Í gær fór ég í Ráðhúsið þar sem grunnskólar borgarinnar voru að kynna starfið innan veggja skólanna. Megnið af því kom ekkert á óvart, skólar breytast heldur ekki í einni svipan en það var gaman að sjá misjafnar áherslur hjá skólunum.
Svo fór ég á Ingólfstorg ásamt 20.000 öðrum borgurum á mótmælafund gegn fyrirhuguðu blóðbaði Bandaríkjaforseta og forsætisráðherra Breta. Ég hef ákveðið að nefna þá ekki framar á nafn í þessari dagbók, vil ekki saurga hana með því.
Sótti Jórunni á skólasýninguna þar sem hún "by the way" stóð fyrir langathyglisverðasta verkefni sýningarinnar. Við fórum í Ikea og í Vínbúð. Eldaði lambalundir um kvöldið og bauð henni í mat. Það var svona síðbúin afmælisveisla. Vinkonur hennar Bogga og Hrund komu seinna um kvöldið og við drukkum og drukkum. Enduðum á Vínbarnum og ég var orðinn svona frekar framlágur af drykkju tiltölulega snemma svo ég fór bara heim.
Það er svoldið gott að vera með svona innbyggðan ölæðis-stoppara. Ég er alltaf jafnfeginn því þegar ég vakna morguninn eftir því heilsan gæti verið verri.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli