Krakkarnir komu öll í kvöld og við vorum svona að spá í ferðatilhögunina. Pabbi hennar Hafdísar ætlar að keyra okkur út á flugvöll og svo skoðuðum við kort af Köben. Atli kom brunandi að norðan með rafmagnstannburstan í gangi í ferðatöskunni sinni. Ég var voða feginn þegar við fundum út að hávaðinn fylgdi honum en ekki úr mögulega biluðu sjónvarpi.
Svo kom Jórunn í heimsókn og við spjölluðum um hitt og þetta - verst að hún geti ekki komið með - hún hefði nefnilega ferlega gott af því að yfirgefa slompið í Reykjavík City smástund. En hún hlýtur að meika þetta einhvernvegin. Það eru nú að koma jól og fullt af allskyns undarlegum jólasveinum á kreiki þó ég sinni Evrópu í smátíma.
Faldafeykir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli