsíðu. Nú erkominn þriðjudagur aftur og ekkert hefur birst hér frá því síðast. Ekki það að það hafi ekki hellingur gerst. Fór t.d. norður í Árneshrepp og fleira og fleira - má bara voða lítið vera að þessu skriferíi. Því það er svo margt að gera og takast á við.
Þar til næst.
Ble-si
Þar til næst.
Ble-si
13 júlí 2004
Eitt er alveg morgunljóst. Það borgar sig miklu fremur að vera gulrótnabóndi en sauðfjárbóndi miðað við verðið á matvöru í Nóatúni. Kílóið af 1. flokks súpukjöti kostar 599 kr. kg og kg. af íslenskum gulrótum kostar 589 kr. kg.
Verðið á landbúnaðarvörum á Íslandi kemur framleiðslukostnaði ekkert við. Fáránlegt. Hvar er Guðni núna? Hvenær var síðast fundur í Öskjuhlíð? Nýlega?
Hneyksli frá Helvíti.
Ble-si
Verðið á landbúnaðarvörum á Íslandi kemur framleiðslukostnaði ekkert við. Fáránlegt. Hvar er Guðni núna? Hvenær var síðast fundur í Öskjuhlíð? Nýlega?
Hneyksli frá Helvíti.
Ble-si
12 júlí 2004
Þessi unga stúlka fór á Galdrasýningu á Ströndum. Hún virðist hafa lært að naga saman band.
Það er meira en ég get.
Ble-si
Það er meira en ég get.
Ble-si
Ég er á lífi ennþá þó það líti ekki þannig út á þessari síðu. Hef nóg að gera og langar mest til að sofna. Bara sofna og svífa langt langt langt í burtu, og vakna ekki fyrr en einhversstaðar hátt hátt uppí tré og fljúga niður og svífa eitthvað annað. Eins og bifklukkufræ. Bara svífa og svífa.
Svo er nú það. En fyrst set ég í þvottavél.
Ble-si.
Svo er nú það. En fyrst set ég í þvottavél.
Ble-si.
01 júlí 2004
Þeir eru með hrafna í The Tower of London. Það er sagt frá þeim hér. Þeir hafa verið þar afar lengi og eru nauðsynlegir krúnunni.
Það er ekki verið að agnúast út í bresku krúnuna! Það er ekki sama hvort maður heitir Jón eða séra Jón. Hvað þá hvort maður íslendingur eða breti.
Allavega - Galdrasýning á Ströndum heldur ekki lengur hrafna - en aftur á móti halda hrafnar sig þar. Erfitt að eiga við það. Við gæfum jafnvel hungraðri hagamús sem ætti leið hjá að borða.

Öll þessi bréf sem ég fékk í gær frá Umhverfisráðuneyti, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands eru tómt hrafnaspark. Sérstaklega kjánalegt þó frá þeim síðastnefnda sem ætti að hafa eitthvað annað en hrafninn í lógói sínu.
Næst bið ég um leyfi til að halda páfagauk og eldislax þar sem það vill til að laxinn er ekki einkennisfugl þessarar hallæris ríkisstofnunar.
Ég er sorgmæddur yfir löndum mínum sem hafa lært of mikið og kunna ekki orðum sínum forráð og hóta lögreglu ef ekki.
Ó, þessi embættismannaþjóð sem þekkir vart lýðræði frá auðum atkvæðaseðlum.