15 maí 2003

Krían er komin til Jóns. Mikið er ég nú ánægður yfir því. Honum er búið að líða afar illa yfir kríuleysinu og var farinn að kenna sér ýmsan krankleika. En hún kom daginn eftir að ég settist undir feld og hugsaði um Jón og kríuna í kveðskapsformi.

Krían ei komin að kjaga burt kjóann
kíta og klóra krakkanna klið.
Klökkur ég kúri í kotinu hlýja
kranklega kallandi hvar ertu kría?

Svo kom krían

Kætist nú kallinn er loks hún á kreik
kraflar úr koti - sér bregður á leik.
Ákallar drottinn með krumlur í kross
krían er komin - með kveðju frá oss.

Ble-si

Engin ummæli: