Á pönnunni er kvöldmaturinn að fæðast. Það verða steiktar fiskibollur með mikið af lauk á salatbeði. Ætli ég velji mér ekki bara bjór af vínlistanum til að skola fiskibollunum, lauknum og salatbeðinu niður í meltingarfærin.
Hvað ég geri svo er ekki ráðið. Líklegast að ég leggist í sjónvarpsgláp.
Svona er nú spennandi að lifa í nóvember.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli