Ég borða ekki máltíð á hverjum degi. Oftast er þetta eitthvað nart og mest óhollusta allan liðlangan daginn. Svo er ég iðulega orðinn glorsoltinn um það leyti sem ég hátta oní rúm þar sem sjaldnast eitthvað matarkyns finnst í kotinu og allar búðir lokaðar. En núna borðaði ég kvöldmat og það í fyrra fallinu. Ég eldaði sveskjugraut með rúsínum og miklum rjóma og át munkabrauð með osti með.
Ég er saddur og sæll en langar að gera eitthvað í kvöld. Veit bara ekki hvað það ætti að vera. Nema ég fari í Mál og menningu og hlusti á Kristínu Helgu lesa upp úr bókinni sinni, Strandanornir. Það er aldrei að vita - en nenni yfirleitt ekki að fara neitt einn og fer því sjaldnast nokkurn skapaðan hlut að gera eitthvað svona af viti.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli