09 desember 2002

Þá er nú þessi annar sunnudagur í aðventu fyrir þessi jól liðinn. Þessi dagur var alveg bærilegur - hlýindi á götum úti og fjöllum uppi. Sumum leið betur en öðrum. Það er eins og það er alla daga. Hver dagur líður sitt á hvað þjáningarfullur eða fullur af lífshamingju og gleði. Minn var nú bara svona venjulegur. Hefði allt eins getað verið miðvikudagur - það var fátt sem gerði hann öðruvísi enn venjulegan dag í miðri viku fyrir utan það að Stundin okkar var í Sjónvarpinu. En ég missti af henni í þetta skipti og hugga mig við það að Stundin verður endursýnd seinna í vikunni.
En ég er glaður - ég vann í Lottóinu í gær - fúlgur fjár. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að höndla þessi auðæfi. Ég hef þó ákveðið að halda ró minni og hugsa málið fram yfir áramót. Það er skynsamlegast í stöðunni.
Jórunn vinkona mín og besti nágranni hafði það skítt þennan annan sunnudag í aðventu - hún fékk aðeins of mikið í tána aðfaranótt sunnudags og var af þeim sökum ekki alveg að meika það í dag. Þetta er ekkert auðvelt og hún á alla mína samúð. En þetta lagast. Seinna. Kannski á morgun.
Kannski ekki.
Ble-si

Engin ummæli: