30 júlí 2002

Loksins hef ég tíma til að tjá mig örlitíð. Er staddur á Internetkaffi í miðborg Berlín. Við náðum til Berlínar í gær eftir langt ferðalag frá Íslandi. Lentum í Munchen um kl. 6 um morguninn og við tók alltof löng lestarferð til Berlínar. 6 tímar!!! Algjörlega uppgefnir þegar þangað kom.
En Cordula tók vel á móti okkur og það urðu miklir fagnaðarfundir. Smávegis híferi í gærkvöldi en snemma á fætur í morgun. Erum búin að vera að skoða borgina í allan dag. Byrjaði daginn á því að kaupa mér sandalaskó og stuttbuxur. Veðrid er nefnilega svakalegt. Búið að vera 38 stiga hiti látlaust og sólin að missa vitið.
Skoðuðum Hexensýninguna í dag. Það var gaman. Hittum Rosemarie á fimmtudaginn en hún er kúratorinn fyrir sýningunni. Framundan er að snæða, - bara strax eftir að ég hef lokið mér af hérna. Maggi liggur úti á túni fyrir utan og les en Cordula er á fundi með samnemendum sínum. Ég er þreyttur en mjög ánægður.
Ble-si

29 júlí 2002

Hæ Siggi,
Vonandi ertu kominn til Berlin. Kvefið hefur örugglega orðið eftir í Keflavík. Ef þú getur verið í leðurjakkanum í allan dag, færðu verðlaun þegar þú kemur heim. Ástar og saknaðar til Cordulu.

28 júlí 2002

Úff - það var erfitt að ákveða hvaða fötum átti að pakka. Ég er alveg uppgefinn.
Ble-si
Vá - það er orðið stutt í að ég fari til Berlín. Örstutt. Ekki nema 2380 km.

Ble-si
Þá fer að koma að því. Sunnudagurinn runninn upp svo það er eins gott að láta hendur standa fram úr ermum og gera það sem ég ætlaði mér að gera í dag ... og í gær. Ég gerði nefnilega bara 20% af því sem ég ætlaði í gær. Það er náttúrulega agalegt. Í gærkvöldi fékk ég í hendurnar fyrsta eintakið af kvikmyndinni um hátíðina "Galdrastef á Ströndum". Það er stórglæsilegt verk. Mikil magia þar á ferð. Kannski rétt að benda á það hér að það verður hægt að kaupa myndina á myndbandi. Bara að hafa samband við mig og skrá nafn sitt niður. Ég verð að muna eftir að auglýsa þetta í Tilberaklúbbnum og á heimasíðu Galdrasýningarinnar.
Í dag verð ég að þrífa íbúðina mína hátt og lágt svo hún verði nú brosandi þegar ég kem heim aftur frá Berlín. Fægja silfrið og solleiðis. Maggi á Bakka, hinn galdramaðurinn sem fer til Berlín kemur með rútunni að norðan í kvöld og þá förum við beint upp á völl og hefjum ferðina. Það verður tekið á loft skömmu eftir miðnætti þannig að næstu nótt verður sofið sitjandi. Annars finnst mér ferlega sorglegt að Jóka komist ekki með líka. Það hefði nú verið aldeilis fjör. Ég verð að finna þessar karamelluhjúpuðu hnetur og kaupa fulla síldartunnu af þeim handa henni. En núna verð ég að koma mér að verki. Hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér.
En lítum aðeins á veðurspána í Berlín áður.
Vá!! Ekki amalegt. Bara 29 stiga hiti og sól.
Ble-si.

27 júlí 2002

Mig dreymdi agalegan draum í nótt. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að túlka hann. Kannski ætti ég alveg að láta það vera.
En ég var semsagt lentur á flugvellinum í Munchen, grútsyfjaður og skakkur eftir setuna. Þegar ég kem inn í flugstöðina þá voru málarar úti um allt að vinna og þessvegna búið að breiða yfir allar leiðbeiningar í flugstöðinni. Ég rataði ekki út og ráfaði um flugstöðina klukkustundum saman. Loksins rambaði ég gegnum einhverjar dyr og komst undir bert loft en þá var ég búinn að missa af lestinni til Berlín. Það var ekki verst. Því öll hótel og gistiheimili voru uppbókuð vegna einhvers asnalegs fótboltaleiks í borginni og ég þurfti að sofa undir einhverri brú og það rigndi. Látlaust.
Er það nokkur furða að maður þjáist af flugstöðvafóbíu.
Ble-si

26 júlí 2002

Hugurinn er allur að hverfa meira og meira í austurslóð. Best að ég skrifi nokkrar leiðinlegar staðreyndir um Þýskaland svona á meðan að þið bíðið eftir að ég fari.
Þýskaland er 357.000 ferkílómetrar að stærð og langfjölmennasta land Evrópu með 81,6 milljónir íbúa sem er u.þ.b. 281 sinnum fleiri en íbúar á Íslandi. Þýskaland er einnig eitt mesta ferðamannaland heims, en tugir milljóna manna heimsækja landið árlega. Frá nyrsta hluta landsins, sem er eyjan Sylt við landamæri Danmerkur, og til þess syðsta í þorpinu Oberstdorf í Ölpunum við Allgäu, eru næstum 880 kílómetrar. Fjarlægðin vestan frá þorpinu Selfkant við hollensku landamærin, austur að Lausitz Neisse hjá Deschka nærri Póllandi er 640 kílómetrar. Þýskaland á landamæri við mörg lönd sem skýrir fjölbreytileika menningarinnar. Í norðri er Danmörk, í austri eru Pólland og Tékkland, í suðri Austurríki og Sviss, í suðvestri Frakkland og Luxemburg og í norðvestri eru Belgía og Holland. Hæsta fjall landsins er Zugspitze, 2.962 metrar sem er bara ansi hátt. Til viðmiðunar þá er Hvannadalshnjúkur 2.119 metrar og Himmelbjerget í Danmörku 147 metrar þannig að sjá má að Zugspitze er hærra en hæstu fjöll Íslands og Danmerkur samanlagt.
Hérna er svo kort af Berlínarborg ef þið þurfið að finna mig.
Ble-si
Það var að koma svo ansi skemmtilegt grein á bb.is fyrir skemmstu og tel ég mér það skylt að koma henni enn frekar á framfæri.
Hva? Maður má nú misnota aðstöðu sína öðru hvoru!!
Ble-si.
Leit upp frá verkinu, fékk mér kaffisopa og kveikti mér í sígarettu. Hallaði mér svo aftur í stólinn og ráfaði síðan óvart hingað inn á bloggerinn.
En ég ætla ekki að segja neitt, því orð geta vegið þyngra en steinar - og dregið mann niður.
Ef fuglar gætu talað þá gætu þeir líklega ekki flogið.
Ble-si.
Það styttist og styttist í ferðina til Berlín. Nú sit ég sveittur við að koma verkum frá mér svo ég þurfi nú ekki að hafa miklar áhyggjur af því í útlandinu. En ég tek nú tölvuna með mér eins og alltaf og finn væntanlega tíma til að vinna eitthvað líka. Það er eiginlega nauðsynlegt. Ég er nú samt búinn að koma heilmiklu í verk í morgun.
Ble-si.
Það er alltaf verið að telja fólki trú um það að framhjáhald borgi sig ekki. Hvað segið þið þá um þetta? Einhver gæti farið að efast.
The first divorce directly related to the September 11th terrorist attack has been filed in New York. It appears a guy with an office on the 103rd floor of the World Trade Centre spent his morning at his girlfriend´s apartment with his phone turned off. He wasn´t watching TV either. When he turned his phone back on at about 11 am, it rang immediately. It was his hysterical wife. “Are you OK? Where are you?” He said. “What do you mean? Im at my office of course!”
Hann er allavega á lífi - mannhelvítið!!!
Ble-si.

25 júlí 2002

Ég var nú aldrei búinn að segja frá því hérna hvað ég er að fara að gera í Berlín. Ég er að fara þar á galdrasýningu á Deutsches Historisches Museum. Þannig var að fyrir nokkrum vikum fengum við tölvupóst frá safninu með hvatningu um að heimsækja Berlín og skoða sýninguna, sem á uppruna sinn í Luxemburg og Trier. Þetta er svolítið skemmtilegt því hún var sett upp á nákvæmlega sama tíma og Galdrasýning á Ströndum - í Luxemburg en hefur nú verið flutt tímabundið til Berlín. Vonandi kemur eitthvað út úr þessu ferðalagi okkar. Það væri gott. En hérna er semsagt linkur inn á eina af síðum safnsins þar sem hægt er að nálgast hreyfimyndir af galdrasýningunni þar sem nefnist "Hexenwahn".
Ble-si
Ekki skil ég í þessu veðurlagi. Júlí mánuður er brátt á enda og það hefur varla skinið sólin það sem af er mánuðinum. Það er agalegt. Ýmist rok eða rigning eða rok og rigning. Ég ætla nú bara rétt að vona að tíðin verði skárri í Berlín. Þessa stundina er þar 18 stiga hiti og samkvæmt spánni þá verður þar 27 stiga hiti á mánudaginn. Það er ekki agalegt. Og ekki heldur amalegt.
Ég tek gleði mína á ný.
Ble-si
Nú er Björn bóndi heldur að hressast myndi ég halda. Smá sljóleiki er þó ennþá yfir vitundinni en pestin er horfin. Allt í einu fæ ég gríðarlegar áhyggjur yfir hverju ég eigi eiginlega að klæðast í Þýskalandi. Ég á bara þennan mammút-þykka leðurjakka og á nú frekar von á því að það verði bongó-veður í Berlín. Verð að huxa málið frekar.
Ble-si.

24 júlí 2002

Jíííí, mér líður svolítið illa yfir woodúinu, sem ég lagði á Berlínarfarana. Allt vegna þess að mig langaði til að komast úr rigningunni. Ég vona núna að það verði ekki ég sem þarf að fara með Magnúsi til Berlín, ég á það nefnilega ekki skilið. Ég legg svo á og mæli um að Sigga Atla verði batnað á morgun.
Skelfing er að vera svona lasinn eins og ég hef verið í dag. Þetta er agalegt.
Þessi andskoti birtist mér í nótt og þegar líða fór á daginn þá fór hann að birtast í ýmsum myndum svo fjölbreytnin er með ólíkindum, með vindverkjum sterkum, vondu kvefi, ræmu í kverkum og eymsli í nefi og svo er þrálátur hósti og eymsli fyrir brjósti.
Þetta er agaleg líðan. Mætti ég þá frekar biðja um hressilega þynnku.
Ég er hvorki heill né hálfur maður.
Ble-si
Ég er búinn að vera að aðstoða hana Jórunni - fyrirmynd mína hér á blogginu við að breyta hennar útliti. Á blogginu þ.e.a.s. Ég er nú svoldið ánægður með mig að svona veraldarvanur bloggari sem hún er skuli leita ráða hjá mér. Jafn mikill grænjaxl og ég er í þessu.
Ble-si.
TIL HAMINGJU MEÐ BLOGGIÐ! Þú ert strax búin að taka forystuna og orðinn "the ultimate bloggking". Takk fyrir boðið. Jórunn
Ég á ennþá í hinu mesta basli við að stilla réttan tíma hérna inn. Það getur ekki verið að sólin sé alltaf jafnvitlaus - nótt sem dag. Ég sem hef haldið öll þessi ár að við séum á [GMT 0:00] Greenwich Mean Time á þessu guðsvolaða landi þar sem aldrei neitt merkilegt gerist og þarf ekki einu sinni að stilla klukkuna eins og í almennilegum útlöndum.
Ble-si
Best að drífa sig á fætur og fara að gera eitthvað. Byrja á nokkrum leikfimisæfingum - og laga svo kaffi. Skildu einhverjir sem ég þekki vera vaknaðir? Örugglega ekki, en kannski einhverjir sem ég þekki ekki og einhverjir útlendingar austan megin við okkur.
Ble-si
Ó, ég verð að tilkynna eitt. Ég er víst að fara til Berlínar n.k. aðfaranótt mánudags.
Ég geri frekar ráð fyrir að segja frá einu og öðru sem gerist í þeirri ferð hér.
Ble-si

23 júlí 2002

Ja-hérna hér. Það er nú gaman af þessu, strípalíngur. Best að ég veifi öllum góða nótt og hætti að nördast í bili.
Ble-si.
Já - svona er nú það. Klukkan er orðin 11:38 þó tíminn hér að neðan segi eitthvað allt annað. En það er bara af því að sólin er vitlaus.
Ble-si
Þetta er snjallt. Hér er hægt að setja inn myndir og allskonar. Þá hendi ég inn einum brandara líka. Ekkert sérstaklega fyndnum - en þó eitthvað.
Ble-si
Það eru aldeilis fínheitin. Skildi einhver einhverntíman sjá þetta? Hvernig væri að setja inn eina feita mynd.
Ble-si
Jæja. Það var aldrei að maður fór ekki á Bloggið líkt og aðrir. Annars finnst mér Bloggið frekar asnalegt nafn. En vinkona mín Jórunn benti mér á þetta. Hún er náttúrulega fyrirmynd mín í þessu öllu saman og vísa ég því beint á hana hér henni til heiðurs.
Ble-si