30 september 2004

Fór í móttöku hjá Rithöfundasambandinu í Gunnarshúsi í Reykjavík í gær. Þar voru samankomnir flestir þeir sem að Alþjóðlegu barnabókahatíðinni í Norræna húsinu koma. Þar þekkti ég enga nema þá sem starfa í Norræna húsinu - allt mikið sómafólk og afar þægilegt. Þarna var líka Strandanornin Kristín Helga, alltaf jafn kát og spræk. Svo voru þarna hellingur af allraþjóða fantasíuhöfundum.

Þarna var ég í mínu fínasta pússi sem ég hef ekki farið í síðan um síðustu jól þannig að það þekkti mig enginn og ég þurfti jafnt að kynna mig fyrir þeim sem ég þekkti ekki, og hinum sem áttu að þekkja mig. Mér leið djöfullega því ég var eini maðurinn sem hafði dressað mig upp fyrir þessa fínu samkomu sem var svo bara ekkert fín þegar upp var staðið.

Jæja, en þú þarf ég að fara að ákveða hvernig uppitroðsla mín verður klukkan 13:00 í Norræna húsinu í dag. Ég verð líka með einhver skemmtilegheit þar á laugardag kl. 14:00 og svo er einhver erlendur hópur búinn að vera að suða í mér síðustu tvo daga að renna suður að Skógum og vera með eitthvað uppistand þar á laugardaginn líka.
Ég veit ekki með það, verð að sjá til.
Ble-si

29 september 2004

Morguninn gekk fullkomlega upp. Klukkan er núna 11:00 og ég fer nirði fjárlaganefnd og skila inn pappírunum.
Þá get ég klárað galdrasýnignguna í Norræna húsinu með glæsibrag í dag. Annars var ég þar í allan gærda og sýningin er stórkostleg. Algert æði barasta.

Þvílíkur léttir að greinargerðarskrifin eru frá.

Nú get ég kannski framkvæmd stóra galdrastafaplakatsmálið fyrir helgi??!!
Ble-si
Rétt að láta hendur standa fram úr ermum. Tíminn tifar og endalokin nálgast.
Ble-si

27 september 2004

Morrinn gleypi mig. Klukkan er orðin hálfníu og ég a eftir að .........
Dísus, hvað tíminn líður! Eins gott að það komi annar dagur á morgun.
Allah is great and hopefully me to!
Sagnir herma að ég hafi hrotið eins og tvíhöfða þurs síðstliðna nótt. En ég tel það vera lygimál og held mig við þá skoðun. Hver ætti svosem að trúa því?
Ble-si
Stóra Officepakkavandamálinu er lokið. Ragga tölvusnillingur kom mér til bjargar og nú er allt eins og það á að vera.

En ég þakka öllum fyrir að deila þessu vandamáli með mér.

Nú er ég glaður og fer niðrí Norræna hús og losa bílinn og margt margt fleira.
Ble-si
Eftir að tölvan mín hrundi í byrjun árs þá hef ég átt í stórkostlegum vandræðum með að setja upp skjöl af einhverju viti, því Office 98 pakkinn í tölvunni hrundi. Ég hlóð niður OpenOffice prógrammi af netinu sem er handónýtt og ekkert vit í og ég næ engum tökum á að nota það.
Þetta er skelfing. Ég bara verð að fá Office 98 pakkann - fyrir hádegi, annars er ég búinn að vera og brunninn á tíma.

Hjálp - getur einhver hjálpað mér? Ég er algerlega að falla á tíma.
ÞETTA ER NEYÐARKALL!
Ble-si

25 september 2004

Vindgapinn sem verður fyrir utan galdrasýninguna í Norræna húsinu er algerlega fullkominn. Ég gerði hann í morgun og hann lítur út eins og tvíhöfða þrusuþurs, algjörlega magnaður og ofboðslegur. Ef hann vekur ekki áhuga á að kíkja inn, þá er mér öllum lokið.
Annars gengur bara vel og allt er á tíma. Atriði verða: veðurgaldrar, uppvakningar, tilberar, nábrækur, evrópskir galdrakústar, hýðingar með hrísvendi, brenndir galdramenn og kynning á galdrasögusamkeppni barna 8 - 12 ára og kynning á Galdraskólanum á Ströndum sem hefur starfsemi sína næsta vor.
Vonandi verður hægt að hafa einhverja sölubúð líka. Ekki veitir af til að ná upp í kostnað.
Ble-si

24 september 2004

Svo er nú það. Kominn norður. Best að láta hendur standa fram úr ermum. Það gerir það enginn annar en ég.
En mikið langar mig í bjór. Það er nefnilega mikið minni vindur á Ströndum en Reykjavík. Bara regnbogi og fínheit.
Ble-si
Allt er orðið klappað og klárt í prentsmiðjunni fyrir galdrasýninguna sem verður í Norræna húsinu dagana 30. sept. - 31. okt.

Þetta verður bara helv... fínt. Á bara eftir að fá í hendur nokkrum kílóum af smámynt til að þekja gólfið undir nábrókunum, en það er í vinnslu og reddast örugglega líka.

Þá er næst á dagskrá hja mér að fara norður, aðstoða Orkubú Vestfjarða með skemmtiatriði á morgun vegna afmælis Þverarvirkjunar - en það er nú ekki fyrr en klukkan 18:00 á morgun. Finn bara eitthvað út úr því á leiðinni norður.

Svo þarf ég að pakka nábrókunum, tilberunum og fleiri góðum hlutum, fara með þá suður og hefjast handa við að koma öllu heim og saman í Norræna húsinu á mánudaginn.

Það er mikið aksjón í gangi. Mikið gaman, mikið gaman. Ekkert stress.

(Minnisatriði: þrír geislaspilarar, breyta margmiðlunardiski, nábrækur, tilberar, aftökuspjald, tússpennar, sækja Jochum til Rakelar, steinar, grjót, höndin, rúnaspjald, mála lönguhausa, hársprey, sagnareki, rekaviður, spíra, sækja mynt, galdrakúst, póstkort, ástargaldrar, mæla hólf uppá lofti, fartölva Jóns, skjávarpi, og margt fleira sem ég get bara alls ekki munað.)
Ble-si

18 september 2004

Útgáfa Strandagaldurs á rímnadiski Ásu Ketilsdóttur frá Laugalandi er loks komin af stað. Ég réði Skúla Gauta í verkefnið að hljóðrita- og pródúsera diskinn og kynnti þau hvort fyrir öðru í á Laugalandi við Djúp í gær.

Það var gaman. Ása tók á móti okkur með allskyns rímum og fór á kostum í hverskyns kveðskap og sagnamennsku fyrir framan eldavélina þar sem hún bakaði í okkur haugana af pönnukökum.

Nú gerast hlutirnir bara af sjálfu sér næstu mánuðina og ég þarf ekki að huga mikið að því verkefni fyrr en seinna í vetur.

Af nógu öðru er að taka.

Ó, Klúka, ó Klúka. Hvernig skyldi þér nú vegna?

Annars skrapp ég Skarðsrétt í Bjarnarfirði í dag og sýndi Alex réttir og hvernig þær ganga fyrir sig. Alltaf jafnleiðinlegt í réttunum. Það má nú segja.
Ble-si

10 september 2004

Fyrir skömmu sagði ég frá hörmungunum sem dundu yfir Galdrasafnið í Boscastle á Englandi.

Ég sendi þeim í kjölfarið póstkort með Vindgapa til að stjórna veðrinu og óskaði þeim alls hins besta með uppbygginguna.

Í dag fengum við bréf frá þessu fólki svohljóðandi:

Dear Museum Team,
Thank you very much for your postcard and your kind thoughts. I think we will need to put a copy of your postcard in our front window. We are starting to make a lot of progress with the cleaning now and are finding quite a lot of artefacts in the mud. We need to rebuild several walls and do a lot of work but we hope to reopen again by Easter next year.
We would love to come to Iceland to see your museum one day so maybe we will try to make a visit next year.
With many blessings
sign


Gaman af þessu. Kannski á eftir að komast á eitthvað samband á milli Strandamanna og Cornwallmanna.
Ble-si
Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður er að gera heimildarmynd um Hrafninn. Hann hafði samband við mig í fyrradag og bað mig um að láta sig vita næst þegar annar hrafninn okkar kæmi við hjá okkur. Galdra-Imba hefur komið til okkar undanfarna daga og í gær hringdi ég í hann þegar hún sveimaði inn, en þá var hann einhversstaðar í tökum og heyrði ekki í símanum. En hann heyrði í mér í símsvaranum um kvöldið. Hann hringdi svo í morgun - náði mér skömmu eftir morgunsundið - og vildi vita hvort hrafnarnir væru væntanlegir í dag. Ég kvaðst ekki vita það svo obboðslega gjörla en að það væri þó aldrei að vita. Hann bað mig um að keyra niðrá safn og athuga hvort þeir væru þar, sem ég og gjörði. Þegar þangað kom var þar enginn hrafn. Svo ég tók upp símann, hringdi í Pál og tjáði honum að enginn hrafn væri sjáanlegur þessa stundina hjá okkur.

En viti menn - rétt þegar ég sleppi orðinu þá flýgur Galdra-Imba inn til lendingar. Hún var mætt. Páll sagðist bruna af stað sunnan úr Reykjavík með tökuliðið sitt.

Galdra-Imba dólaði sér hjá okkur í galdrgarðinum allan morguninn og flaug svo í burtu um hádegisbil. Klukkutíma og tuttugu mínútum síðar rennur Páll og teymið hans í hlað. Ég gekk á móti þeim og hristi á þeim spaðana og færði þeim þær fregnir að þeir væru eilítíð of seinir.

En viti menn - kemur þá ekki Galdra-Imba aftur úr háaloftunum úr sólarátt eins og fuglinn Fönix forðum og sest á grasi gróið þak Galdrasýningar á Ströndum og er óðfús að leika hvers kyns kúnstir. Kvikmyndagerðarmönnum og okkur til mikillar ánægju.

Svo eftir mátulega kvikmnyndatöku og ótal falleg og fín sjónarhorn þá hóf hún sig á flug á ný og hvarf yfir kirkjuturninn og flögraði burt úr bænum með allskyns kúnstum, kynstrum og klækjum á vit þeirra ævintýra sem hrafnar einir þekkja.

Það voru hamingjusamir kvikmyndagerðarmenn sem keyrðu suður Strandir skömmu síðar.
Ble-si

08 september 2004

Ég hef oft á tíðum gert hluti sem ég hef síðan dauðséð eftir. En þetta!! Aumingjans maðurinn. Veslingurinn - æ, hvað ég vorkenni honum.
Vanlíðan eflaust þúsund sinnum verri en í verstu þynku sem ég hef lent í.
Ble-si

07 september 2004

06 september 2004

Á þessari stundu fyrir einu ári síðan var ég í ferju á leið til Svinouchie í Póllandi. Ahhh - það var gaman.

En það er svosem ekkert leiðinlegt núna. Bara ekki eins gaman.

Á morgun geri ég austurhúsið múshelt.
Ble-si
Ef þetta eru ekki okurvextir frá Helvíti á sex mánuðum!

Gjalddagi 15.09.2004
Vextir af afborgun kr 540.798,00
Verðbætur afborgunar kr 16.346,00
Tilkynningar og greiðslugjald kr 430,00

Nafnverðsafborgun kr 556.000,00
Til greiðslu kr 1.113.574,00

Er það skrítið að bankastofnanir sýni arð upp á milljarði og milljarði ofan?
Ble-si
Góður dagur á Galdrasýningu í gær, enda sunnudagur en sunnudagar eru áberandi fjölsóttasti dagurinn.

Skemmti eldri borgurum á Hólmavík í gærkvöldi á haustfagnaði þeirra. Þeir hlógu dátt. Þó misjafnlega hátt.

Galdra-Imba beið okkar fyrir utan Galdrasýninguna þegar við komum í morgun. Hrafnarnir kíkja svona við öðru hvoru, eins og þegar unglingarnir líta til afa og ömmu.

Galdra-Möngu höfum við ekki hitt í átta daga líklega.
Ble-si

05 september 2004

Það er gaman að segja frá þessu.

Fyrstu 5 dagana í september hafa komið átta sinnum fleiri á Galdrasýninguna en fyrstu 5 dagana í júní.

Það sem meira er að fimmti dagurinn í september er ekki alveg liðinn. Tvær og hálf klukkustund eftir af opnunartíma dagsins.

Fyrstu fimm dagana í ágúst komu aftur fjórum sinnum fleiri en fyrstu 5 dagana í september og 31 sinnum fleiri en fyrstu fimm dagana í júní.

Það er gaman af svona tölum.
Ble-si

04 september 2004

Þessir morðhundar frá Tséstséníu myrtu fjöldan allan af börnum í Rússlandi og eyðilögu líf hundruða annarra til lífstíðar. Hvernig í ósköpunum stendur á því að börnin komu hlaupandi út á nærfötunum einum fata? Hvað var í gangi þarna? Eru þetta ekki bara miskunnarlausir morðingja? Heldur líka barnaníðingar? Djöfulsins vesalingar!

Það er kominn tími á að alþjóðastofnanir skilgreini tsétsénsku skæruliðana sem alþjóðahryðjuverkamenn líkt og samtök Bin Ladens og láti til sín taka þar jafnt og annars staðar. Í það minnsta með stuðningi við rússnesk yfirvöld í baráttu þeirra við hryðjuverkaógnina.
Ble-si
Skype
Nú verð ég að fjalla örlítið um SKYPE símalausnina á ný því nú er búið að þróa tæknina áfram. Helsti kostur nýja SKYPE er að nú er hægt að hringja í alla venjulega síma og farsíma á jarðarkringlunni með SKYPE.

Hér er verðskrá til nokkurra landa fyrir hverja mínútu miðað við gengi Evrunnar í dag:
Ísland, heimilssími - 3,10 ISK
Ísland, farsími - 20,50 ISK
Danmörk, heimilissími - 1,50 ISK (Já, rétt. Ein króna og fimmtíu aurar)
Danmörk, farsími - 19,80 ISK
Noregur, heimilissími - 1,50
Noregur, farsími - 15,10
Þýskaland, heimilissími - 1,50 ISK
Þýskaland, farsími - 22,10
Kanada, heimilissími - 1,50 ISK
Kanada, farsími - 1,50 ISK
USA, heimilissími - 1,50 ISK
USA, farsími - 1,50 ISK
Japan, heimilissími - 2,40
Japan, farsími - 13,80
Ástralía, heimilssími - 1,50 ISK
Ástralía, farsími - 14,50

Þetta eru aldeilis fín verð til útlanda. SKYPE símafrelsið virkar þannig fyrir sig að maður kaupir sér inneign með kreditkorti. Það er val um 10 Evru inneign eða 25 Evrur eða 50 Evrur. 10 evrur eru c.a. 880 kr.

Þetta er náttúrlega alvöru símabylting. Ég er ekki búinn að prófa en þarf að fara að gera það.
Ble-si

03 september 2004

Ég er orðlaus yfir mannillsku heimsins. Tsétjénar hafa að fullu rúið allri minni samúð. Nú verður að láta sverfa til stáls.

Árásirnar á tvíburaturnana eru smámál í samanburði við þennan viðbjóð sem hefur gengið á í Rússlandi undanfarnar 48 klst.

Sorgardagur.
Ble-si
Í framhaldi af fyrri færslu er orðið löngu tímabært að Strandamenn komi upp sínum eigin upplýsingavef, tengdum daglegu lífi, fréttum og viðburðum. Það er ekki smámál. Því það er stórmál.

Smámál í hugum margra kannski en stærra mál í víðara samhengi. Meiriháttar samfélagsmál í komandi framtíð. Upplýsingasprengja.

Fáeinir einstaklingar hafa verið að velta því fyrir sér undanfarið - en aðeins fáeinir.
Ble-si
Merkilegt að vefmiðillinn bb.is hafi hvergi fjallað um það þegar Kópnes ST fórst í gærmorgun árla. Það segir mér enn og aftur það að Vestfirðingar eru bara Vestfirðingar og Strandamenn geta bara haldið áfram að vera Strandamenn eins og þeir hafa alltaf verið.

Það er gott og þannig á það að vera. Bara að einhver segði Byggðastofnun frá því.
Ble-si

02 september 2004

Fjörutíu gestir á galdrasýninguna í dag. Það er fjör og ekki annað hægt en að vera kátur yfir því. Þetta er skemmtileg tilraun, sem lofar góðu um framhaldið.
Annars fór ég í bæinn í dag og stefni að því að fara norður eins fljótt og auðið er aftur. Kemst samt líklega ekki fyrr enn seinniparts laugardags.

Á sunnudagskvöldið ætla ég að skemmta á haustfagnaði eldri borgara á Ströndum. Það verður gaman af því. Svo þarf ég að finna eitthvað út vegna afmælis Þverárvirkjunar þann 25. Búinn að lofa Orkubúinu því. He-he, það verður dýrt. Eins gott að það liggi ekki á buddunni án þess að styrkja galdrana fyrir þann greiða.

Síðan opnunin í Norræna húsinu þann þrítugasta.

Hmmm - þarf að klára eitt og annað í tengslum við það og byrja á öðru áður en það gerist.
Ble-si

01 september 2004

Fyrsti opinberi opnunardagur Galdrasýningar á Ströndum í september gekk margfaldlega vonum framar. Það streymdu að gestir frá morgni til kvölds og Alex stóð sig eins og hetja. Góð sala í sölubúðinni og allt eins og blómstrið eina.

Það er gaman að aukaopnun ársins 2004 skuli fara svona vel af stað. Það verður enn meira gaman ef ég get flaggað plaggi framan í nokkra ferðaþjónustuaðila með það skrifað svart á hvítu að það sé orðið tímabært að fara að huga að haustumferðinni og sinna henni eins og almennilegir ferðaþjónar og lengja þar með ferðaþjónustutímabilið á Ströndum með tilliti til þess að ferðamannatímabilinu sé ekki lokið þann 31. ágúst, hvað þá viku fyrr.

Veðrið í dag var algerlega stórkostlegt. Algjörlega magnað - einn af fimmtán hlýjustu dögum sumarsins.
Ble-si

29 ágúst 2004

Síðasti sunnudagur í ágúst þetta árið. Galdrasýning er ennþá opin að sjálfsögðu og verður opin til 15. september á hverjum degi frá kl. 10:00 - 18:00.
Áætlunarbíllinn frá Ísafirði í Brú er farinn að stoppa fyrir utan galdrasafnið. Það er gott og þeir eru áhugasamir að halda því áfram næsta sumar. Stöðva rútuna á planinu fyrir utan og gefa farþegum kost á að skoða sýninguna, lífið við höfnina eða að fara á Café Riis í kaffisopa. Meðan þar er opið, en Café Riis lokaði síðasti sunnudag. Það er hörmung.

Farþegarnir sem komu með bílnum í morgun komu allir inn, og gáfu sér tíma til að skoða safnið. Þeir voru frá Póllandi, Þýskalandi og Íslandi. Gaman af því - svo buðum við þeim upp á kaffibolla í lokin. Það var vel þegið. Það þarf að stefna að því að koma upp borðum og bekkjum í galdragarðinum fyrir næsta sumar og einnig á nýju flottu grasflötinni fyrir utan garðinn. Það er bara vonandi að það svæði verði einhverntíman klárað. Það verður að segjast eins og er að starfsmenn hreppsins hafa staðið sig hörmulega í að ganga frá svæðinu. Vinnubrögð sem ég satt að segja botna hvorki upp né niður í.

Núll dagur safnsins í lok ágúst hefur ekki komið ennþá. Það eru ennþá tveir dagar til stefnu með það.

Á eftir er von á rútu með ameríkönum ofan af Velli og þá ætlum við að vera með húllum hæ og fjör.

Þetta er síðasti dagur Skúla á safninu, en hann er búinn að standa sig vonum framar í sumar. Björk er að vinna á morgun og hinn, svo er hún hætt og Alex tekur við og stendur vaktina til 15. september.
Ble-si

27 ágúst 2004

Það er allt í pati á galdrasafninu í Bostcastle, Cornwall á Englandi. Flóðið þar í síðustu viku eyðilagði safnið og nú stendur vart steinn yfir steini. Ég frétti fyrst af þessu í gestabók Galdrasýningarinnar á netinu þar sem kona nokkur sagði fréttirnar miður sín.

Boscastle er smábær á suðvestur tá Englands. Þar búa um 500 manns og galdrasafnið þeirra er helsta stolt íbúanna. Það var sett upp af einkaaðila fyrir nokkuð mörgum árum en síðan keypti hópur fjárfesta það fyrir ekki svo löngu síðan. Líklega fyrir tveim árum. Það sagði mér önnur kona sem heimsótti Galdrasýningu á Ströndum fyrir tveim árum.

Þetta er áfall hjá þeim. Allt í rúst og allt meira og minna handónýtt. Hérna er hægt að nálgast ljósmyndir og texta tengt þessum hörmungum kolleka okkar á Suður Englandi.
http://www.museumofwitchcraft.com/
Ble-si

20 ágúst 2004

Það er ákveðið. Ég flyt norður á Strandir í vetur. Fyrir jól. Í nóvember. Er búinn að segja upp Hringbrautinni. Þá þarf ég að finna samastað. Til að búa á með mínu hafurtaski.
Hvar finn ég hann?

Nú byrjar fjörið.
Ble-si
Það á að loka Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík í kvöld. Það finnst mér alltof snemmt. Skratti fúlt að það skuli ekki vera haft opið þarna að minnsta kosti fram að mánaðarmótum. Svo á að loka á Café Riis á sunnudagskvöld. Þetta er náttúrulega bara skelfilegt. En Galdrasýningin hefur opið til 15. september og tekur að sér Upplýsingamiðstöðina strax í fyrramálið og færir úr henni allt sem máli skiptir fyrir ferðalanga á Ströndum og Vestfjörðum. Verst að geta ekki fært Café Riis til okkar lika.
Ble-si
Hörmungarhandboltaleikur er þetta. Við erum að skíttapa fyrir Kóreumönnum.
HIss-piss
Ble-si

19 ágúst 2004

Margt og mikið hef ég gert í dag. Vaknaði til að mynda fyrir allar aldir og sinnti einu og öðru hérna innanhúss í Reykjavík. Fór á fund í Norræna húsið og negldi niður nokkra þætti varðandi Galdrana í Mýrinni. Þarf að fara víða á morgun vegna þess aftur og kanna kostnað a einu og öðru. Svo tekur við hönnunar- og hugmyndavinna. Það ætti að vinnast tími til þess.

Bókhaldið er í góðum málum, skráð fram á daginn í dag þannig að það ætti ekki að tefja mig næstu vikurnar.

Ég náði meira að segja að halda mér vakandi yfir fréttunum.

Árni bróðir kom og sýndi mér nýja mótorhjólið sitt. Það er svo hrikaleg græja að það fór gamalkunnur straumur mili lappanna á mér við að setjast á það. Set mynd af því hér.

Svo fór ég á mínum reiðfáki á Bæjarins beztu og fékk mér tvær með öllu, hitti síðan mann á röltinu og fór með honum heim sem leynigestur og gerði rúmliggjandi konu hans káta og hressa yfir kaffibolla og spjalli.

En í fyrramálið árla er andboltaleikur sem ég ætla ekki að missa af.
Ble-si
Það er alltaf eitthvað að gerast hjá Galdrasýningunni. Nú er að fara í gang viðamikil vinna við að setja upp galdrasýningu í Norræna húsinu sem verður út október í tengslum við mikla galdrabókabarnahátíð. Að vísu kemur J.K. Rowling ekki. Það kom í ljós áðan.

bb.is fjallar um að allir nema einn ætla að koma á Strandir aftur til að sjá seinni áfanga Galdrasýningar á Ströndum og fleira.
Ble-si

18 ágúst 2004

Sökum gríðarlegs áhuga erlendra manna og kvenna að ég fari í limastækkun, helst oftar á dag en góðu hófu gegnir og verði mér auk þess úti um hverskyns diplóma að nálgast orðið ofsóknir og keim af einelti hef ég ákveðið að leggja niður netfangið sigatlas@akademia.is og nota það aldrei framar.

Þannig að eftir næsta mánudag mun póstur stílaður á þetta dónanetfang sigatlas@akademia.is aldrei ná til mín.

Mig langar að biðja lesendur þessara lína að hafa það í huga og breyta netfanginu í minnisbókinni yfir í galdrasyning@holmavik.is.
Ble-si

07 ágúst 2004


Spádómur Tolkiens er að rætast. Bráðum koma Entarnir og hjálpa náttúruöflunum Vatni, Sól og Ís við að losa um stífluna í Jöklu. Flóðið mun svo brjótast fram og sópa í sjó fram 100 tonna jarðvinnuvélum og trukkum og við Hobbittarnir getum fagnað áfangasigri.


Að vísu er ég hræddur um að endirinn verði samt eitthvað örlítið öðruvísi að lokum og hið illa muni hafa sigur og við Hobbittarnir skríðum þá oní holurnar okkar og horfum á Entana flýja land og finna sér nýja bólstaði þar sem birkið og fjalldrapinn fá að gróa án afskipta landráðamanna.
Ble-si


06 ágúst 2004

Í dag byrjar fyrsta helgin eftir verslunarmannahelgi og þennan dag fyrir fjórum árum hófst Galdrastef á Ströndum. Magnaðasta útihátíð sem sögur fara af. Það hefur vart liðið sá dagur undanfarin fjögur ár að ekki hafi verið spurt eftir henni.
Það koma tímar.
Ble-s

05 ágúst 2004

Samskipta- og upplýsingakerfi í þágu
menningartengdrar
ferðaþjónustu á landsbyggðinni

Ég stefni að því að framkvæma fantagóða hugmynd sem byggir á GSM tækni og stuðlar í leiðinni að aukinni dreifingu GSM sambands á Ströndum.

Byrja á því að búa til séstaka síður á slóð Galdrasýningar á Ströndum sem hentar sérlega vel til að skoða með myndsímum sem hafa rutt sér til rúms. Þar verður sett upp rafræn sýningarskrá Galdrasýningarinnar á Hólmavík og Galdrasýningarinnar í Bjarnarfirði og Galdrasýningarinnar í Trékyllisvík þegar fram liða stundir.

Slóðin verður t.d. www.vestfirdir .is/galdrasyning/gsm1. Þegar sú síða opnast í símanum þá verður hægt að velja á milli fjögurra tungumála og síðan að fikra sig áfram eftir sýningunni með texta.

Sama gildir um sýningarnar í Bjarnarfirði og í Trékyllisvík nema þar verður endi slóðanna 2 og 3. Seinna meir verður hægt að koma fyrir litlum vegvísum hér og þar við þjóðveginn með ákveðinni netslóð sem slegin verður inn í símann og þar með hægt að fræðast um nálægasta umhverfi.

Þessi mikla nýbreytni í notkun GSM tækninnar mun setja Strandir í forystuhlutverk í nýtingu tækni og verða öðrum landshlutum hvatning til þess hins sama. Þeir sem græða eru íbúar svæðisins með auknu öryggi vegna uppsetningu senda og símafyrirtækin sem fá margfalt fleiri peninga fyrir meiri notkun á kerfinu.

Þetta er borðliggjandi.
Ble-si


30 júlí 2004

Það helltist yfir mig gríðarlegt flensuflón í nótt. Gat lítið sem ekkert sofið og leið eins og djöflinum í messu þegar ég skreiddist á lappir.
Það er vont.

En á Ströndum er gríðarlega gott veður og stefnir í mikil hlýindi þessa helgi.
Það er gott.
Ble-si

29 júlí 2004

Fimmtudagur fyrir verslunarmannahelgi.
Leiðindaveður og rigning í borg óttans.

Nú fer ég að hysja mig norður. Í kvöld verð ég með þjóðsagnakvöldvöku á Café Riis, Hólmavík. Það stefnir í mikið fjör. Eftir viku kemur til landsins Alex nokkur, þýsk stúlka sem ætlar að dvelja hjá okkur á Galdrasýningu á Ströndum fram að jólum og skrifa masters ritgerð sína í ferðamálahagfræði við háskólann í Ebersweld. Hún hitti mig í Hannover í febrúar og vildi ólm skrifa um verkefnið okkar. Ég hef trú á, og vona að okkur verði nokkur akkur í því, sérstaklega ef henni tekst vel upp í að finna út hver margföldunaráhrif galdraverkefnisins á Ströndum raunverulega eru. Húsnæði fyrir hana er reddað.

Ég er að velta fyrir mér hvort ég ætti að splæsa í mótor á bátinn mikla sem ég keypti óvart fyrir nokkrum dögum. Hann er ekki svo dýr en eg verð þá að spara við mig ærlega í eihverju öðru. Verð að fara að taka sjálfan mig taki því ég er búinn að eyða of mikið af fé undanfarið.
Ble-si

28 júlí 2004

Á sunnudaginn var kom maður nokkur í heimsókn á Galdrasýninguna. Hann sagði mér að þegar hann var einhverntíman einhversstaðar í Ameríku þá hefði hann lent í spjalli við einn ameríkumanninn um ameríska indíána. Sá var hreint ekki hrifinn af líferni þeirra og var hinn fúlasti út í þá. Þeir væru baggi á samfélaginu og tækju á engan hátt þátt í því. Væru meira og minna fullir allan daginn, hundleiðinlegir og erfiðir. Svo leit hann hugsandi á Íslendinginn og spurði:
Heyrðu? Eigið þið ekki í svipuðum vandræðum með þessa víkinga hjá ykkur?

Er þetta ekki klikkæðislega fyndið?
Ble-si

Það veit ég að Morrrrrrrrin á eftir að gleypa mig einn daginn.
Ble-si

27 júlí 2004

Draugabani á Ströndum  á Stöð 2. Minnst 30 draugar drepnir í sumar segir hann. Djöfuls kjaftæði! Þeir eru mikið fleiri.
Ble-si


23 júlí 2004

Nú fer ég norður. Ekki seinna að vænta. Á morgun ætla ég að lúskra á nokkrum draugum mér til gamans og skemmtunar. Hvað svo verður veit nú enginn.

Lenti á hrikalegu fylleríi með Rakel í gær en við vorum að vinna í galdrabókinni miklu. Endaði með því að ég sofnaði á Austurvelli með tölvuna undir haus sem kodda. Einhverntíman undir morgun ýtti eitthvað gott fólk við mér í rigningunni og ég skrönglaðist heim. Ó, mig auman. Langt síðan slíkt og annað eins hefur gerst.

En nú sný ég skrjóðnum í gang.
Ble-si

22 júlí 2004

Jahérna - ég keypti gúmmíbát áðan án þess að átta mig almennilega á því hvað ég væri að gera. Nú er ég sumsé orðinn báts-  og tveggja ára eigandi.
Sigli-sigl.
Nú er vonandi að það verði annaðhvort vatn eða sjór einhversstaðar á leið minni. Hvað ætli maður sé lengi að blása upp einn gúmmíbát? Án pumpu? Verður maður ekki vona að maður verði pumpueigandi einhvern næstu daga.
O, boj. Mig auman. Meiri vitleysan.

Svo þarf ég að skima eftir einhverri hrærivél með batteríum svo ég þurfi ekki að róa endalaust.
Ble-si

Jahérna. Það væri ekki amalegt að búa í Danaveldi nú um stundir. Bjórstríðið mikla hefur brotist út og ef ég þekki dani rétt þá vígbúast þeir af miklum móð með bros á vör.
Ble-si

21 júlí 2004

Allir danskir ferdamenn sem eg hitti her eru i annarlegu astandi. Jeg tror ølet er alt for dyrt og their seu bara ekki ad meika svona thurra daga. Skål i vand!

´ Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Lamb i Tikka Masala er upplagt ad fa ser medan steikin steikist i ofninum. Sidast thegar eg for ut ad borda var eg svo svangur ad eg pantadi tvo adalretti.

´ Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex

20 júlí 2004

Hann er frekar slappur skrifari þessarar bloggsíðu. Nú erkominn þriðjudagur aftur og ekkert hefur birst hér frá því síðast. Ekki það að það hafi ekki hellingur gerst. Fór t.d. norður í Árneshrepp og fleira og fleira - má bara voða lítið vera að þessu skriferíi.  Því það er svo margt að gera og takast á við.
Þar til næst.
Ble-si

13 júlí 2004

Eitt er alveg morgunljóst. Það borgar sig miklu fremur að vera gulrótnabóndi en sauðfjárbóndi miðað við verðið á matvöru í Nóatúni. Kílóið af 1. flokks súpukjöti kostar 599 kr. kg og kg. af íslenskum gulrótum kostar 589 kr. kg.

Verðið á landbúnaðarvörum á Íslandi kemur framleiðslukostnaði ekkert við. Fáránlegt. Hvar er Guðni núna? Hvenær var síðast fundur í Öskjuhlíð? Nýlega?

Hneyksli frá Helvíti.
Ble-si
Ég vil deyja friðsamlega, jafnvel í svefni eins og flugstjóri nokkur sem ég þekkti, en ekki æpandi í skelfingu eins og farþegar hans.
Ble-si

12 júlí 2004

Þessi unga stúlka fór á Galdrasýningu á Ströndum. Hún virðist hafa lært að naga saman band.
Það er meira en ég get.
Ble-si
Ég er á lífi ennþá þó það líti ekki þannig út á þessari síðu. Hef nóg að gera og langar mest til að sofna. Bara sofna og svífa langt langt langt í burtu, og vakna ekki fyrr en einhversstaðar hátt hátt uppí tré og fljúga niður og svífa eitthvað annað. Eins og bifklukkufræ. Bara svífa og svífa.

Svo er nú það. En fyrst set ég í þvottavél.
Ble-si.

01 júlí 2004

Þeir eru með hrafna í The Tower of London. Það er sagt frá þeim hér. Þeir hafa verið þar afar lengi og eru nauðsynlegir krúnunni.

Það er ekki verið að agnúast út í bresku krúnuna! Það er ekki sama hvort maður heitir Jón eða séra Jón. Hvað þá hvort maður íslendingur eða breti.

Allavega - Galdrasýning á Ströndum heldur ekki lengur hrafna - en aftur á móti halda hrafnar sig þar. Erfitt að eiga við það. Við gæfum jafnvel hungraðri hagamús sem ætti leið hjá að borða.
Ble-si
Öll þessi bréf sem ég fékk í gær frá Umhverfisráðuneyti, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands eru tómt hrafnaspark. Sérstaklega kjánalegt þó frá þeim síðastnefnda sem ætti að hafa eitthvað annað en hrafninn í lógói sínu.

Næst bið ég um leyfi til að halda páfagauk og eldislax þar sem það vill til að laxinn er ekki einkennisfugl þessarar hallæris ríkisstofnunar.

Ég er sorgmæddur yfir löndum mínum sem hafa lært of mikið og kunna ekki orðum sínum forráð og hóta lögreglu ef ekki.

Ó, þessi embættismannaþjóð sem þekkir vart lýðræði frá auðum atkvæðaseðlum.
Ble-si

29 júní 2004

Nú legg ég í hann norður. Verð með þjóðsagnakvöldvöku á Laugarhóli í Bjarnarfirði í kvöld.

Staup með Galdra-Möngu og Galdra-Imbu eru orðin fáanleg á Galdrasýningu á Ströndum. Góð minning um dágóðar skepnur.

Ég óska mér góðrar ferðar.
Ble-si

23 júní 2004

Búinn að hjóla í einum spreng út á Gróttu í morgun og í kringum Seltjarnarnes. Mjög hressandi svona í morgunsárið. Úti er blíðskaparveður og dýrlegt um að litast.

Dóra kemur á eftir og við ætlum að funda um verkefni þýska stúdentsins, útbúa skoðanakönnun sem verður látin ganga á Galdrasýningunni í sumar.

Svo þarf ég að hitta Rakel í dag og sjá hvað hún hefur verið að aðhafast. Það eru ekki nema 7 dagar til stefnu að skila fullbúnu handriti til útgáfunnar í Oxford.
Ble-si
Fór á tónleika með Blúsmönnum Andreu Gylfa í kvöld. Það var blúsað og gaman. Hitti Steindór Andersen og lagði með honum hvers kyns línur. Við kvörtuðum yfir ágangi skattayfirvalda og lögreglu vegna skemmtanagjalda sem gerir það nánast ómögulegt að halda að aðra Galdrahátíð. Steindór sló fram þessari vísu frá árinu 1920 sem sýnir að bévitans skattayfirvöldin eru ekki ný af nálinni og hafa ætíð verið þjóðinni og hugsandi mönnum hinn versti fjandvinur og dregið úr hinum nauðsynlega skapandi mætti:

Frelsi sálgar löggjöf lúð
lítt fær þrifist öldin.
Af oss tálga hold og húð
harðræg yfirvöldin.

Þetta sagði Steindór vera eftir Kristinn Jóhannesson frá Ísafirði. Eftir á að hyggja hélt hann þó að skáldið héti kannski Jóhannes Kristinsson en var aldrei viss, enda er það allt önnur saga.

En engu að síður þá er allt eins og fyrir tæpum 90 árum síðar. Fjandinn á Ríkið ennþá og alla þess embættis- og stjórnmálamenn sem er alls ekki treystandi fyrir fjöreggi þjóðarinnar. Mannauðnum.

Eða eru það kannski við sem eigum þetta skilið vegna heimsku okkar að kjósa tóma lúða yfir okkur kjörtímabil eftir kjörtímabil.

Erum við kannski að taka þátt í kappleik þar sem flestir halda bara með sínu liði sama hvernig sem þeir haga sér?
Er það góð pólitík?
Eða slæm?

Áfram KR!

Megi Morrinn gleypa mig!
Ble-si

22 júní 2004

Þetta eru þær Galdra-Manga og Galdra-Imba að velta því fyrir sér hvort þær eigi að fara inn og kaupa sér einhverja minjagripi um dvölina á Galdrasýningu á Ströndum.

Ble-si
Þetta er nýja reiðhjólið mitt.

Ble-si

20 júní 2004

Þá er ég kominn heim. Það liggur mikil vinna fyrir varðandi bókhaldsvinnu. Hún hefur setið mikið á hakanum síðan í maí.

Galdra-Manga tók fyrstu flugtökin í dag og sveif feikna vel. Það eru einhverjir dagar þar til Galdra-Imba tekur sig til. Hérna er mynd og grein um þær stöllur sem birtist á fréttavef bb.is.

Framkvæmdir við Galdragarðinn miðuðu í dag og útlitið farið að taka á sig mynd. Þá er bara að vona að Hólmavíkurhreppur fari að sýna aðra mynd fyrir utan garðinn. Mikið verður þá gaman.

Gestagangur í júní er búinn að vera mikill og ég er hæstánægður með það. Ég er líka hæstánægður með starfsfólkið. Þau standa sig vel og taka sig flott út í búningunum.

Ég er alvarlega að hugsa um að flytja norður í haust. Það eru meiri líkur til þess en ekki, myndi giska á svona 70/30.
Ble-si

18 júní 2004

Tveir stórir hópar komu á Galdrasýninguna í morgun, hver á eftir öðrum. Þannig að mikið "aktion" var í gangi í tvo og hálfan tíma látlaust. Mikil og stórskemmtileg skemmtun og fróðleikur. Gestirnir hoppuðu eins og hrafnar af kæti að lokum. Fyrri hópurinn voru ameríkanar - þeir voru frekar hugleusir - hinn hópurinn skandinavar í vinabæjarheimsókn. Þeir voru hugrakkari.

Starfsfólkið er komið í sérstaka búninga sem fer þeim vel og hjálpar þeim mjög með ímyndina. Það er sumsagt allt á uppleið.

Ég var að klára matreiðslunámskeið fyrir Ester. Að elda rétt sem ég kalla "Rétturinn". Hann verður semsasgt á boðstólum á Gistiheimilinu á Kirkjubóli í kvöld.

Já, það er margt sem maður tekur sér fyrir hendur.
Ble-si

17 júní 2004

Ég fékk það sterklega á tilfinninguna í dag þegar ég var að sinna hröfnunum að Galdra-Imba væri ekki krummakerling. Ég held svei mér að hún sé kynskiptingur og sé orðin krummakarl. Ef svo er þá þarf að hafa snarar hendur og umskýra hana. Þá heitir hún/hann Galdra-Leifi, Þorleifur Kortsson eða Jón lærði nema hún/hann verði skýrð séra Tómas í höfuðið á friðli Galdra-Möngu.

Hvað finnst ykkur lesendur góðir?

Annars eru þær stöllur hrikalega skemmtilegar, "nægjusamar" og ljúfar.
Ble-si

14 júní 2004


Loksins kom að því að við fengum lifandi hrafna til að lífga upp á galdragarðinn við Galdrasýningu á Ströndum. Þetta er indælir fuglar með sterk persónueinkenni.

Þær heita Galdra-Manga og Galdra-Imba eftir tveim fræknum kellingum á sautjándu öld sem sluppu við að vera brenndar.


Þetta er Galdra-Imba sem situr á öxlinni á mér í hlutverki galdramanns af Ströndum.
Ble-si

09 júní 2004

Úti er myrkrið margfaldað
Mitt er nú á vetri
Vænt ég yrki sætsullað
Vömbin kýld af keti

Með gott í glasi æsist nú
Allt er nú með asa
Hvað er þetta nú mín frú
Ekki fara að þrasa

Þegar ég vil skemmta mér
Með glaumi gleði og glansi
Vil ég bara vera með þér
Í villtum trylltum dansi

Þegar mér um varir vín
Vasklega ég veiti
Elska ég þig ástin mín
Þó viti ei hvað ég heiti
Þá var gaman þá var gott
Þá var öl í geði
Nú á ekki þurrt né vott
Horfin stundargleði

Ásaþór á þrumureið
Lukku fellur í pottinn
Syngjum saman soldinn seið
Af stalli fellur drottinn

Text & music: Krauka

...mp3 fæll til að hlusta á KRAUKA
Ble-si

08 júní 2004

Þetta er nú ljóta stjórnarfumið. Nú geta mennirnir sem við höfum kosið til að stýra "þingræðinu" alls ekki talað saman.

Hvað er eiginlega til ráða? Verður ekki bara að leggja niður alla stjórnmálaflokkana, byrja frá grunni og banna alla núverandi kjörna stjórnmálamenn tímabundið til að skipta sér af málefnum okkar?

Ég get ekki séð að þeim takist nokkru sinni að haga sér eins og þroskaðir einstaklingar. Enginn þeirra. Koma öllum hlutum í endalaust uppnám!

Ég geri kröfu um að menn tali alla vega saman án þess að fara í hár saman eins og hundar og kettir. Ljótt að segja svona um hunda og ketti en þetta er orðalag.
Ble-si

31 maí 2004

Þá er ég kominn norður. Á morgun opnar Galdrasýning á Ströndum á ný með pomp og pragt. Við tekur að þjálfun á nýju súper starfsfólki og græja eitt og annað.
Fínt veður á leiðinni. Ég tók forskot á sæluna og fór í stuttbuxurnar degi fyrr en vanalega. Verð í þeim í sumar, sem endranær.
Ble-si
Ég á ekki orð yfir þessari mannnefnu. Nú er Bush búinn að finna sér nýtt leikfang. Ég sé fyrir mér fávitasvipinn á honum þegar hann handleikur það.

Djöfullinn hafi það, þetta er valdamesti maður heimsins!
Ble-si

29 maí 2004

Í dag er 29. maí og Erna systir á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið elsku systir.
Ble-si

28 maí 2004

Ég tel ekki að Schumacher sé að dala í akstrinum. Aftur á móti sýnist mér að aðrir séu að bæta sig. Raikonen spái ég verðlaunasæti um helgina og að Button, Trulli, Alonso og Sato berjist líka um fimm efstu sætin. Barichello gæti blandað sér í baráttuna þannig að þetta er æsispennandi. Ég er spenntur. Ansi spenntur.
Ble-si
Í ferðablaði Fréttablaðsins í dag birtust þessar tvær greinar um Strandir. Smellið á myndirnar til að stækka þær og geta lesið.

Ble-si

27 maí 2004

Loksins komu einhverjar öfgar af viti frá Bandaríkjunum. En klikkað er það þó mitt litla hjarta gleðjist nokkuð en mikið djöfull eru þeir nú klikk.
Ble-si
Jibbý - Klara frænka er byrjuð að blogga. Nú verður gaman.
Ble-si
Það vona ég að Vátryggingafélag Íslands hf fari til andskotans hið fyrsta.
Getur einhver leiðbeint mér um hvernig á að skipta um tryggingafélag??
Ble-si
Gengi mitt í Formúlukeppninni hefur verið ágætt í ljósi þess að ég hef aldrei nennt að fylgjast með Formúlu 1 áður. Eftir fyrstu keppnina í Ástralíu var ég í áttunda sæti í deildinni og hélt sama sæti eftir aðra keppni ársins í Malasíu.
Bahrain kappaksturinn fleytti mér upp í sjötta sætið og í næstu keppni þar á eftir í San Marino féll ég í það sjöunda. Það var þó aðallega vegna þess að nýtt lið kom inn í deildina sem var með fleiri stig en ég. Á Spáni hélt ég mínu sjöunda sæti og féll niðrá byrjunarreit - 8. sæti eftir keppnina í Mónakó. Enda ákvað ég að taka góðan séns fyrir þá keppni til að reyna að saxa á þá fyrir ofan mig. Það gekk ekki alveg eftir en ég sé ekki eftir neinu.

Nú er ég búinn að betrumbæta liðið og hlakka til að sjá hvernig útkoman verður hjá mér eftir keppnina á Nurburgring um helgina.

Í heildarkeppni Formúluleiksins er ég sem stendur 448. sæti af vel yfir fimm þúsund þátttakendum og hef færst upp um 34 sæti síðan í Bahrein. Ég er bara nokkuð ánægður með það.

Hver hefði trúað því að ég ætti eftir að hafa áhuga á Formúlunni? En það er eingöngu Liðstjóraleiknum fyrir að þakka.
Ble-si

26 maí 2004

Assgoti glæsilegar myndir sem ég tók af fuglahræðunni sem við gerðum á Kirkjubóli um helgina í yndislegri kvöldsólinni sem umleikur Strandir ævinlega á kvöldin á þessum árstíma.
_

Kannski ég setji inn fleiri góðar myndir á næstunni. Myndavélin min er nefnilega algjörlega æðislega assgoti frábær.
Ble-si
Ég hef ekki farið varhluta af þessu bévitans rusli sem er að gera mig gráhærðan jafnhliða því sem ég missi öll hin hárin.

Annars hitti ég Áka yfir kaffisopa niðrí bæ áðan og fékk frá honum fregnir frá Berlín.

Borgin virðist ekki vera söm án mín er almennt álit í Þýskalandi samkvæmt fregnum.
Ble-si

25 maí 2004

Það er ekkert að gerast i lífi mínu. Ekkert. Bloggið mitt fer ekki varhluta af því og er því hundleiðinlegt þessa dagana.
Ble-si
Í dag er dagur hinna miklu afreka.
Ble-si

24 maí 2004

Nú er bara að krossleggja fingur og vona að Forseti Íslands láti reyna á rétt þjóðarinnar til sjálfsákvörðunarréttar.

Ég vil helst ekki þurfa að bíða í þrjú ár eftir að þjóðin leggi fjölmiðlafumvarpið í dóm. samkvæmt fyrri reysnlu þá verður það löngu gleymt og núverandi stjórnarherrar verða búnir að skandalisera enn meira.
Ble-si

22 maí 2004

Leikfélag Hólmavíkur
sýnir hinn bráðskemmtilega gamanleik
Frænku Charleys
eftir Brandon Thomas í leikstjórn Arnars Jónssonar
í Bæjarleikhúsinu við Þverholt, Mosfellsbæ
laugardaginn 5. júní kl. 20.00
Miðaverð kr. 1800 fyrir 16-66 ára
kr. 900 fyrir 8-15 ára og 67 ára og eldri.
Frítt fyrir aðra aldurshópa.
Miðapantanir í síma 865-3838

21 maí 2004

Sjá - stefnan er mörkuð

Það er að vísu ljótt að gera svo merkum galdrastafi sem Þórshamri það upp að standa fyrir þvílíkum ósóma. En mannanna verk hafa ekki alltaf verið falleg.
Ble-si
Miðað við vinnubrögð í alþjóðamálum bandarísku ríkisstjórnarinnar sem er sannarlega ógn við alla heimsbyggðin legg ég til að eftirleiðis beri öllum bandaríkjamönnum skylda til að leggja fram tryggingu við komuna til landsins.

Með stóra hópa hér á landi af bandarískum ferðamönnum og hermönnum lítum við þannig á að ógn geti stafað að íslensku þjóðinni vegna hættu á hryðjuverkaárása á bandaríkjamenn hér á landi. Ógnin stafar fyrst og fremst vegna framgöngu og yfirgangi bandarískra stjórnvalda í aþjóðamálum og þjóð þeirra eru hvergi óhult vegna stefnunnar í alþjóðamálum.

Ekki viljum við þurfa að borga brúsann af árás á bandaríska ferðamenn sem ættu bara að halda sér heima hjá sér og gera byltingu gegn stjórnarfarinu svo þeir verði vinsælari í augum heimsbyggðarinnar.

Setjum líka á viðskiptabann frá grasrótinni á bandaríkjamenn í leiðinni og sniðgöngum algjörlega bandarískar vörur.

Mér er alvara.
Ble-si


Kuldaboli er fluttur með lögheimili sitt norður á Strandir. Ekki líst mér á það. Hér verður vetur árið um kring eftirleiðis ef heldur áfram sem horfir.
Ble-si

19 maí 2004

Í dag ætla ég norður að gera margt og mikið. Ekki veitir af, því 1. júní nálgast eins og óð fluga.
Ble-si

18 maí 2004



Af svipnum að dæma er ekki orð að marka þennan mann og honum í engu treystandi. Þið ættuð að sjá skrípamyndina af honum - hún er fyndin.
Ble-si
Ísland er eldfjallaeyja og þannig vil ég hafa það en ekki stuðla að eyðileggingu sjarma eldfjallanna með því að pota niður trjágróðri þar sem mönnum dettur í hug þegar þeim sýnist. Landið á bara að sjá um það sjálft ef það hefur vilja til þess. Burt með allt bévitans landgræðslubull.

Þessi útnári í norðri verður aldrei nein andskotans Suðurhafsparadís - nema náttúran sjálf taki upp á því.

Svo vantar mig Office 98 pakkann.
Ble-si
Ég er í þvílíkum standandi vandræðum. Ef einhver getur bjargað mér um Office 98 pakkann þá verð ég hinum sama ævinlega þakklátur.
Ble-si

16 maí 2004

Lokasýning á Kleinum var í kvöld. Leikurinn verður kannske tekinn upp aftur í haust ef heilsa og líf leikara leyfir. Þá verður væntanlega farið í leikferð til Hólmavíkur, Bolungarvíkur, Húsavíkur, Egilsstaða og Düsseldorf.
Ble-si

15 maí 2004

Ruslana mín frá Úkraínu vann Jórógarðinn. Ég er afar kátur, ánægður og glaður með það, enda hélt ég með henni frá upphafi og kaus hana meira að segja í SMS kosningunni svo ég á 198 krónur í hennar frægð þar sem ég kaus hana líka í undankeppninni sem ég var svo heppinn að sofna ekki yfir.

Jónsi stóð sig vel, ágætur flutningur og bara sætur strákurinn. Glaðari er ég yfir að gríski hálfhomminn stendur eftir sem hálfkláruð stytta.

He-he - gott á hann því hann var svo asnalegur svona illa meikaður!

Uppáhaldslagið mitt forever í Júrogarðinum er lettneska lagið frá aldamótaárinu 2000 "My star" með sveitinni lettnesku Brainstorm. Söngvarinn Renar Kauparlovich var algjört æði og átti frábæra takta.

Það átti Ruslana mín svosem líka í kvöld enda í galdrabúningi úr úlfa og heindýraskinni.
Ble-si

13 maí 2004

Rétt í þessu sá ég lamb í fyrsta sinn á þessu vori!
Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Í dag fer ég norður og í kvöld verður fundað stíft. Gott þegar það verður frá. Mér leiðast fundarhöld óheyrilega.
Ble-si

12 maí 2004

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að refsa beri þeim sem bera ábyrgð á misþyrmingum á föngum í fangelsum í Írak. "Ég get fullvissað ykkur um það að fólki verði refsað á öllum stigum".

Ég held að einhverjir aðrir en hann ættu að ákveða það. Svoldið erfitt að refsa sjálfum sér svo trúverðugt sé.

Og hann heldur áfram.

"Ég er sannfærður um að foringjar okkar í Írak hafi gripið til aðgerða til þess að tryggja að bandarísk gildi og hernaðarleg markmið nái fram að ganga."

Það er einmitt það sem þeir hafa verið að gera frá upphafi innrásarinnar. Að tryggja bandarísk gildi, áhrif og markmið.

HÆTTIÐ AÐ REYNA SLÁ RYKI Í AUGU OKKAR RÉTTHUGSANDI FÓLKS - VIÐ ERUM EKKI FULLKOMNIR HEIMSKINGJAR BJÁNARNIR YKKAR!
Ble-si


Flott aðalfyrsögnin sem þekur forsíðu sorpritsins DV í dag.

Þó ég sé alfarið á móti þessu fjölmiðlafrumvarpi eins og 80%
þjóðarinnar þá myndi ég ekki vilja neitt frekar en fjölmiðillinn DV
yrði lagður niður, jafnvel bannaður með sérstökum lögum og
færi síðan beina leið til andskotans með allan sinn óþverra.

Ömurlegur pappír í alla staði.
Ble-si
Ég er argur og hausinn á mér er fullur af skít.
Ble-si

11 maí 2004

Fjölmiðlafrumvarpið er að ná hæstu hæðum. Stuttbuxnastrákurinn Bjarni Ben með bláa bindið og Bryndís Hlö skiptust á skoðunum í Kastljósinu. Bjarni vesalingurinn gat alls ekki horft í myndavélina og góndi upp í loftið milli þess sem hann gjóaði augunum í hring eftir hring, hvað þá að hann gæti horfst í augu við Bryndísi.

Hann horfði yfir hana og undir hana og hélt ábyggilega að það liti út fyrir að vera kúl, blessaður krakkinn.

Skelfing ótraustvekjandi.

Æ,æ,ó - þessi þjóð, þessi þjóð, þegar kemur að kjörkössunum.
Ble-si

10 maí 2004

Sýningin í gær gekk þrusuvel. Húsfyllir enn á ný. Einver hefur skrifað á leiklistarvefinn um sýninguna. Gaman af því hérna.

Eftir sýninguna fór ég út að borða með afmælisbarnið á Tapas. Magga og Hafdís komu með en Veigar komst ekki þar sem hann var fyrir norðan að reyna að húkka í nokkrar grásleppur.

Það var gott að skríða upp í rúm pakksaddur og sæll eftir gott kvöld.
Ble-si

09 maí 2004

Í tilefni af afmælisdegi Atla þá ætla ég að bjóða krökkunum út að borða á Tapas eftir leiksýninguna. Heppilegt að Tapas skuli vera í sama húsi.

Annars er Formúlan á fullu gasi þessa stundina og mínu liði gengur ágætlega. Button kominn í áttunda eftir herfileg mistök í gær, Trulli að berjast um verðlaunasæti, Bar bílarnir í fjórða og áttunda sæti og Fisichella með Petronas vélina aldrei staðið sig betur í sumar.
Ég fæ líklega yfir 2300 stig en saxa líklega ekki á aðalkeppinautana í sveitakeppninni. Þeir eru nefnilega með Renault véar sem eru að gera það helvíti gott í þessari keppni. En ekki eins og Ferrari. Það ræður enginn við þann bíl.
Ble-si
Fullt að gerast hjá mér um helgina. Ein ferðasýning í Laugardalshöll og önnur í Smáralind og leiksýningar á kvöldin. Gaman að vera svona á þrem stöðum í einu.

Í dag er hann Atli minn Arnar 19 ára. Til hamingju með daginn elsku kallinn.
Ble-si

08 maí 2004

Frábær frumsýning í gær. Húsfyllir og gríðarlega mikil gleði þar sem allt gekk upp hjá okkur og meira til. Önnur sýning í kvöld. Klukkan 20:00 í Kaffileikhúsinu v/ Vesturgötu.

Ég hlakka til.
Ble-si

07 maí 2004

Það var mikill hasar í í allan gærdag. Kláraði margmiðlunardiskinn sem ég ætla að nota á kynningum, brasaði í Laugardalshöll við að koma upp básnum, fór á leikæfingu klukkan hálfsex, brasaði meira í tengslum við ferðahelgina og á generalprufu um kvöldið.

Í dag er svipað upp á teningnum nema það er frumsýning í Kaffileikhúsinu í kvöld klukkan átta. Önnur sýning annað kvöld á sama tíma og á sunnudag. Fjórða sýning verður svo sunnudaginn sextánda - eftir viku. Svo er það búið. Ég hvet auðvitað alla til að koma og sjá.

Það er ég ánægður með.

Annars fór einhver þjófur og misyndismaður inn í eitt herbergi stúdentanna milli kl. átta og hálfníu í gærkvöldi og stal þaðan fartölvu. Löggan kom en ég hef nú ekki trú á að hún leysi það mál frekar en önnur þjófnaðarmál sem hafa átt sér stað í byggingunni.

Ég er satt að segja búinn að vera smeykur um það lengi að svona lagað gerist því krakkarnir eru alls ekki nógu dugleg að loka og læsa þegar þau skreppa frá. Ég er alloft búinn að hafa orð á því við þau.

Það er ég óánægður með.

En í kvöld verður fjör - verst hvað það er mikið að gerast um helgina að ég get alls ekki tekið þátt í frumsýningarpartýinu.
Ble-si

05 maí 2004

Íris frænka býr í Stuttgart og er að gera könnun á kostnaði við að brenna geisadiska og prenta umslagið þar vegna útgáfu hljóðbókarinnar Ægishjálmur - þjóðsögur af Ströndum sem Strandagaldur ætlar að ráðast út í.

Ég er spenntur að fá fregnir af því og vona að verkefnið geti gengið fljótt og vel.
Ble-si

Það var stöðugur straumur fólks til mín seinni partinn í gærdag. Árni bróðir kom. Hann er að plana Póllandsferð í sumar. Ætlar á trukknum sínum með Norrönu til DK og þaðan áfram. Síðan kom Jórunn og gaf mér nammi. Rakel birtist, en hún gaf mér ekki neitt enda skítblönk svo henni er fyrirgefið og Maggi á Bakka kom stuttu síðar og gaf mér einn bjór.

Svo tók við leikæfing, sem var ekki alslæm og við Áki fórum svo á Hressó eftir hana og fengum okkur hressingu í þessum djöfulsins skítakulda sem hrjáir okkur á þessu guðsvolaða landi þessa dagana.

Í dag verða ársreikningarnir tilbúnir.
Ble-si

03 maí 2004

Loksins rumskaði spilarisinn í Ravensburg. Sendi mér tölvupóst og sneri sér síðan yfir á hina hliðina og hraut meir og hærra.

Við tekur bið.

Á ný.

Þyrnirós svaf í heila öld - það verður seint slegið.
Ble-si
Þar sem það fer að líða að einni síðustu leikæfingunni þá ætla ég að glugga í handritinu fram að henni. Fyrst ætla ég að elda mér rínakúllur og sjóða gríshrjón.

Galdrasýning og Saufjársetur eru orðnir eigendur að skjávarpa. Það er gaman af því - sérstaklega hvað hann svínvirkar.

Ísland er rokrassgat þar sem kuldaboli á fast aðsetur. Það líkar mér illa og vil helst skilja við hann á borði og sæng og flytja til suðurhafseyja og lifa þar sæll allt til dauðadags.

Jafnvel lengur.
Ble-si
Ég er búinn að ákveða að gera það sem ég hef lengi hugsað um. Reykjavíkurmaraþon í ágúst.
Svo nú er bara að byrja að hugsa meira um það og búa til áætlun. Ég hlýt að geta komið henni saman á þrem mánuðum og svo kannski æft um tíma.

Gott að vakna svona hress á mánudagsmorgni.
Ble-si

02 maí 2004

Leikritið Kleinur eftir Þórunni Guðmundsdóttir í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar verður frumsýnt í Kaffileikhúsinu (Hlaðvarpanum) n.k. föstudag þann 7. maí kl. 20:00.
Önnur og þriðja sýning verða næstu tvo daga á eftir, laugardag og sunnudag á sama tíma.
Einungis verða um þessar þrjár sýningar að ræða.

Þetta er drepfyndið leikrit. Hlakka til að sjá fyrsta rennslið hjá okkur á eftir.
Ble-si

01 maí 2004

Ég stefni að því að snúa mér yfir á hina síðuna í nánustu framtíð og huga að öðru. Hún er þreytandi þessi stelling til lengdar.

Svo ég hverfi frá því málefni og að allt öðru þá botna ég ekkert í útivistarfólki. Skil ekki þessa gleði, hamingju og ánægju að vera sýknt og heilagt úti við. Það er einfaldlega betra að vera inni við en úti við. Það er gott að sitja í skugga innandyra, súpa öl og gera allt annað sem hægt er að gera innandyra. Horfa á sjónvarp meðtalið.

En úti er oftast vindur - sem er óþægilegur. Þar er yfirleitt of kalt eða of heitt. Stundum rignir eða snjóar sem er nokkuð sem gerist aldrei inni. Þar er hávaði í umferðinni eða í helvítis fuglunum. Inni ræður maður hljóðunum og getur stýrt þeim með einum takka.

Ég ætla aldrei út aftur nema ég neyðist til vegna eldsvoða eða ef Winston Lights verður uppselt í Nóatúni.

Það er nefnilega gott að vera inni - stundum hef ég óskað þess að ég væri eggjarauða þó það væri ekki nema til að fá roða í kinnar í stað þess að fara út.

Úti er hættulegt. Inni er örugglegt.
Ble-si

30 apríl 2004

Höfuðstöðvar japönsku mafíunnar í Tokyo vöktu mig eldsnemma í morgun með símtali. Ég var svo úrillur og fúll að ég lagði hana með súmó bragði og geri ekki ráð fyrir að hún geri aðra árás. Allavega ekki án þess að líta á klukkuna fyrst.
Ble-si

29 apríl 2004

Ég er Sigurður sonur Atla sonar Sigurjóns sonar Ólafs sonar Íslands besta sonar sem lét lífið við að verja landið gegn innrás geimvera og ísbjarna árið 1821.
Í ljósi skyndilegs fráfalls afa míns Hr. Sigurjóni sonar Ólafs sonarsonar besta sonar Íslands sem lét lífið við að verja landið gegn árás geimvera og mörgæsa árið 1821 hefur ríkisstjórn Namibíu í framhaldi af sorglegu fráfalli hans varpað sjálfum mér og fjöskyldunni í græna húsinu í næstu götu í ástand óvissu, hræðslu og vonleysis. Ég hef orðið fyrir skakkaföllum vegna ómannlegs tölvupósts auk líkamlegra áverka, og þjáist af freti og er raunar uppblásinn af gasi. Mér var nýlega sleppt af geðveikrahæli sem skipulagt var af ímynduðum óvinum forfeðra minna sem stjórna í frístundum sínum hæstaréttum landanna beggja, meðan nágrönnum mínum í græna húsinu í næstu götu var gert að mála húsið sitt blátt og kaupa málninguna af sonarsyni dóttursonar langömmubróðursystur ræðismanns Biafra sálugu.


Eitthvað á þessa leið í lauslegri þýðingu hljóma bréf frá þjófum, svindlurum og ræningjum sem lauma sér í póstinn minn og biðja mig síðan um að geyma fyrir sig gilda peningasekki.

Mikið er ég orðinn leiður á tölvupóstinum. Hann á eftir að bræða úr sér einhvern daginn.
Ble-si
Ég er sannfærður um að japanska mafían er á eftir Galdrasýningunni. Er búinn að fá tvö símtöl frá Tokyo í morgun og botna hvorki upp né niður í hvað þau eru að tala um. Röfla sýknt og heilagt um einhvern stockmarket, sem er nú eitthvað sem ég hef ekki hundsvit á.

Hvar gengið hefur grafið upp símanúmerið er mér hulin ráðgáta - en ef þeir hringja aftur þá ætla ég að snúa símtalinu upp í að selja þeim bækur og margmiðlunardiska og gera látlaust grín að framburði þeirra ef þau kaupa ekki minnst kassa af hvoru.

Annars var ég á leikæfingu í gærkvöldi. Það vantar ennþá talsvert upp á að ég fari með línurnar rétt og að ég fari með þær í réttri röð þær sem ég kann. Frumsýning verður í Kaffileikhúsinu föstudaginn 7. maí.
Ble-si

22 apríl 2004

Það er sumarblíðan á sumardaginn fyrsta, eins og í fyrra. Þá hafði ég orð á því að mig minnti að það hefði alltaf rignt á sumardaginn fyrsta.
Það minnti mig líka í morgun, þar til ég skoðaði dagbókina frá sama degi og í fyrra.

Ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera í dag. Ekki glóru. Ég er þó að spá í að fara með myndavélina mína eitthvað og smella af í gríð og erg.

Svo þarf ég líka að lesa handritið mitt. Það er víst kominn tími til að maður læri þennan texta.

Á morgun bruna ég á Reyhóla - veit ekki ennþá hvenær, en er að hugsa um að mæta of seint svo ég þurfi ekki að hlýða á misjafnlega leiðinlega fyrirlestra annað kvöld. En ég sé til með það. Kannski verð ég í stuði og fer snemma af stað.

Nýja útlit margmiðlunardisksins er ferlega flott. Það er kominn upp lager fyrir sumarið upp á 150 stk. Vonandi dugar það ekki. En framvegis þá læt ég brenna þá í Myndbandavinnslunni. Það tekur miklu minni tíma fyrir nánast sama prís og er meira proffalegt útlit.
Ble-si

21 apríl 2004

Ekki veit ég hvað þetta á að fyrirstilla. Undanfarnar þrjár nætur hefur mig dreymt risastóra græna páfakauka með gul nef sem fljúga inn um eldhúsgluggann hjá mér og setja allt á hvolf. Þeir hafa oftast verið þrír en liðna nótt þá tók tappann úr. Inn um eldhúsgluggann ruddust inn svo margir grænir risapáfagaukar með gul nef að ég hafði enga tölu á þeim. Ég réð ekkert við þessi villidýr og kom þeim alls ekki út og varð að læsa mig inni í þvottahúsi - því þeir bitu mig helvískir. Með þessum rosalega nefgoggi. Gulum.
Ble-si

20 apríl 2004

Hér er einn íslenskur galdrakall sem var að grínast í Hannover í febrúar fyrir framan bás Kamchatka. Svo var honum boðið á shamanista ráðstefnu til Síberíu næsta sumar í framhaldinu.
Ble-si

19 apríl 2004

Það er leikæfing í kvöld. Best að muna það. Það hlýtur að hafast einhvernvegin.

Næstu helgi þarf ég að fara á Reykhóla á aðalfund Ferðamálasamtaka Vestfjarða.

Svo ætla ég að reyna að vera duglegri að blogga í framtíðinni. Það hlýtur líka að hafast einhvernvegin. Ég er ekki ennþá byrjaður að skrifa um hryðjuverkastarfsemi á Reykjaskóla og hef ekki hugmynd um hvenær ég kemst í það. Kannski er það líka bara best geymt grafið og gleymt.
Ble-si
Skelfing er ég búinn að vera þunnur í dag. Langt síðan ég hef orðið svona þunnur og vonandi gerist það aldrei aftur. Ég vinn í því. Það er sko alveg á hreinu.

Ömurlegt að eyða deginum krjúpandi fyrir framan salernið og skríða svo sveittur á milli inn í rúm og móka.

En þrítugsafmæli Bjarkar var frábært meðan á því stóð.

Muna það næst að drekka aldrei neitt annað en bjór.
Ble-si

14 apríl 2004

Frá því klukkan tólf á miðnætti s.l. er ég búinn að fá 117 ruslpósta á netföngin mín tvö sem ég hef umsjón með. Það er fyrir utan þann ruslpóst sem ég læt forritið sía frá sjálfkrafa og ég sem betur fer aldrei sé.

Hugsið ykkur!? 117 stk!! Ég held að internetið eigi eftir að deyja eins og við þekkjum það í dag í nánustu framtíð.

Það held ég að yrði bara sæll dauðdagi.
Ble-si

13 apríl 2004

Ég held að hann þarna, þessi, þú veist, komi þessum skrifum sínum ekki í verk frekar en svo mörgu öðru.

He he hí.

Ég hef ekkert annað að segja.
Ble-si

11 apríl 2004

Frá og með eftir þrjár mínútur ætla ég í páskafrí. Byrja á því að sjóða kjötbollur og fer síðan út að hjóla smáhring eða tvo. Í kvöld ætla ég hinsvegar á galeiðuna og gera tilraun til að vaka lengur en til miðnættis.

Það er mikilvægara en allt annað.
Ble-si
Gleðilegan páskadag. Ég held ekki neinum hefðum á lofti um páska. Ég ætla samt kannski að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld. En þangað til ætla ég að vinna.
Ble-si

10 apríl 2004

Nú er Árni bróðir byrjaður að blogga. Það er gaman að því.
Til hamingju með það brósi.
Ble-si
Nú ætla ég að halda áfram að vinna. Ég ætla að vinna á fullu fram að hádegi og fara þá í sund og slaka á. Ef ég nenni.
Ble-si

09 apríl 2004

Ég fattaði ekki i gær að framundan væri föstudagurinn langi og fór ekkert í verslun. Þessvegna er ég að drepast úr hungri og því engin ástæða til að krosssfesta mig því ég drepst hvort sem er. Jésu kallinn var krossfestur á þessum degi samkvæmt stóru þjóðtrúarbókinni.

Það hlýtur að vera skárra en að drepast úr hungri svo honum er engin vorkunn.

Vont að vera svangur, sama hvað hver segir.
Ble-si
Rosalega er fallegt veðrið í dag. Það er sko ekki amalegt að vera krossfestur í svona veðri.
Ble-si

07 apríl 2004

It lies in the eyes upstairs

Það liggur í augum uppi að þessi dagur er sko búinn að vera betri en enginn. Skyndilega er ég að verða mesti framagosi sem um er vitað á sviði bókhaldsforrita.

Bara ánægður með sig núna kallinn. Nú get ég farið að opna fyrir Skæpið aftur.

Ég verð í gleði minni að benda á þenna frábæra stórkostlega skemmtilega pistil.
Ble-si


Það er gaman að þessu. Nú er ég í stuði. Rjúkandi kaffi og forritið að opnast. Þetta verður dagurinn sem lýkur endanlega upp augum mínum.
Ble-si
Ha ha hæ. Nú er ég kátur. Ég er búinn að átta mig á ýmsu sem er búið að vera að pirra mig í þessu asnalega bókhaldsforriti sem er ekki lengur alveg jafn asnalegt og það var.

Nú kalla ég þetta dag og hlakka til að halda áfram á morgun.

Eldsnemma.
Ble-si

06 apríl 2004

Mikið lifandi skelfing er ég orðinn þreyttur. Þetta bókhaldsforritsdæmi er alveg að gera út af við mig.

Ef ég hefði orku í það þá myndi ég leggjast með tærnar upp í loft og veifa þeim eftir því hvaðan vindar blésu.

Ég ætla að kalla þetta dag - enda er ég ekki í fullri stöðu. Best að ég fari að átta mig á því.
Ble-si

05 apríl 2004

Nóttin er mönnum til náða sköpuð
Ég var á Reykjum í Hrútafirði seint á áttunda áratug síðustu aldar í heimavistarskóla. Einverntíman í vikunni ætla ég að skrifa smá endurminningar þaðan. Það var nú eitt og annað sem var brallað þá. Ég t.d. byrjaði að reykja á Reykjaskólaárunum mínum. Líklega vegna þess að það var harðbannað en ekki síður svo pleisið stæði undir nafni.

-Förum og Reykjum, strákar! Það var málið og þótti kúl.

Svo drakk ég brennsluspíritus blandað út í malt. Það var þambað og haldið fyrir nasaholurnar á meðan. Svo maður yrði ekki blindur, minnir mig.

En þangað til endurminningarnar birtast þá verður þessi mynd af mér frá Reykjum og fyrirsögninni sem var klínt á mig að duga.
Ble-si

04 apríl 2004

Svo er maður bara kominn heim aftur eftir góðan túr á Strandir.

Heimferðin var tíðindalaus. Keyrði þetta í rólegheitum og velti vöngum yfir hinu og þessu er varðar Galdrasýninguna, framhaldi hennar og alls verkefnisins. Ég held það sé bara flest í góðum málum og í enn betri málum eftir tvo mánuði. Eftir fimm mánuði þá ætti allt að líta vel út með framhaldið á næsta ári og verða hægt að opna skammlaust á Klúku.

Síðan í Trékyllisvík 2008.

Það er mikilvægt að umhverfisþættir séu í lagi - jafnt innan- sem utandyra.
Ble-si

03 apríl 2004

Það er blíðan fyrir norðan. Er nú þegar í morgun búinn að æða norður í Bjarnarfjörð og til baka að Kirkjubóli. Í dag verður haldið áfram að skoða bókhaldsforritið. Það kviknaði á mörgum perum á leiðinni norður í gær.

Komst einnig að því á leiðinni norður að það er hægt að taka myndir með myndavélinni minni góðu í myrkri. Það finnst mér makalaust.
Ble-si

02 apríl 2004

Eg er a leid nordur. Er ad slæpast i Hrutafirdi i leit ad myndefni.
Ble-si

01 apríl 2004

Meðlimir Tilberaklúbbsins eru snöggir að taka við sér, en það hafa strax á öðrum degi átján tilberar gert upp árgjöld 2004. Það finnst mér vera snaggaralegt.

Um helgina birtist svo auglýsing í Héraðsfréttablaðinu á Ströndum "Fréttir til fólksins" þar sem fólk er hvatt til að ganga í klúbbinn.

Annars var ég á fullu í allan dag í bókhaldsforritinu að reyna að átta mig á því. Það gengur svona la-la, fer tíu skref áfram, níu skref afturábak og svo ellefu skref áfram.

Úti er rok og rigning og ég er að velta því fyrir mér að fara norður á morgun. En hef ekki alveg ákveðið það ennþá.
Ble-si
Olíufélögin frá helvíti eru búinn að hækka bensínið eina ferðina enn - að því er virðist í fullu samráði rétt eina ferðina, svo nú er líterinn kominn einum þremur krónum yfir hundraðið.

Það vona ég að Morrinn gleypi þau hvert af öðru einn daginn.
Ble-si
Það potast að skilja þetta forrit. Nú held ég áfram.
Ble-si

30 mars 2004

Nú sit ég í maga Morrans og naga á mér táneglurnar.

Megi Morrinn gleypa mig, það er bara ekkert pláss hérna. Þarf hann aldrei að skíta?
Ble-si

29 mars 2004

Ég byrjaði að skilja þetta bókhaldsforrit í dag. Það var mikill hausverkur. Þurfti oft að byrja upp á nýtt þegar síminn hringdi og ég missti einbeitninguna. En ég spái því þó að ég verði farinn að halda námskeið í þessu eftir þrjá mánuði.

Svo var leikæfing í dag klukkan hálfsex. Það var stuð - átján watta snuð.

Ég væri til í að fara í aukafermingarveislu í afganga hjá Habbiddý syss - verst að veðrið býður alls ekki upp á það, en þessa stundina er hríðarbylur úti við og ég sé ekkert út um gluggana hjá mér. Ekki handa minna skil - sei sei nei.

Ekki er það nú gott - ooo sei sei nei. Gísli mágur sagði mér í dag í gegnum Skæpið að vorið kæmi til Horsens í vikunni með 17 stiga hita.

Já - það vona ég að Morrinn gleypi drottninguna einhvern daginn í staðinn. Sei sei já.
Ble-si

28 mars 2004

Þetta var alveg frábær fermingarveisla. Karen fermingarbarn fór algerlega á kostum, söng, dansaði og tryllti lýðinn. Kristinn bróðir hennar hélt frábæra ræðu um litlu systur sína og maturinn hjá Hrafnhildi var þvílíkt hnossgæti að mig skortir orð til að lýsa honum.
Eða skreytingarnar! Maður lifandi.

Karen er síðasta fermingarbarnið okkar systkynana, nema eitthvað verulegt slys komi til. Það er allavega ekki ferming næstu 14 árin beinlínis af okkar undirrótum, svo börnin okkar verða sjá um restina. 7913.

Aldrei hefði ég trúað því að ég segðist hafa skemmt mér í fermingarveislu. En síðustu forvöð.
Ble-si
Það er sko ekki komið vor. Það snjóar bara og snjóar.
Ble-si

27 mars 2004

Við Veigar og Hafdís gerðum mikinn bæjartúr í dag. Fundum fermingargjöfina handa Karenu og keyptum ..... handa henni. Hún verður vonandi ánægð með. Svo fórum við að versla föt á okkur og gerðum aldeilis bærileg kaup. Það held ég að maður verði nú aldeilis fínn á morgun. Þetta tók marga marga klukkutíma og við fengum okkur Kentucky á eftir. Fórum svo heim til þeirra í Grafarvoginn og pökkuðum inn fermingargjöfinni. Ekkert smáflottur pakki.

Litli afastrákurinn fór með okkur líka en hann beið bara í bílnum á meðan við hin flöndruðumst með bros á vör og tyggigúmmí í munninum úti við. Hann var alveg að fíla það - flatmagaði bara á mælaborðinu á meðan eins og pólsk mella í útstillingaglugga og var ekkert hræddur um að ljóti kallinn kæmi og tæki hann.
Ble-si
Það er ferming í fjölskyldunni á morgun. Litla skessan Karen er kominn á aldur til að verða tekin í fullorðinna manna tölu, eins og sagt var í gamla daga.

Ein góð saga af henni:

Einhverju sinni var mamma hennar að reyna að svæfa hana, hún var búin að vera að reyna að lesa fyrir hana en Karen tók það mjög snemma út að vera svoldið óþekk. Hrafnhildur systir lauk lestrinum, lokaði bókinni og byrjaði að fara með faðirvorið fyrir hana.

Þá varð dýrið alveg brjálað og öskraði. - Pabbi, pabbi. Takt´ hana mömmu. Hún er að byrja á helvítis faðirvorinu aftur!

Það verður gaman að vita hvort hún tekur upp gamla takta þegar presturinn fer að góla yfir henni á morgun.

Best að fara að huga að fermingargjöfinni bráðlega.
Ble-si
Jæja, best að kalla þennan dag Dag líka og taka húfuna ofan og koma sér í svefninn á meðan blómin sofa og Morrinn gleypir þá sem kunna sér engin læti á einhverju bévitans skralli sem ég nenni ekki að taka þátt í.

Guten abent eine slabent, gamla skútukerlingin - eins og bæverjarnir syðst í Bæverjalandi við landamæri Saxlands hinu syðra í nágrenni Svissverjalands segja, meðan þeir þegja og allt er í "gute Form".
Ble-si

26 mars 2004

Mótorhjólalögga að störfum.
Skoðaðu myndina gaumgæfilega og smelltu svo hér.



Ble-si
Veigar og Hafdís kíktu í heimsókn í gærkvöldi. Þau voru kát og hress að vanda. Afastrákurinn kom ekki með. Ég fór svo í kvöldgöngu í blíðviðrinu eftir að þau voru farin undir miðnætti. Hvað gerðist þá? Hitti ég ekki nema Áka frænda í sömu erindagjörðum og við villtumst náttúrulega inn á krá.

Við vorum rosalega heppnir að við skildum þó villast inn á krá en ekki eitthvað annað, t.d. á nektarbúllu eða bingó. Það er ekkert meira um það að segja nema að við verðum að fara að fá okkur GPS tæki til öryggis.

En í dag er bókhaldsnámskeiðsdagurinnmikli.

Hvað svo verður veit nú enginn því vandi er um slíkt að spá.
Ble-si

25 mars 2004

Ég bara verð að mæla með síðunni world-florists.com.

Ég fann hana á leitarsíðu því mig langaði svo að senda Írisi frænku gjöf í tilefni stórafmælisins.

Tæpum 5 klst efir að hafa gengið frá kaupunum á síðunni þá var hringt dyrabjöllunni hjá henni í Stuttgart og úti stóð yndisleg blómakona með þennan dýrðarinnar vönd og súkkulaði handa henni.

Mér finnst það ótrúlegt hvað þetta tók skamman tíma. Algjörlega FRÁBÆR þjónusta.

Annars er annað að frétta að þessi dagur var ekki minni afkastaminni en í gær og ég er kominn á fleygiferð og ekkert getur stöðvað mig. Helvíti ánægður með þennan dag og kalla hann þar með Dag.
Ble-si
Gærdagurinn varð mesti afkastadagur hjá mér í langan tíma. Helvíti ánægður með hann. Dagurinn í dag verður ekki síðri.

Íris Dögg systurdóttir mín á afmæli í dag. Það er reyndar stórafmæli. Því litla skottan mín er barasta orðin þrítug! Hún býr í Stuttgart og ég er ekki ennþá búinn að koma því í verk að heimsækja hana. Mér finnst það djöfullegt að hafa ekki fundið tíma til að renna við hjá henni þegar ég átti leið rétt hjá þeim þarna suðurfrá um miðjan febrúar.

En ég fylgist reglulega með henni á heimasíðunni hennar.

Til hamingju með daginn Íris mín, ég veit þú lítur hérna við á hverjum degi.
Ble-si

24 mars 2004

Þar sem ég var rétt í þessu á bólakafi í ársreikningum við tölvuna, niðursokkinn í að velta fyrir mér vanda talna og rekja þær á rétta staði þá var bankað á útidyrahurðina.
-Andskotinn, hugsaði ég, það er bara hvorki flóa- né flóarfriður.
Fór svo til dyra, þungur á brún enda veitir mér ekki af að einbeita mér fullkomlega þegar ég er að reyna að rekja eða hrekja tölur.

Fyrir utan dyrnar stóð sendill með heilan líter af Jameson viský sem var handa mér. Það kom verulega á mig og var snældurviss um að hann hefði farið húsavillt, jafnvel borgarvillt. Ég taldi meira að segja að hann hlyti að vera í kolvitlausri heimsálfu.

En aldeilis ekki, þessi líter af viskýi var handa mér einum fyrir hjarta- og manngæsku í garð ónefndar persónu útí bæ undanfarið ár.

Einhverntíman á næstunni verður einhver verulega timbraður - ef ég þekki mig rétt.
Nú er ég farinn að kvíða fyrir því og næ ekki að einbeita mér að tölunum lengur.
Ble-si
Í kolli mínum geymi ég gullið, sem gríp ég höndum tveim, svo fæ ég vexti, og vaxtavexti, og vexti líka af þeim.
Í dag er ég heiðskýr enda sofnaði ég fyrir allar aldir í gærkvöldi eftir merkisfund með Áka frænda á Hressó seinnipartinn.
Í dag er líka dagur hinna miklu afreka á sviði ársreikninga.
Ble-si

23 mars 2004

Aha - Hrafnhildur systir á afmæli í dag. Eins gott að gleyma því nú ekki.
Til hamingju með daginn Habbiddí siss.
Ble-si
Deep Purple verða hér aftur í júní, 33 árum eftir síðasta konsert sem ég missti af.
Ekki veit ég hvað miðaverðið verður, en árið ´71 var það 500 kall eins og sjá má á þessum gamla miða sem ég hef átt í fórum mínum í 30 ár.

#
Ble-si
Það er víst að líða að páskum. Um síðustu páska þá ætlaði ég að hafa rosa veislu og elda mér höfrungasteik. Ég ætla að breyta til núna, því höfrungaeldamennska er alltof mikið vesen.

Ég lenti í hinum mestu vandræðum með höfrunginn á steikarpönnunni. Það gæti verið að ég hafi sett of mikla olíu á hana, skal ekki segja. Allavega stakk hann sér á kaf og ég sá hann ekki í óratíma.

Ég sem hélt að höfrungar væru spendýr og þyrftu að anda við og við. En ekki þessi. Hann hefur annaðhvort verið með ógnarstór lungu eða steindauður. Því hann kom aldrei upp. Ég gafst upp á endanum, lækkaði hitann á hellunni og stökk fram í baðherbergi. Þar snaraði ég mér í röndótta sundbolinn minn, hljóp fram í eldhús aftur, klifraði upp á ísskápinn og stakk mér til sunds í steikarpönnunni og veitti höfrungnum eftirför.

Það er ótrúlegt hvað steikarpönnur geta verið djúpar. Ég rakst aldrei á botninn og á leiðinni niður mætti ég bara gömlum matarleifum frá páskunum þar áður. Loks eftir drykklanga stund í kafi þá sá ég grilla í höfrunginn, svo ég að ákvað að ná honum og grilla hann og skellti mér á bakið og flugsynti í áttina að honum.

Þarna svamlaði helvítið um í Pure Wesson Corn olíunni og hló að mér um leið. Eins og álfadrottningin sem hleypti hestinum á skeið.

Eftir dulitlan eltingarleik náði ég loksins góði taki á sporðinum á honum og sveiflaði honum upp í árabát sem ruggaði þarna á yfirborði steikarpönnunnar. Við slógumst þar um stund, báðir jafnsleipir af olíunni og náðum hvorugir góðu taki á hinum. En á endanum tókst mér að ná betra hálstaki á honum en hann á mér og reyndi að kyrkja hann.

En þá varð ég fyrir því óláni í síðustu andarslitrum hans, að hann sló til mín með sporðinum en við það hrökk vasahnífurinn minn upp úr sundbolsvasanum og skar af mér vinstra eyrað. Ég fipaðist örlítið við það og neyddist til að sleppa takinu á honum. Um leið kom vindhviða sem opnaði eldhúsgluggann og inn flaug páfagaukur sem greip höfrunginn og flaug með hann út um útidyrnar, sem voru líka opnar og hlussaði honum niður alla stigana og austur Hringbrautina á móti umferðinni. Eina sem eftir var af hasarnum á milli mín og höfrungsins var eyrað á mér sem ég neyddist til að gera mér að góðu þetta páskadagskvöld.

Ég ætla ekki að reyna að lýsa því hvað ég hlakka til komandi páska.
Ble-si

22 mars 2004

Nú er hún Bergljót mín dáin. Blessuð sé minning hennar.
Við andlát Bergljótar minnist ég sérstaklega þess hlýja kærleiks, áhuga og alúðar sem hún ávallt sýndi mér sem barni, sérstaklega þegar ég komst á unglingsár og þegar ég var orðinn fullorðinn.
Þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Þessi orð koma mér í hug er ég minnist Bergljótar. Hún var á 93. aldursári þegar hún lést og henni auðnaðist aldrei að giftast og eignast börn í venjulegum skilningi þess orðs. Bergljót var ávallt afar greind kona en þrátt fyrir það þá gekk hún aldrei í kvenfélag.
Kannski var það mest vegna þess að henni þótti svo gaman að ferðast og notaði hvert tækifæri til að sinna þeirri iðju sinni. Á sínum fjölbreytta lífsferli kynntist Bergljót því mikið af fólki af öllum þjóðernum, þar á meðal indíánum og kínverjum. Hún lærði tungumál þeirra að meira eða minna leyti, einkum þó ensku og Norðurlandamálin. Bergljót stefndi að fjallaferð um Tíbet á vormánuðum og skrapp því í þrekpróf hjá Hjartavernd nokkru fyrir útför sína þaðan sem hún kom liðið lík. Bergljót sagði oft að það að kveðja væri nokkuð sem hún ætlaði sér aldrei að gera nokkrum manni. Nú hefur hún gert það svo eftirminnilega að engu er líkara en hún hafi horfið yfir móðuna miklu.
Það lýsir hennar lífsferli betur en flest morð, nei afsakið, orð. Því hún var svo listræn hún Bergljót. Aldrei setti hún skál af tvíbökum á borð án þess að af því stafaði mýkt og listfengi.

Þakka þér fyrir kynnin Bergljót mín, það er löngu vitað mál að bestu vini sína eignast maður í lúðrasveitum. Ef það hefði verið snefill af tónlist í okkur þá hefðum við kannski náð betur saman. Lifðu heil.
Bles-i
Ég fékk óskiljanlegt bréf á þýsku frá Hertz bílaleigu á föstudaginn sem ég botnaði ekkert í. Ég fékk því aðstoð frá þjóðverja sem ég þekki til að skilja það. Þá var þetta rukkun á hraðasekt frá 11. febrúar.

Ég man eftir því þegar ég var að aka í gegnum smáþorp rétt austan við Ravensburg þennan dag. Þá kom ægilegur blossi í gegnum framrúðuna og ég hugsaði, "UFO, UFO," því ég hélt að geimverurnar væru komnar og varð svo hræddur að ég gaf allt í hvínandi botn svo ég yrði ekki geislaður upp til stjörnuþykknisins *URXZ 3* sem enginn veit hvar er.

En þetta var semsagt hraðaeftirlitsmyndavél og ég orðinn eftirlýstur af þýsku alríkislögreglunni sem er komin með mynd af mér í gagnagrunninn sinn.

En sektin er ekki há, aðeins 23,20 EUR sem eru 2032 ISK á gengi dagsins í dag og Hertz er búið að gjaldfæra það á Visakortið mitt. Það var léttir.
Ble-si

21 mars 2004

...og þeir höfðu það strákarnir. Aldrei efaðist ég eina mínútu.
Ble-si
Já, já, já. Mínir menn komnir í úrslit í spurningakeppni Strandamanna. Það er mest mér að þakka. Óþarfi að fara leynt með það.

Þessa stundina stendur yfir úrslitakeppnin á móti Bitrungum. Áfram Jón, Veigar og Tóti!
Ble-si
Ja, megi Morrinn gleypa mig ef Jóni tekst ekki að fullmanna lið Strandagaldurs fyrir úrslitakvöld spurningakeppninnar miklu í kvöld.
Ble-si

20 mars 2004

Ég er kominn heim og búinn að þvo gauðskítugan bílinn. Stytti mér stundir við að kveða rímur um allthvaðeina á leiðinni. Um kappa, um biðskyldumerki, um framúrakstur, um runna, um gula Benza, um tröll og drauga, um tvíbreiða vegi og hverskyns happatappa og önnur ólánstól sem urðu á vegi mínum.

Skyldi ekki fara að líða að leikæfingu hjá mér?
Nú fæ ég mér bjór og hugsa málið.
Be-si
... og nú fer ég að hundskast í kotið mitt heima, áður en ég sofna og það fer að bregða birtu.
Ble-si
Námskeiðið sem ég fór í gær norður á Ströndum var skrítið. En ég held samt að það geri gagn frekar en hitt. Kökurnar voru í það minnsta frábærar.

Ók Magga norður í Bjarnarfjörð og gisti á Kirkjubóli. Ég er að velta því fyrir mér að fara suður á bóginn núna. Er nefnilega svoldið bókhaldsupprifinn eftir námskeiðið.

Hér er skítakuldi og snjór yfir öllu.

Ég þarf líka að velta fyrir mér verkefnum nýs Ferðamálafélags Strandasýslu. Er reyndar byrjaður á því. Þar sem ég geri alltaf það sem ég er beðinn um möglunarlaust - nema ef um spurningakeppni er að ræða.

Ég ætla að leggja það til að félagið heiti Atvinnu- og ferðamálafélagið á Ströndum og að tilgangur þess verði að vinna að margþættri hugmyndavinnu sem stuðlar að fjölbreyttara atvinnulífi á Ströndum. Það þarf að vinna að því röskum höndum að finna leiðir til að fjármagna starf hugmyndaríks, vel menntaðan atvinnu- og ferðamálafulltrúa í fullt starf árið um kring sem sinnir þörfum og kröfum íbúa Stranda.

Félagið þarf að leggja fram og og leita eftir tillögum að verkefnum, stórum sem smáum, orkulitlum og orkufrekum, sem sprautar vítamíni í byggð á Ströndum og einstökum svæðum innan þeirra. Eins þurfa stjórnarmenn nýs félags sem koma úr sem flestum greinum atvinnulífs á Ströndum og hugsa stórt að fylgjast vel með þjóðmálaumræðunni og grípa hvert tækifæri sem gefst til að ná verkefnum inn á svæðið og/eða styrkjum til hverskyns atvinnuuppbyggingar Stranda.

Sú sjálfsagða stefna skal höfð í fyrirrúmi að íbúar Stranda hafi alla möguleika til atvinnusköpunar og lífsrýmis til jafns við aðra íbúa landsbyggðarinnar og skal berjast gegn stefnu stjórnvalda um valda byggðakjarna til undaneldis í framtíðinni. Félagið skal berjast gegn sérhverri hugmynd, hvort sem hún beinist frá stjórnvöldum eða öðrum stofnunum sem stuðla að misrétti íbúa landsbyggðarinnar eftir búsetu.

Íbúar Stranda skulu hafa fullan ákvarðanarétt yfir nýtingu náttúru- og og annarra auðlinda svæðisins í hverju formi sem þær birtast og Atvinnu- og ferðamálafélagið á Ströndum skal berjast gegn sérhverri sértækri aðgerð sem skaðað getur möguleika íbúanna til atvinnusköpunar og mismunað þeim til að afla bjargræðis.

Svo er nú það - læt þessar fabúleringar duga í bili. - Strandir. Stríð gegn stöðnun.
Ble-si

18 mars 2004

Ég lenti á hálfgerðu skralli í gærkvöldi með JJ. Ég veit ekki hvað ég svolgraði marga bjóra og vona að ég komist aldrei að því. En það tók náttúrulega enda eins og allt annað eftir dýrindis máltíð á Tapas. Fór svo á fætur fyrir allar aldir í morgun.

Rak augun í það að það er hægt að fá auka zoom linsu á nýju myndavélina mína og ég keypti hana. Nú er ég sko kominn með alvöru græju. Fékk mér líka þrífót svo ég er tilbúinn í hvaða slag sem er.

Ók norður í dag - er staddur á Kirkjubóli í þessum skrifuðum orðum og var að koma frá að ljósmynda Galdrasýninguna í bak og fyrir.

Á morgun fer ég á námskeið í áætlana- og rekstrarfræðum. Ekki veit ég hvað ég stoppa lengi á Ströndum í þetta skiptið.

Undanfarið hef ég verið að telja sjálfum mér trú um að það sé komið vor en það er öðru nær. Úti snjóar og snjóar og það er skítkalt að auki.
Ble-si
Það var sumarið ´86 sem ég ól upp sel.

Þannig var að Nonni Lofts skaut urtu úti á Steingrímsfirði og þegar hann dró hana um borð þá tók hann eftir því að hún var komin að því að kæpa. Hann skar því með vasahnífnum sínum á kviðinn og út rann lítill kópur, vesæll og aumingjalegur, en þó á lífi. Nonni réri í land og rétt í því átti ég leið framhjá honum og tók hann tali.

Nonni bauð mér að taka litla vesalinginn að mér og ég fór með hann heim og kom honum fyrir inní þvottahúsi. Á þeim árum var Sædýrasafnið í Hafnarfirði enn starfandi svo ég hringdi þangað og leitaði upplýsinga um hvernig ætti að fæða svona grey. Ég fékk uppskrift af óttalegri blöndu. Þurfti að hakka þorskalifur og blanda lýsi saman við útí mjólk sem var síðan sett í pela. Kobbi litli vildi ekki sjúga svo þeir ráðlögðu mér að setja mjúkt rör framan á pelann og síðan að troða því ofan í háls á honum og sprauta jukkinu svo oní hann.

Svona var hann alinn um tíma. Hann braggaðist allur og var á stundum ansi fjörugur. Á kvöldin var hann inn í stofu með okkur fjölskyldunni og horfði agndofa á sjónvarpið. Hann svaf í þvottahúsinu og Atli sem var rétt rúmlega ársgamall og hvorki byrjaður að tala né ganga fór alltaf fyrstur á fætur og gaf alltaf frá sér undarleg hljóð i morgunsárið stökk fram úr rúminu og skreið fram að þvottahúsdyrum og þar spjölluðu þeir saman í gegnum hurðina þangað til ég opnaði á milli þeirra. Það urðu ávallt miklir fagnaðarfundir og þeir féllust í faðma og fóru í allskyns leiki.

Í hádeginu fór ég alltaf með Kobba niðrí fjöru til að kenna honum að synda. Hann var ofsalega hræddur í fyrstu og harðneitaði að fara útí nema ég færi líka. Þá varð ég að fjárfesta í klofstígvélum til að komast nógu djúpt og fara á undan honum og kalla á hann. Kobbi þorði aldrei að fara langt frá mér og ef ég hljóp í land meðan hann horfði eitthvað annað þá fór hann bara að gráta.

Seinna smíðaði ég handa honum kofa útí garði. Þar dundaði hann sér allan daginn og börnin í hverfinu léku sér við hann eftir að þau komu heim úr leikskólanum. Ég var að smíða í húsi sem var í byggingu rétt hjá heimilinu mínu. Í Miðtúni 1 minnir mig. Þar sem Jón á Berginu býr núna. Og á morgnana þegar ég gekk þangað þá elti Kobbi mig upp Lækjartúnið, skreið á eftir mér hægt og rólega. Alveg löturhægt og hrópaði á eftir mér og það passaði alltaf mátulega að þegar ég fór í hálftíu kaffið að hann var kominn upp að horni. Þar tók ég hann upp og bar hann heim og hann fékk jukkið sitt úr pelanum.

Honum leiddist alltaf alveg ógurlega ef hann var skilinn eftir einn heima. Því selurinn Kobbi var mikill selskapselur. Ávallt þegar við komum heim eftir nokkra tíma þá flóðu tárin niður vanga hans og hann vildi bara láta halda á sér og hugga sig.

Seinna um sumarið veiktist hann og þá setti ég mig aftur í samband við Sædýrasafnið og þeir ráðlögðu mér eitthvað í gegnum símann, sem ég man ekki hvað var. Hann braggaðist ekkert við það og við starfsmenn Sædýrasafnsins komum okkur saman um það einn þriðjudaginn að ég myndi senda hann til þeirra með næsta flugi, en þá var áætlunarflug til Hólmavíkur á hverjum fimmtudegi. En daginn eftir þegar ég var á leiðinni heim í tíu kaffið þá beið Kobbi ekki eftir mér á horninu. Ég hljóp því í kofann hans - og þar lá hann dáinn.

Það var mikil sorg á heimilinu og við jarðsettum hann útí garði og Veigar og nokkrir vinir hans úr leikskólanum tóku þátt í athöfninni. Þau voru viss um að hann færi til himna og yrði engill með geislabaug og myndi synda í regnskýjunum hvern einasta dag.

Það sem eftir lifði sumars voru alltaf ný blóm á leiðinu hans eftir börnin, sem hugsuðu vel um það.
Ble-si.

17 mars 2004

Þennan kappa til hliðar hitti ég á ferð minni um Strandir s.l. mánudag. Hann var hinn kátasti að sjá mig og reyndi að klappa mér. Við það fældist ég og hljóp upp í fjall, hvar ég faldi mig bakvið stein þar til tröllkerling mikil fann mig og reyndi að fá mig til við sig.

Ég stökk frá henni organdi á harðaspretti enda sársaukafullt að láta teygja sig til og toga í þá stærð sem skessum hentar. Ég var svo lafhræddur að ég hefði aldrei náð honum upp og hljóp svo hratt að ég náði ekki að smella mynd af henni, enda í bráðri lífshættu.
Ble-si

16 mars 2004

15 mars 2004

Jahérna, megi Morrinn gleypa mig.
Ég fer ekki suður fyrr en í fyrramálið. Mér er nefnilega illt í málbeininu.
Ble-si

14 mars 2004

Þá er maður nú kominn norður á Strandir. Þarf að taka á móti þessari bandarísku blaðakonu á morgun og leiða hana í allan sannleika um íslenskan galdur, huldufólk, tröll og hverskyns forynjur áður en ég fer aftur suður á morgun.

Það er alveg rosalega fallegt veður búið að vera á leiðinni og ég myndaði margt og mikið. Mér sýnist vera farið að vora. Túnin farin að grænka.
Ble-si

12 mars 2004

Það er dýrt að halda lífi. Þurfti að kaupa nýtt öryggisbelti í bílinn. Það kostaði rúmar sextán þúsund krónur. Það finnst mér vera mikið og líf mitt varla þess virði.
Ble-si
Fór á fyrsta fund vegna stóra leikritamálsins í gærkvöld. Hlutverkið sem mér er ætlað er hæfilega lítið og ég ligg meira og minna meðvitundarlaus á gólfinu meðan ég er inni.

Rauk svo niðrí Sögufélag á sagnakvöld þar sem Bjarni Harðar fór á kostum. Enduðum svo í samdrykkju við Austurvöll fram á miðja nótt. Fór svo heim og æfði hlutverkið mitt, meðvitundarlaus uppi í rúmi.

Enska þýðingin á Galdri er að taka á sig endanlega mynd. Sendi það til Ravensburger í næstu viku.
Ble-si

11 mars 2004

Þó ég kunni ýmislegt fyrir mér þá hefur mér ekki enn tekist að vera á tveimur stöðum í einu.
Þetta er snúið.
Ble-si
Það er líf og fjör í kotinu. Jónsson er í heimsókn, fjallkátur að vanda. Ég stefni á leikfund í kvöld - nema ég fari á draugasamkomu í Sögufélaginu. Árshátíð á laugardaginn og norður á sunnudaginn og suður á mánudaginn og norður á fimmtudaginn og suður á sunnudeginum þar á eftir. Svona er planið en það getur breyst.
Ble-si

10 mars 2004

Það skyldi þó aldrei vera að ég færi að leika aftur á sviði. Það stefnir jafnvel í það í vor.
Ble-si

09 mars 2004

Jahérna, ég hef bara ekkert bloggað í dag. Almáttugur minn. Það er heldur ekki frá að mörgu að segja. Ekki neitt gerst og ekkert að segja. Því það hefur ekkert á daga mína drifið í margar vikur. Innihaldslaust líf, án nokkurra uppákoma.
Þar öðruvísi mér áður brá.
Ég get ekki einu sinni logið neinu upp.
Ble-si

08 mars 2004

Merkilegt!
Það hefur bara ekkert gerst í hjólhýsamálunum mínum ennþá. Það er furðulegt??!! Kannski er þetta ekkert sérstakur auglýsingavettvangur.
Ble-si
Æ, ég er lasinn. Einhversstaðar hefur kvefvírusinn náð að smeygja sér í gegnum varnir mínar svo ligg ég eftir óvígur og er að deyja úr lasleika, krankleika og þessháttar kvillum.
Það er ekki gott. Aumingja ég. Sjaldan er heilsan metin að verðleikum.
Ble-si

07 mars 2004

...eða tjaldvagn? Kannski er það bara málið. Þeir eru hvort eð er ekki inni núna þegar allir verða að eiga fellihýsi.
Ble-si
Hjólhýsi-Hjólhýsi
Ef einhver veit um einhvern sem þarf að losna við hjólhýsi á sanngjörnu verði, þá er ég til. Það er frábær lausn á húsnæðismálum mínum á Ströndum yfir sumarið.

Þannig ég vil þá bara biðja viðkomandi að senda mér tölvupóst á sigatlas@akademia.is eða hringja í mig í síma 869 6671 og ég læt mig í samband við viðkomandi.

Það má alveg vera í ólagi eða óstandi. Ég redda því eins og ekkert sé. Það má meira að segja vera næstum því ónýtt - ég redda því eins og að snyrta á mér táneglurnar.

Kannski er einhver hjólhýsasala einhversstaðar á notuðu dóti. Veit einhver um það? Verð að reyna að grafa það upp.

Það væri aldeilis frábær lausn á málum. Jahérna, afhverju datt mér þetta ekki í hug fyrir lifandis löngu?
Ble-si
Svo brast bara á kuldaboli og slagveðursrigning. Einmitt þegar ég ætlaði að nota daginn sem ljósmyndaæfingadaginn mikla fyrir keppnina miklu.

Í staðinn ætla ég að gera við öryggisbeltið í bílnum. Það er fast ökumannsmegin og það er ferlega pirrandi þegar maður er orðin svona háður því. Mér fannst ég vera að detta út úr bílnum hvað eftir annað í Keflavíkurtúrnum í gær.
Ble-si.

06 mars 2004

Einverjir eru í leikhúsi, aðrir á tónleikum, enn aðrir á ball, þónokkrir á pöbbum, sumir sjálfsagt í fjallaskálum eða sumarbústöðum, margir í útlöndum, enn fleiri úti að borða og í bíói er slatti af fólki en ég er heima og horfi á leiðinlega sjónvarpsdagskrá.

Að vísu hef ég afastrákinn hann Snata en hann er búinn að sofa í allt kvöld.

Hvað gerir maður næst?
Ble-si
Það er blessuð blíðan í dag og ætla að skreppa til Keflavíkur. Annars er ég með hausverk, sem ég ætla að reyna að smita engan af. Það væri reglulega ljótt af mér.

Í nótt gisti hjá mér einn af stúdentunum hennar Dóru á leið til síns heimalands. Það er búið að vera ánægjulegt. Afastrákurinn minn er búinn að vera að sýna sig mikið fyrir henni.
Ja, þessi ungdómur.
Ble-si

05 mars 2004

Afastrákurinn minn verður hjá mér yfir helgina. Hann kom í gær og ég var mjög upptekinn við að halda í við hann. Hann var svoldið óþekkur þegar háttatíminn kom, en gafst upp eftir smátíma í myrkrinu.

Ég vaknaði nokkrum sinnum í nótt við torkennileg bjölluhljóð, en þá var það bara afastrákurinn í könnunarleiðangrum. En hann var voða glaður þegar ég fór á fætur í morgun.

Hann á eftir að halda mér uppteknum yfir helgina, sýnist mér.
Ble-si

04 mars 2004

Ég minni enn og aftur á SKYPE.
Ótrúlega massív og pottþétt símalausn. Ég nota hana daglega.
Fjöldi notenda bera þess vitni.
Ble-si
Ég skráði mig í formúluleikinn í gær. Það er kominn tími til að maður verði eins og hinir og taki þátt í íþróttalífinu. Ég er í liðinu strandir.is sem verður að teljast afar sigurstranglegt. Liðsstjóri stranda.is í formúlukeppninni er sjálfur Hemúllinn.

Ég var kátur þegar ég las einhversstaðar að hetjurnar í formúlunni eru ávallt u.þ.b. hálfum meter lægri en meðal körfuboltamenn og 25 cm lægri en meðal handboltamenn. Þannig að ég ætti að vera nokkuð sigurstranglegur og ná að hala inn slatta af stigum, bara út á dvergvöxtinn.
Ble-si
Þetta er nokkuð athyglisverð hugmynd.
Ble-si
Skildi vera eitthvað vit í þessu?
Kimi Räikkonen
Jarno Trulli
Bíll - Jordan
Vél - Toyota
Dekk - Bridgestone
Samtals: 25 milljarðar
Ble-si

03 mars 2004

Klukkan er rúman þriðjung gengin í sjö og það er ekkert við því að gera nema að vona að tíminn fari að drattast eitthvað hraðar áfram svo hlutirnir taki fyrr af.

Það er ennþá hangandi yfir okkur þessi blíðuskratti sem ég hef ekki hugmynd hvernig á að nýta. Auk þess sem ég nenni því bara ómögulega einn. Enda ræð ég ekki einn við alla skapaða hluti.
Ble-si

Það er blessuð blíðan í dag og ekkert við það ráðið. Spennandi að vita hvernig Jóni gengur í málefni dagsins.

Ég hitti Áka á Hressó í gær yfir einum öl. Hugsaði um það á leiðinni heim hvað Áki er mikilvægur vinur minn. Hann fer nefnilega fremstur í flokki þeirra sem leita eftir félagsskap mínum. Aðrir komast ekki með hælana þar sem hann hefur tærnar í þeim efnum. Þannig er það bara og þýðir ekkert að vera að fara í fýlu yfir því.

Horfði svo á sjónvarpið þar til ég lognaðist út af. Það var leiðinleg sjónvarpsdagskrá sem ég fylgdist með.

Ég held að Morrinn sé um það bil að gleypa mig. Þessvegna rakaði ég af mér hár og skegg svo hann gleypi mig ekki bæði með húð og hári.
Ble-si
Faðir minn hefði orðið 72 ára í dag ef allt hefði farið eftir bókinni. Hann var flugumferðarstjóri og var ansi fjörugur. Því miður þá átti hann í vandræðum með brennivínið sem varð honum fjötur um fót.

Ég hef alla tíð saknað hans og lengi vel hélt ég í þá von að þetta væri tómt grín og ég myndi mæta honum brosandi á horni Hringbrautar og Hofsvallagötu einn daginn þegar ég væri á leiðinni í skólann og hann myndi leiða mig heim aftur þar sem við fjölskyldan yrðum aftur öll samankomin.
Ble-si
Ég hef pínu áhyggjur af henni Dagrúnu Strandastelpu því hún er búin að sitja í maga Morrans síðan á föstudag.
Ble-si