Jórunn hringdi og bað mig um aðstoð við nýja eldavél sem hún var að kaupa - ég rölti þangað auðvitað, enda besti nágranninn minn - svo á hún líka svo assgoti góðan jólasnaps sem er engu líkur og smákökur sem eru barasta bestu smákökur í öllum heiminum og gegna nafninu Sörur. Ótrúlega skynsamar smákökur. Ég get étið þær endalaust
. Við redduðum þessari eldavél auðvitað í sameiningu. Kláraði síðan þetta skráarvandamál og fór svo heim.
Ó, já - svo hringdi kona af Suðurlandi og pantaði galdrakönnur. Það er nú gott. Ég er nefnilega svolítið stressaður yfir sölunni í Galdrabúðinni fyrir jólin.
ble-si.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli