16 maí 2003

Ágæt mæting í ungann. Áki var fyrstur - svo kom ég og síðan svo kom Óskar með systurnar Loðmfjörð í eftirdragi og Valdimar kom í lokin. Saga - ómælandi stúlkubarn kom einnig, dóttir þeirra hjóna Pálsdóttir/Sigurðsson.
Alltaf þótt erfitt að drekka í návist barna, en lét mig hafa það í þetta skipti.
Fékk mér snarl á leiðinni heim og át það við Reykjavíkurtjörn. Það er líka að verða skemmtileg hefð hjá mér. Það er stund sem ég á með mér einum undir fersku lofti og kvakandi öndum og álftum ásamt öðrum gargandi stélfénaði.
En ég þegi bara og ét og garga því ekkert.
Ble-si

Engin ummæli: