Ég sofnaði yfir sjónvarpinu í gær eins og svo oft áður og vaknaði allur í krumpu í sófanum árla morguns. Er búinn að vera ansi duglegur síðan. Vaska upp og standa í allskyns heimilisdedúi. Svo er ég búinn að vinna Vindhana fyrir verkefni Jórunnar og senda henni. Næst á dagskrá er að kaupa fermingargjöf dagsins og undirbúa mig fyrir Ferðatorgið klukkan 15:00 í dag. Kristín Einars og Rósa komu í gær og ég aðstoðaði þær við að uppfæra heimasíðu þjóðfræðingafélagsins. Svo nú bíð ég bara eftir skrautskrifaða skjalinu frá félaginu þar sem það útnefnir mig sem heiðursfélaga númer þrjú fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf í þágu þjóðfræðingafélagsins.
Ég var semsagt bara heima hjá mér í gærkvöldi. Jórunn kom og við ætluðum að gera helling í verkefninu hennar en það varð ekkert úr neinu. Á morgun segir sá lati. En merkilegast af öllu var að hann Atli minn var kominn heim upp úr ellevu og ákvað bara að eyða kvöldinu heima. Svo lokaði hann að sér með kærustunni inni í herberginu sínu.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli