28 ágúst 2003

Þetta er snjallt. Loksins er komin aðferð fyrir neytandann að velja hvaðan lambið á diskinn kemur.
Verst að það sé eingöngu um að ræða krílin fyrir austan. Ég hef í mörg herrans ár verið að væla yfir því að það sé ekki nokkur leið að vita hvaðan kjötið kemur sem maður leggur sér til munns. Sérstaklega ekki eftir að flest sláturhús í landinu sameinuðust í eitt viðbjóðs-tröll í nafni hagræðingar. Áður fyrr vissi maður þó að kjötið var af strandalambi áður en maður át það - en nú áttar maður sig ekki á því fyrr en daginn eftir þegar maður sest á salernið og rýmir fyrir meiru. Það finnst mér vera einkennileg hagræðing. En hvað hef ég svosem vit á því?

Lambakjöt boðið til sölu á Netinu
Sláturfélag Austurlands mun innan skamms bjóða upp á nýjung í sölu og markaðssetningu á lambakjöti beint til neytandans. Sigurjón Bjarnason, framkvæmdastjóri félagsins, átti hugmyndina, en um er að ræða tilraunaverkefni þar sem bændur selja sjálfir kjöt sitt beint til neytenda með aðstoð Netsins og milligöngu Sláturfélagsins. Sigurjón sagði í samtali við Morgunblaðið að Sláturfélagið myndi sjá um alla verkun kjötsins, pökkun og dreifingu og sjá um innheimtu og greiðslur til bænda, en Norðlenska um slátrunina. Hann segir að þegar verkefnið verður komið í gagnið muni neytendur geta farið á Netið og kynnt sér kjöt frá tuttugu mismunandi bændum og valið sér kjöt frá þeim bónda sem þeim líst best á.

Verkefnið verður kynnt formlega í næstu viku, að sögn Sigurjóns.

Sláturfélag Suðurlands ætlar einnig að hefja tangarsókn í sölu á lambakjöti, en á döfinni er verkefni með Áformi, sem er samstarfsverkefni um markaðssetningu á lambakjöti erlendis.

„Ég bind miklar vonir við að markaðsátakið með Áformi muni auka söluna hjá okkur“, sagði Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélagsins, í samtali við Morgunblaðið.

27 ágúst 2003

Það verður ekki sagt um mig þessa dagana að ég sé fyrirmyndarbloggari. Öðru nær. Það jaðrar við það að ég setji sjálfan mig í flokk Ræfils-bloggara.
En það er allt á útopnu þessa dagana. Bíllinn er á verkstæði að láta skipta út á sér gírkassa og kúplingu svo ég komist nú norður á morgun. Þangað þarf ég að vera kominn fyrir klukkan hálfsex til að gagnast nokkrum bankamönnum. Það er vonandi að þeir gagnist mér jafnvel.

Ég hef átt í bréfaskriftum undanfarið við enska konu sem heitir Gemma. Skrítið nafn. Ekki vildi ég heita það.
Nema hvað... að hún er að koma til landsins á laugardaginn og á enga ósk heitari en að sjá Galdrasýninguna í heimsókninni. Þannig að hún verður að taka síðustu áætlunarferð rútunnar á þessu sumri norður á sunnudaginn. En þá kemst hún ekki til baka af því að fleiri langferðabílaáætlanir verða ekki að norðan eða norður fyrr en næsta vor. Svo það er bara tvennt í stöðunni hjá henni, að staldra við á Ströndum í vetur eða að ganga norður í Árneshrepp og taka flugið frá Gjögri á fimmtudeginum.
Ég held hún ætli að gera það. Það finnst mér líka vera skynsamlegt.

Varðandi mín ferðalög í haust er aftur á móti allt óráðið. Ég veit ekkert í minn haus - hvorki þvers né langs. En þó er aldrei að vita nema ég bregði undir mig hærri fætinum og skelli mér til Póllands í næstu viku.
Ble-si

22 ágúst 2003

Ég var búinn að lofa því að fara í Bónus og Rekstrarvörur í dag fyrir Jónka. En ég veit bara ekki hvað ég á að kaupa því ég man ekki hvort hann er búinn að segja mér það eða ekki.
Ætli ég kaupi þá ekki bara salernispappír, munnnþurrkur, bland í áburðarpoka og einhver skrípóblöð.
Ble-si

21 ágúst 2003

Bara ef Áki væri ekki í Danmörku að slæpast. Þá færi ég að fá mér unga. Hann er duglegasti ungverjinn sem ég þekki og kann ekki að segja nei þegar kemur að unga. Hann er eins er samnefnari karlmanns og kynlífs þegar kemur að því að velta því fyrir sér hvort manni langi í bjór.
Já, aum er borgin án Áka frænda.
Ble-si.

20 ágúst 2003

Ekki veit ég hvað þetta er að vilja upp á dekk. En ég var að keyra vírusforrit í hinni tölvunni minni og það fann fjóra vírusa. Hvorki meira né minna - þrjá einhverja Troja og einn óskyldan öllum hinum. En nú eru þeir dauðir og mér tekst ekki að slökkva á tölvunni. Það finnst mér vera grunsamlegt í meira lagi.
Ætla að prófa að taka hana úr sambandi!
Noh! Vá hvað hún er sein að starta sér. Bara svartur skjár sem stendur - svo blánar hann og verður... ? Fjúff - normal.
Sko til - þarna hrökk hún í gang. Laus við alla vírusa pírusa. Nema mig.
Ble-si
Það er nú meiri organs blíðan í dag. Svona er þetta oft á þessum tíma - algjör veinandi veðursæld. Ég brunaði alla leið suðrí Hafnarfjörð í dag og verslaði gírkassa frá helvíti í bílinn og er búinn að fá pláss á verkstæði einhverntíman eftir helgi. Vona bara að hann hangi saman þangað til en ég þarf að náttúrulega að fara norður en ekki niður um helgina að skapa draugastemningu o.fl.
Átthagafélag Strandamanna verður á heima- og æskuslóðum og ég þarf að halda vöku fyrir þeim eina kvöldstund í Bjarnarfirði með húllum og bland af hæjum - svona bland frá ýmsum bæjum.
Svo nú á ég bara eftir að finna lausn á spurningunnni: Hvað ætti ég að hafa í kvöldmat heima hjá mér?
Það er eitt erfiðasta verkefnið sem ég hef þurft að leysa í sumar, en eftir kvöldmat ef mér þá tekst að ákveða hvað verður í kvöldmat og hvort, þá ætla ég að reyna að finna lausn á verkefninu: Afhverju vælir brunaboðinn svona? og jafnvel leysa úr því verkefni - ef ég verð þá ekki draugfullur eða með reyting af þeyting.
Hjá mér býr ungur maður sem ber franskt nafn frá Ameríku. Ástæðan fyrir því er einföld. Ég tvíbókaði í eitt herbergið á hótelinu mínu í hálfan mánuð og verð því að súpa seiðið af því núna. En það er allt í lagi - hann er ágætur. Líklega einn skásti Ameríkaninn í heiminum.
En að súpa seiði eitt - dugar mér ekki eitt - og sér í lagi ekki sér - mat verð ég einnig að fá - ligga ligga lá - hafa í sig og á - þó ekki egginn hrá. - Frá, frá því Brúsa liggur á.
Ble-si

19 ágúst 2003

Það er eitthvað skrítið að gerast í tölvunni hjá mér sem mér hugnast ekki. Ég fékk tölvupóst áðan þar sem sagði að ég væri að dreifa einhverjum fjárans vírus. Svo keyri ég náttúrulega vírusvarnarforritinu og ekkert finnst. Þetta er algjörlega óþolandi og ég veit ekkert hvað skal gera - það segi ég alveg satt.

Annars er ekkert að frétta - allavega ekkert gott. Ég er tilneyddur til að skipta um kúplingu og gírkassa í bílnum mínum. Það vildi ég að hefði ekki gerst. Er búinn að finna gírkassa á aðeins 30 þús. Kúplingin kostar 15 þús og svo þurfa þeir að fá eitthvað á verkstæðinu. Meira bílaólánið á mér alltaf hreint. Óskiljanlegt.

En... nenni sko ekki að vera að ergja mig yfir því. Veðrið er gott og allt er í sóma og ég er að hugsa um að hjóla frá Hollandi til Póllands í haust. Eða öfugt - fer eftir því hvernig staðarvindar hegða sér í Evrópu á þessum árstíma. Kannski fer ég bara til Stuttgart og hjóla til Berlín. Það er aldrei að vita.
Ble-si

18 ágúst 2003

Ég á mér prinsipp í lífinu.
Að ganga aldrei framar í flauelsbuxum. Ég fermdist í dökkbláum grófriffluðum flauelsfötum frá helvíti og gleymi því aldrei.
Ble-si

16 ágúst 2003

Ég veit svei mér ekki hvað ég á að segja um þessar hvalveiðar. Ég er ekkert sérlega hrifinn af þeim og hef það á tilfinningunni að það sé verið að kasta minni hagsmunum fyrir meiri - allt út af einhverri standpínu hjá þjóðinni. Hún ætlar sko ekki að láta einhverja útlendinga segja sér hvort það megi veiða hval eða ekki.
Svo er það annað mál hvort þetta hvalfriðunarlið hafi endilega rétt fyrir sér. Ég er ekkert sérlega hrifinn af þeim heldur.
En sjónarmið hvalaskoðunarfyrirtækjana get ég tekið heilshugar undir.

Það er ég viss um að ef hvalir flygu um loftin blá og Flugleiðir hefðu tekjur af því að fara í flugtúra til að sýna hvali í íslenskri lofthelgi - þá myndu málin horfa öðruvísi við hjá íslenskum stjórnvöldum. Þetta er nefnilega allt tilfinningamál þegar til kemur. Á báðum endum - en það þarf ekki endilega að vera slæmt að lofa tilfinningunum að fá að njóta sín. Það er bara mannlegt. En það er töff í dag að blása á hlutina og segja að hitt eða þetta sé tilfinningamál og skipti því ekki máli. Þó það vilji þannig til að tilfinningar eru fólk.
Ble-si

15 ágúst 2003

Á morgun verður galdradagur í Þjóðarbókhlöðunni á Menningarnótt. Þetta er annað árið í röð sem Galdrasýningin og Þjóðarbókhlaðan taka höndum saman á þessum degi. Í fyrra var mjög skemmtilegt - það komu þúsundir manna og skoðuðu og skemmtu sér. Galdrasýningin seldi mikið og vonandi verður það ekki síður núna.

Það verður lögð áhersla á að selja:
1 - Angurgapa (sjá)
2 - Ástargaldrakverið (sjá)
3 - Margmiðlunardiskinn (sjá)

Svo verður einnig eitthvað smáræði að auki eins og staup og beljurúnir.

Ég ætla að kveða niður draug og kannski að reyna að gera einvern kvenmanninn ástfanginn af mér. Hvað Maggi ætlar að gera hef ég ekki hugmynd um - enda er það hans höfuðverkur en ekki minn.

Svo bruna ég norður á Strandir strax þegar búið er að pakka á húsbílnum mínum - kem mér einhversstaðar þægilega fyrir í einni fjörunni yfir nóttina og verð svo með Draugadag á sunnudaginn sem byrjar á messutíma - klukkan 11:00 og síðan á tveggja tíma fresti.

En í dag þarf ég að gera margt og mikið til undirbúnings Menningarnæturinnar.
Ble-si

14 ágúst 2003

Gaman að segja frá þessari miklu uppákomu á Café Riis. Verst að ég get ekki mætt á Hljómana því ég er búinn að lofa draugagangi í Þjóðarbókhlöðunni um miðjan laugardag.

Ble-si

12 ágúst 2003

Þeir eru ekki beint áfjáðir í að selja Angurgapa í Eymundsson Austurstræti. Ég var að koma þaðan áðan og bókin er í fræðibókahillunni í kálfahæð. Hrikalegt. Er að spá í að tala við verslunarstjórann á morgun og biðja hana að breyta því ella taka bókina úr sölu. Langar líka að vita hvað Edda forlag þarf að borga í sölulaun sem er með sínar bækur í augnhæð - og ekki nýjar bækur.
Er fúll.
Ble-si

11 ágúst 2003

Mikið svaf ég nú vel í húsbílnum mínum um helgina. Fyrri nóttina tjaldaði ég við hringtorgið í Kirkubólsfjöru með grilli og fjöri og seinni nóttina rétt utan við Hrófberg á indælum stað við fjöruna og hlustaði á fuglana særa sólina burtu. Þá kveikti ég varðeld og rölti um svartan sandinn með öldós og hugleiddi lífið og tilveruna - alveg þar til ég bjó um mig og svaf eins og kornabarn í vöggu.
Ble-si

07 ágúst 2003

Nú hef ég flokkað bloggarana mína hér til hliðar í alvörunni bloggara og þykjustunni bloggara. Það er stór munur á þeim. Ég er til dæmis hrifnari af alvöru en þykjustu.
Ble-si

04 ágúst 2003

Mikið er hann nú vondur vegurinn yfir Þorskafjarðarheiði. Skil ekki fólk sem fer hann. Ótrúleg heimska að vera að eyðileggja bílinn sinn fyrir það eitt. Allt annað líf eftir að maður að kominn á Steingrímsfjarðarheiðina.
Það er vegur. Steingrímsfjarðarheiðarvegur en ekki Þorskafjarðarheiðarvegur eins og ég er smeykur um að margur vitleysingurinn haldi. En þeir eru þó nokkrir miðað við umferðina þar um helgina.
Þá er nær að fara Strandirnar og þar upp á Steingrímsfjarðarheiðina og geta notað ökutækið tveim árum lengur auk þess að vera jafnfljótur á leiðinni. Málið er nefnilega að kílómeter er ekki sama mælieining og mínúta, eins og margur vitleysingurinn virðist halda. En það er nóg af þeim. Vitleysingunum - og reyndar mínútunum líka - og einnig kílómetrunum yfir Þorskafjarðarheiði ef út í það er farið. Meiri þvælan að vera að gera tilraun til að eyðileggja bílana sína svona. Skil það nú ekki. Svo er óralangt á næsta verkstæði - já eða bensínstöð ef maður skildi nú gera gat á bensíntankinn á bílnum á þessum óþverravegi.
Mikið er nú langt á Ísafjörð fyrst það er reynt að stytta leiðina með stórhættulegum vegi. Vestfirðir eru sko ekki nær en menn gruna - nema miðað sé við Strandir náttúrulega. Það er nefnilega ekki nema tæplega tveggja tíma akstur í Strandasýslu á löglegum hraða - úr Reykjavík. Á löglegum hraða. Síðan einn og hálfur til viðbótar í miðbik Stranda. Það er sko ekkert. Annað en vestur á Ísafjörð. Þangað er langt og hættulegt að fara og því ætti ekki nokkur sála að fara þangað akandi nema að eiga örugglega inni tvöfalt sumarfrí eða vera í sjálfsmorðshugleiðingum. Það er sko annað en Strandir. Þangað er hægt að skreppa í helgartúr með börnin án þess að blása úr nös. Hiss-piss. Jafnt sumar sem vetur, vor og haust. Það er annað en á Ísafjörð - því þangað er svo langt. Lengra en þig grunar.

Ble-si

01 ágúst 2003

Þá er nú komin Verslunarmannahelgin. Á sama tíma í fyrra var ég að spóka mig um í Berlín. En ekki núna, því ég er í Reykjavík þessa stundina. En þegar líða tekur á daginn þá verð ég hér ekki lengur. Því þá verð ég á leiðinni norður í Trékyllisvík. Ég ætla nefnilega á ball þar í kvöld.
Annars verð ég að vinna á Draugadögum alla helgina - laugardag og sunnudag, en þarf að fara heim á sunnudagskvöld og taka á móti nýjum erlendum íbúum í gistiheimilið á Hringbraut sem er á mínum herðum líka.
Slæmt að það skuli hitta akkúrat á á þessum tíma, þegar svona mikið aksjón og gestagangur er sýningunni.
En það er ekki við allt ráðið og ég get ekki verið á tveim stöðum í einu.
Hlakka til að sofa í nýja sendibílnum mínum í nótt. Ég hlakka eiginlega meira til þess en að fara á þetta ball. Það finnst mér vera skrítið.
Ble-si