05 maí 2003

Ég er nú búinn að gera margt og mikið í dag. Var til dæmis að koma af Hróa hetti þar sem ég át dýrindis kjúklinga file. Það er nú svo. Svo fór ég með bílinn í skoðun eftir að ég lét taka hann af nagladekkjunum og það er ekkert að honum. Fékk að vísu ekki fulla skoðun einhverra hluta vegna. En það lagast þegar búið er að laga það. Ég skrafaði við búningahönnuð í dag og hitti hana síðan í fyrramálið. Það stendur nefnilega til að sauma stemningsbúninga á starfsfólk Galdrasýningarinar. Já já og það held ég. Fullt annað gerði ég sem var ekki jafnskemmtilegt og minnist því ekki á það hér. Dóra fór vestur í morgun sárlasin og Jón kom í staðinn. Það er líka gaman. Hann er mikið fjörugri, miðað við marga aðra sem ég á í samskiptum við dags daglega Í VINNUNNI. En ekki taka það til þín.
Ble-si

Engin ummæli: