12 desember 2002

Jæja, ég er búinn að taka ákvörðun um næstu skoðanakönnun. Hún fjallar um Byggðasafnið á Reykjum. Ég hef nefnilega undanfarið verið að velta stöðu þess fyrir mér. Mig langar að taka undir það með Jóni Strandaálfi á Kirkjubóli að sveitarstjórnarmenn á Ströndum eru ekki alveg að horfa til framtíðar varðandi Byggðasafnið á Reykjum. Fyrir rúmum 35 árum var tekin ákvörðun um að Strandamenn og Húnvetningar skyldu hafa samstarf með uppbyggingu og rekstri byggðasafns sem væri staðsett á skólasetrinu á Reykjum í Hrútafirði. Í þá tíð stunduðu ungir Strandamenn nám á Reykjum og settu mikinn svip á skólann. En eftir því sem árin hafa liðið hafa þeir sveitarstjórnarmenn sem á eftir hafa komið breytt um áherslur smátt og smátt, þannig að nú er svo komið að það eru engar áherslur eftir í varðveislu söguminja. Ekki veit ég hvað hefur breyst. Er það hugsanlegt að nútímafólk sé svo sjálfhverft að það vilji bara alls ekki leiða hugann að fortíðinni?
Byggðasafnið á Reykjum hefur undanfarin ár tekið stórum breytingum og mælist ég til þess að sem flestir líti þar við og sjái hvaða natni er lögð þar t.d. við hákarlaskipið Ófeig frá Ófeigsfirði á Ströndum - sem er aðalgripur safnsins og sómi þess. Ég leyfi mér að efast um að jafnglæsileg umgjörð væri í kringum það, ef það yrði staðsett einhversstaðar vestan megin við Húnaflóa. Auk þess sem það væri margfaldlega kostnaðarsamara fyrir sveitarfélög á Ströndum. Það skal tekið fram að sveitarfélög á Ströndum hafa alls ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart safninu í fjölda ára. Byggðasafnið á Reykjum er auður sem hægt er að nýta mikið betur en gert er og ég er sannfærður um að Pétur forstöðumaður safnsins er reiðubúinn að taka þátt í hvers kyns sýningarhaldi á Ströndum með munum af safninu, og færa þá þannig "heim". Hefur einhver sveitarstjórnarmaður á Ströndum einhverja hugmynd um út á hvað safn gengur? Það er annað og meira en að stilla upp gömlum hlutum á hillu til sýningar. Mikilvægasti þátturinn og sá minnst sýnilegi er forvarslan sem söfn eru skuldbundin til að sinna. Það er sérfræðikunnátta sem kostar peninga. Annars grotna hlutir bara niður og eyðileggjast og hverfa. Kannski vilja menn það bara og kaupa eitthvað fjöldaframleitt plast frá Suður-Kóreu í staðinn - og benda á það með lotningu og segja:
- Sjáðu, þetta er handsmíðaður askur frá 17. öld - hagleikssmíð ekki satt? Einu sinni voru þeir út timbri en þeir askar eru víst útdauðir.
Eigum við ekki bara að skipta um tungumál líka?

Engin ummæli: