22 júlí 2003

Einu sinni þegar ég var ellefu eða tólf ára - man ekki hvort, þá var með mér í Melaskóla, sem er barnaskóli í Vesturbæ Reykjavíkur rauðhærður samanrekinn piltur. Hann var líkamlega mikið þroskaðri en við hinir og var því kominn með hár á punginn löngu á undan okkur og var því frekar spéhræddur fyrir vikið. Strákarnir stríddu honum semsagt af því, en ekki ég. Við vorum raunar ágætis félagar og áttum það til að rabba saman í frímínútum meðan strákarnir voru í fótbolta. Ég hef nefnilega aldrei haft snefils áhuga fyrir fótbolta og alla tíð þótt það leiðindaleikur og fíflalegur. En mér fannst gaman í grjótkasti.
En það er ekki það sem ég ætlaði að tala um.
Ég verð þó að minnast á að einu sinni skoraði ég mark - en það var alveg óvart því ég var ekki með í leiknum. Ég þurfti bara að stytta mér leið í gegnum þessa freknóttu asnalegu strákabjána að stelpunum þar sem þær voru í snú-snú utar á vellinum. En semsagt boltinn kom fljúgandi einhversstaðar frá og lenti í rassinum á mér og þaðan í markið. Það brutust náttúrulega út slagsmál á vellinum því allir héldu að ég hefði verið með þeim í liði og það var deilt um hvort þetta væri sjálfsmark eða mark það sem eftir leið frímínútnanna.
Ég skildi aldrei að það skipti andskotans einhverju máli og lék mér bara vð stelpurnar. Ég var nefnilega skotinn í þeim öllum og þurfti ekki að sparka í vindlausa blöðru til að láta þær falla fyrir mér. Óekkí - ó, nei - ekki hann ég.
Nú nú - en það var ekki það sem ég ætlaði að tala um.
Það var semsagt þessi rauðhærði piltur sem hafði hár á kynfærunum.
Hann æfði glímu. Hann var sterkur og breiður og æfði glímu og hafði gaman af. En það var einn hængur á. Hann var eini glímumaðurinn í gjörvallri borginni sem var tólf ára. Og það var að koma að Reykjavíkurmeistaramóti í glímu.
Þar sem ég var eini almennilegi pilturinn í skólanum og sá eini sem ekki stríddi honum af stríinu neðan mittis þá kom hann til mín í einum frímínútunum um hádegisbil á föstudegi og bauð mér að taka þátt í Reykjavíkurmótinu í glímu sem átti að hefjast morguninn eftir. Það fannst mér fyndið. Að hann skyldi biðja mig - þennan rindil og neitaði algjörlega og þvermóðskulega. Ég ætlaði mér sko ekki ð fara að gera mig að athlægi á einhverju asnalegi íþróttamóti. En ég lét að lokum tilleiðast eftir að hann var búinn að sannfæra mig um að ég fengi örugglega silfurpening um hálsinn.
Það var meira en ég hafði nokkru sinni ímyndað mér að mér tækist svo ég ákvað að slá til. Svo um kvöldið var mér transportað upp í KR heimili og troðið í alltof stóran glímubúning og allt of vítt belti og kennd þessi glímudansspor. Allir glímukáerringarnir voru ofsakátir að rauðhærða vonin þeirra gæti nú keppt á Reykjavíkurmótinu í glímu. Einhvernvegin þá var ég algjört aukaatriði þarna í íþróttahúsinu og öllum var sama þó ég væri eins og undanvillingur í alltof stórri hrútsgæru til fara.
Nú - nú, það var einmitt þetta sem ég ætlaði að tala um.
Svo morguninn eftir þá komu fullt af nautsterkum fílamönnum - nei glímumönnum að heimili mínu og drógu mig nauðugan viljugan upp í einhverja rútu þar sem sungið var við raust allskyns hvatningarkvæði og lög svo það sá oní þind á þessum agalegu hetjum. Rauðhærði pilturinn virti mig eki viðlits lengur, því þarna var hann í góðra vina hópi og orðinn alvöru glímukappi á leiðinni að taka á móti vísum og öruggum gullverðlaunum. Hann stefndi í að verða ógleymanlegur glímukóngur. Þegar kom að þessu íþróttahúsi - sem var við Lindargötu en er nú horfið eftir því sem ég best veit, þá var þessi glímubúningsómynd hengd utan á mig aftur og stuttu síðar þá vorum við rauðki kallaðir fram á vígvöllinn. Pallarnir voru fullir af fólki sem hvöttu sína menn og mig svimaði og sá allt í þoku og heyrði nánast ekkert. Skyndilega heyrði ég kunnuglegan hlátur og góndi upp á þingpallana eða hvað þessir pallar nú heita, og sá þessa ófétans fótboltabullur sem voru komnir til að horfa á mig sippa með stelpunum eins og þeir köllluðu það og létu eins og fífl. Annars staðar sátu prúðar og sætar stelpur með allavega litað hár úr Melaskóla og horfðu á sippuvin sinn og snú-snú gæjann og hvísluðu lágróma einhver hvatningarorð í leðinni til mín.
Skyndilega glumdi helvítis blístran. Sá rauðhærði réðist að mér og greip í glímubeltið sem hékk á einhvern óskiljanlega hátt utan á mér og fór að dansa við mig. Svo ég dansaði bara við hann líka eins og mér hafði verið kennt. Skyndilega fór helvítið að fautast í mér - dangla í mig löppunum svo það fauk í mig og ég ákvað að hann skyldi ekki henda mér í gólfið svo létt. Svo þarna fautaði hann og fautaði og ég svona lipur og léttur stökk einhvernveginn undan öllum spörkunum hælkrókunum og sniðglímunum á lofti og hvað allt þetta heitir. Stelpurnar með sippuböndin voru farnar að láta hátt og allir hlógu og höfðu gaman af. Allir nema rauðhærði glímukóngurinn sem var orðin rauður í framan líka og frussaði á mig. Þetta hélt áfram einhverj stund þar til hann sparkaði svo duglega í sköflunginn á mér að ég féll og meiddi mig í ofanálag.
- Jæja - hugsaði ég. Ég fæ allavega þennan andskotans silfurpening og dröslaðist draghaltur á fætur.
Dómararnir spjölluðu sman og veifuðu öllum öngum til skiptis drjúga stund og rifust eins og einhver hefði skorað sjálfsmark með rassinum. Að lokum gekk aðaldómarinn til okkar - tók í hendurnar á okkur og dró okkur saman út á mitt gólf íþróttahússins - mig draghaltan og Rauðka rígmontinn .
Hvað svo!
Hann lyfti höndinni á mér til lofts til merkis um að ég væri sigurvegari glímunnar. Það hafði verið dæmt víti á rauðhærða loðinklofið. Gott á hann.
Ég var orðinn Reykjavíkurmeistari í glímu og rölti heim með gull um hálsinn með sippu og snú-snú-stelpunum mínum og þær keyptu handa mér grænan íspinna. Hetjunni sinni.
Ble-si

Engin ummæli: