Þetta fór eins og ég var hræddur um þegar apótekið var opnað hérna niðri. Síðan þá hefur það færst mjög í vöxt að útigangsmenn og rónar séu hér um alla byggingu. Þetta er eiginlega að verða ástand. Á hverjum degi eru 4-7 kallar og kellingar á vappi um stigana og sitjandi á tröppunum. Ekki fallegt ástand. Ég vona að mál Byrgisins og annarra meðferðarheimila verði leist hið bráðasta svo við komum þessum sjúklingum í burtu. Í gærkvöldi ruddist einhver inn í rafmagnsherbergið undir stiganum og sló niður rafmagnsrofunum svo rafmagnið fór af öllu heila klabbinu. Það eru engi smárofar - eins og í skipum held ég. Én ég fann út úr því eftir drykklanga stund og sló þeim inn aftur. Ekki veit ég hvernig þetta væri ef ég byggi ekki hérna.
Fjárans apótekið!
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli