Mikið lifandi skelfing er ég búinn að vera duglegur í þessum norðurtúr. Ég er búinn að rústa innganginum að sýningunni - brjóta og bramla og er langt kominn við að smíða nýtt afgreiðsluborð - úr rekaviði af Ströndum. Ég er auk þess búinn að fara í Bjarnarfjörð og Drangsnes. Það eru búin að vera hlýindi og hið besta veður að auki.
Á morgun held ég bara áfram að gera það sem þarf að gera á sýningunni - klára að smíða borðið og tek svo til við að laga sýningaratriðin, pússa gler og fleira. Ég er búinn að taka fullt af myndum til að bæta á margmiðlunardiskinn - sem er að gera góða lukku. Enda er hann jarmandi fínn.
Jamm og já - þetta dugar núna.
Ble-si
27 maí 2003
25 maí 2003
Ég er að fara norður seinnipartinn í dag og verð þar næstu 10 daga. Næsta sunnudag opnar Galdrasýning á Ströndum að nýju en það er eitt og annað sem þarf að gera þar áður. Sérstaklega að breyta aðkomunni - færa afgreiðsluborðið og opna þannig búðina betur og taka öll gler niður af skápunum og þrífa uppsafnaðan fuglaskít.
Margmiðlunardiskurinn er tilbúinn að grunninum til - bara eftir að ganga frá leyfum fyrir tónlistinni. Þyrfti að ná í Hilmar Örn í dag og fá hjá honum tónlistina sem hann samdi fyrir Galdrahátíðina miklu 2001.
Annars hef ég átt í þó nokkrum vandræðum með forritið sem ég nota til þessarar margmiðlunargerðar. Tölvan mín er ekkert að gúdera það. En þetta hefst allt með þolinmæðinni.

24 maí 2003
22 maí 2003
Ég er svo hrikalega niðursokkinn í þessa margmiðlun að ég hvorki ét, drekk né sef. Enda er útkoman að verða gulls ígildi. Ég er viss um að þetta rýkur út hraðar en heitar lummur, sem mér hafa reyndar aldrei þótt neitt sérstakar.
En þessi diskur verður nábrók og flæðarmús galdrasýningarinnar. Það er víst.

19 maí 2003
Síðustu þrjá daga hef ég verið gagntekinn af margmiðlunardiski sem hægt verður að kaupa á Galdrasýningunni í sumar. Hann er orðinn svo glæsilegur og alveg milljóna milljóna virði. Frábær kynning. Ég er snillingur. Ég skal hundur heita ef við seljum ekki minnst 200 stykki af honum í sumar og borgum með því yfirdráttarheimildarvexti ársins.
Ég er bjartsýnn og glaður.
Ble-si
Ég er bjartsýnn og glaður.
Ble-si
17 maí 2003
Jæja - þá styttist í sýninguna hjá Leikfélagi Hólmavíkur í Tjarnarbíó. Ég er að gera lapkássuna sem verður tilbúin eftir sýninguna. Ég man það svo vel sjálfur hvað það var gott að fá eitthvað að éta eftir sýningarinnar þegar ég nennti að standa í þessu leikstússi.
Ég hlakka til að sjá Sex í sveit - klukkan hálfníu í kvöld.

16 maí 2003
Ágæt mæting í ungann. Áki var fyrstur - svo kom ég og síðan svo kom Óskar með systurnar Loðmfjörð í eftirdragi og Valdimar kom í lokin. Saga - ómælandi stúlkubarn kom einnig, dóttir þeirra hjóna Pálsdóttir/Sigurðsson.
Alltaf þótt erfitt að drekka í návist barna, en lét mig hafa það í þetta skipti.
Fékk mér snarl á leiðinni heim og át það við Reykjavíkurtjörn. Það er líka að verða skemmtileg hefð hjá mér. Það er stund sem ég á með mér einum undir fersku lofti og kvakandi öndum og álftum ásamt öðrum gargandi stélfénaði.
En ég þegi bara og ét og garga því ekkert.

15 maí 2003
Krían er komin til Jóns. Mikið er ég nú ánægður yfir því. Honum er búið að líða afar illa yfir kríuleysinu og var farinn að kenna sér ýmsan krankleika. En hún kom daginn eftir að ég settist undir feld og hugsaði um Jón og kríuna í kveðskapsformi.
Krían ei komin að kjaga burt kjóann
kíta og klóra krakkanna klið.
Klökkur ég kúri í kotinu hlýja
kranklega kallandi hvar ertu kría?
Svo kom krían
Kætist nú kallinn er loks hún á kreik
kraflar úr koti - sér bregður á leik.
Ákallar drottinn með krumlur í kross
krían er komin - með kveðju frá oss.
Ble-si
Krían ei komin að kjaga burt kjóann
kíta og klóra krakkanna klið.
Klökkur ég kúri í kotinu hlýja
kranklega kallandi hvar ertu kría?
Svo kom krían
Kætist nú kallinn er loks hún á kreik
kraflar úr koti - sér bregður á leik.
Ákallar drottinn með krumlur í kross
krían er komin - með kveðju frá oss.
Ble-si
Ég er kominn heim aftur eftir góða ferð norður á Strandir. Fór í gær og það var stjórnarfundur hjá Strandagaldri. Margar merkilegar ákvarðanir teknar sérstaklega minnisstæð ákvörðunin um útgáfu bókarinnar Angurgapi.
Það kom útlendingur norður í gærkvöldi til þess að skoða sýninguna. Ég fór í gegnum hana með honum og missti því af upphafi fundarins. Mér tókst að selja honum vörur fyrir sjö þúsund krónur. það var vel af sér vikið - sérstaklega þegar mér tókst að selja honum óútkomna bókina - og fá hana greidda.
Gisti í Bjarnarfirði og drakk nokkra öll með þeim hjúum þar fyrir svefninn. Við skemmtum okkur konunglega yfir Jóni í Sjónvarpinu. Hann var stórkostlega fyndinn og magnaður. Kíkti líka á Matta á Laugarhóli - hann er langt kominn með sýningartextann á frönsku. Það er gott.
Var svo á sýningunni að dedúa eitt og annað í morgun. Fór og fékk mér pulsu og uppgötvaði mér til skelfingar að ég var ekki með debetkortið mitt. Hringdi því í Bauluna þar sem ég notaði þar síðast og var tjáð að það væri komið í Búnaðarbankann í Borgarnesi. Flýtti þá för suður til að ná bankanum fyrir lokun.
Svo hér er ég - kominn heim aftur. Er búinn að færa bókhaldið og allt í orden.
Í kvöld ætla ég að hjálpa Jórunni með margmiðlunarverkefnið hennar. Það lítur vel út hjá henni. Hún þarf engar áhyggjur að hafa og skilar því með bravör á laugardaginn.
Ble-si
p.s. Minni á að það eru aðeins tveir dagar í sýningu Sex í sveit Leikfélags Hólmavíkur í Tjarnarbíói á laugardaginn kemur klukkan 20:30. Allir sem ég þekki að mæta og fara svo í partý á eftir. Meira um það seinna.

13 maí 2003
Ég veit ekki hvort ég eigi að segja að bloggið sé að virka eða að bloggið sé bara ekkert að virka. Það er þannig komið fyrir mér og mörgum öðrum sem stunda þessar sérstöku dagbókarfærslur að við höfum ekkert að segja við hvort annað. Ég til dæmis upplifa mig stundum eins og ég sé alltaf að endurtaka sjálfan mig.
Það kemur alltof oft fyrir að maður hittir einhvern sér vel málkunnugan og ætlar að leita frétta af viðkomandi eða segja fréttir af sjálfum sér, hvað maður sé að taka sér fyrir hendur eða hvað gangi á í hausnum á manni, að viðmælandinn gónir á mann tómlegum augum og segir snöggt á milli súpuskeiða: Já, ég las það á blogginu þínu, og hefur meiri áhuga á að telja sveppina, brokkólíið eða hvað annað sem finnst á botni skálarinnr. Það er eiginlega þannig komið fyrir hjá mér líkt og hjá öðrum bloggurum sem ég þekki að við sitjum bara og horfum á hvort annað og vitum varla hvernig á að brydda upp á samræðum. Oftast eru viðbrögðin á þessa leið:
"Já ég las það á blogginu þínu."
Í dag þegar ég hitti tvo góða vini mína í Norræna húsinu yfir hádegisverði þar sem stóð til að ræða málin þar sem við höfum nú ekki hitst í nokkurn tíma (edrú) þá fór það eiginlega á þann veg að við sátum hugsandi og horfðum í gegnum gluggarúðuna yfir Vatnsmýrina og reyndum að finna upp á samræðuefni sem gætu kallast fréttir af hvort öðru. Mér fannst það rather vandræðalegt og langaði mest til að hlaupa undir ís á norrænu tjörninni og drekkja mér.
En það er komið sumar svo ég ákvað að gera það ekki að sinni. Mér hefur alltaf þótt það frekar hallærislegt að drukkna í sex stiga hita eða meira. Það væru lélegar slysfarir fyrir flugsyndan mann.
Ég sé það núna að ég hefði getað sagt sögur af því þegar ég var að reykja njóla í Vatnsmýrinni í gamla daga í stað þess að maula síldina af diskinum hljóðalaust og hugsandi. Kannski hefur maður frá helling að segja. Bernskubrekum, gömlum syndum og vonlausum kvennaförum.

Agalegur fugl krían að gera mínum góða vini Jóni það að gista ekki hjá honum. Ég vona svo sannarlega að það verði ekki fyrirboði sumarsins hjá þeim skötuhjúum. Hér er kríugarg sem hann vonandi spilar sem hæst svo þær renni á hljóðið.
Ble-si
Ble-si
11 maí 2003
Jæja, þá liggja kosningaúrslitin ljós fyrir. Þetta var svakalega spennandi á úrslitasprettinum. Ótrúlega spennandi. Síðustu 500 utankjörfundaratkvæðin í Suðurkjördæmi breyttu allri stöðunni. Skyndilega náði stjórnin fimm manna meirihluta en er búin að vera með þriggja manna meirihluta alla talninguna. Mér þykir verst að flokkurinn sem er ekki til í mínum huga hélt sínum þingmannahluta.
O, jæja - skítt með það - gott að þetta er yfirstaðið.
Ég er ánægður með að sjálfstæðismenn fengu sína þrjá menn í Norðvestur. Ég er nefnilega ánægður með Einarana.
Veðrið er svo gott að ég er farinn út að leika mér. Ég fór nefnilega að sofa um klukkan tvö og vaknaði svo hálftíma áður en úrslitin lágu fyrir og er því sprækur eins og lækur.
Kannski ég fari að leita að kríu fyrir Jón og reyni að flæma hana norður. Það er ekki hægt að hafa hann svona kríulausan mikið lengur. Maðurinn er náttúrulega alveg í rusli. Hann er búinn að ráfa um tún og fjörur á landareigninni sinni stanslaust í tvo daga og garga eftir kríunni.

10 maí 2003
Hvað finnst þér að þingmenn landsins ættu að hafa í mánaðarlaun?
Þetta viðtal er þvílík argandi snilld. Það er ekki nokkur andskotans leið að leika þetta eftir. Djöfull sem ég er búinn að grenja úr hlátri yfir þessu.

Minn búinn að kjósa rétt, hefna mín á ríkisstjórninni og gera úttekt á "kosningaköffum" framboðanna.
Byrjaði á því að heimsækja Frjálslynda niðrí Aðalstræti. Meðlætið þar var svona mest þurrrar kökur, jólakökur og þannig. Gestir þar virtust mér vera langmest fólk sem er að kjósa í síðasta skipti.
Næst kom ég við í kosningakaffi sjálfstæðismanna í Austurstræti. Þar byrjuðu yngismeyjar á að gefa mér kaffipakka með kosningakaffi í. Það ilmar ágætlega en ég henti umbúðunum. Það var fátt um manninn þarna í gamla Hressingarskálanum og þeir fáu sem voru þarna voru frekar uppburðarlitlir og veitti ekki af hressingu en það er ekki beint hægt að segja að brosmildin hafi þvælst fyrir þeim. Ég greip þarna brauðskorpu með kæfu og spókaði mig um í garðinum þar sem harmonikkuleikari reyndi að halda uppi stemningunni með að mér fannst jarðarfarasálmum.
Næst lá leiðin í Lækjargötu í kosningakaffi Samfylkingarinnar. Þar var nokkuð vel útilátið. Nokkrar sortir ásamt dýrindis vöfflum auk þess kaffi og gos eins og maður gat í sig látið. En mér fannst vera svoldið mikil græðgi í gangi. Ef það hefði ekki verið sól fyrir utan og hlýviðri þá geri ég ráð fyrir að það hefði getað komið eitthvað uppá í látum fólksins við að ná sér í bita. En það var glatt á hjalla og margir kátir.
Leiðin lá þá í kosningakaffi Vinstri grænna í Ingólfsstræti. Ég varð eiginlega fyrir vonbrigðum með það. Fáar sortir - að vísu ein ágæt marensterta - svo var líka hægt að fá túnfisksalat á brauð.
Næst lá leiðin í kosningakaffi Framsóknarflokksins. En þar sem ég veit ekki hvar kosningaskrifstofa þeirra er þá var mér fyrirmunað að finna hana. Það kom ekki til greina að spurja til vegar. Læt sko engan halda að ég styðji Framsóknarflokkinn. Það gerir sko ekkert til þó ég hafi ekki fundið kosningakaffið þeirra - því fyrir mér þá eru þeir hvort eð er ekki til.
Niðurstaðan?
Samfylkingarkosningakaffið var best - en það má vera að það hafi ræst úr kosningakaffi sjálfstæðismanna því þeir voru byrjaðir að grilla pulsur þegar ég gekk þar framhjá eftir úttektina á leiðinni heim. Meginniðurstaðan er þó sú að höfuðborgarbúar hafa enga hæfileika til að útbúa almennilegt kosningakaffi. Það kunna þau á Ströndum. Öll framboðin - líka Framsókn.
Ble-si.

Þá er upp runninn dagurinn þar sem ég næ fram ímyndaðri hefnd á ríkisstjórnina fyrir stríðsþátttökuna í Írak og mannréttindabrotin á Falon Gong meðlimunum. Meðan einhver flokkur er til sama hversu stór eða lítill hann er og hefur á stefnuskrá að Ísland hætti þátttöku í NATO og stefni að friðarsamfélagi þá kýs ég hann. Skítt með öll önnur málefni innan þess sama flokks sem mögulega gera mig gremjulegan.
Ble-si
Ble-si
09 maí 2003
Ég er orðinn svo veikur að ég veit ekki hvernig þetta fer hjá mér. Ég sem verð aldrei veikur. Hausinn á mér er stíflaður af kvefi þannig að það liggur engin blóðrás þangað lengur sem orsakar höfuðkveisu, eyrnakveisu, munnkveisu og svei mér ef ekki líka hina allra römmustu reginkveisu. Skelfilegt. Ég held ég liggi í rúminu alla helgina og hreyfi mig ekki þaðan. Ekki spönn frá rassi. Fjárinn.
Ble-si
Ble-si
Ég ætla að minna á Ungann. Frá klukkan 17:00 - 19:00. Allir að mæta sem vettlingi geta valdið. En aðrir sitji heima.
Ble-si
Ble-si
Á morgun verður kosið og þá færist allt í samt horf sem betur fer. Það liggur við að ég voni að ríkisstjórnin haldi - þó það sé ekki nema til þess að stjórnarmyndunarviðræður taki ekki allan næsta hálfan mánuðinn. Það er komið nóg af stjórnmálaumræðu.
Nú fara að verða síðustu forvöð að kynna sér gömul og gegn þjóðráð sem gott er að nota í kosningabaráttunni á Kosningavef Strandagaldurs.

Atli minn á afmæli í dag og er orðinn 18 ára.
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KÆRI VINUR.
Þannig að ég ætla að nota tímann fram að hálftíu, en þá kemur hann ávallt heim í kaffi, til að græja litla afmælisveislu handa honum.
Það er gaman að verða 18 ára, því eins og kærastan hans sagði: Loksins máttu hjóla án þess að nota hjálm.

Ég hef gaman af sjálfstæðismönnum. Bera sig aumlega og segja að það sé alltaf verið að níðast á formanninum sínum ef einhver vogar sér að vera ekki sammála honum. Einn flokkur - ein rödd. Þar skiptir formaðurinn öllu og málefnin engu. Það er ekkert nýtt undir sólinni. Ekki einu sinni stjórnarskipti.
Ble-si
Ble-si
08 maí 2003
Mikið var Davíð nú ótraustvekjandi í lyginni sinni í gær. Maðurinn er náttúrulega lygari af fyrstu gráðu. Þvílíkur viðbjóður að hlusta á þetta kjaftæði. Eða spyrjandinn! Jesús Kristur! Afhverju fór hann ekki bara í sleik við hann?
Kannski hefur hann ekki kunnað við það svona í sjónvarpinu fyrir framan okkur öll.
Hæl Davíð!
Ble-si
Mér var sögð ljót saga af framgöngu stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins frá fyrstu hendi í morgun. Ljót saga og sönn.
Þannig er að hjá RA vinnur kona sem er mikill öryrki - lítil barnssál. Hún er í svo miklu uppnámi vegna þess að undanfarin kvöld hafa hringt í hana ýmsir menn - sumir þjóðkunnir til að segja henni að kjósa D-listann vegna þess að sjálfstæðismenn hafa gert svo mikið fyrir öryrkja til þessa og eigi eftir að gera miklu meira.
Það versta í þessu er að hún er svo hrædd. Hún er hrædd um að það sé fylgst með henni persónulega. Hana langar ekki að kjósa Davíð segir hún af því að hann er svo ljótur. Það er sjónarmið útaf fyrir sig. Hana langar ekki til að fara á kjörstað en hefur svo miklar áhyggjur af því vegna þess að þessir sömu menn sögðu henni, að hún væri skyldug til þess.
Mér finnst ljótt hvernig menn missa sig ávallt í kosningabaráttunni og beita óheilbrigðum aðferðum.
Skammist þeir sín!!
Var það ekki þannig að stóra öryrkjamálið á síðasta kjörtímabili komst í höfn vegna ákvörðum dómstóla - en ekki ríkisstjórnarinnar sem þurfti að éta allt oní sig aftur? Ég man ekki betur.

Þetta fór eins og ég var hræddur um þegar apótekið var opnað hérna niðri. Síðan þá hefur það færst mjög í vöxt að útigangsmenn og rónar séu hér um alla byggingu. Þetta er eiginlega að verða ástand. Á hverjum degi eru 4-7 kallar og kellingar á vappi um stigana og sitjandi á tröppunum. Ekki fallegt ástand. Ég vona að mál Byrgisins og annarra meðferðarheimila verði leist hið bráðasta svo við komum þessum sjúklingum í burtu. Í gærkvöldi ruddist einhver inn í rafmagnsherbergið undir stiganum og sló niður rafmagnsrofunum svo rafmagnið fór af öllu heila klabbinu. Það eru engi smárofar - eins og í skipum held ég. Én ég fann út úr því eftir drykklanga stund og sló þeim inn aftur. Ekki veit ég hvernig þetta væri ef ég byggi ekki hérna.
Fjárans apótekið!
Ble-si
Fjárans apótekið!
Ble-si
07 maí 2003
Ég er glaður með þennan dag. Er búinn að sjá fullt af flottum botnum auk þess sem ég er búinn að finna út hvernig við komum bókinni Angurgapi út. Það er snilld. Það er alveg ljóst að hún kemur út á næstunni ef eftir mínum ráðum verður farið - og ekki nóg með það - heldur ætti ekki að verða nein fyrirstaða að geta greitt fyrir prentunina að langmestu leyti í haust. Ef vel gengur. Það er nú gaman. Svo verða bara allir að muna að kaupa bókina.
Galdur (spilið) er farið í vinnslu. Ég fæ væntanlega sent tilboð á morgun. Vona það allavega. Allt lítur vel út. Yndislegt veður og hlýtt og nýji bíllinn er frábær.

06 maí 2003
Hlynur frændi minn er kominn með nýja heimasíðu. Það er sko fyndinn kall. Alltaf eitthvað bralla og skemmta öðrum.
Ble-si
Ble-si
Jæja best að fara að koma spilinu mikla Galdur í einhverja framleiðslu. Ekki undir 1000 stykkjum til að byrja með. Selja auglýsingar á borðspjaldið til alþjóðlegra fyrirtækja til að kosta fyrstu prentun. Halda svo heimsmeistaramót í Galdri.
Ble-si
Ble-si
05 maí 2003
Ég er nú búinn að gera margt og mikið í dag. Var til dæmis að koma af Hróa hetti þar sem ég át dýrindis kjúklinga file. Það er nú svo. Svo fór ég með bílinn í skoðun eftir að ég lét taka hann af nagladekkjunum og það er ekkert að honum. Fékk að vísu ekki fulla skoðun einhverra hluta vegna. En það lagast þegar búið er að laga það. Ég skrafaði við búningahönnuð í dag og hitti hana síðan í fyrramálið. Það stendur nefnilega til að sauma stemningsbúninga á starfsfólk Galdrasýningarinar. Já já og það held ég. Fullt annað gerði ég sem var ekki jafnskemmtilegt og minnist því ekki á það hér. Dóra fór vestur í morgun sárlasin og Jón kom í staðinn. Það er líka gaman. Hann er mikið fjörugri, miðað við marga aðra sem ég á í samskiptum við dags daglega Í VINNUNNI. En ekki taka það til þín.
Ble-si
Ble-si
04 maí 2003
Alveg er ég með ólíkindum. Annars eins snillingur hefur ekki fæðst hér á jörð. Ferðatorgið hjá mér í dag var þvílík snilld að ég veit vart hvernig á að orða það.
Svei mér þá. Ég veit ekki hvað ætti að gera við mig.
Svo fór ég rakleiðis í fermingarveisluna hennar Eyrúnar sem var þokkalega ágæt. Svona eins og fermingarveislur eru. Setið við borð og úðað í sig kökum og talað "nonnsens" við ættingjana.

Ég sofnaði yfir sjónvarpinu í gær eins og svo oft áður og vaknaði allur í krumpu í sófanum árla morguns. Er búinn að vera ansi duglegur síðan. Vaska upp og standa í allskyns heimilisdedúi. Svo er ég búinn að vinna Vindhana fyrir verkefni Jórunnar og senda henni. Næst á dagskrá er að kaupa fermingargjöf dagsins og undirbúa mig fyrir Ferðatorgið klukkan 15:00 í dag. Kristín Einars og Rósa komu í gær og ég aðstoðaði þær við að uppfæra heimasíðu þjóðfræðingafélagsins. Svo nú bíð ég bara eftir skrautskrifaða skjalinu frá félaginu þar sem það útnefnir mig sem heiðursfélaga númer þrjú fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf í þágu þjóðfræðingafélagsins.
Ég var semsagt bara heima hjá mér í gærkvöldi. Jórunn kom og við ætluðum að gera helling í verkefninu hennar en það varð ekkert úr neinu. Á morgun segir sá lati. En merkilegast af öllu var að hann Atli minn var kominn heim upp úr ellevu og ákvað bara að eyða kvöldinu heima. Svo lokaði hann að sér með kærustunni inni í herberginu sínu.

03 maí 2003
02 maí 2003
Mig langar bara að minna fólk á og að það rifji upp hverjir stóðu fyrir handtökum hér á landi á meðlimum friðarhreyfingarinnar Falon Gong fyrir aðeins 10,5 mánuðum síðan og á fangabúðirnar sem settar voru upp í Grunnskólanum í Njarðvík í kjölfarið og mig langar líka að fólk muni hverjir stóðu að því að setja nafn Íslands við innrásina inn í Írak þar sem fjöldi óbreyttra borgara létu lífið og/eða örkumluðust fyrir lífsstíð í viðleitni Bandaríkjamanna, Breta, Íslendinga og Dana ásamt nokkrum öðrum þjóðum í leit að ósýnilegum gjöreyðingavopnum. Ég er að vísu alveg viss um að þau finnast skömmu eftir að Kanarnir, með okkar stuðningi, hafa komið þeim fyrir og falið vegsummerki okkar.
Mér virðist það vera sem svo að við séum ansi fljót að gleyma. Skoðanakannanir vegna alþingiskosningana síðustu daga segja mér það.
Áfram Ísland!, en með öðrum formerkjum en slagorð Sjálfstæðisflokksins.
Kjósum nýja ríkisstjórn með það eitt að leiðarljósi að þurfa ekki að skammast okkar fyrir að vera Íslendingar.

Í dag þarf margt og mikið að gerast. Borga reikninga, fara með ferðabæklinga af Ströndum á Ferðatorgið, fara síðan á opnunina klukkan 16:00 og þiggja léttar veitingar, sem verður helvítis puð, ákveða hvern fjárann ég ætti að taka uppá klukkan 14:45 á morgun og klukkan 15:00 á sunnudaginn. Svo þarf ég að kaupa bíl.
Ble-si
Ble-si
01 maí 2003
Ég var að taka prófið á Kosningakompás mbl.is
Samsvörun svara minna við svör flokkanna er sem hér segir:
Vinstrihreyfingin - grænt framboð (U) 80%
Nýtt afl (N) 80%
Samfylkingin (S) 77%
Frjálslyndi flokkurinn (F) 76%
Sjálfstæðisflokkur (D) 64%
Framsóknarflokkur (B) 63%
Ég er bara nokkuð ánægður með að Vinstri Grænir tróni efstir. Ég skil bara ekki hvað þetta Nýja afl er að troða sér þarna? Það getur verið vegna þess að ég hef aldrei kynnt mér stefnuskrá þeirra, en ég á heldur ekki á von á að ég muni gera það.
Annars eru niðurstöður í þessum kosningaprófum sem ég hef gert mjög merkilegar. Það má vart milli sjá hvaða flokk ég styð mest samkvæmt þeim. Hvað ætli sé að mér? Afhverju skyldi enginn flokkur höfða algjörlega til mín og afhverju er enginn flokkur sem gerir það alls ekki.

Tilvitnun af Jóns síðu: "Kom heim í gærkveldi og er búinn að sitja við tölvuna og borga reikninga síðan. Börnin eru að fara að horfa á Harry Potter og leyniklefann sem ég gaf þeim, ofsa kát. Ester gaf ég nýja ryksugu og 10 aukapoka. Hún er líka ofsakát (en sefur reyndar enn)."
Jón lætur ekki að sér hæða. Því ætla ég að setja saman skuðhendu með hnykk með undarlegum stuðlum, rímum og höfuðstöfum ættaða frá hirðskáldinu frá Grund í Steingrímsfirði.
Úr kaupstað kemur frár á fæti,
í farteskinu lumar, á verkfæri sem sumar,
spúsur yfir engin kunna læti, og sofa því af einskærri kæti.

Ég er alveg búinn að gefast upp á því að bíllinn minn komist nokkuð í lag aftur. Þar sem ég get ekki verið bíllaus mikið lengur þá er ég búinn að ákveða að gefa hann upp á bátinn og henda honum eða gefa eftir atvikum. Í stað þess ætla ég að fá mér annan bíl sem ég er búinn að festa augun á. Best að gera það bara á morgun. Hér er mynd af honum.
Ég er ekki enná búinn að finna út hvern fjárann ég ætti að taka upp á þessu Ferðatorgi um helgina. Það er slæmt.