13 maí 2003

Ég veit ekki hvort ég eigi að segja að bloggið sé að virka eða að bloggið sé bara ekkert að virka. Það er þannig komið fyrir mér og mörgum öðrum sem stunda þessar sérstöku dagbókarfærslur að við höfum ekkert að segja við hvort annað. Ég til dæmis upplifa mig stundum eins og ég sé alltaf að endurtaka sjálfan mig.
Það kemur alltof oft fyrir að maður hittir einhvern sér vel málkunnugan og ætlar að leita frétta af viðkomandi eða segja fréttir af sjálfum sér, hvað maður sé að taka sér fyrir hendur eða hvað gangi á í hausnum á manni, að viðmælandinn gónir á mann tómlegum augum og segir snöggt á milli súpuskeiða: Já, ég las það á blogginu þínu, og hefur meiri áhuga á að telja sveppina, brokkólíið eða hvað annað sem finnst á botni skálarinnr. Það er eiginlega þannig komið fyrir hjá mér líkt og hjá öðrum bloggurum sem ég þekki að við sitjum bara og horfum á hvort annað og vitum varla hvernig á að brydda upp á samræðum. Oftast eru viðbrögðin á þessa leið:
"Já ég las það á blogginu þínu."
Í dag þegar ég hitti tvo góða vini mína í Norræna húsinu yfir hádegisverði þar sem stóð til að ræða málin þar sem við höfum nú ekki hitst í nokkurn tíma (edrú) þá fór það eiginlega á þann veg að við sátum hugsandi og horfðum í gegnum gluggarúðuna yfir Vatnsmýrina og reyndum að finna upp á samræðuefni sem gætu kallast fréttir af hvort öðru. Mér fannst það rather vandræðalegt og langaði mest til að hlaupa undir ís á norrænu tjörninni og drekkja mér.
En það er komið sumar svo ég ákvað að gera það ekki að sinni. Mér hefur alltaf þótt það frekar hallærislegt að drukkna í sex stiga hita eða meira. Það væru lélegar slysfarir fyrir flugsyndan mann.
Ég sé það núna að ég hefði getað sagt sögur af því þegar ég var að reykja njóla í Vatnsmýrinni í gamla daga í stað þess að maula síldina af diskinum hljóðalaust og hugsandi. Kannski hefur maður frá helling að segja. Bernskubrekum, gömlum syndum og vonlausum kvennaförum.
Ble-si

Engin ummæli: