01 maí 2003

Tilvitnun af Jóns síðu: "Kom heim í gærkveldi og er búinn að sitja við tölvuna og borga reikninga síðan. Börnin eru að fara að horfa á Harry Potter og leyniklefann sem ég gaf þeim, ofsa kát. Ester gaf ég nýja ryksugu og 10 aukapoka. Hún er líka ofsakát (en sefur reyndar enn)."

Jón lætur ekki að sér hæða. Því ætla ég að setja saman skuðhendu með hnykk með undarlegum stuðlum, rímum og höfuðstöfum ættaða frá hirðskáldinu frá Grund í Steingrímsfirði.

Úr kaupstað kemur frár á fæti,
í farteskinu lumar, á verkfæri sem sumar,
spúsur yfir engin kunna læti, og sofa því af einskærri kæti.

Ble-si

Engin ummæli: