11 maí 2003

Jæja, þá liggja kosningaúrslitin ljós fyrir. Þetta var svakalega spennandi á úrslitasprettinum. Ótrúlega spennandi. Síðustu 500 utankjörfundaratkvæðin í Suðurkjördæmi breyttu allri stöðunni. Skyndilega náði stjórnin fimm manna meirihluta en er búin að vera með þriggja manna meirihluta alla talninguna. Mér þykir verst að flokkurinn sem er ekki til í mínum huga hélt sínum þingmannahluta.

O, jæja - skítt með það - gott að þetta er yfirstaðið.
Ég er ánægður með að sjálfstæðismenn fengu sína þrjá menn í Norðvestur. Ég er nefnilega ánægður með Einarana.
Veðrið er svo gott að ég er farinn út að leika mér. Ég fór nefnilega að sofa um klukkan tvö og vaknaði svo hálftíma áður en úrslitin lágu fyrir og er því sprækur eins og lækur.

Kannski ég fari að leita að kríu fyrir Jón og reyni að flæma hana norður. Það er ekki hægt að hafa hann svona kríulausan mikið lengur. Maðurinn er náttúrulega alveg í rusli. Hann er búinn að ráfa um tún og fjörur á landareigninni sinni stanslaust í tvo daga og garga eftir kríunni.
Ble-si

Engin ummæli: