07 nóvember 2003

Strandanornir, bókin hennar Kristínar Helgu Gunnarsdóttur er komin út. Ég mæli eindregið með henni fyrir börn á öllum aldri.

Á kápu bókarinnar segir:

Óboðinn gestur birtist óvænt í árlegri veislu Kolfríðar fyrir framliðna ættingja og vini - ófrýnileg skotta sem skelfir bæði hana og barnabörnin þrjú, Úrsúlu og Messíönu, tíu og tólf ára upprennandi nornir, og Valentínus stóra bróðir þeirra. Til að kveða óværuna niður þarf fjölskyldan að fara alla leið norður á Galdrastrandir á vit fortíðarinnar og sú ferð verður ekki tíðindalaus. í gamla daga var kuklað í hverri vík á Ströndum. Skyldi það vera þannig ennþá?

Fjölskyldan lendir í ýmsum óvæntum ævintýrum á leið norður á Strandir og Kolfríður þarf stundum að taka á öllum sínum galdramætti í ferðinni.

Bókin ætti að vera komin í allar helstu bókabúðir. Eða það vona ég allavega.
Ble-si

Engin ummæli: