Afar óánægður viðskiptavinur Búnaðarbankans hringdi í mig rétt í þessu draugfúll yfir því að hafa ekki fengið samskonar tilkynningu frá bankanum og ég fékk um betri kjör. Ég var hinsvegar afar glaður með þetta þar til það kom í ljós að viðmælandi minn á hinum enda línunnar er búinn að vera með þessi sömu kjör í hartnær tvö ár. Hann kvaddi glaður og ánægður yfir að vera búinn að eyðileggja fyrir mér daginn en ég sit eftir með sárt ennið.
Bankinn er semsagt búinn að vera að níðast á sjálfum mér prívat og persónulega og sérstaklega.
Ég er að hugsa um að skila þessum gljáfægða silfurslegna penna sem fylgdi með í umslaginu með tilkynningunni. Viðmælandi minn er búinn að eiga svona penna lengi!
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli