Eins og sjá má þá er komin skoðanakönnun á síðuna mína. Hún fer ósköp sakleysislega af stað - frekar hallærislegt spurning. En þessi spurning verður hér inni allavegu næstu tvo daga. Ég lofa því að næstu skoðanakannanir á eftir verða mun dýpri. Ég vona að sem flestir taki þátt - þó ég hafi ekki hugmynd um hvort nokkur maður líti við hérna. En mér sýnist það samt á teljaranum, en það er spurning hvort það er ekki bara ég sjálfur, þessi kálfur, sem hef komið hingað inn yfir 600 sinnum.
Spyr sá sem ekki veit.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli