09 maí 2003

Ég er orðinn svo veikur að ég veit ekki hvernig þetta fer hjá mér. Ég sem verð aldrei veikur. Hausinn á mér er stíflaður af kvefi þannig að það liggur engin blóðrás þangað lengur sem orsakar höfuðkveisu, eyrnakveisu, munnkveisu og svei mér ef ekki líka hina allra römmustu reginkveisu. Skelfilegt. Ég held ég liggi í rúminu alla helgina og hreyfi mig ekki þaðan. Ekki spönn frá rassi. Fjárinn.
Ble-si

Engin ummæli: