27 nóvember 2003

Galdrasýningunni stendur til boða húsnæði undir sölubúð fyrir jólin á tveim stöðum í miðborg Reykjavíkur. Annarsvegar við Ingólfstorg og hinsvegar við Þingholtsstræti. Nú fer ég að kíkja á þetta með myndavélina um öxl.

Ég hef trú á því að jólasölumarkaðurinn í miðborginni sé öflugur og að verkefnið geti haft góðar tekjur og kynningu út úr honum.

Það er svona spurning hvað eigi að gera mikið úr þessu - t.d. að bjóða ferðaþjónustuaðilum á Vestfjörðum að vera með gjafakortasölu á gistingu og þjónustu og selja jafnvel vandað strand- og vestfirskt handverk.

Þetta er spennandi. Nú skal bókin seld sem og allt annað.
Ble-si

Engin ummæli: