29 ágúst 2004

Síðasti sunnudagur í ágúst þetta árið. Galdrasýning er ennþá opin að sjálfsögðu og verður opin til 15. september á hverjum degi frá kl. 10:00 - 18:00.
Áætlunarbíllinn frá Ísafirði í Brú er farinn að stoppa fyrir utan galdrasafnið. Það er gott og þeir eru áhugasamir að halda því áfram næsta sumar. Stöðva rútuna á planinu fyrir utan og gefa farþegum kost á að skoða sýninguna, lífið við höfnina eða að fara á Café Riis í kaffisopa. Meðan þar er opið, en Café Riis lokaði síðasti sunnudag. Það er hörmung.

Farþegarnir sem komu með bílnum í morgun komu allir inn, og gáfu sér tíma til að skoða safnið. Þeir voru frá Póllandi, Þýskalandi og Íslandi. Gaman af því - svo buðum við þeim upp á kaffibolla í lokin. Það var vel þegið. Það þarf að stefna að því að koma upp borðum og bekkjum í galdragarðinum fyrir næsta sumar og einnig á nýju flottu grasflötinni fyrir utan garðinn. Það er bara vonandi að það svæði verði einhverntíman klárað. Það verður að segjast eins og er að starfsmenn hreppsins hafa staðið sig hörmulega í að ganga frá svæðinu. Vinnubrögð sem ég satt að segja botna hvorki upp né niður í.

Núll dagur safnsins í lok ágúst hefur ekki komið ennþá. Það eru ennþá tveir dagar til stefnu með það.

Á eftir er von á rútu með ameríkönum ofan af Velli og þá ætlum við að vera með húllum hæ og fjör.

Þetta er síðasti dagur Skúla á safninu, en hann er búinn að standa sig vonum framar í sumar. Björk er að vinna á morgun og hinn, svo er hún hætt og Alex tekur við og stendur vaktina til 15. september.
Ble-si

Engin ummæli: