05 desember 2002

Það er orðið langt síðan ég hef sinnt þessari dagbók. Ekkert síðan ég var á einhverju Internet-kaffi í Berlín. En nú ætla ég að reyna að gera bragabót á því.
Það er annars fátt á seiði þessa dagana. Að vísu er þriðja umræða fjárlaga á Alþingi í dag og grenjandi rigning. Auk þess sem það er hávaðarok. Bíllinn minn er bilaður og vill ekki í gang og ég finn ekki vegabréfið mitt. Skil ekki hvar í fjáranum ég hef sett það.
Ég byrjaði í gær að skipta einni skrifstofu akademíunnar á 3. hæð í tvær og þyrfti helst að klára það á næstu dögum. Svo það verði frá og ég geti einbeitt mér að því að finna vegabréfið mitt ásamt svo mörgu öðru.
Það eru akkúrat 2 vikur og einn dagur þar til við förum til Danmerkur við feðgarnir og tengdadóttir. Öllum hlakkar til.

Engin ummæli: