Ég er glaður með þennan dag. Er búinn að sjá fullt af flottum botnum auk þess sem ég er búinn að finna út hvernig við komum bókinni Angurgapi út. Það er snilld. Það er alveg ljóst að hún kemur út á næstunni ef eftir mínum ráðum verður farið - og ekki nóg með það - heldur ætti ekki að verða nein fyrirstaða að geta greitt fyrir prentunina að langmestu leyti í haust. Ef vel gengur. Það er nú gaman. Svo verða bara allir að muna að kaupa bókina.
Galdur (spilið) er farið í vinnslu. Ég fæ væntanlega sent tilboð á morgun. Vona það allavega. Allt lítur vel út. Yndislegt veður og hlýtt og nýji bíllinn er frábær.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli