Nú liggja úrslitin fyrir í skoðanakönnuninni miklu. Spurningin var: Hvenær kemur veturinn?
Nákvæmlega helmingur þjóðarinnar er sannfærður um að Vetur konungur banki upp á milli jóla og nýárs. Samtals voru greidd 22 atkvæði sem skiptust jafnt milli aldurs og kynja.
Frábær þátttaka! En þá er komið að næstu könnun. Nú langar mig að vita í eitt skipti fyrir öll um hug þjóðarinnar gagnvart Landsvirkjun sem hefur legið undir þungum sökum um náttúruspjöll undanfarin ár. Ég er sjálfur búinn að snúast í ótal hringi og stundum ekkert vitað í þennan haus eða hinn. Upplýsið mig og takið þátt!
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli