Heyrðu mig nú!
Ég hef bara ekkert skrifað hér inn í gær. Væntanlega hef ég annaðhvort verið æði upptekinn eða afundinn. Undirbjó eintak af Angurgapa - rit um galdramál á Íslandi sem Galdrasýningin stritar í sveita síns andlitis við að reyna að koma út. Ég er kominn með ágætt sýniseintak eftir talsvert bras með prentarann. Afhverju þurfa alltaf hylki að tæmast þegar mikið liggur við?
Spjallaði svo lítið eitt við framkvæmdastjóra Eddu útgáfu hf og við hittumst á morgun og kannski þýðir það að ritið verur gefið út á þessu ári. En kannski hittumst við hinn. Það kemur bara í ljós.
Það er helvíti að sýningin hafi ekki bolmagn til að ráðast í þetta ein. Ég hef nefnilega trú á að þessi bók geti gefið eitthvað af sér. Nóg er spurt eftir henni af gestum sýningarinnar.
Einnig vann ég í fjárhagsáætlunum út frá ýmsum forsendum. Þegar upp er staðið þá lítur málið ekki eins illa út og ég hélt - en það náttúrulega byggist á því að Byggðastofnun komi eitthvað til móts við verkefnið. Annars fer allt til helvítis.
Bráðum fá Tilberar sendan glaðning í pósti. Ég á bara ennþá eftir að finna út lítilræði - hvernig við eigum að bera okkur að við þá sem hafa ekki greitt Tilberagjaldið til þessa. Best væri að þeir greiddu gjaldið og næstbest að þeir segðu sig úr klúbbnum. Þá væri maður laus við að senda fjölda manns póst á hverju ári með öllum þeim kostnaði sem því fylgir. En best er náttúrulega að sem flestir gangi í klúbbinn. Galdrasýningu á Ströndum veitir nefnilega ekki af hverri krónu um þessar mundir. Það er hart í ári hjá smáfuglunum.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli