Það er farið að húma að kvöldi og ennþá rignir hann. Það er ég ánægður með því þá fer snjórinn í burtu. Því eins og flestir sem til mín þekkja, þá ættu þeir að vita að mér er reglulega og almennt mjög illa við snjó. Sama hvar er hann er niðurkominn.
Ég sótti um nýtt ökuskírteini í dag en það gamla er búið að vera týnt í nærri því átta ár. Það þýddi að ég þurfti að fara á ljósmyndastofu og láta smella af mér passamynd og á henni ég er líkari Láka jarðálfi en sjálfum mér. Ég er meira að segja líkari Láka jarðálfi en Láki jarðálfur sjálfum sér.
Menntamálaráðuneytið er frá - fór þangað sjálfur í minni eigin persónu áður en ég breyttist í Láka jarðálf og afhenti þeim gögnin sem beðið var um. Ég fór líka í Búnaðarbankann og náði í útprentaða greiðsluseðla til að rukka Base Camp í gegnum bankann, því ég lána þeim ekki lengur vaxtalaust.
Ég kláraði greinargerðina og safnaði öllum fylgigögum fyrir Scandinavian Travel Awards og sendi pakkann ásamt því að senda til Berlín prentmálið mikla fyrir Hannover dæmið.
En nú ætla ég að vera reglulega vondur eins og tvífari minn Láki jarðálfur, það sem eftir er dagsins og gera eitthvað reglulega ljótt.
Svo er bara að muna eftir www.skype.com og láta ekki hræðsluáróður fulltrúa símafyrirtækjanna sem tapa stórfé á þessari frábæru símalausn, hafa áhrif á okkur. Ég ulla allavega á þá.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli