Námskeiðið sem ég fór í gær norður á Ströndum var skrítið. En ég held samt að það geri gagn frekar en hitt. Kökurnar voru í það minnsta frábærar.
Ók Magga norður í Bjarnarfjörð og gisti á Kirkjubóli. Ég er að velta því fyrir mér að fara suður á bóginn núna. Er nefnilega svoldið bókhaldsupprifinn eftir námskeiðið.
Hér er skítakuldi og snjór yfir öllu.
Ég þarf líka að velta fyrir mér verkefnum nýs Ferðamálafélags Strandasýslu. Er reyndar byrjaður á því. Þar sem ég geri alltaf það sem ég er beðinn um möglunarlaust - nema ef um spurningakeppni er að ræða.
Ég ætla að leggja það til að félagið heiti Atvinnu- og ferðamálafélagið á Ströndum og að tilgangur þess verði að vinna að margþættri hugmyndavinnu sem stuðlar að fjölbreyttara atvinnulífi á Ströndum. Það þarf að vinna að því röskum höndum að finna leiðir til að fjármagna starf hugmyndaríks, vel menntaðan atvinnu- og ferðamálafulltrúa í fullt starf árið um kring sem sinnir þörfum og kröfum íbúa Stranda.
Félagið þarf að leggja fram og og leita eftir tillögum að verkefnum, stórum sem smáum, orkulitlum og orkufrekum, sem sprautar vítamíni í byggð á Ströndum og einstökum svæðum innan þeirra. Eins þurfa stjórnarmenn nýs félags sem koma úr sem flestum greinum atvinnulífs á Ströndum og hugsa stórt að fylgjast vel með þjóðmálaumræðunni og grípa hvert tækifæri sem gefst til að ná verkefnum inn á svæðið og/eða styrkjum til hverskyns atvinnuuppbyggingar Stranda.
Sú sjálfsagða stefna skal höfð í fyrirrúmi að íbúar Stranda hafi alla möguleika til atvinnusköpunar og lífsrýmis til jafns við aðra íbúa landsbyggðarinnar og skal berjast gegn stefnu stjórnvalda um valda byggðakjarna til undaneldis í framtíðinni. Félagið skal berjast gegn sérhverri hugmynd, hvort sem hún beinist frá stjórnvöldum eða öðrum stofnunum sem stuðla að misrétti íbúa landsbyggðarinnar eftir búsetu.
Íbúar Stranda skulu hafa fullan ákvarðanarétt yfir nýtingu náttúru- og og annarra auðlinda svæðisins í hverju formi sem þær birtast og Atvinnu- og ferðamálafélagið á Ströndum skal berjast gegn sérhverri sértækri aðgerð sem skaðað getur möguleika íbúanna til atvinnusköpunar og mismunað þeim til að afla bjargræðis.
Svo er nú það - læt þessar fabúleringar duga í bili. - Strandir. Stríð gegn stöðnun.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli