Ég er kominn heim aftur eftir góða ferð norður á Strandir. Fór í gær og það var stjórnarfundur hjá Strandagaldri. Margar merkilegar ákvarðanir teknar sérstaklega minnisstæð ákvörðunin um útgáfu bókarinnar Angurgapi.
Það kom útlendingur norður í gærkvöldi til þess að skoða sýninguna. Ég fór í gegnum hana með honum og missti því af upphafi fundarins. Mér tókst að selja honum vörur fyrir sjö þúsund krónur. það var vel af sér vikið - sérstaklega þegar mér tókst að selja honum óútkomna bókina - og fá hana greidda.
Gisti í Bjarnarfirði og drakk nokkra öll með þeim hjúum þar fyrir svefninn. Við skemmtum okkur konunglega yfir Jóni í Sjónvarpinu. Hann var stórkostlega fyndinn og magnaður. Kíkti líka á Matta á Laugarhóli - hann er langt kominn með sýningartextann á frönsku. Það er gott.
Var svo á sýningunni að dedúa eitt og annað í morgun. Fór og fékk mér pulsu og uppgötvaði mér til skelfingar að ég var ekki með debetkortið mitt. Hringdi því í Bauluna þar sem ég notaði þar síðast og var tjáð að það væri komið í Búnaðarbankann í Borgarnesi. Flýtti þá för suður til að ná bankanum fyrir lokun.
Svo hér er ég - kominn heim aftur. Er búinn að færa bókhaldið og allt í orden.
Í kvöld ætla ég að hjálpa Jórunni með margmiðlunarverkefnið hennar. Það lítur vel út hjá henni. Hún þarf engar áhyggjur að hafa og skilar því með bravör á laugardaginn.
Ble-si
p.s. Minni á að það eru aðeins tveir dagar í sýningu Sex í sveit Leikfélags Hólmavíkur í Tjarnarbíói á laugardaginn kemur klukkan 20:30. Allir sem ég þekki að mæta og fara svo í partý á eftir. Meira um það seinna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli