02 maí 2003

Mig langar bara að minna fólk á og að það rifji upp hverjir stóðu fyrir handtökum hér á landi á meðlimum friðarhreyfingarinnar Falon Gong fyrir aðeins 10,5 mánuðum síðan og á fangabúðirnar sem settar voru upp í Grunnskólanum í Njarðvík í kjölfarið og mig langar líka að fólk muni hverjir stóðu að því að setja nafn Íslands við innrásina inn í Írak þar sem fjöldi óbreyttra borgara létu lífið og/eða örkumluðust fyrir lífsstíð í viðleitni Bandaríkjamanna, Breta, Íslendinga og Dana ásamt nokkrum öðrum þjóðum í leit að ósýnilegum gjöreyðingavopnum. Ég er að vísu alveg viss um að þau finnast skömmu eftir að Kanarnir, með okkar stuðningi, hafa komið þeim fyrir og falið vegsummerki okkar.
Mér virðist það vera sem svo að við séum ansi fljót að gleyma. Skoðanakannanir vegna alþingiskosningana síðustu daga segja mér það.
Áfram Ísland!, en með öðrum formerkjum en slagorð Sjálfstæðisflokksins.
Kjósum nýja ríkisstjórn með það eitt að leiðarljósi að þurfa ekki að skammast okkar fyrir að vera Íslendingar.
Ble-si

Engin ummæli: