Jæja þá á maður bara afmæli í dag. Það er þá óskandi að þessi dagur verði eitthvað frábrugðinn öðrum dögum.
Annars er hann orðinn það nú þegar. Ég man nefnilega ekki eftir því áður á minni löngu ævi að það er ekki skítakuldi eða hríðarbylur fyrir utan gluggann á afmælisdeginum mínum. Mér hefur alltaf þótt það skítt að vera fæddur í febrúar. Hef alltaf frekar viljað vera júlí eða ágúst barn.
Ég er fæddur árið 1961.
Á því ári áttu m.a. þessir atburðir sér stað:
Júgóslavinn Ivo Andric fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum sama ár og ég fæddist
Disney-myndin 101 Dalmatíuhundar var frumsýnd sama ár og ég fæddist
Kennedy varð forseti sama ár og ég fæddist
Nelson Mandela stóð fyrir allsherjarverkfalli í Suður-Afríku sama ár og ég fæddist
Díana prinsessa fæddist sama ár og ég fæddist
Berlínarmúrinn var reistur sama ár og ég fæddist
Luxemburg vann Eurovision sama ár og ég fæddist
Forsíðustúlkur utan á Playboy voru kappklæddar sama ár og ég fæddist
Vinsælasta lagið var Can´t Help Falling In Love með Elvis Presley sama ár og ég fæddist auk þess sem tólf ný frímerki voru gefin út á Íslandi á árinu.
Mér sýnist nú að það standi upp úr að ég fæddist þann 12. febrúar 1961.
Eða hvað?
Ble-si
p.s. Endilega sendið mér svo hamingjuóskir á línunni hér að neðan. Takk.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli