09 desember 2002

Kæru íslendingar.
Þá fer að styttast í það að alvöru jólasveinarnir komi til byggða. Það verður semsagt í þessari viku. Ég er með frábæra tillögu að gjöf í skóinn fyrir okkur fullorðnu börnin, sem hægt er að nota sex daga í röð. Það eru galdrastaup sem hægt er að fá með sex mismundandi galdrastöfum.
Sjá hér.

Þetta er góð hugmynd, og ég mælist til þess að sem flestir kíki við á þessari síðu og panti þar staup í skóinn. Þau verða komin til ykkar fyrr en varir. Skjótar en skugginn. Svo kostar stykkið aðeins 350 krónur. Nákvæmlega sú upphæð sem rúmast í einum meðalskó.
Því jólasveinarnir láta ekki að sér hæða. Til dæmis er þessi jólasveinn svona ofsakátur vegna þess að hann notar galdrastaup frá Galdrasýningu á Ströndum.
Vertu ekki eins og hinir - vertu öðruvísi. Vertu alvöru jólasveinn.
Ble-si

Engin ummæli: