Halló - thar sem ég er nú staddur á Internet-kaffi djúpt í austari hluta Berlínarborgar thá er nú kannski rétt ad skrifa örl´tid hér í dagbókina. Ég fór semsagt frá DK á föstudaginn s.l. Rútan sem ég átti pantad far med frá Köben til Berlin seinkadi um heila tvo tíma svo hún lagdi ekki af stad fyrr en kl 16:30. Fyrir vikid kom ég ekki til borgarinnar fyrr en laust undir midneatti. Sem betur fer tókst mér ad advara Cordulu í gegnum síma ad komutíma mínum myndi seinka. En allavega ... tharna stód hún thessi elska á rútubílastödinni thegar rútan renndi í hladid.
Og hvad faerdi hún mér?
Köstritzer bjór. Alveg agalega gódur.
Vid tókum S-bahninn ad Grossener Strasse thar sem hún býr og skruppum svo út og fengum okkur öl á naestu krá og röbbudum saman. Í gaer vorum vid í baenum mestallan daginn í hluta borgarinnar sem ég hef aldreui séd ádur. Thar kynntist ég mögnudum arkitketúr - en thví midur thá hef ég ekki tök á ad setja myndir hérna inn núna.
Vid f´rum ad sjá Lord of the rings - The two Towers. Thad var magnad. Eftir bíóid fór hún heim en ég fór á skrall fram undir morgun.
Thad er nefnilega thannig ad ég er miklu meiri studbolti en Cordula.
Thetta verdur thá bara ad duga núna.
Èg bid voda vel ad heilsa öllum. Og munid gestabókina.
Ble-si
29 desember 2002
24 desember 2002
Adfangadagur jóla runninn upp og undirbúningur fyrir kvøldid fer ad nálgast hámark. Tók smá rúnt med Gísla mági í morgun ádur en børnin høfdu sig á lappir og keypti skreytingar utan á jólapakkana. Thad er ennthá skítakuldi hérna - frost og vindur. En thad er sko allt í lagi af thví ad jólin koma í dag.
Ég óska øllum sem thetta lesa lesa gledilegra jóla og bendi á ad thad er hægt ad senda mér jólakvedju hérna.
Ble-si.

23 desember 2002
Thá er nú komin Thorláksmessa á Íslandi sem kallast Lille juleaften hér í danaríki. Allar jólagjafir eru komnar í hús og thví er engin hætta á ad jólakøtturinn thurfi ad leggja á sig ferd hingad til Horsens adra nótt.
Thad er alltaf sami kuldinn hér en allt í sóma. Núna er bara verid ad undirbúa síldarveisluna sem kemur í stad skøtunnar heima.
Jæja - heyrid frá mér sídar bara.

22 desember 2002
Í gærkvøldi f´rum vid a Edes og fengum okkur bein. Thetta er uppahaldsmaturinn og krøkkunum fannst hann ædislegur líka.
Sja mynd.
Svo fórum vid fórum til Århus i dag med lestinni. Thar thrømmudum vid eftir verslunargøtunni og skoðuðum i buðir. Naðum að versla nokkrar jolagjafir.

21 desember 2002
Fyrdti morguninn i Horsens upprunninn. Eg for audvitad a fætur a minum kjørtíma eins og vanalega og fór svo í leidangur í bæinn. Hún er skemmtileg gøngugatan í Horsens. Ég rølti um kíkti í búdir en ferdafélagar mínir sváfu á sína græna eyra fram eftir degi. Algjørar svefnpurkur.
Thad verdur afmæli í dag - en Hlynur frændi okkar verdur eins árs. Thad verdur nú skemmtilegt ad vera vidstaddur fyrsta afmælisdaginn hans.

20 desember 2002
Jæja - hallo. Her erum vid komin til Køben (Eg, Atli, Veigar og Hafdis tengdo) og ekkert nema gott um thad ad segja. Erum buin ad labba Strikid og Nyhavn og nokkur ønnur øngstræti. Allt gengid vel en thad er talsvert kaldara her an a Islandi. Vorum ad klara sukkuladikøkur og øllara og stefnan er tekin a Tivoli adur en vid tøkum lestina til Horsens klukkan 21:00 i kvøld.
Thetta er fint og god jolstemning i midborg Køben.
Oja - ma ekki gleyma thvi. Byrjudum audvitad a pulsu a Radhustorginu og skodudum Guinnes safnid. En nu høldum vid videre.
Thad heyrist af mer sidar.

19 desember 2002
Eftir innan við 23 tíma lendum við í Köben með allt kjötið sem við höfum meðferðis. Mikið hlakkar okkur til - en ég verð að fara að undirbúa mig - þvo þvott og pakka og gera eitt og annað sem ég hefði átt að klára fyrir löngu. Stefni að því að drekka svo sem eins og einn öl með Fanneyju einhversstaðar við Nyhavn áður en við tökum lestina til Jótlands annað kvöld.
Ble-si.
Ble-si.
18 desember 2002
Krakkarnir komu öll í kvöld og við vorum svona að spá í ferðatilhögunina. Pabbi hennar Hafdísar ætlar að keyra okkur út á flugvöll og svo skoðuðum við kort af Köben. Atli kom brunandi að norðan með rafmagnstannburstan í gangi í ferðatöskunni sinni. Ég var voða feginn þegar við fundum út að hávaðinn fylgdi honum en ekki úr mögulega biluðu sjónvarpi.
Svo kom Jórunn í heimsókn og við spjölluðum um hitt og þetta - verst að hún geti ekki komið með - hún hefði nefnilega ferlega gott af því að yfirgefa slompið í Reykjavík City smástund. En hún hlýtur að meika þetta einhvernvegin. Það eru nú að koma jól og fullt af allskyns undarlegum jólasveinum á kreiki þó ég sinni Evrópu í smátíma.
Faldafeykir.

Þá fer ég að vera klár í jólafríið.
Þessar skrifstofur sem ég var að smíða upp í húsaleigu eru klárar og bara hægt að flytja inn í þær. Er að vísu ekki ennþá búinn að ganga frá jólakortum frá Galdrasýningunni til hjálpfúsra handa en vonandi hefst það á morgun áður en ég fer. Ég lenti nefnilega í brasi með prentarann minn en er að sjá fyrir endan á þeim vandræðum. Og ef það tekst ekki að senda þessi jólakort - þá bara það. Ég geri ráð fyrir að jólin komi þrátt fyrir það. Hitti Rósu Þorsteins á Árnastofnun og hún færði mér upptökur af sagnakvöldi Þjóðfræðingafélagsins í nóvember í fyrra þar sem ég fór algjörlega á kostum - þó ég segi sjálfur frá. Þetta getur vel orðið jólageisladiskurinn í ár þ.e.a.s. ef mér tekst að vinna hann - sem ég geri alls ekki ráð fyrir að mér takist. Það eru nefnilega ekki nema u.þ.b 36 klst þar til við eigum að vera mætt upp á flugvöll og ég er sko ekki búinn að gera allt sem ég ætlaði fyrir þann tíma.
Það er nú svo og svo er nú það.

Jólin nálgast enn og Hemúllinn vinur okkar allra og komandi stórstirni í músíkbransanum hefur fært okkur öllum jólagjöfina í ár sem hægt er að nálgast á rokk.is. En þeir sem nenna ekki þangað geta bara smellt hér og náð í pakkann sinn. Annars mæli ég ferlega með síðunni rokk.is. Mögnuð síða sem gefur ungu og upprennandi tónlistarfólki færi á að koma sér á framfæri frekar en ekki.
Ble-si
Ble-si
16 desember 2002
Ég sótti nýja vegabréfið mitt í dag. Þetta dýra. Eins gott að passa upp á það. Það kom mér á óvart að það er ekki úr skíragulli.
En svona er umsóknarferlið.
Ble-si.
En svona er umsóknarferlið.
Ble-si.
Sá fimmti, Pottasleikir, - var skrítið kuldastrá. - Þegar börnin fengu skófir - hann barð dyrnar á.
Þau ruku' upp, til að gá að - hvort gestur væri á ferð. - Þá flýtti 'ann sér að pottinum - og fékk sér góðan verð.
Eins og sjá má þá hef ég ekkert annað að segja en að rausa um jólasveina í orðastað Jóhannesar úr Kötlum um þessar mundir.

15 desember 2002
Skoðum hvað Jóhannes úr Kötlum hafði að segja um jólasvein dagsins.
Sá fjórði, Þvörusleikir, - var fjarskalega mjór. - Og ósköp varð hann glaður, - þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding - og þvöruna greip, - og hélt með báðum höndum, - því hún var stundum sleip.
Svo er bara að taka vel á móti Pottasleiki sem kemur næstu nótt þegar aðeins 8 dagar verða til jóla.

Í tilefni af því að ég fékk þetta ölæði í gær þá ætla ég loksins að skipta um skoðanakönnun og ætla að kanna hug okkar til ölsins. Hver skyldi nú vera uppáhalds bjórinn þinn? Taktu þátt.
Uppáhaldsbjórinn minn heitir Köstritzer. Ógeðslega góður og dökkur þýskur bjór. Verst að hann fæst ekki hér á landi.

Hún er orðin þreytt þessi skoðanakönnun hjá mér. Ég þarf að fara að skipta henni út.
Klara frænka mín er með agalega skemmtilega könnun um matarvenjur um jól.
Kíkið á hana hérna.
Ég tek semsagt þátt í þessari dádýrsmáltíð sem fær svona mörg atkvæði en fyrir þá sem ekki vita hvað dádýr er þá ætla ég að setja mynd af dýrinu hérna sem gegnir líka nafninu Bambi.

14 desember 2002
Jæja - þá er ég búinn að fullnægja Jórunni í bili og hún er náttúrrulega ofsakát með baðið sitt svo ég gat farið að sinna öðru. Ég ætla nú að byrja á því að fara í mína eigin sturtu og þrífa mig a bit - svo fer ég á afvikinn stað í blautri miðborg Reykjavíkur eftir að ég er búinn að þurrka mig.
Þá er kominn laugardagur. Eftir nákvæmlega eina viku vöknum við fyrsta morguninn í Danmörku. Nú er ég að súpa á Gevalia morgunkaffinu og þegar bollinn er tómur þá fer ég í vinnugallann og rölti yfir til Jórunnar og klára baðherbergið hjá henni. Ég flísalagði það í október og á eftir að leggja lokahönd á verkið. Skömm af því. Verð að klára það fyrir jól - og þess vegna er dagurinn í dag alveg upplagður í það.
Það er ennþá sama gamla góða hitabylgjan hérna fyrir utan gluggann. Það er eins gott því Stúfur kemur í dag og hann á mjög erfitt þegar snjór nær upp í ökla á venjulegu fólki.
Engin ummæli:

13 desember 2002
Ég vaknaði undir morgunsárinu með vægan verk undir því og ákvað því að fara á bráðamóttökuna. Ég var náttúrulega logandi hræddur og ætlaði varla að þora inn á stofuna. En að lokum eftir samræði við lækninn þá féllst ég á að koma sjálfviljugur inn. Þar leiddi skoðun á mér í ljós að ég er unglingspiltur. Læknirinn var steinhissa og ætlaði að recepta mér einhver lyf út á unglingaveikina en ég harðneitaði því og sagðist ekki taka lyf, rétt magnyltöflur þess á milli.
Læknirinn tók ekki annað í mál en ég stútaði úr einu meðalaglasi með allavega litum pillum þarna á stofunni fyrir framan hann en ég tók það svo nærri mér að ég táraðist og hef grátið stöðugt síðan. Og hef líka verið niðurdreginn. En eftir að hann hafði róað mig um stund þá hafði ör hjartslátturinn alveg stöðvast svo mér leið mikið betur. Ég bað lækninn um að líta á mig aftur og sannreyna hvort ég væri bara unglingspiltur og þá kom í ljós að ég er 56 ára gamall kvenmaður, þrekvaxin og vöðvastælt og bróðir minn í ofanálag. Ég vona ég fái jólagjöf frá þessum nýja bróður mínum.

12 desember 2002
Jæja, ég er búinn að taka ákvörðun um næstu skoðanakönnun. Hún fjallar um Byggðasafnið á Reykjum. Ég hef nefnilega undanfarið verið að velta stöðu þess fyrir mér. Mig langar að taka undir það með Jóni Strandaálfi á Kirkjubóli að sveitarstjórnarmenn á Ströndum eru ekki alveg að horfa til framtíðar varðandi Byggðasafnið á Reykjum. Fyrir rúmum 35 árum var tekin ákvörðun um að Strandamenn og Húnvetningar skyldu hafa samstarf með uppbyggingu og rekstri byggðasafns sem væri staðsett á skólasetrinu á Reykjum í Hrútafirði. Í þá tíð stunduðu ungir Strandamenn nám á Reykjum og settu mikinn svip á skólann. En eftir því sem árin hafa liðið hafa þeir sveitarstjórnarmenn sem á eftir hafa komið breytt um áherslur smátt og smátt, þannig að nú er svo komið að það eru engar áherslur eftir í varðveislu söguminja. Ekki veit ég hvað hefur breyst. Er það hugsanlegt að nútímafólk sé svo sjálfhverft að það vilji bara alls ekki leiða hugann að fortíðinni?
Byggðasafnið á Reykjum hefur undanfarin ár tekið stórum breytingum og mælist ég til þess að sem flestir líti þar við og sjái hvaða natni er lögð þar t.d. við hákarlaskipið Ófeig frá Ófeigsfirði á Ströndum - sem er aðalgripur safnsins og sómi þess. Ég leyfi mér að efast um að jafnglæsileg umgjörð væri í kringum það, ef það yrði staðsett einhversstaðar vestan megin við Húnaflóa. Auk þess sem það væri margfaldlega kostnaðarsamara fyrir sveitarfélög á Ströndum. Það skal tekið fram að sveitarfélög á Ströndum hafa alls ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart safninu í fjölda ára. Byggðasafnið á Reykjum er auður sem hægt er að nýta mikið betur en gert er og ég er sannfærður um að Pétur forstöðumaður safnsins er reiðubúinn að taka þátt í hvers kyns sýningarhaldi á Ströndum með munum af safninu, og færa þá þannig "heim". Hefur einhver sveitarstjórnarmaður á Ströndum einhverja hugmynd um út á hvað safn gengur? Það er annað og meira en að stilla upp gömlum hlutum á hillu til sýningar. Mikilvægasti þátturinn og sá minnst sýnilegi er forvarslan sem söfn eru skuldbundin til að sinna. Það er sérfræðikunnátta sem kostar peninga. Annars grotna hlutir bara niður og eyðileggjast og hverfa. Kannski vilja menn það bara og kaupa eitthvað fjöldaframleitt plast frá Suður-Kóreu í staðinn - og benda á það með lotningu og segja:
- Sjáðu, þetta er handsmíðaður askur frá 17. öld - hagleikssmíð ekki satt? Einu sinni voru þeir út timbri en þeir askar eru víst útdauðir.
Eigum við ekki bara að skipta um tungumál líka?

Góðan og blessaðan daginn. Það er ennþá sama einmunablíðan hér á þessu landi. Veðrið er svo gott að maður skilur hvorki í þennan haus né hina. Fer að mála núna og flikka upp á eitt og annað. Á meðan ætla ég úthugsa nýja skoðanakönnun. Þessi er orðin svoldið þreytt. Tilllögur eru vel þegnar. Þær má skilja eftir í gestabókinni. Tengill inn á hana finnst hérna.
Fjórhöfði.
Fjórhöfði.
11 desember 2002
Allt í sóma. Er að bíða á meðan málningin þornar aðeins - síðan tek ég aðra umferð. Ég er nefnilega að leggja lokahönd á þessar skrifstofur á 3.hæðinni sem ég hef verið að hlaupa í öðru hvoru þessa vikuna og græja. Setti hurðina upp í kvöld og er að mála hana.
Svo var ég að hugsa - það er komið langt fram í aðventu og ég hef ekki gert neitt jólalegt ennþá. Það jólalegasta sem ég hef komið nálægt var í gærkvöldi þegar ég fór í kvöldgöngu niðrí bæ að skoða jólaskreytingar í gluggum. Það var ansi notalegt að rölta milli glugga á fámennri verslunargötunni, spegla mig í rúðunum og skilja eftir móðublett. Fékk mér einn öl á Kaffi List áður en ég rölti heim. Hlakka til að fara til Danmerkur. Það er alltaf jólalegt á aðalgötunni í Horsens og þar er líka jólajárnbrautalest fyrir börnin stútfull af jólasveinnum. Svoldil stemning. Jæja - málningin fer að vera klár til að fá aðra umferð.

Algjör skandali!!!
Nú tókst mér að eyðileggja síðuna í einhverju æðiskasti við að hjálpa öðrum.
Hvað kennir þetta manni?
Að gera aldrei nokkrum manni greiða og þykjast ekki að vera annar en maður er.
Ég verð að byrja allt upp á nýtt og þangað til verð ég fýlu og öll skemmtilegheit liggja niðri.
Fjárinn hafi þetta bara!!!

Skandali!
Eins og ég er búinn að röfla yfir í nokkrar vikur þá bara finn ég alls ekki vegabréfið mitt. Því ákvað ég að gera skurk í því í dag því tíminn líður. Svo ég fór í ljósmyndun sem kostaði 1.600 kall og sótti svo um nýtt vegabréf. Þá gerðist skandalinn.
Ég þurfti að punga út 9.200 krónum!!!
9.200 krónur!! Það má fá mörg hangilæri fyrir það.
Og allt vegna þess að ég er degi of seinn og auk þess regin-sauður og þarf því svokallaða flýtimeðferð sem er helmingi dýrara. Ef ég hefði álpast til að gera þetta í gær þá hefði vegabréfið kostað mig 4.600 krónur!!!
Ríkið og hið opinbera er sífellt að nauðga manni. Fjárinn.
Þannig að Lottó-gróðinn fór fyrir lítið.

10 desember 2002
Jæja. Það er nefnilega það. Svona fór nú skoðanakönnunin um frammistöðu Landsvirkjunar. En hvorki fleiri nér færri en 19 manns tóku þátt. Spurt var: Hvernig stendur Landsvirkjun sig í virkjanaframkvæmdum á hálendinu?
Það er frekar erfitt að ráða í úrslitin, því 70% þjóðarinnar hreinlega þorði ekki að svara. Það segir mér að 70% þjóðarinnar álíti að fæst orð beri minnsta ábyrgð og vill því vera örugg um það að vera ekki sett í einangrun á Litla-Hraun eða Njarðvíkurskóla. Þetta segir nú kannski mest um traustið á íslensk stjórnvöld.
Ef ég reyni að ráða í restina þá vill 10% þjóðarinnar meina að Landsvirkjun standi sig hörmulega. Það er líka erfitt að ráða í það. Hvað á fólkið við? Að Landsvirkjun ætti bara að virkja sama hvað hver segir eða á það við að Landsvirkjun sé með frekju og yfirgang á hálendinu.
5% þjóðarinnar finnst Landsvirkjun standa sig grátlega sem er auðvitað sorglegt og önnur 5% þjóðarinnar telur Landsvirkjun standa sig hlægilega sem ber eingöngu vott um lélegan húmor.
Samtals 10% þjóðarinnar skiptir á milli sín fifty/fifty að Landsvirkjun standi sig ágætlega annars vegar og snilldarlega hinsvegar - svo ég geri bara ráð fyrir því að það fólk hafi bara ekkert verið að fylgjast með, en vilji samt láta það líta þannig út að það hafi einhverjar skoðanir.
Niðurstaðan úr þessari skoðanakönnun er því sú að ég snýst ennþá í hringi og veit eftir sem áður ekkert í þennan haus eða hinn.
En þá ætla ég að upplýsa um Lottó-vinninginn mikla. (Lúðraþytur)
Það tilkynnist hér með að ég vann 580 krónur. Það er ekkert mjög mikið - en 580 krónur eru heldur ekki bara gripnar úr skítnum. En ef ég hefði unnið fleiri fleiri silljónir? Hvað þá? Hvernig hefði ég brugðist við því. Þegar ég hugsaði málið þá komst ég að því að það skiptir kannski minnsta máli hvernig ég myndi bregðast við. En hvernig mynduð þið bregðast við? Það er stóra málið. Um það fjallar næsta skoðanakönnun sem lítur dagsins ljós núna og stendur næsta sólarhring.

09 desember 2002
Nú liggja úrslitin fyrir í skoðanakönnuninni miklu. Spurningin var: Hvenær kemur veturinn?
Nákvæmlega helmingur þjóðarinnar er sannfærður um að Vetur konungur banki upp á milli jóla og nýárs. Samtals voru greidd 22 atkvæði sem skiptust jafnt milli aldurs og kynja.
Frábær þátttaka! En þá er komið að næstu könnun. Nú langar mig að vita í eitt skipti fyrir öll um hug þjóðarinnar gagnvart Landsvirkjun sem hefur legið undir þungum sökum um náttúruspjöll undanfarin ár. Ég er sjálfur búinn að snúast í ótal hringi og stundum ekkert vitað í þennan haus eða hinn. Upplýsið mig og takið þátt!

Kæru íslendingar.
Þá fer að styttast í það að alvöru jólasveinarnir komi til byggða. Það verður semsagt í þessari viku. Ég er með frábæra tillögu að gjöf í skóinn fyrir okkur fullorðnu börnin, sem hægt er að nota sex daga í röð. Það eru galdrastaup sem hægt er að fá með sex mismundandi galdrastöfum.
Sjá hér.
Þetta er góð hugmynd, og ég mælist til þess að sem flestir kíki við á þessari síðu og panti þar staup í skóinn. Þau verða komin til ykkar fyrr en varir. Skjótar en skugginn. Svo kostar stykkið aðeins 350 krónur. Nákvæmlega sú upphæð sem rúmast í einum meðalskó.
Því jólasveinarnir láta ekki að sér hæða. Til dæmis er þessi jólasveinn
svona ofsakátur vegna þess að hann notar galdrastaup frá Galdrasýningu á Ströndum.
Vertu ekki eins og hinir - vertu öðruvísi. Vertu alvöru jólasveinn.

Þá er nú þessi annar sunnudagur í aðventu fyrir þessi jól liðinn. Þessi dagur var alveg bærilegur - hlýindi á götum úti og fjöllum uppi. Sumum leið betur en öðrum. Það er eins og það er alla daga. Hver dagur líður sitt á hvað þjáningarfullur eða fullur af lífshamingju og gleði. Minn var nú bara svona venjulegur. Hefði allt eins getað verið miðvikudagur - það var fátt sem gerði hann öðruvísi enn venjulegan dag í miðri viku fyrir utan það að Stundin okkar var í Sjónvarpinu. En ég missti af henni í þetta skipti og hugga mig við það að Stundin verður endursýnd seinna í vikunni.
En ég er glaður - ég vann í Lottóinu í gær - fúlgur fjár.
Ég veit ekki alveg hvernig ég á að höndla þessi auðæfi. Ég hef þó ákveðið að halda ró minni og hugsa málið fram yfir áramót. Það er skynsamlegast í stöðunni.
Jórunn vinkona mín og besti nágranni
hafði það skítt þennan annan sunnudag í aðventu - hún fékk aðeins of mikið í tána aðfaranótt sunnudags og var af þeim sökum ekki alveg að meika það í dag. Þetta er ekkert auðvelt og hún á alla mína samúð. En þetta lagast. Seinna. Kannski á morgun.
Kannski ekki.

08 desember 2002
Samkvæmt skoðanakönnun minni hægra megin á þessari síðu, þá standa málin þannig þessa stundina að þriðjungur þjóðarinnar telur að veturinn komi ekki fyrr en næsta vetur. Restin af íslensku þjóðinni (eða þeim sem skilja íslenskt ritmál - skal ekki segja) er svartsýnni og álítur að von sé á Vetri konungi eftir áramótin. Hvert er þitt álit? Tíminn til að taka þátt fer að styttast.
Ble-si
Ble-si
Ég var varla búinn að sleppa orðinu en skoðanakönnuninni hér hægra megin á síðunni breyttist. Nú skiptist þjóðin í tvennt. Annarsvegar þeir sem halda að veturinn komi ekkert fyrr en næsta vetur og hinsvegar þeir sem halda að veturinn komi eftir áramót.
Þetta er æsispennandi!!
Hvernig skildi þetta nú enda?
Þetta er æsispennandi!!
Hvernig skildi þetta nú enda?
Eins og sjá má þá er komin skoðanakönnun á síðuna mína. Hún fer ósköp sakleysislega af stað - frekar hallærislegt spurning. En þessi spurning verður hér inni allavegu næstu tvo daga. Ég lofa því að næstu skoðanakannanir á eftir verða mun dýpri. Ég vona að sem flestir taki þátt - þó ég hafi ekki hugmynd um hvort nokkur maður líti við hérna. En mér sýnist það samt á teljaranum, en það er spurning hvort það er ekki bara ég sjálfur, þessi kálfur, sem hef komið hingað inn yfir 600 sinnum.
Spyr sá sem ekki veit.
Ble-si
Spyr sá sem ekki veit.
Ble-si
07 desember 2002
Búið að vera hálfgert bras á mér síðan ég fór á fætur. Þessar smiðsnefnur sem settu upp skrifstofurnar á 5. hæð akademíunnar létu ekki sjá sig eins og þeir lofuðu og ég er búinn að vera að reyna að ná í þá í allan dag til að lesa yfir hausamótunum á þeim. Ekkert gekk. Ég gerði skrifstofurnar á 3. hæð sem ég hef verið að vinna í klárar undir málningu og vatt mér svo í að skipta um skrá á annarri skrifstofu. Það kostaði ótal ferðir út í BYKO, því ekkert af því sem ég keypti virtist ætla að passa. Það er stundum þannig.
Jórunn hringdi og bað mig um aðstoð við nýja eldavél sem hún var að kaupa - ég rölti þangað auðvitað, enda besti nágranninn minn - svo á hún líka svo assgoti góðan jólasnaps sem er engu líkur og smákökur sem eru barasta bestu smákökur í öllum heiminum og gegna nafninu Sörur. Ótrúlega skynsamar smákökur. Ég get étið þær endalaust
. Við redduðum þessari eldavél auðvitað í sameiningu. Kláraði síðan þetta skráarvandamál og fór svo heim.
Ó, já - svo hringdi kona af Suðurlandi og pantaði galdrakönnur. Það er nú gott. Ég er nefnilega svolítið stressaður yfir sölunni í Galdrabúðinni fyrir jólin.
ble-si.

06 desember 2002
05 desember 2002
Eins og áður er sagt þá er ég á leið til Danmerkur eftir hálfan mánuð. Af því tilefni hef ég ákveðið að skrifa einungis á dönsku þar til. Jafnvel þau orð sem ég kann ekki.
Byrjar ... núna !
Jeg ved ikke godt hvad jeg skal sige nu. Det er lidt svært at tænke sådan på dansk. Jeg kan slet ikke huske nogen ting fordi alting går i circler. Jeg håber det er dansk - eller er jeg skræk of jeg er dårligt betraget.
Mojns - til næst.

Það er orðið langt síðan ég hef sinnt þessari dagbók. Ekkert síðan ég var á einhverju Internet-kaffi í Berlín. En nú ætla ég að reyna að gera bragabót á því.
Það er annars fátt á seiði þessa dagana. Að vísu er þriðja umræða fjárlaga á Alþingi í dag og grenjandi rigning. Auk þess sem það er hávaðarok. Bíllinn minn er bilaður og vill ekki í gang og ég finn ekki vegabréfið mitt. Skil ekki hvar í fjáranum ég hef sett það.
Ég byrjaði í gær að skipta einni skrifstofu akademíunnar á 3. hæð í tvær og þyrfti helst að klára það á næstu dögum. Svo það verði frá og ég geti einbeitt mér að því að finna vegabréfið mitt ásamt svo mörgu öðru.
Það eru akkúrat 2 vikur og einn dagur þar til við förum til Danmerkur við feðgarnir og tengdadóttir. Öllum hlakkar til.

30 júlí 2002
Loksins hef ég tíma til að tjá mig örlitíð. Er staddur á Internetkaffi í miðborg Berlín. Við náðum til Berlínar í gær eftir langt ferðalag frá Íslandi. Lentum í Munchen um kl. 6 um morguninn og við tók alltof löng lestarferð til Berlínar. 6 tímar!!! Algjörlega uppgefnir þegar þangað kom.
En Cordula tók vel á móti okkur og það urðu miklir fagnaðarfundir. Smávegis híferi í gærkvöldi en snemma á fætur í morgun. Erum búin að vera að skoða borgina í allan dag. Byrjaði daginn á því að kaupa mér sandalaskó og stuttbuxur. Veðrid er nefnilega svakalegt. Búið að vera 38 stiga hiti látlaust og sólin að missa vitið.
Skoðuðum Hexensýninguna í dag. Það var gaman. Hittum Rosemarie á fimmtudaginn en hún er kúratorinn fyrir sýningunni. Framundan er að snæða, - bara strax eftir að ég hef lokið mér af hérna. Maggi liggur úti á túni fyrir utan og les en Cordula er á fundi með samnemendum sínum. Ég er þreyttur en mjög ánægður.

29 júlí 2002
28 júlí 2002
Þá fer að koma að því. Sunnudagurinn runninn upp svo það er eins gott að láta hendur standa fram úr ermum og gera það sem ég ætlaði mér að gera í dag ... og í gær. Ég gerði nefnilega bara 20% af því sem ég ætlaði í gær. Það er náttúrulega agalegt. Í gærkvöldi fékk ég í hendurnar fyrsta eintakið af kvikmyndinni um hátíðina "Galdrastef á Ströndum". Það er stórglæsilegt verk. Mikil magia þar á ferð. Kannski rétt að benda á það hér að það verður hægt að kaupa myndina á myndbandi. Bara að hafa samband við mig og skrá nafn sitt niður. Ég verð að muna eftir að auglýsa þetta í Tilberaklúbbnum og á heimasíðu Galdrasýningarinnar.
Í dag verð ég að þrífa íbúðina mína hátt og lágt svo hún verði nú brosandi þegar ég kem heim aftur frá Berlín. Fægja silfrið og solleiðis. Maggi á Bakka, hinn galdramaðurinn sem fer til Berlín kemur með rútunni að norðan í kvöld og þá förum við beint upp á völl og hefjum ferðina. Það verður tekið á loft skömmu eftir miðnætti þannig að næstu nótt verður sofið sitjandi. Annars finnst mér ferlega sorglegt að Jóka komist ekki með líka. Það hefði nú verið aldeilis fjör. Ég verð að finna þessar karamelluhjúpuðu hnetur og kaupa fulla síldartunnu af þeim handa henni. En núna verð ég að koma mér að verki. Hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér.
En lítum aðeins á veðurspána í Berlín áður.
Vá!! Ekki amalegt. Bara 29 stiga hiti og sól.

27 júlí 2002
Mig dreymdi agalegan draum í nótt. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að túlka hann. Kannski ætti ég alveg að láta það vera.
En ég var semsagt lentur á flugvellinum í Munchen, grútsyfjaður og skakkur eftir setuna. Þegar ég kem inn í flugstöðina þá voru málarar úti um allt að vinna og þessvegna búið að breiða yfir allar leiðbeiningar í flugstöðinni. Ég rataði ekki út og ráfaði um flugstöðina klukkustundum saman. Loksins rambaði ég gegnum einhverjar dyr og komst undir bert loft en þá var ég búinn að missa af lestinni til Berlín. Það var ekki verst. Því öll hótel og gistiheimili voru uppbókuð vegna einhvers asnalegs fótboltaleiks í borginni og ég þurfti að sofa undir einhverri brú og það rigndi. Látlaust.
Er það nokkur furða að maður þjáist af flugstöðvafóbíu.

26 júlí 2002
Hugurinn er allur að hverfa meira og meira í austurslóð. Best að ég skrifi nokkrar leiðinlegar staðreyndir um Þýskaland svona á meðan að þið bíðið eftir að ég fari.
Þýskaland er 357.000 ferkílómetrar að stærð og langfjölmennasta land Evrópu með 81,6 milljónir íbúa sem er u.þ.b. 281 sinnum fleiri en íbúar á Íslandi. Þýskaland er einnig eitt mesta ferðamannaland heims, en tugir milljóna manna heimsækja landið árlega. Frá nyrsta hluta landsins, sem er eyjan Sylt við landamæri Danmerkur, og til þess syðsta í þorpinu Oberstdorf í Ölpunum við Allgäu, eru næstum 880 kílómetrar. Fjarlægðin vestan frá þorpinu Selfkant við hollensku landamærin, austur að Lausitz Neisse hjá Deschka nærri Póllandi er 640 kílómetrar. Þýskaland á landamæri við mörg lönd sem skýrir fjölbreytileika menningarinnar. Í norðri er Danmörk, í austri eru Pólland og Tékkland, í suðri Austurríki og Sviss, í suðvestri Frakkland og Luxemburg og í norðvestri eru Belgía og Holland. Hæsta fjall landsins er Zugspitze, 2.962 metrar sem er bara ansi hátt. Til viðmiðunar þá er Hvannadalshnjúkur 2.119 metrar og Himmelbjerget í Danmörku 147 metrar þannig að sjá má að Zugspitze er hærra en hæstu fjöll Íslands og Danmerkur samanlagt.
Hérna er svo kort af Berlínarborg ef þið þurfið að finna mig.

Það var að koma svo ansi skemmtilegt grein á bb.is fyrir skemmstu og tel ég mér það skylt að koma henni enn frekar á framfæri.
Hva? Maður má nú misnota aðstöðu sína öðru hvoru!!
Ble-si.
Hva? Maður má nú misnota aðstöðu sína öðru hvoru!!
Ble-si.
Leit upp frá verkinu, fékk mér kaffisopa og kveikti mér í sígarettu. Hallaði mér svo aftur í stólinn og ráfaði síðan óvart hingað inn á bloggerinn.
En ég ætla ekki að segja neitt, því orð geta vegið þyngra en steinar - og dregið mann niður.
Ef fuglar gætu talað þá gætu þeir líklega ekki flogið.

Það styttist og styttist í ferðina til Berlín. Nú sit ég sveittur við að koma verkum frá mér svo ég þurfi nú ekki að hafa miklar áhyggjur af því í útlandinu. En ég tek nú tölvuna með mér eins og alltaf og finn væntanlega tíma til að vinna eitthvað líka. Það er eiginlega nauðsynlegt. Ég er nú samt búinn að koma heilmiklu í verk í morgun.
Ble-si.
Ble-si.
Það er alltaf verið að telja fólki trú um það að framhjáhald borgi sig ekki. Hvað segið þið þá um þetta? Einhver gæti farið að efast.
The first divorce directly related to the September 11th terrorist attack has been filed in New York. It appears a guy with an office on the 103rd floor of the World Trade Centre spent his morning at his girlfriend´s apartment with his phone turned off. He wasn´t watching TV either. When he turned his phone back on at about 11 am, it rang immediately. It was his hysterical wife. “Are you OK? Where are you?” He said. “What do you mean? Im at my office of course!”
Hann er allavega á lífi - mannhelvítið!!!

25 júlí 2002
Ég var nú aldrei búinn að segja frá því hérna hvað ég er að fara að gera í Berlín. Ég er að fara þar á galdrasýningu á Deutsches Historisches Museum. Þannig var að fyrir nokkrum vikum fengum við tölvupóst frá safninu með hvatningu um að heimsækja Berlín og skoða sýninguna, sem á uppruna sinn í Luxemburg og Trier. Þetta er svolítið skemmtilegt því hún var sett upp á nákvæmlega sama tíma og Galdrasýning á Ströndum - í Luxemburg en hefur nú verið flutt tímabundið til Berlín. Vonandi kemur eitthvað út úr þessu ferðalagi okkar. Það væri gott. En hérna er semsagt linkur inn á eina af síðum safnsins þar sem hægt er að nálgast hreyfimyndir af galdrasýningunni þar sem nefnist "Hexenwahn".
Ble-si
Ble-si
Ekki skil ég í þessu veðurlagi. Júlí mánuður er brátt á enda og það hefur varla skinið sólin það sem af er mánuðinum. Það er agalegt. Ýmist rok eða rigning eða rok og rigning. Ég ætla nú bara rétt að vona að tíðin verði skárri í Berlín. Þessa stundina er þar 18 stiga hiti og samkvæmt spánni þá verður þar 27 stiga hiti á mánudaginn. Það er ekki agalegt. Og ekki heldur amalegt.
Ég tek gleði mína á ný.
Ble-si
Ég tek gleði mína á ný.
Ble-si
Nú er Björn bóndi heldur að hressast myndi ég halda. Smá sljóleiki er þó ennþá yfir vitundinni en pestin er horfin. Allt í einu fæ ég gríðarlegar áhyggjur yfir hverju ég eigi eiginlega að klæðast í Þýskalandi. Ég á bara þennan mammút-þykka leðurjakka og á nú frekar von á því að það verði bongó-veður í Berlín. Verð að huxa málið frekar.
Ble-si.
Ble-si.
24 júlí 2002
Jíííí, mér líður svolítið illa yfir woodúinu, sem ég lagði á Berlínarfarana. Allt vegna þess að mig langaði til að komast úr rigningunni. Ég vona núna að það verði ekki ég sem þarf að fara með Magnúsi til Berlín, ég á það nefnilega ekki skilið. Ég legg svo á og mæli um að Sigga Atla verði batnað á morgun.
Skelfing er að vera svona lasinn eins og ég hef verið í dag. Þetta er agalegt.
Þessi andskoti birtist mér í nótt og þegar líða fór á daginn þá fór hann að birtast í ýmsum myndum svo fjölbreytnin er með ólíkindum, með vindverkjum sterkum, vondu kvefi, ræmu í kverkum og eymsli í nefi og svo er þrálátur hósti og eymsli fyrir brjósti.
Þetta er agaleg líðan. Mætti ég þá frekar biðja um hressilega þynnku.
Ég er hvorki heill né hálfur maður.

Ég er búinn að vera að aðstoða hana Jórunni - fyrirmynd mína hér á blogginu við að breyta hennar útliti. Á blogginu þ.e.a.s. Ég er nú svoldið ánægður með mig að svona veraldarvanur bloggari sem hún er skuli leita ráða hjá mér. Jafn mikill grænjaxl og ég er í þessu.
Ble-si.
Ble-si.
Ég á ennþá í hinu mesta basli við að stilla réttan tíma hérna inn. Það getur ekki verið að sólin sé alltaf jafnvitlaus - nótt sem dag. Ég sem hef haldið öll þessi ár að við séum á [GMT 0:00] Greenwich Mean Time á þessu guðsvolaða landi þar sem aldrei neitt merkilegt gerist og þarf ekki einu sinni að stilla klukkuna eins og í almennilegum útlöndum.
Ble-si
Ble-si
23 júlí 2002
Þetta er snjallt. Hér er hægt að setja inn myndir og allskonar. Þá hendi ég inn einum brandara líka. Ekkert sérstaklega fyndnum - en þó eitthvað.
Ble-si
Ble-si
Það eru aldeilis fínheitin. Skildi einhver einhverntíman sjá þetta? Hvernig væri að setja inn eina feita mynd.
Ble-si
Ble-si
Jæja. Það var aldrei að maður fór ekki á Bloggið líkt og aðrir. Annars finnst mér Bloggið frekar asnalegt nafn. En vinkona mín Jórunn benti mér á þetta. Hún er náttúrulega fyrirmynd mín í þessu öllu saman og vísa ég því beint á hana hér henni til heiðurs.
Ble-si
Ble-si