Við erum aldeilis búin að taka til hendinni þarna í Grafarvoginum. Í gær fór parkettið á stofuna og flísarnar á eldhúsið, ganginn og forstofuna. Núna er bara eftir að skera slatta af flísum, skipta um borðplötu á eldhúsinnréttingunni og eitthvað smáræðis dúllerí.
Svo geta Veigar og Hafdís bara flutt og stofnað heimilið sitt.
Hoppu- og gleðidansinn hans Veigars er að þróast í einhverskonar krummaballett.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli