Ég var að taka prófið á Kosningakompás mbl.is
Samsvörun svara minna við svör flokkanna er sem hér segir:
Vinstrihreyfingin - grænt framboð (U) 80%
Nýtt afl (N) 80%
Samfylkingin (S) 77%
Frjálslyndi flokkurinn (F) 76%
Sjálfstæðisflokkur (D) 64%
Framsóknarflokkur (B) 63%
Ég er bara nokkuð ánægður með að Vinstri Grænir tróni efstir. Ég skil bara ekki hvað þetta Nýja afl er að troða sér þarna? Það getur verið vegna þess að ég hef aldrei kynnt mér stefnuskrá þeirra, en ég á heldur ekki á von á að ég muni gera það.
Annars eru niðurstöður í þessum kosningaprófum sem ég hef gert mjög merkilegar. Það má vart milli sjá hvaða flokk ég styð mest samkvæmt þeim. Hvað ætli sé að mér? Afhverju skyldi enginn flokkur höfða algjörlega til mín og afhverju er enginn flokkur sem gerir það alls ekki.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli