30 júlí 2003

29 júlí 2003

Ég er ansi glaður - en veit bara ekki yfir hverju.
Galdrasýningin gengur vel - nýji bíllinn fínn - bókin að seljast þolanlega - er nánast búinn að fá fyrir launagreiðslunum um mánaðarmótin - fékk mér öl með Áka í dag - fór á Moggann og græjaði umfjöllun um allt og alla - keypti kassarúllupappír - átti fínan fund í bankanum - keypti meira til að selja í búðinni - undirbjó galdrahringferð um landið í ágúst.
Fullt af fjöri og Jón í heimsókn. Það er fyndið.
Allir að lesa Jón. Hann er í HAM.
Ble-si

22 júlí 2003

Einu sinni þegar ég var ellefu eða tólf ára - man ekki hvort, þá var með mér í Melaskóla, sem er barnaskóli í Vesturbæ Reykjavíkur rauðhærður samanrekinn piltur. Hann var líkamlega mikið þroskaðri en við hinir og var því kominn með hár á punginn löngu á undan okkur og var því frekar spéhræddur fyrir vikið. Strákarnir stríddu honum semsagt af því, en ekki ég. Við vorum raunar ágætis félagar og áttum það til að rabba saman í frímínútum meðan strákarnir voru í fótbolta. Ég hef nefnilega aldrei haft snefils áhuga fyrir fótbolta og alla tíð þótt það leiðindaleikur og fíflalegur. En mér fannst gaman í grjótkasti.
En það er ekki það sem ég ætlaði að tala um.
Ég verð þó að minnast á að einu sinni skoraði ég mark - en það var alveg óvart því ég var ekki með í leiknum. Ég þurfti bara að stytta mér leið í gegnum þessa freknóttu asnalegu strákabjána að stelpunum þar sem þær voru í snú-snú utar á vellinum. En semsagt boltinn kom fljúgandi einhversstaðar frá og lenti í rassinum á mér og þaðan í markið. Það brutust náttúrulega út slagsmál á vellinum því allir héldu að ég hefði verið með þeim í liði og það var deilt um hvort þetta væri sjálfsmark eða mark það sem eftir leið frímínútnanna.
Ég skildi aldrei að það skipti andskotans einhverju máli og lék mér bara vð stelpurnar. Ég var nefnilega skotinn í þeim öllum og þurfti ekki að sparka í vindlausa blöðru til að láta þær falla fyrir mér. Óekkí - ó, nei - ekki hann ég.
Nú nú - en það var ekki það sem ég ætlaði að tala um.
Það var semsagt þessi rauðhærði piltur sem hafði hár á kynfærunum.
Hann æfði glímu. Hann var sterkur og breiður og æfði glímu og hafði gaman af. En það var einn hængur á. Hann var eini glímumaðurinn í gjörvallri borginni sem var tólf ára. Og það var að koma að Reykjavíkurmeistaramóti í glímu.
Þar sem ég var eini almennilegi pilturinn í skólanum og sá eini sem ekki stríddi honum af stríinu neðan mittis þá kom hann til mín í einum frímínútunum um hádegisbil á föstudegi og bauð mér að taka þátt í Reykjavíkurmótinu í glímu sem átti að hefjast morguninn eftir. Það fannst mér fyndið. Að hann skyldi biðja mig - þennan rindil og neitaði algjörlega og þvermóðskulega. Ég ætlaði mér sko ekki ð fara að gera mig að athlægi á einhverju asnalegi íþróttamóti. En ég lét að lokum tilleiðast eftir að hann var búinn að sannfæra mig um að ég fengi örugglega silfurpening um hálsinn.
Það var meira en ég hafði nokkru sinni ímyndað mér að mér tækist svo ég ákvað að slá til. Svo um kvöldið var mér transportað upp í KR heimili og troðið í alltof stóran glímubúning og allt of vítt belti og kennd þessi glímudansspor. Allir glímukáerringarnir voru ofsakátir að rauðhærða vonin þeirra gæti nú keppt á Reykjavíkurmótinu í glímu. Einhvernvegin þá var ég algjört aukaatriði þarna í íþróttahúsinu og öllum var sama þó ég væri eins og undanvillingur í alltof stórri hrútsgæru til fara.
Nú - nú, það var einmitt þetta sem ég ætlaði að tala um.
Svo morguninn eftir þá komu fullt af nautsterkum fílamönnum - nei glímumönnum að heimili mínu og drógu mig nauðugan viljugan upp í einhverja rútu þar sem sungið var við raust allskyns hvatningarkvæði og lög svo það sá oní þind á þessum agalegu hetjum. Rauðhærði pilturinn virti mig eki viðlits lengur, því þarna var hann í góðra vina hópi og orðinn alvöru glímukappi á leiðinni að taka á móti vísum og öruggum gullverðlaunum. Hann stefndi í að verða ógleymanlegur glímukóngur. Þegar kom að þessu íþróttahúsi - sem var við Lindargötu en er nú horfið eftir því sem ég best veit, þá var þessi glímubúningsómynd hengd utan á mig aftur og stuttu síðar þá vorum við rauðki kallaðir fram á vígvöllinn. Pallarnir voru fullir af fólki sem hvöttu sína menn og mig svimaði og sá allt í þoku og heyrði nánast ekkert. Skyndilega heyrði ég kunnuglegan hlátur og góndi upp á þingpallana eða hvað þessir pallar nú heita, og sá þessa ófétans fótboltabullur sem voru komnir til að horfa á mig sippa með stelpunum eins og þeir köllluðu það og létu eins og fífl. Annars staðar sátu prúðar og sætar stelpur með allavega litað hár úr Melaskóla og horfðu á sippuvin sinn og snú-snú gæjann og hvísluðu lágróma einhver hvatningarorð í leðinni til mín.
Skyndilega glumdi helvítis blístran. Sá rauðhærði réðist að mér og greip í glímubeltið sem hékk á einhvern óskiljanlega hátt utan á mér og fór að dansa við mig. Svo ég dansaði bara við hann líka eins og mér hafði verið kennt. Skyndilega fór helvítið að fautast í mér - dangla í mig löppunum svo það fauk í mig og ég ákvað að hann skyldi ekki henda mér í gólfið svo létt. Svo þarna fautaði hann og fautaði og ég svona lipur og léttur stökk einhvernveginn undan öllum spörkunum hælkrókunum og sniðglímunum á lofti og hvað allt þetta heitir. Stelpurnar með sippuböndin voru farnar að láta hátt og allir hlógu og höfðu gaman af. Allir nema rauðhærði glímukóngurinn sem var orðin rauður í framan líka og frussaði á mig. Þetta hélt áfram einhverj stund þar til hann sparkaði svo duglega í sköflunginn á mér að ég féll og meiddi mig í ofanálag.
- Jæja - hugsaði ég. Ég fæ allavega þennan andskotans silfurpening og dröslaðist draghaltur á fætur.
Dómararnir spjölluðu sman og veifuðu öllum öngum til skiptis drjúga stund og rifust eins og einhver hefði skorað sjálfsmark með rassinum. Að lokum gekk aðaldómarinn til okkar - tók í hendurnar á okkur og dró okkur saman út á mitt gólf íþróttahússins - mig draghaltan og Rauðka rígmontinn .
Hvað svo!
Hann lyfti höndinni á mér til lofts til merkis um að ég væri sigurvegari glímunnar. Það hafði verið dæmt víti á rauðhærða loðinklofið. Gott á hann.
Ég var orðinn Reykjavíkurmeistari í glímu og rölti heim með gull um hálsinn með sippu og snú-snú-stelpunum mínum og þær keyptu handa mér grænan íspinna. Hetjunni sinni.
Ble-si

16 júlí 2003

Það er rétt að standa sig svoldið í blogginu. Síðasta helgi var semsagt helvítinu betri fyrir galdrana. Byrjaði á að fara á Leifshátíðina á laugardaginn og rölti þar um svæðið í gríðarlegum galdrabúningi og fór meðal annars með börn upp í hlíð að leita að 18 galdrajurtum, til að lækna óþekkt. Þær fundust og börnin ætla bara að lækna sig sjálf í framtíðinni. Uppistandið um kvöldið var náttúrulega hreinasta snilld og ég brunað á Strandir strax eftir það.

Sunnudaginn var ég svo allan á sýningunni á Draugadagnum. Það var rakin andskotans snilld og mér tókst að draga fleiri tugi manna inn á sýninguna af strætum og torgum Hólmavíkur með góli og djöfulgangi í galdrabúningunm mikla. Þetta gerði mikla lukku og verður endurtekið næstu helgar í sumar.

Brunaði í bæinn á mánudagsmorgun og lá yfir Róbert sem hannar kápu Angurgapa þar til hún var tilbúinn. Það er klárt að bókin verður tilbúin eftir helgi - þriðjudaginn 22. júlí vona ég.
Litla kverið - Ástargaldrar - verður tilbúin fyrir helgi.

Allt búið að vera á fullu - mikið fjör og allt brjálað og aðeins 210 dagar í afmælið mitt.
Ble-si

12 júlí 2003

Einu sinni samdi ég kvæðabálk um bjórinn. Það var þegar hann var að verða löglegur á Íslandi. Hann er einhvernvegin svona:

Bjórinn minn hann er heima
rúminu mínu hjá
unaðslegt er að gleyma
deginum sem fer frá
er ég hjá honum er
þá ylur um mig fer
ó, elsku kassinn minn
sem undir rassinn minn
fer er tómur hann er.

Viskýflaska er á milli
hnésbótanna á mér
ég tappann af henni fylli
og hann að vörum mér ber
núna kenndur ég er
og Bakkus hjálpar mér
að strjúka stúlkuna
fyrir innan úlpuna
nú liggur vel á mér.

Nú er ég orðinn lotinn
því nóttinn hálfliðin er
viskýflaskan er brotin
og bjórkassinn orðinn ber
Bakkus að hverfa mér frá
en stúlkan enn mér er hjá
rjóð og undirleit
grönn en ekki feit
drottinn, hvað geri ég þá?

Loks er fer ég á fætur
rúminu mínu í
höfuðverkurinn lætur
mig finna fyrir því
stúlkan horfin mér frá
hún bætist við mína skrá
brotin dívaninn
tómur ölkassinn
fer undir rassinn minn þá.

Sko til - mundi ég þetta bara!
Ble-si
Ég er vaknaður svo nú ætla ég að fá mér kaffi og hrista á mér hausinn.
Ble-si

11 júlí 2003

Ég fer í gegnum Hvalfjarðagöngin reglulega á nánast hverjum föstudegi. En kemst ekki í dag en verð að fara á morgun. Svona er ég nú óheppinn. Aldrei græði ég neitt. Það er nefnilega ókeypis í göngin í dag af tilefni 5 eða 6 ára afmæli gangnanna.
Ég er viss um að veiðimaðurinn hefur notað fílabyssu á selgreyið. Nema það sé svona oggolítið undir mér.
Ble-si
Á morgun fer ég vestur í Dali og þaðan norður á Strandir.
Verst að ég á engar hreinar nærbuxur.
En ég á selskinn.
Sútað.
Vona bara að riffilskotið sé ekki á röngum stað.
Ble-si
Jæja, best að fara að undirbúa morgundaginn fyrir Leifshátíðina. Það er búið að auglýsa galdramanninn af Ströndum svo gríðarlega í ljósvakamiðlunum að væntingarnar eru orðnar yfirgengilegar.
Ef ég bara vissi hvað ég ætlaði mér.
Allavega - málunum er reddað. Árni bróðir bjargaði mér um bíl svo mér eru allir vegir færir.
Próförkin kom loksins í morgun og ég brunaði með hana í Odda og er búinn að fá í hendurnar seinni próförkina, sem fer norður með Árdýzi í kvöld. Tek hana svo með mér á sunudagskvöld í bæinn - í prentsmiðju á mánudagsmorgun og reyni að herja út prentun fyrir næstu helgi svo bókin komist í sölu a Bryggjuhátíðinni á Drangsnesi. En það er náttúrulega bjartsýni.
Fyrsta smágaldrakver Galdrasýningarinnar er tilbúið í prentun. Það er líka verkefni mánudagsins að díla við Háskólaútgáfu. Ástargaldrar það er málið. Svo eiga ungir menn að ganga með kverið í vasanum og fletta því upp þegar þeir sjá einhverja skæslega og láta svo vaða á súðum.
Skemmtilegt.
Veðrið er indælt og heldur því vonandi áfram.
Ble-si

10 júlí 2003

Það er alveg ljóst að ég fer ekki á þessa Bryggjuhátíð á Drangsnesi þar sem það er alveg ljóst að bókin verður ekki komin. Þessvegna ætla ég mér ekki. Ég er ekki einu sinni búinn að fá próförkina til baka úr Bjarnarfirði, og það er föstudagur á morgun. Þá er eftir að setja inn einhverjar leiðréttingar - koma nýrri próförk norður - bíða í 10 daga og vona síðan að prentdeildin prenti bókina einhverntíman. Svei mér þá. Ég er svartsýnn á að bókin komi út í ágúst. Þvílíkur er hægagangurinn. Makalaust andskotans helvíti.
Keypti blöður með lógói Galdrasýningarinnar og lyklakippur í dag. Það verður að reyna að selja eitthvað annað en bókina fyrst hún er ekkert á leiðinni.
Er ennþá bíllaus og engin líkindi til að það breytist - þannig að ég fer ekkert um helgina. Það er klárt.
Nú fæ ég mér einn lítinn Beck's og grenja smá.
Það er skítkalt og rok og það er vont.
Feginn að ég fer ekki á þessa bryggjuhátíð.
Ble-si
Ég verð að benda á þennan óborganlega brandara á blogginu hennar Árdýzar:

Helen er fyndust í heiminum. Í hádeginu í dag vorum við eh að tala um búskap, það væri gott að eiga nokkrar hænur og kindur og jafnvel belju. Bigga fannst þetta frekar fyndið og fór að stríða Stefáni á því að hann myndi mjólka beint út á skyrið á morgnana. Þá heyrðist í Helen "Oj hrá mjólk"

posted by Árdýz at 12:49


Þetta er æði!
Ble-si

09 júlí 2003

Húrra. Tókst að kría fyrir staðgreiðslu launatengdu greiðslunum. Það er léttir. En nú er ekki til meiri peningur og ekkert hægt að gera. Næst er að safna fyrir lífeyris- og stéttarfélagsgreiðslunum.
Mér sýnist ég komist hvorki lönd né strönd um helgina og verði að aflýsa öllum skemmtunum hér og þar um landið.
Ble-si
Ég fór í Búnaðarbankann í dag með lánsumsókn. Það var gaman. Hún hafði aldrei heyrt talað um verkefnið. Það verður fróðlegt hvað kemur út úr því. Ég ætla ekki að gefa mér neina vonir fyrirfram.
En hún tók af mér loforð að fara yfir málið í jólasveinabúningnum.
Svo hringdi ég í Byggðastofnun - og talaði við forstjórann. Það var vegna þess að ég fékk ekki öll gögn þaðan til baka eins og ég bað um. Hann sagðist hafa haldið eftir ársreikningunum vegna þess að þeir ynnu gjarnan með þannig gögn.
Ég sagði honum að hundskast til að senda mér þá - þeir væru búnir að gefa út yfirlýsingu um verkefnið og þegar og ef við sæktum um lán eða styrk þaðan aftur þá fengju þeir nýja ársreikninga í hendurnar til að fara yfir. Honum væri ekki stætt á að halda hluta gagna eftir.
Ég fæ þau á morgun. Gott á Byggðastofnun.
Aumingjar. - Halda að þeir fái bara ókeypis gögn rétt svona rétt sisona.
Fúll en samt glaður.
Ble-si
Mig langar að benda á þennan viðburð norður á Ströndum um miðjan ágúst sem er ákveðin sárabót fyrir þá sem hafa verið að bíða eftir annarri Galdrahátíð á Ströndum.
---
TÓNLISTARVEISLA Á HÓLMAVÍK
Helgina 15. -17. ágúst verður allsherjar tónlistarveislu við allra hæfi í Bragganum á Hólmavík.
Dagskrá helgarinnar er þessi:

FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST:

RÍÓ TRÍÓ með tónleika í Bragganum kl. 21:00
HLJÓMAR hinu einu og sönnu verða með dansleik sumarsins í Bragganum kl. 24:00

LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST:

KK og Magnús Eiríksson með tónleika í Bragganum kl. 21:00
Ekki er ákveðið hvað verður um að vera eftir tónleikana hjá KK og Magnúsi, en víst er að það verður eitthvað gott.

SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST:
Ólafur Kjartan Sigurðsson
Hinn frábæri tenór heldur tónleika í Hólmavíkurkirkju kl. 14:00 við undirleik Jónasar Ingimundarsonar.

Allar nánari upplýsingar verður að finna á heimasíðu Café Riis og Braggans. Slóðin er
www.caferiis.is
Kær kveðja
Braggaliðið – Hólmavík
S: 451 3567 (Café Riis)
E.s. Ef þú er ákveðin í að koma og ætlar að borða á Café Riis þessa helgi bendum við þér á að panta borð í tíma þar sem von er á miklum fjölda þessa helgi.

---
Af mér sjálfum er annars ekkert að frétta - ég er bíllaus ennþá og sé ekki alveg hvernig ég ætti að snúa mér út úr því. Auðvitað verð ég bara að kaupa mér annan en þar sem ég hef ekki getað borgað sjálfum mér laun í tvo mánuð þá verður að bíða eitthvað með það. En stóra spurningin er. Hvenær skyldi stytta upp og fara að skína sól?
Ble-si

08 júlí 2003

Bölvuð vandræði. Veit svei mér ekki hvað ég ætti að gera í bílaleysismálinu mikla. Það stendur mikið til á næstunni - ferðast víða um og boða fagnaðarerindið um allt land. Ekki geri ég það fótgangandi. Fjárinn hafi það.
Var líka búinn að lofa mér á Leifshátíðina í Dölum á laugardaginn með galdra-hí. Ekki labba ég þangað - það er ljóst.
Slæmt slæmt slæmt.
Á sunnudaginn ætla ég að vera með fjör og grín á Galdrasýningunni klukkan 11:00, 13:00, 15:00 og 17:00. Auglýsi það í atburðadagatalinu.
En? Ef ég kemst hvorki lönd né strönd? Það er allt í voða. Voða voða.
Ble-si

07 júlí 2003

Jæja ég er kominn að norðan. Mikið fjör á sýningunni alla helgina. Komið nýtt trix. Nú kveð ég miður drauga með aðstoð gesta. Það gerir mikla lukku.
Ætlaði suður í gærkvöldi - en hætti sem betur fer við það því bíllinn bræddi úr sér í Borgarfirði. Þar er hann núna. Feginn að ég lagði í hann klukkan sjö í morgun. Annars hefði ég orðið úti í nótt.
Nú er ég semsagt bíllaus - sem er skandali.
Ekki gott. Veit eigi svá gjörla hvað skal gjöra í því.
Ble-si

04 júlí 2003

Furðuleg árátta svo ekki sé meira sagt þegar lögregluembættið á Hólmavík leggst á þjóðveg nr. 1 í þeim tilgangi að fjármagna starfsemina fyrst og fremst. Mjög undarlegt.
"Förum á veiðar á Holtavörðuheiði stráka, og auglýsum okkur svo í útvarpi og blöðum. Nýtum tækifærið á þessari ferðahelgi til að sýna fram á mikilvægi lögreglunnar á Hólmavík".
Ekki það að lögregla sé ekki mikilvæg á Ströndum. Þetta er stórt - mjótt og langt umdæmi með aðeins tvo lögregluþjóna. En að þurfa að leggjast á veiðar og trufla umferð á einni mestu ferðahelgi ársins í þeim eina tilgangi að reyna að sanna fyrir yfirvöldum að það þurfi meira fjármagn í reksturinn er óþolandi. Einnig óþolandi að þessir sömu lögreglumenn segi veginn um Holtavörðuheiði slæman. Eins og þeir hafi aldrei ekið vakandi um hestvagnaveginn á Ströndum
Væri ekki bara nær að minnka umdæmið - láta lögregluna á Blönduósi, Hvammstanga og Borgarnesi sjá um þjóðveg nr. 1 og Hrútafjörð svo lögreglumenn á Ströndum geti snnt sínu umdæmi betur. Trúi ekki öðru en það væri betri nýting á tækjum, fjármunum og mannsskap.
Svo er ég sammála Einari K. Guðfinnssyni að hækka hámarkshraða á þjóðvegi 1. Tek það þó fram að ég hef aldrei verið tekinn fyrir of hraðan akstur.
Ble-si
Ég ætla til útlanda þann 4. ágúst í viku tíu daga. Ef ég get keypt þessa miða sem ég hef augastað á. Verst þykir mér að það lítur út fyrir að það sé búið að selja þá.
Planið er semsagt þetta. Fljúga til Köben og fara þaðan til Berín og vera þar í nokkra daga. Skreppa hingað og þangað þaðan með lestum og bílum. Koma svo heim og halda áfram að túra landið.
Fínt plan.
Vona bara að ég fái þessa miða sem ég hef augastað á. En það eru litlar líkur til þess.
Annar gesturinn minn misstu vitið í gær - þolir ekki pínu mótlæti - en jafnaði sig aftur og skalf og nötraði um hríð. Erfitt að vera svona besservissi. Aumingja maðurinn - ég vorkenni honum ekkert.
Jamm og já.
Ble-si

02 júlí 2003

Kátur og glaður er ég eftir þennan dag. Kom miklu í verk. Galdrabókhald júnímánaðar í góðum málum. Tekjuaukning um 25% miðað við síðasta júní mánuði. Það er gríðarlega mikilvægt.
Fékk tilboð frá Odda í gær í prentun vegna hljóðbókarinnar - sem var langt frá því að vera hagstætt. Fór því í dag til að ræða málin betur. Niðurstaðan að gera það fyrir helmingi minna. Nokkuð ásættanlegt það.
Fékk góða heimsókn í dag sem endaði með uppvaski og hreinu eldhúsi. Það er alveg magnað að það skuli vera hægt að þrífa eldhúsið á 15 mínútum.
Fékk mér mexíkanskan "take away" í kvöldmat. Góður.
Já - já - helvíti fínt. Nú vantar bara miða til útlanda. En það er enginn tími fyrr en seinna.
Er að undirbúa galdraskemmtidagskrá sem ég ætla með í kringum landið í ágúst. Landið allt og Vestfirði líka - hitt Íslandið. Það verður mikið fjör og mikið standöpp og vonandi mikil sala á bókinni sem verður að seljast í hundruðum eintaka næstu mánuði ef Galdrasýningin á ekki að daga uppi sem nátttröll.
Ble-si