08 maí 2003

Mér var sögð ljót saga af framgöngu stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins frá fyrstu hendi í morgun. Ljót saga og sönn.
Þannig er að hjá RA vinnur kona sem er mikill öryrki - lítil barnssál. Hún er í svo miklu uppnámi vegna þess að undanfarin kvöld hafa hringt í hana ýmsir menn - sumir þjóðkunnir til að segja henni að kjósa D-listann vegna þess að sjálfstæðismenn hafa gert svo mikið fyrir öryrkja til þessa og eigi eftir að gera miklu meira.
Það versta í þessu er að hún er svo hrædd. Hún er hrædd um að það sé fylgst með henni persónulega. Hana langar ekki að kjósa Davíð segir hún af því að hann er svo ljótur. Það er sjónarmið útaf fyrir sig. Hana langar ekki til að fara á kjörstað en hefur svo miklar áhyggjur af því vegna þess að þessir sömu menn sögðu henni, að hún væri skyldug til þess.
Mér finnst ljótt hvernig menn missa sig ávallt í kosningabaráttunni og beita óheilbrigðum aðferðum.
Skammist þeir sín!!
Var það ekki þannig að stóra öryrkjamálið á síðasta kjörtímabili komst í höfn vegna ákvörðum dómstóla - en ekki ríkisstjórnarinnar sem þurfti að éta allt oní sig aftur? Ég man ekki betur.
Ble-si

Engin ummæli: